Vísir - 08.02.1964, Síða 15
V’ÍS'ER . Laugardagur 8. febrúar 1964.
15
7T.t:i
Þeir gengu upp á efri hæðina
og var vísað til sætis í stúku,
og bað Paroli um, að þeim væri
færður miðdegisverður. Og hann
bað um rétti, sem sýndu, að
hann vissi skil á hvað var bezt.
- Já, þú veizt þannig, að ég
er orðinn eftirmaður Griskys.
— Já, og að þekking þín og
leikni hefur þegar vakið undr-
om meðal læknastúdentanna. En
það er svo margt annað, sem
mig langar til að vita. Fórstu
aldrei til London - og ef þú
fórst, af hverju komstu svona
fljótt aftur?
— Ég fór þangað alls ekki.
Og ég get útskýrt það með fá-
um orðum. Þegar ég skildi við
þigr var ég ákveðinn í að fara
og hélt til Norðurstöðvarinnar,
en kom klukkustund of fljótt.
Til þess að mér leiddist ekki bið-
in fór ég inn í kaffistofu, fékk
mér glas og blað til að lesa í.
Þar rakst ég á vinningaskrá Tun
is-happdrættisins, sem ég átti
tvo miða í, og var með þá í
veskinu mínu, og vitanlega fór
ég að athuga hvort ég hefði
unnið, að sjálfsögðu án minnstu
vonar um að hafa unnið, og þú
getur ímyndað þér hve undr-
andi ég var, er ég sá ,að ég
hafðí unnið.
— Ekki stóra vinninginn þó?
— Nei, 200 þúsund franka
vinninginn fékk ég ekki, svo
heppinn var ég ekki, en ég fékk
vinning upp á 50 þúsund franka.
Og ég var ekki lengi að fara og
m3
Snögg ferð gegnum miðalda-
söguna.
fá miðann stimplaðan og inn-
an klukkustundar hafði ég mína
50.000 franka.
— Til hamingju, kæri vinur,
sagði Hannibal, þetta gleður mig
sannarlega ... en hvemig fórstu
að verða eigandi að lækninga-
stofnun Griskys með aðeins
50.000 franka.
— Það er einfaldara mál en
þú hyggur. Það er engu líkara
en vondar örlagadísir hafi verið
orðnar leiðar á að elta mig á
röndum. Ég varð fyrir nýrri
heppni. Ég hélt heimleiðis —
heim í gamla bústaðinn með
peningana mína, en í íbúðinni
voru húsmunir þeir, sem ég átti
í veði fyrir húsaleiguskuld. Allt
í einu var kallað á mig. Það var
Grisky læknir, sem hafði séð til
mín. Hann sat í leiguvagni og
bauð mér að sitja í. Og hánn
spurði mig, er við höfðum rabb-
að svolítið saman, hvort ég
þekkti nokkurn, sem gæti lán-
að 25.000 franka. Ég spurði
hvers vegna. Hann kvaðst eiga
við það, hvort ég þekkti nokk-
urn, sem gæti lánað mér 25.000
franka, því að ef ég gæti lagt
fram það fé skyldi hann selja
mér stofnunina fyrir 250.000
franka, 25.000 út í hönd og hitt
með jöfnum afborgunum á 10
árum. Og skýringin á þessu var
einfaldlega sú, að hann væri
gamall orðinn og þreyttur, ó§k-
aði eftir að draga sig í hlé og
setjast að í sinni kæru Varsjá.
Og hann setti viss skilyrði. í
fyrsta lagi, að stofnunin bæri á-
fram hans nafn, í öðru lagi, að
ég greiddi 25.000 franka út í
hönd. Og þú getur ímyndað þér
hve undrandi hann var, er ég
sagðist ekki þurfa að lána þetta
fé, — ég væri með það á mér.
Og svo ókum við beint til lög-
fræðings hans og gerðum út um
málið. Hvað segirðu nú?
