Vísir - 27.04.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 27.04.1964, Blaðsíða 5
5 VÍSIR . Mánudagur 27. apríl 1964. Dauðsföll — Framh .af bls. 1. dómavarnarfélag íslands og verði félagið deild innan þess. 1 2. grein félagslaganna segir svo: Tilgangur félagsins er bar- átta við hjarta- og æðasjúkdóma útbreiðslu þeirra og afleiðingar. í baráttunni við þessa sjúkdóma hyggst félagið m.a. beita þessum ráðum: 1) að fræða almenning um allt, sem varðar einkenni þess- ara sjúkdóma, hvernig þá skuli varast og hvernig við þeim skuli bregðast. 2) að stuðla að auknum rann- sóknum á þeim hériendis. 3j að vinna að aukinni sér- menntun Iækna í þessum efnum. 4) að vinna að bættri sjúk- dómagreiningu og sjúkdómameð ferð á þessu sviði með útvegun fullkominna lækningatækja og kaupum á þeim. 5) að veita fjárhagsaðstoð sjúklingum, sem haldnir eru lík um sjúkdómum og leita þurfa til útlanda til aðgerða. Félagar í Hjarta og æðasjúk- dómavarnafélagi Reykjavíkur geta orðið einstaklingar, félög og stofnanir, sem þess æskja og greiða tilskilin gjöld. Stjórn félagsins skipa fimm menn. í fyrstu stjórn voru kosnir: Eggert Kristjánsson stórkaup- maður, Ólafur Jónsson fulltrúi Iögreglustjóra, Pétur Benedikts son bankastjóri, Sigurður Sam- úelsson prófessor og Theódór Skúlason yfirlæknir. Eins og fyrr segir var mikill áhugi ríkjandi meðal fundar- manna. Flest allir þeirra gengu í félagið á fundinum, en áskriftarlistar verða einnig látn- ir liggja S-ammi á stöðum, sem auglýstir verða næstu daga. Arös — Framh. af bls. 12. með honum í Slysavarðstofuna, og kváðust þeir mundu gera það. En áður en varði höfðu þeir tekið eins og byssubrenndir til fótanna og hurfu honum sjón um út í náttmyrkrið. Lögreglan var látin vita um atburðinn og skýrði hún Vísi svo frá -að maðurinn hefði verið með sár á höfði, mjög mikið glóðarauga og meiddur á hendi. Eftir aðgerð í Slysavarðstofunni var hann fluttur í Borgarsjúkra húsið. Hinn slasaði var kominn til rænu í gær, en mundi ekkert af þv£ sem gerzt hafði, enda mun hann hafa verið undir á- hrifum áfengis í fyrrakvöld. Veski mannsins fannst í bif- reiðinni, en í það vantaði 1500- 2000 krónur að hann taldi. Lög- reglan hefur mál þetta til með- ferðar sem stendur, og er hún vongóð um að hafa uppi á sökudólgunum. önnur fruntaleg árás var gerð á mann í fyrrinótt, en það varð honum til happs hvað árásar- maðurinn náði illa til hans. Þessi atburður varð í húsi einu við Ásvallagötu á fimmta tímanum í fyrrinótt. Þá var dyrabjöllunni hringt ákaft og roskinn maður fór til dyra að vita hverju þetta sætti. Opnaði hann dyrnar, en þó ekki nema í hálfa gátt, því öryggiskeðja var fyrir innan, sem útilokar það að maður komist inn nema hún sé dregin frá. Útifyrir stóð beljaki mikill og spurði eftir stúlku, sem þó var ekki til í húsinu og tjáði gamli maðurinn honum það. Aðkomu- maður kvað hana víst vera í húsinu og ætlaði að ryðjast inn, en komst ekki vegna öryggis- iiiftfiírtfWttirihtHj: iiHmwHmtip: Himi.iin .imirufitiii Hi ;m«fu.i*H!HiHi;:i “!H'>‘‘‘li;il!!l,M|i>lnHlii Skemmdarverk, sem unnið var í Kaupmannahöfn aðfara- nótt laugardags hefur vakið al- menna undrun og gremju i Dfmmörku og víða um lönd, í biiVngu veittu vegfarendur á Löngulínu því athygli að höfuð ið vantaði á myndastyttuna heimsfrægu af hafmeynni litlu („Den lille Havfrue“) sem gerð er í minningu um samnefnt ævintýri H.C. Andersen og æv- intýraskáldið sjálft, en mynda- styttuna gerði Edvard Eriksen myndhöggvari 1913. Vakti hún þegar mikla hrifni vegna þess yndisþokka, sem yfir henni var og smám saman var farið að líta á hana hvarvetna sem tákn Kaupmarinahafnar, enda eiAhún eitt hið fyrsta sem ferðamenn er sjóleiðis koma til borgar- innar, koma auga á, og á fáum stöðum munu eins margir ferða- menn, innlendir og erlendir, taka rnyndir eins og á Löngulínu þar sem styttan er. Skemmdarverksmaðurinn hafði greinilega notað þjöl til þess að ná höfðinu af. Lögregl an girti af svæði þarna meðan leit fór fram, en hún bar ekki árangur. Slætt var við Löngu- línu en höfuðið fannst ekki þar. Ekki hefur enn svo vitað sé tekizt að hafa upp á skemmda- verkamanninum, og hafa komið fram getgátur um, að hann hefði haft höfuðið á brott með sér. Þegar er kunnugt var um skemmdarverkið þyrptust menn til þess að