Vísir


Vísir - 10.02.1964, Qupperneq 8

Vísir - 10.02.1964, Qupperneq 8
8 V í S IR . Mánudagur 10. febrúar 1964 VISIR Otgefandl: Blaðaútgáfan VlSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram. ABstoCarritstjóri: Axel Thorsteinson Préttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiösla Ingóifsstræti 3 Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði 1 lausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 linur) Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Olíuhreinsunarstöð RANDARÍSKT firma hefir lýst áhuga sínum á því að reisa olíuhreinsunarstöð hér á landi. Hefir stóriðju- nefnd rannsakað málið með fulltingi erlendra sérfræð- inga. Niðurstaðan er sú að hagnaður mundi verða af rekstri slíkrar hreinsunarstöðvar og telur nefndin rétt að íslenzkir aðilar eigi meirihlutann í firmanu, svo unnt sé að stofna það samkvæmt gildandi lögum. Við rahnsókn málsins hefir það fram komið að markaður- inn fyrir olíuvörur hér á landi er þannig saman settur að ekki væri tæknilega hagkvæmt að byggja olíu- hreinsunarstöð með það fyrir augum að fullnægja honum einum. Yrði því að flytja nokkum hluta fram- leiðslunnar út aftur, einkum benzín og brennsluolíur. Hins vegar þyrfti eftir sem áður að flytja inn fullunnið verulegt magn gasolíu. JTYRSTA spumingin sem vaknar við umræður um þetta mál er: Hver er hagur þjóðarinnar af slíkri stöð? Þar væri mikilvægast ef slík stöð ylli því að verð á olíum og benzíni lækkaði frá því sem nú er. Hins vegar liggur ekki fyrir að um slíka verðlækkun verði að ræða, eins og fram kom í viðtölum við forstjóra olíufélaganna hér í blaðinu á fimmtudaginn. Munu það mönnum nokkur vonbrigði og ef af byggingu stöðvar- innar yrði ætti að leggja á það höfuðáherzlu að um verðlækkun yrði að ræða, því í því felst meginhag- urinn. Á hinn bóginn er þó nokkur gjaldeyrissparn- aður að því að hreinsa olíuna hér heima, 75 millj. króna fyrsta árið og síðan stighækkandi. Er það aðalkostur- inn vi.ð fyrirtækið að því virðist vera, þó inn verði að flytja gasolíur eftir sem áður, eins og f-yrr var sagt. ]V[EGINRÖKSEMDIN gegn byggingu olíuhreinsunar- stöðvarinnar er hins vegar sú að við það myndu olíu- viðskipti okkar við Rússa dragast mjög saman og jafnvel ljúka með öllu. Það þýðir hins vegar að hætt er við að markaðurinn þar fyrir íslenzkan fisk verði þar mjög lítill, en á síðasta ári fór 20% fiskútflutnings- ins austur fyrir tjald. í sjálfu sér er það lítið harms- efni þótt við hættum austantjaldsviðskiptunum á vöru- skiptagrundvelli. En á hitt verður þó að líta að þau hafa verið útveginum mikilvæg og hann mundi verða settur í nokkurn vanda, ef fyrir þau lokaðist skyndi- lega. Tryggja þarf því vel, að unnt verði að selja fisk afurðir iandsins annars staðar en fyrir austan tjald, áður en endanleg ákvörðun verður tekin um málið. I>AÐ er hárrétt stefna sem stóriðjunefnd hefir mark- að að fá erlend firmu til þess að efla hér stóriðju með íslenzkri þátttöku. Þannig opnast landinu öld nýrrar tækni, nýrra möguleika og nýrra iðngreina, sem gera það blómlegra og byggilegra, er tímar líða fram. En þess þarf vel aS-gæta að þau fyrirtæki, sem við bjóð- um landvist séu til sem allra víðtækastra hagsbóta á sviði verðmyndunar, gjaldeyrissparnaðar og atvinnu- aukningar. Það er sá mælikvarði sem jafnan þarf á þau að leggja. Hvers vegna kirkja Hall- gríms er á Skólavörðuhæð 'C'östudaginn 31. jan s. 1. birtir dagblaðið Vísir grein eftir Egil J. Stardal. Ber hún heitið Skólavörðuholtið og sr. Hall- grímur. Hafði hún áður verið birt I áramótablaði stúdenta, en höfundi ekki iíkað frágangur hennar, og er hún 1 VIsi eins og hann hefir sjálfur gengið frá henni, fágað hana, aukið og end- urbætt. Hann fer mörgum orð- um, ekki þó fögrum, um kirkj- una sem verið er að byggja og Alþingi, sem veitti nú nýlega fé til hennar. Hann kemst svo að orði, að Alþingi hafi sýnt „meiri háttar léttúð með þessari fjár- veitingu og fleygi heilli milljón I hússkrimli sem teygir ófull- gerðar angalýjur mót himni, af beztu útsýnishæð Reykjavíkur“. Telur hann að byggingin verði geymd eins og góð skrýtla, kom andi kynslóðum til aðhláturs". Svo spyr hann: Hvaða erindi á sr. Hallgrimur á Skólavörðu- holtið? Hann sem lifði I fátækt og dó úr holdsveiki, og af flest- um yfirgefinn, I koti einu uppi á Hvalfjarðarströnd. Hann hefir sjálfur reist sér óbrotgjarnan minnisvarða með slnum dýrð- iega sálmakveðskap og er vafa- mái hvort nokkur þörf er á að reisa honum