— Að það sé næstum of ótrú-
legt til þess að geta verið satt.
En einstöku sinnum reynist ein-
mitt það ótrúlegasta satt.
- Og svo var í þetta skipti.
Og til þess að sanna mál sitt
dró Paroli upp úr vasa sínum
skjölin, sem hann hafði sótt til
lögfræðingsins. Lesandinn mun
minnast þess, hvernig Paroli
hafði beðið um að gengið væri
frá greiðsluskilmálum á pappírn-
um, þótt hann hefði greitt alla
upphæðina.
— Dásamlegt, sagði Gerva-
soni, er hann hafði lesið sámn-
ingana, dásamlegt, ég óska þér
til hamingju.
— Þegar lukkuhjólið fer að
snúast manni í hag er eins og
það geti ekki hætt að snúast í
rétta átt. Lífið er stundum eins
og gangurinn er í fjárhættuspili.
Hver óheppnin rekur aðra — eða
hver heppnin aðra. Og nú geng-
ur mér allt í vil.
- Er kannski eitthvað fleira
... ?
— Já, ég er að hugsa um að
kvongast indælli stúlku, sem á
800.000 franka og eignast meira
seinna.
- Þetta er alveg - það geng-
ur alveg fram af mér. Af hverju
varstu að draga að segja mér
frá þessu?
- Ég vildi ekki gera það fyrr
en allt væri klappað og klárt
varðandi kaupin — koma þér á
óvart. Og svo ætla ég að koma
með uppástungu.
— Og hver er hún?
— Ég þarf á aðstoðarlækni
að halda, manni, sem getur kom-
ið fram fyrir mína hönd, manni,
sem ég get treyst sem sjálfum
mér. Ég vona, að þú viljir að
minnsta kosti hugleiða, að hætta
í núverandi starfi og koma til
mín. Hvað hefurðu í kaup þar?
- 300 franka á mánuði
— Ég skal greiða þér 500 ' —
og hækka við þig, er frá líður.
- Ég slæ til.
- Hvenær geturðu komið?
- Ekki fyrr en eftir átta daga.
Ég verð að útvega annan í minn
stað. Fyrirvaralaust get ég ekki
farið úr starfinu.
— Ágætt, sagði Paroli bros-
andi, þú skalt sanna, að við mun
um brátt gera alla franska augn-
lækna öfundsjúka. En nú verð-
um við að ganga frá gömlu
skuldamáli - fá það úr sögunni.
— Skuldamáli. Við hvað áttu?
— Hefurðu gleymt hve oft þú
hefur lánað mér peninga?
- Minnztu ekki á það. Við
erum vinir.
— Einmitt þess vegna, — mað
ur má ekki nota sér vináttuna
ranglega, og það væri rangt að
greiða ekki gamlar skuldir, þeg-1
getan leyfir manni að gera það.
En nú skulum við eta, drekka og
vera glaðir.
Hannibal Gervasoni var nú far,
inn að hugsa sem svo, að hann
hefði dæmt þennan vin sinn
ranglega, - þóttist nú sjá bet-
ur en áður hve mikið gott hann
átd til. Gleyminn var hann ekki
í velgengni sinni.
Þeir skildu um klukkan ellefu
og Hannibal lofaði að koma til
hans sem oftast næstu átta daga,
en að þeim liðnum mundi hann
taka til starfa í stofnun hans.
Paroli lagði leið sína til íbúð-
ar sinnar við Courcelles-götuna,
og hugsaði á þá leið, að eini
maðurinn, sem gæti grunað
hann um græsku, hefði nú sann-
færzt um, að allt hefði gerzt
eins og hann hafði sagt honum.
Hið eina, sem gerði hann dálítið
óöruggan nú, var það, hvað þessi
Paul Darnala gæti gert. Hann sá
fram á, að eina ráðið til þess
að koma í veg fyrir, að hann
næði til Cecile, var, að hún
skipti um bústað, og þetta yrði
hann að athuga betur daginn
eftir.
