Vísir - 27.04.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 27.04.1964, Blaðsíða 4
4 V í S I R . Mánudagvu- 27. apn'i 1384. RÆKTUNARSAMBÖND VERKTAKA Er HY-MAC 580 ekld vélgrafon sem þér hafið verið að bíða efíir? HY-MAC HY-MAC 580 grafan með vökva-afl- færslu til allra hreyfihluta. Aðeins ein- föld vökvadæla og vökvastrokkar í stað niðurfærslu tannhjóla, flókins hemla- búnaðar, víra, trissa og tengja. HY-MAC 580 er afkastamikil vélgrafa, en þó létt og meðfærileg í flutningum. — Flatarþungi HY-MAC 580 gröfunnar er ekki nema 0.28 kg/fercm., sem er minna en flatarþungi meðal manns. - Grafan getur því farið yfir og unnið í blautum mýrum. Með gröfunni er hægt að fá 7 mismunandi skóflur, 4 krábba af ýmsum gerðum, grjótplóg og ýtublað. — Brotkraftur á skóflu er 17000 kg. HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F. LAUGÁVEÍ 170-172 - SÍMAR 11277 & 21240 UMTURNUN Á ÓPERETTU ÞJÓÐLEIKHÚSSINS Leiðbeiningastöð um vandamál hjúskapar Það hefir töluvert gengið á undanfarið í sambandi við æfing ar og undirbúning á óperettunni Sardaíurstinnunni, sem Þjóð- Ieikhúsið ætlar að fara að sýna. Umskipti urðu þegar ungverski hljómsveitarstjórinn Istvan Szal atsy kom hingað í síðustu viku til að stjórna þessari óperettu. Hefir hann m.a. ákveðið að taka Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu Nýtt siúkrahús í Húsavík Fyrsta skóflustungan að nýju tveggja hæða sjúkrahúsi var ný Iega tekin á Húsavík. Það hefur Iengi verið knýjandi nauðsyn að fá þar nýtt sjúkrahús, sökum þess að hið gamla er orðið of Iítið. Nýja sjúkrahúsið, sem verð ur 600 fermetrar að stærð og mun hafa 30 rúm, verður reist við hliðina á þvi gamla, sem mun standa eftir sem áður. Yf- irsmiður við nýju sjúkrahúss- bygginguna er Sveinn Ásmunds son, en yfirlæknir á sjúkrahús- inu er Daníel Daníelsson, sem jafnframt er héraðsiæknir. og Bessa Bjarnason, leikara, í hlutv. sem Svala Nielsen söngk. og Ketill Jenss. söngvari höfðu verið ráðin í, telur að f þessi hlutverk þurf; fremur leikara en söngvara. Þetta gerir að sjálf- sögðu strik í reikninginn, bæði fyrir Þjóðleikhúsið, sem hafði gert samning við söngvarana, og einnig fyrir þá sjálfa. Maður hafði verið fenginn til þess að þýða óperettutextann á íslenzku f vetur samkvæmt hand riti sem Þjóðleikhússtjóri hafði fengið frá Stokkhólmi, að tilvís an Weinberger í Vínarborg, sem á sýningarréttinn. Þjóðleikhús- stjóri réð síðan fólk í öll hlut- verkin og var búið að æfa um skeið er ungverski hljómsveitar stjórinn kom. En hann tfom með allt aðra og betri útgáfu af óper- ettunni upp á vasann, að því er hann telur sjálfur, og vill ekki frá hennj hvika. Það olli þessari umturnun á söngvurum og leikurum, að því er haft er eftir þjóðleikhússtjóra. Og ekki nóg með það heldur varð nú að fara að þýða óperettutextann upp að nýju nema söngvana og hafa fjórir keppzt við það undanfarið og hjálpast að, sá sem þýddi fyrri útgáfuna, hljóm sveitarstjórinn, Gfsli Alfreðsson leikari og ungverskur maður, bú settur í Rvfk. Þennan nýja texta verða nú leikararnir að lsera og gleyma þeim gamla og allt í rauninni að hefjast á nýjan leik. Aðalhlutverkin f þessari óper- ettu verða sungin og leikin af Erlingi Vigfússyni (Edvin) og ungverskri söngkonu, sem fer með hlutverk Sylvu. Nýtf útibú Búnaðarbankans Að undanförnu hafa staðið yflr samningar milli Búnaðarbanka ís- lands og Sparisjóðs Stykkishólms um að bankinn setti upp útibú í Stykkishólmi og yfirtæki jafnframt viðskipti sparisjóðsins. Hafa nú samningar um þetta efni verið staðfestir af báðum að- ilum. Má gera ráð fyrir að útibúið taki til starfa um mánaðamótin júnf — júlí. Er þetta fyrsta bankaútibúið á Vesturlandi. Félagsmálastofnunin undir for ustu Hannesar Jónssonar félags- fræðings hefur nú byrjað rekst- ur ráðleggingarstöðvar um fjöl- skylduáætlanir og hjúskapar- vandamál. Er hér um merka nýj- ung að ræða, en athuganir á f jölskyldumálum Islendinga hafa leitt í ljós, að hér er um mikil vandamál að ræða og mikil þörf Ieiðbeininga. Það verður m.a. hlutverk ráð- Ieggingarstöðvarinnar, að gefa Ieiðbeiningar um getnaðarvarn- ir. En á því sviði virðast ís- Iendingar mjög skammt komnir, sem sést m. a. af þvf að um 56 prósent frumburða fæðast ó- skilgetnir hér á landj og af þeim eru nær 40% fæddir af ógiftum mæðrum á aldrinum 15 — 19 ára. Sýná þessar tölur glögglega þá þörf sem er hér fyrir fræðslu á sviði getnaðarvama, en f öllum menningarlöndum þykja þær sjálfsagðar og eðlilegar. Ráðleggingarstofnunin verður opin á hverjum mánudegi milli kl. 4 og 6 síðdegis í húsi laun- þegasamtakanna við Lindargötu. Hún á að starfa i tveimur deild- um. Annars vegar deild, sem veitir leiðbeiningar um fjöl- skylduáætlun og frjóvgunarvarn ir. Hins vegar sáttaþjónustu vegna hjúskaparvandamála. Þó Félagsmálastofnunin bejti sér fyrir stofnuninni telur hún það ekki sitt hlutverk að reka slíka ráðleggingarstofnun. Þess vegna hefur þjóðkirkjunni verið boðin hún til eignar og reksturs, ef hún vill taka við henni og þar með á sig það hlutverk að leitast við að fullnægja þeirri þörf fólksins t landinu, sem er fyrir slíka stöð. Standa vonir til þess, að af því geti orðið. Framluktir speglar og gler í: Austin, Bedford, Commer, Ford Anglia, Consul, Prefect, Zephyr, Zodiac, Ford 8 — 10 h. p. Hillman, Humber, Landrover, Morris, Singer, Standard, S M Y R I L L , Laugaveg 170 . Símj 1-22-60

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.