Vísir - 27.04.1964, Side 2
14
V í SIR . Mánudagur 27. apríl 1964.
:::X'
tenglar eru við hvert borð og
lýsing mjög góð. Bifreiðavirkj-
arnir bera ábyrgð á verkum sfn-
um og gert er ráð fyrir að á-
kvæðisvinna verði tekin upp
strax og starfsliðið hefur komið
sér saman um tilhögun hennar.
Sérstök plasthúð er á gólfi og
einnig upp á miðja veggi og má
það teljast alger nýjung í sam-
bandi við útbúnað bifreiðaverk-
stæða, en Steinúðun sf. hefur
séð um framkvæmd verksins.
Tilkoma þessa nýja Fiat-verk-
stæðis er án efa til mikilla hags-
bóta fyrir alla Fiateigendur, en
þeir eru nú milli 500 og 600
á öllu landinu. Fyrirhugað er
að framkvæma allar helztu við-
gerðir, sem til falla, en þó ekki
neinar „boddy“-viðgerðir, né
meiriháttar viðgerðir á mótor-
um. En verkstæðið mun taka
við bifreiðum og sjá um að
koma þeim til slíkra aðgerða,
fylgjast með þeim og afhenda
eiganda bifreiðina að viðgerð
lokinni.
allt hreinlæti og vinnuhagræð-
ingu. Á þessu verkstæði má sjá
margt, sem áður hefur ekki
þekkzt á íslenzkum bifreiða-
verkstæðum. Verkstæðið hefur
yfir að ráða góðu úrvali alira
handverkfæra og „specialverk-
færa“. Hverjum manni er
skammtað yisst magn af hand-
verkfærum, sem hann kemur
fyrir í til þess gerðri kistu á
vinnuborðinu, og einnig er
hverjum manni ætlað sérstakt
„pláss“, sem hann verður að
sjá um að halda hreinu. Enn
fremur hefur hver maður sér-
staklega byrgt vinnuljós. Raf-
Orka h.f. hefur nú stóraukið
þjónustu slna við Fiat-eigendur.
Nýl. opnaði fyrirtækið nýtfzku
bifreiðaverkstæði að Laugavegi
178. Fréttamönnum blaða og út-
varps var þá boðið að skoða
verkstæðið. Með þessu verk-
stæði gerir fyrirtækið tilraun til
að setja á stofn fyrsta flokks
blfreiðaverkstæði, sem getur
orðið til mikilla hagsbóta fýrir
alla Fiat-eigendur, en nú eru í
notkun milli 500 og 600 Fiat-
blfreiðir f landinu.
Það, sem vaktj einkum at-
hygli fréttamanna1 er,
hversu mikil áherzla er lögð á
TÍZKAN -
Framhald af bls. 19.
skemmtistöðunum sér maður
svart, svart og aftur svart og
alltof fátt til að upplífga það.
Nú eru djarfar litasamsetningar
mjög f tízku, en kona, sem ekki
vill fá sér heilan kjól eða
dragt í sterkum lit, getur gert
tilraunir með t.d. hanzka og
tösku í staðinn eða hatt, skó
eða klút. Og skartgripi mega
þær sannarlega nota meira en
þær gera, ekki hvað sízt eyrna-
lokka, sem sjást orðið alltof
lítið hér.
„Hvað kostnaði viðvíkur, þá
er úrvalið orðið svo mikið, að
fólk getur keypt eftir sinni
pyngju og fengið fallega hluti,
án þess að þeir þurfi að vera
mjög dýrir. Útsöiur eru líka
orðnar afar hentugar, og þar er
oft hægt að fá ágæta vöru á
lágu verði. Konur, sem fá sér
mikið af fötum, geta keypt ó-
dýrari flíkur og skipt oftar um,
en þær sem vilja eiga kjólana
sína lengi, ættu að velja vandað
efni og sígilt snið.
„Jersey er alltaf vinsælt efni
og sérlega gott fyrir veðráttuna
okkar, og mér finnst síðbuxur
geta verið mjög smart og
þægilegur klæðaburður t. d.
með fallegum, litrfkum úlpum
á veturna eða blússum og
skyrtum á sumrin. Nú eru kon-
ur hér farnar að nota meira
svalirnar og garðana, þegar
gott er veður, og þá er auðvitað
skemmtilegra að vera í sætum
sumarkjólum, sólfötum eða
strandfötum en venjulegum
nærfötum, sem enginn má
helzt sjá nema í mesta lagi
fjölskyldan. Það á að vera hægt
að klæða sig smekklega á hvaða
árstíð sem er, ef rétt er farið
að. Svo er ein klæðategund,
sem mér finnst íslenzkar konur
ailtof ragar við að nota, og það
er alls konar heimafatnaður, þ.
e. síðir kjólar og sloppar, jakk-
ar og buxur, sem sagt fallegar
flfkur til að slappa af f heima
fyrir, þegar maður vill hafa það
náðugt. Umfram allt úr efnum,
sem vandalaust er að þvo og
strauja, t. d. bómull, en þetta
er fjarska hentugur klæðnaður
og mjðg mikið notaður annars
staðar.