Daginn eftir fór Paroli í hús
stofnunarinriar við Rue de la
Santé nokkru fyrir opnun til
þess að athuga betur herbergin
í byggingunni. Og í einni álm-
unni fann hann litla íbúð, sem
var ætluð auðugum sjúklingum.
Hún var við hliðina á íbúð Gris-
kys. 1 íbúðinni var lítil setu-
stofa, svefnherbergi og snyrti-
herbergi. , r
Paroli skipaði þegar svo fyrir,
að hafa þar allt til reiðu vegna
sjúklings, sem von væri á. Svo
fór hann inn í skrifstofu Grisk-
ys, sem tók á móti honum með
þessum orðum:
— Ég fer þegar í kvöld.
— Hvert? Ekki þó til Pól-
lands?
- Hvert annað. Nú, þegar
allt er um gárð gengið, hefi ég
ekki eirð í mínum beinum fyrr
en ég sé aftur mína góðu gömlu
Varsjá, en ég skrepp kannske
til Parísar að ári, og veit að
þér veitið mér þá húsaskjól, því
að ég mundi ekki vilja búa ann
ars staðar en hér.
- Kæri, herra Grisky, þér vit-
ið að það mundi mér hið mesta
gleðiefni.
Grisky rétti honum nafn-
spjald, sem hann hafði skrifað
á nokkur orð og sagði:
— Hér er utanáskriftin mín
í Varsjá. Skrifið mér við og við
og látið mig vita hvernig gengur.
Ég er viss um, að þér munuð á-
fram hafa heppnina með yður.
- Það skal ég gera, en ekki
er þetta kveðjustund?
JíairoiÁ
JZatioa Krosí
frímtrkitt
T
A
R
Z
A
N
P’OH'T BE AKIGKY AT THEM, NAOMI.
A50UT ALL THE EATUSI TRISE HAS
yLEFT IS THEIR PRiPE...
Dutr. by United Featore Syndicate, inc.
A SATUSI JOKE ON ME! MAMB0,,S0N-0F- WAWA,
SAYS HE'LL AMUSE ALL BATUSIS WHEN HE
RETURNS HOME BY TELLING— HOW HE FOUN7 ,
TARZAN, HI7INS IN 5IS SRASS.„W1TH kWOMAN!
Gbesilegir
bílur
N.S.U. Pr.'nz ’64. Sérstakl.
glæsilegur.
Cbnsul Cortina ’63. Glæsil.
Volkswagen ’62. Fallegur
bíll. Hagstætt verð.
Opel Capitan ’55, nýinnfl.
1. flokks bíll.
Pontiac ’56, mjög fallegur.
Chevrolet ’55, góður bíll.
Mercury ’53, fallegur og
•góður bíll.
RAUÐARA
SKÚLAGATA 55 — SÍMl X58U
Þetta er ættbálkur sem ég vona við þá Naomi, segir Tarzan ró- lega yfir, svarar stúlkan, hvað þeir komi heim, muni þeir segja
að ég þurfi aldrei að veita að- legur, allt sem þeir eiga eftir er er það? Það er Batusa, brandari frá því hvernig þeir fundu Tarz-
stoð, segir Naomi, sem er reið stoltið. Þeir eru að babla eitt- á minn kostnað, þeir eru að an í felum með konu.
út í villimennina. Vertu ekki reið hvað, sem þeir skemmta sér sýni skemmta sér yfir þvf, að þegar
v/Mikiatorg
Sími 2 3136
LAUGAVEGI 90-Q2
Stærstn úrval biff-
reiðu ú einum stað.
SaLi er örugg hjá
okkur.
Bílakjör
Nýir bílar,
Commer Cope St.
BIFREIÐALEIGAN
Bergþórugötu 12. Slmar 13660
34475 og 36598.
Eldhúsborð —
Eldhússtólar
Miklatorgi
1