taka mynd af stytt- unni höfuðlausri, en annars hafa þegar verið gerðar ráðstaf anir til þess að steypa á hana nýtt höfuð. Verk skemmdarvarganna í Kaupmannahöfn, sem söguðu höfuðið af „litlu hafmeynni“ við Löngulínu hefur vakið mikla lil reiði um öll Norðurlönd og jafn vel víðar. Hefur þeim, sem verð ur til þess að óþokkamir nást eða höfuðið finnst, verið heitið allt að 3000 d. kr. Á laugardagskvöldið um kl. 7.30 kom bíll frá Falck björg- unarfélaginu og tók hafmeyna og steininn, sem hún hvílir á, en h^nn er um tvö tonn að þyngd, og var styttunni ekið í bronzsteypu þar sem viðgerð fer fram, og er áætlað að nýtt höfuð verði komið á hana eftir 6 vikur. Illii rt'- r ( ' r " W: ' 1. •á l^L b, “ ^ ‘í*". 1 ' r " jbíí' ri* - ' ■ • '1 ■ *\ ' . - *’■'' r"s' . ■ i'r\ r • 1 ' • ' •■.•■'. -HnlrtlHH'lH'nlH^fTHllrtrtllHlrtrtump i * w ^ - J ••" ! Þarna er „litla hafmeyjan" eftir hið svívirðilega verk skemmdarverkamanna. í baksýn er skólaskútan DANMARK. keðjunnar. náði hann samt til gamla mannsins, m. a. I hár hans, reif það og sleit, hann náði í hendina á honum, sneri upp á hana og meiddi hann. í þessu harki áttu þeir I heila klukkustund, án þess þó að mað urinn kæmist inn. í bræði sinni braut hann rúðu í hurðinni, en snautaði að því búnu í brott. Gamli maðurinn var hins vegar mjög miður sín á eftir. Málið er nú í rannsókn. Deilir harðlega - Framh. af bls. 12. Séra Bjarni Sigurðsson bendir á að mörgum hafi hnykkt við þegar nýkjörinn prestur hér í Reykjavík benti á að fleira fólk ' væri í einu húsi i sókn hans en í sveitaprestakallinu öllu sem hann hafði þjónað. (Ummæli sr. Sigurðar Hauks í Langholts- prestakalli). Segir séra Bjarni að presta bresti verkefni í hinum fá- mennu prestaköllum en á sama tíma séu önnur prestaköll of fjölmenn til að nokkur prestur geti gegnt þeim sómasamlega, nema ofbjóða starfsþreki sínu. í einni sýslu séu t.d. sjö þjón- andi prestar, allir á bezta aldri og áhugasamir. En samanlagður íbúafjöldi þessara prestakalla sé ekki einu sinni þriðjungur þess sem er í fjölmennasta prestakalli landsins þar sem einn prestur þjónar. „Hvaða stofnun önnur en ís- lenzka þjóðkirkjan hefur efni á að sóa starfskröftum sínum á þennan hátt?“ spyr séra Bjarni. „Eða hefur hún kannski ekki ráð á þvi heldur? Og ef svo er ekki, eftir hverju er þá Hingað til lands hefur verið flutt ný gerð af vélgröfu. Er hin nýja grafa vökvastýrð og mjög auðveld í meðförum. Það er Heildverzlun- in Hekla er flytur vélgröfuna inn og bauð Sigfús Bjarnason forstjóri blaðamönnum að sjá gröfuna vinna sl. laugardag. Hin nýja grafa er frá Hydraulic Machinery Company Ltd. í Bret- landi og nefnist HY-MAC 580. ,Hún er vélknúin með vökvatil- færslu til gröfuarms, drifbúnaðs og hemlakerfis. Er aflfærslubúnaður beðið með að kippa í liðinn?... Mönnum er ljóst að nátttröllin dagar uppi fyrr eða síðar" Sýning á feikning- um Ormars Þórs Byggingaþjónusta Arkitektafélags íslands hefur nú opnað sýningu á teikningum Ormars Þórs Guðmunds sonar að gagnfræðaskóla á Sel- gröfunnar mörgum sinnum einfald ari að allri gerð en venjulegur mekaniskur búnaður. T.d. hefur HY-MAC enga víra, trissur, niður færslutannhjól, tengi, tromlur, tromlubremsur né flókinn stjórn- búnað. I stað slíks útbúnaðar kem- ur vökvadæia, vökvastrokkur og einfaldur og fljótvirkur stjórnbún- aður á HY-MAC 580 HY-MAC 580 var að grafa á Klambratúni, er blaðamenn litu á verkfærið. Vakti það mikla athygli viðstaddra hve afkastamikil grafan fossi, en Ormar hlaut bæði 1. og 2. verðlaun í samkeppni um teikn- ingar að skóla þessum eins og les- endum mun kunnugt. Verða teikningarnar til sýnis í sal Byggingaþjónustunnar að Lauga vegf 26 á 3. hæð, fram á mið- vikudagskvöld, en sýningin hófst á iaugardaginn. Er sýningin opin frá kl. 13 til 18. Aðgangur að sýningunni er öll- um heimill og er ókeypis. var Hún gróf á skömmum tlma langan skurð. Sérstaka athygli vakti það hve auðvelt virtist vera að snarsnúa verkfærinu á litlu svæði. Vélgrafan vegur 8710 kg. með 500 lítra skóflu. Og ætti því að vera auðvelt að flytja hana á milli á venjulegum vörubíl. Unnt er að fá með HY-MAC véi gröfunni 7 mismunandi gerðir og stærðir af skóflum, 4 gerðir af kröbbum, grjótplóg og ýtublað. Nýhllkomm vélgmhsýml

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.