Þýðingarmest að kunna
að velja og hafna.
„Og að lokum myndi ég
segja, að ekkert væri eins þýð-
ingarmikið og að hver kona
lærði að velja sér þau föt, sem
klæða hana bezt og gera mest
fyrir persónuieika hennar. Hún
þarf að vega og meta hverja ný-
breytni í tízkunni, velja úr það
sem hæfir henni og hafna hinu.
Það eru fáar konur fæddar með
öruggan tízkusmekk og dóm-
greind í þessum sökum, en
allar geta þær lært að þroska
smekk sinn, ef vilji og áhugi
eru fyrir hendi. Við höfum
tízkublöð og kvennablöð af
ýmsu tagi, kvennaþætti f dag-
blöðunum með myndum og ráð-
leggingum, tízkusýningar og
fulla glugga af glæsilégum
varningi ... það hefur aldrei
verið jafnauðvelt og nú fyrir
konur að klæða sig vel og
smekklega undir öllum hugsan-
legum kringumstæðum".
- SSB.
f) Næsta fátítt atvik átti sér J)
Jstað í Reykjavík sl. miðviku-A
ydag, sem varð með þeim hættiw
yað maður festist við peninga-A
Vkassa og gat ekki losnað fráW
vhonrnn. J
x Ekki veit blaðið um atvik að7
})þessu en á fjórða tímanum yfiry
(^hádegi var hringt til lögregl- 7
Iunnar og hún beðin um aðstoð V
í- húsi einu sið BankastrætiX
Þar hafi drengur fest fingur í})
peningakassa og gat ekki með á
nokkru móti losað hann. #)
Lögreglan náði í þúsund þjala
smið Westlund á Klapparstígy
sér til aðstoðar og fór með hann y
á staðinn. Tókst Westlund fljótt/
og giftusamlega að losa dreng-\
inn og peningakassann hvorn
frá öðrum og þess ekki getið})
að drengnum hafi orðið meint^
Shakespeare —
Framh. af 13. síðu.
Síðast eru evo Shakespeare-
þýðingar Sigurðar Grímssonar
og Helga Hálfdánarsonar. Og
svo er reyndar til önnur Hamlet
þýðing en sr. Matthíasar, ókunn
því að hún hefur ekki komizt
lengra en f handrit. Hún er eftir
Ingjald Nikulásson á Bíldudal,
sem einnig þýddi Kaupmanninn
í Feneyjum „handa alþýðu“, seg
ir hann, og hann samdi sjálfur
leikrit.
TTeil bókasöfn hafa verið
skrifuð um Shakespeare
og það er ótrúlegt hversu fjöl-
breytt viðfangsefnin eru og
hversu víða má þar leita til
fanga. í bindinu af „Shakespe-
are Survey", sem kom út í ár,
eru t.d. ritgerðir um London og
hirðina á dögum Shakespeares,
um sveitalíf, um sjómenn og
sjósókn, um uppeldismál, um
lög og lögfræðinga, um fangelsi,
um vísindalega hugsun, um
læknisfræði og heilsuvernd, um
þjóðsögur um bókaprentun og
tónlist o.fl. — á dögum Shake-
speares og eins og þetta kemur
fram í leikritum hans.
Mikil saga er af áhrifum
Shakespeares og þeim viðtökum
sem leikrit hans sættu á ýmsum
tímum T d. tók Leo Tolstoy
hann einu sinni harðlega til
bæna, þ.e.a.s. lífsskoðun hans og
kenningar, en taldi gildi hans
fólgið í málsnilli hans og kveð-
andi. Hér á landi kom líka fram
gagnrýni á Shakespeare og
nokkrar deilur urðu um þýðing-
arnar. T.d sagði Benedikt Grön
dal í blaðdgrein út af Othello
1885 „... ég held það sé ýmis-
legt hér, sem fremur þyrfti að
laga en ein lína í Shakespeare.
Ég sjálfur hef aldrei lagt mig
sérstaklega eftir Shakespeare,
og það er mín skoðun, að fólk
hér á landi hafi ekkert við hann
að gera, því það skilur ekkert
í honum.“ Hins vegar hafði
Steingrímur Thorsteinsson áður
talað um „undragáfu" Shake-
speares og sagt að „Leair kon-
ungur er orðalaust hin mikilfeng
asta og mest grípandi, en um
leið hin voðalegasta af tragedi
um Shakespears og um leið
mætti segja af öllum tragedíum
heimsins, jafnvel meiri en Pro-
meþeus Eskýlosar". Ég þekkti
í æsku minni víðlesna og ljóð-
elska konu, sem taldi einlægt
að eitthvað það fáránlegasta
sem hún hefði lesið í skáldskap
væru þessar tvær línur úr Haml
et þýðingu sr. Matthíasar: „Hinn
mikli Cæsar, löngu orðinn leir,
má láta í gat, svo haldist úti
þeyr.“
Hins vegar hefur Guðmund-
ur á Sandi sagt frá þingeyskum
bónda um síðustu aldamót,
Tómasi á Hróarstöðum, er nam
ensku af bókum, til þess að
geta lesið Shakespeare á frum
málinu. Shakespeare er nú
meistari meistaranna á leiksvið
um heimsins.