eitt eða annað minnismerki. — Það mætti koma fram með aðra spurn- ingu: Hvaða erindi átti sankti Páll til London? Hann sem sat löngum I fangelsi og I fjötrum, marghúðstrýktur og ofsóttur, og loks hálshöggvinn suður I Róm. Eiga þeir ekki báðir eitt og sama erindi? Hvorugum þarf að reisa minnisvarða, þvl báðir hafa reist sér óbrotgjarnan varða, og við báða eru menn I þakkarskuld. En stundum kem- ur það fyrir að menn langar til að sýna þakklæti I verki, kem- ur það fram á ýmsan hátt. Þjóða leiðtogum, skáldum og lista- mönnum sem skara fram úr, eru oft reist minnismerki, ýmisleg að gerð, trúarhetjum einnig, og þá oft kirkjur. Greinarhöfundi finnst fjarstæða að reisa sr. Hall grimi minnismerki I Reykjavík af því að hann var ekki Reyk- vlkingur. En var Páll postuli kannske Englendingur? Það er nú mál til komið að fræða greinarhöfund um það hvaðan hugmyndin um Hall- grlmskirkju er runnin. Hún er áreiðanlega ekki komin fram I neinum Hallgrímssöfnuði, því hún er a. m. k. 27 árum eldri en hann. Árið 1914 voru 300 ár liðin frá fæðingu Hallgríms Péturs- sonar. Þá sendi biskup íslands, Þórhaliur Bjarnarson, öiium prestum landsins bréf, og mælir svo fyrir að sr. Hallgríms verði minnzt við guðsþjónustu I öil- um kirkjum landsins tiltekinn sunnudag, sem og var gert. Þar með var til þess mælzt að sam- skot verði hafin til byggingar veglegrar kirkju I HÖFUÐSTAÐ LANDSINS og verði hún nefnd Hallgrímskirkja; var Skólavörðu hæð fljótt nefnd sem tilvalinn staður handa þessari kirkju. Þetta fékk góðar undirtektir og samskot hófust. En því miður komu fljótt hindranir I veginn, stríðið nýskollið á gerði strik I reikninginn, og annað kom I ljós, kirkjunni engu betra, það var okkar gamli fylgifiskur, sundrungarandinn. Nú skiptust menn 1 tvo flokka, sumir vildu Hallgrímskirkju I Reykjavík, aðrir I Saurbæ. Þetta var það sem aðallega hindraði fram- kvæmdirnar, og var þæft um þetta I mörg ár. Þó var Skóla- vörðuholtið alltaf ætlað stórri kirkju, og Hallgrímsnafn átti hún að bera. Svo kemur að því að Reykja- vík var skipt I sókðir, en það er árið 1941. Þá lendir eðlilega Skólavörðuholtið og nágrenni i þeirri sókn, sem Hallgrímsnafn- ið átti að bera og hlaut end- anlega þetta nafn. En að þeir, sem á þessu svæði eru, séu öf- undsverðir af því, er annað mál. Þeir fá hnútukast úr öllum átt- um, frá þeim sem ekki þekkja málið og hafa ekki hirt um að kynna sér það, en þurfa að láta allt til sín taka. Þeim er næst- um þröngvað til að standa fyrir byggingp, sem aldrei getur orð- ið safnaðareign, heldur alþjóðar. Við þvl er auðvitað ekkert að segja, ef þjóðin vildi skilja, hvernig málum er háttað. Bygg- ingunni hefir þegar miðað nokk- uð áfram, og gjafir hafa borizt margar og stórar. En þvl miður er „sundurlyndisfjandinn" ekki ennþá kominn „út á sextugt djúp“, eins og skrif stúdentanna bera vott um. Þeir hafa nú sofið svefni réttlátra I rúm 20 ár og aldrei hefir bólað á verulegum áhuga hjá þeim á kirkju og kristindómi, svo menn viti, því líklega er það ekki „Kristilegt stúdentafélag" sem hér um ræðir? Það skyldi ekki vera þessi heila milljón sem hefir vakið þá? Það má auðvitað vakna við minna. En hefðu þeir hrokkið við ef milljónin hefði verið ætluð einhverju öðru en kirkju? Tæplega. — Að líkan Hallgrímskirkju sé ljótt, má lengi deila um, þó eru fjölmarg- ir sem finnst það mjög fallegt. Það er vert að taka það fram, að Einar ^Fónsson myndhöggv- ari hefir latið sér sæma að gefa Hallgrímskirkju fagurt Kristlíkn eski, sem hann ætlaðist til að stæði yfir altari, og má leiða getur að þvl, að hann hefði ekki gert það, ef honum hefði fundizt kirkjulíkanið vera „skrímsli" eða „skrýtla", það annt var honum um sln lista- verk. — Kirkjan þykir of stór, og enn er hamrað á þvl I tima og ótlma og Borgin og Apótekið eiga að sanna það, við saman- burð. En hvers vegna má þjóðin ekki eiga eina stóra kirkju? Það er þó margreynt að Dóm- kirkjan er iangtum of lítil við ýmsar athafnir. Tónlistarmenn segja að vanti stóra kirkju til hljómleika, hvers vegna má ekki byggja slika kirkju, hvað er betra að byggja sérstakt hús til þess? Og hvers vegna þarf þjóðin að fá leyfi þeirra sem engar kirkjur né presta vilja hafa, til þess að byggja kirkj- ur. — Maður kemst ekki hjá þvl að finna það út úr grein E. J. S., að eiginlega þurfi hvorki kirkjur né presta á þessari jörð, og alveg óforsvar- anlegt að byggja kirkjur fyrr en Frh. á bls. 7. ■itíii

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.