TVú eru til á íslenzku 29
” þýðingar á leikritum
Shakespeares. í Þjóðleikhúsinu
hafa verið Ieikin 4 Shakespeare-
leikrit, alls 115 sinnum fyrir
nær 38 þúsund áheyrendum.
Hamlet hefur nú verið sýndur
35 sinnum í Þjóðleikhúsinu.
Nú, á fjögur hundruð ára af-
mælinu, er hans minnzt hér í
Reykjavík með flutningi á 5
leikritum, 3 í útvarpi og 2 í
leikhúsum, Þjóðleikhúsinu og
Iðnó og 3 kvikmyndum í Þjóð-
leikhúsinu, fyrirlestrum og
blaðagreinum og svo;< þessari
sýningu, sem nú er'opnuð í Þjóð
leikhúsinu. Það er því hvorki að
tilefnislausu, né af yfirlæti, að
Shakespeares er nú minnzt hér
og ekki einungis gert af því,
hversu „Feikilegur jötunn þessi
maður hefur verið“, heldur einn
ig af því að mörg leikrit hans og
list þeirra eru í ágætum þýð-
ingum orðin samgróin íslenzku
máli og íslenzku leiksviði.
TVÖ NÝVARÐBERGS-
FÉLÖG STOFNUÐ
Dagana 14. og 15. apríl s.l.
voru stofnuð tvö ný Varðbergsfé-
lög, á Siglufirði og í Skagafirði.
Eru þá starfandi sex Varðbergsfé-
lög á landinu, og ráðgerð er stofn-
un fleiri félaga á næstu mánuðum.
Stofnfundir félaganna í Skaga-
firði og Siglufirði voru mjög vel
sóttir, og voru stofnfélagar um
30 á hvorum stað. Á fundunum
voru samþykkt lög fyrir félögin,
kjörið í stjórnir þeirra, og um-
ræður fóru fram um starfsemi fé-
laganna á næstunni. Kom fram
mikill áhugi á starfi Varðbergsfé-
Iaganna á fundunum.
Hörður Einarsson, ritari Varð-
bergs í Reykjavík, mætti á báðum
fundunum og flutti þar erindi um
tilgang Varðbergs, starf þess að
undanförnu og framtíðarverkefni.
Á stofnfundi Varðbergs, Siglu-
firði, sem haldinn var þriðjudags-
kvöldið 14. apríl, voru þessir
menn kjörnir I stjórn félagsins:
Pétur Gautur Kristjánsson (for-
maður), Hörður Arnþórsson (rit-
ari) og Bogi Sigurbjörnsson (gjald-
keri). 1 varastjórn voru kjörnir:
Gústaf Nílsson, Guðmundur Árna-
son og Sigurður Þorsteinsson. —
Fundarstjóri var Stefán Friðbjarn-
arson og fundarritari Sigurður
Þorsteinsson.
Stofnfundur Varðbergs, Skaga-
firði, var haldinn á Sauðárkróki
miðvikudagskvöldið 15. apríl, og
f stjórn félagsins voru kjörnir:
Birgir Dýrfjörð (formaður), Hall-
dór Þ. Jónsson (ritari) og Gísli
Felixson (gjaldkeri). í varastjórn
voru kjörnit: Jón Karlsson, Ole
Aadnegaard og Haukur Stefánsson.
Endurskoðandi félagsins var kjör-
inn Helgi Rafn. — Fundarstjóri
var Árni Guðmundsson og fundar-
ritari Gunnar Haraldsson.
Að loknum stofnfundunum
komu stjórnir beggja félaganna
saman til funda, þar sem rætt var
um starfsemi þeirra á næstunni.
Varðbergsfélögin eru félög
ungra áhugamanna um vestræna
samvinnu, og er tilgangur þeirra
fyrst og fremst að efla skilning
ungs fólks á íslandi á gildi lýð-
ræðislegra stjórnarhátta og að
skapa aukinn skilning á mikilvægi
samstarfs lýðræðisþjóðanna til
verndar friðinum. Var fyrsta félag-
ið stofnað í Reykjavfk í júnímán-
uði árið 1961, en síðan hafa verið
stofnuð félög á Akureyri, í Vest-
mannaeyjum, á Akranesi og nú
siðast í Skagafirði og á Siglufirði.
(Fréttatilkynning frá Varðbergi.).