Vísir - 27.04.1964, Page 3
75
V í SIR . Mánudagur 27. apríl 1964.
I
ÝMSAR GETGÁTUR UM
ÞAD HVER HAFI VERIÐ
HIHH RAUHVERULEGI
HÖFUHDUR
, Þess er nú minnzt um
gervallan heim, að fjög-
ur hundruð ár eru liðin
frá fæðingu hins mesta
stórmennis mannsand-
ans, Williams Shake-
speare.
Þó að leikrit hans séu nú sýnd
I öllum löndum veraldar er 6-
trúlegt, hve fátt er vitað um
ævi hans. Það er ekki einu
sinni vitað með vissu um fæð-
ingardag hans, aðeins að þann
26. apríl 1564 var hann skírður
1 fæðingarbæ sfnum Stratford
við Avon-fljót. Út frá þeirri
staðreynd, sem sjá má í prest-
þjónustubókum hefur verið
dregin sú ályktun að fæðingar-
kaupmanns þar á staðnum. Þá
er það vitað, að hann fluttist
til London, gerðist þar leikari
og græddist svo fé af því starfi,
að hann gat tiltölulega snemma
snúið aftur til fæðingarbæjar
síns Stratford og lifað þar góðu,
áhyggjulausu lífi unz hann
andaðist árið 1616.
Var Shakespeare
óskrifandi?
Auk þessa er það vitað um
Shakespeare, að til eru sex
undirskriftir hans, sem hann
hefur ritað í sambandi við
málsóknir á hendur nokkrum
skuldunautum sínum í London
og ein undir erfðaskrá hans.
Árið 1600 stcfnir hann manni
að nafni John Clayton vegna
sjö punda skuldar, á sama ári
Philip Rogers vegna tveggja
shillinga skuldar, þvf næst
sama Rogers vegna 15 shillinga
Helgríma, sem sögð er vera af Shakespeare.
Hver
dagur hans hafi verið þremur
dögum fyrr, þann 23. april.
Fánýtt er að ætla sér að
vega skáldskap f mælikerjum
eða bregða upp * einhverjum
mælikvarða um hvaða skáld og
listamenn hafi verið öðrum
meiri. Hvor er t. d. meiri Dante
eða Goethe, Leonardo da Vinci
eða Michelangelo, Wagner eða
Verdi, Dostojevsky eða Balsac?
Þrátt fyrir það virðist okkur,
að hægt sé að halda því fram,
að Shakespeare hafi verið öll-
um öðrum meiri f þeim 37 leik-
ritum sem varðveitzt hafa eftir'
hann. Snillingurinn sem hefur
gefið okkur lýsinguna á hefnd-
arhug Hamléts Danaprins,
brjálaðri afbrýðisemi Othellos,
töfraheimi Jónsmessunætur-
draumsins, ágirnd Shylocks,
fölskvalausri ást Rómeó og
Júlíu, ákæruræðu Antoníusar,
eintal Lears konungs — hefur
búið yfir slíkum andlegum
krafti, mannviti og tilfinningum
að hans finnst enginn líki f öll-
um leikbókmenntum heimsins.
Og okkur finnst svo ótrúlegt,
að engar heimildir að ráði skuli
vera til um Iff og starf þessa
manns, áð það hefur margsinnis
verið dregið í efa, að hann hafi
sjálfur nokkru sinni skrifað
þessi miklu leikrit.
Þó að leikrit hans hafi varð-
veitzt, hefur ekkert hans eigin
handrita geymzt, ekki ein lína
úr leikritum hans skráð með
eigin hendi, ekki minnsta brot
dagbókar eða bréfa. Það sem
um hann sjálfan er vitað og
beint frá honum komið er ekki
meira en svo, að auðveldlega
mætti koma því fyrir í einni
lítilli málsgrein.
Það er sem sagt vitað, að
hann var skírður í Stratford
26. apríl og að hann var sonur
1
10 pence skuldar og loks árið
1608 manni að nafni John
Addenbroke vegna sex punda
skuldar.
Enski sagnfræðingurinn
Hugh Trevor-Roper segir:
„Það er athyglisvert, að við
dauða og útför Shakespeares
var minning hans ekki heiðruð
á neinn sérstakan hátt. Frá-
sagnir herma, að hann hafi
enga skójamenntun hlotið, hafi
enga vini átt með bókmennta-
þekkingu, hafi engar bækur átt
við andlát sitt og hafi verið ó-
skrifandi. Svo mikið er vfst, að
í þeim sex undirskriftum hans
sem varðveitzt hafa er staf-
setningin á nafni hans mis-
munandi og að öðru leyti eru
þær svo illa skrifaðar, að rit-
handafræðingar telja að hönd
hans hafi verið stýrt.“
Það er því engin furða, þótt
sú spurning hafi vaknað á
grundvelli slíkra staðreynda,
hvort William Shakespeare hafi
yfirhöfuð nokkru sinni samið
þau leikrit sem bera höfundar-
nafn hans, hvort það séu yfir-
leitt nokkrar líkur til að hann
hafi verið fær um að skrifa
slík verk. Á þessum grundvelli
var það í rauninni mjög skilj-
anlegt, að Delia Bacon setti
fram kenningar sínar um hinn
„rétta“ höfund leikritanna.
Síðan hafa fleiri fetað í fótspor
hennar og er nú svo komið, að
kenningar hafa verið settar
fram um að 57 aðrar persónur
en Shakespeare séu eða geti
verið höfundar leikritanna. í
hópi hugsanlegra höfunda hafa
m. a. verið nefndir landkönn-
uðurinn Walter Raleigh, sjó-
ræninginn Francis Drake,
skozka drottningin Maria
Stuart og jafnvel sjálf Elísabet
drottning.
Fimm líklegustu
höfundamir.
Mikill meirihluti þessara hug-
mynda er þó ef málið er athug-
að byggður á algerum firrum
og rökleysum og fá því ekki
á nokkurn hátt staðizt. Aðrar
hugmyndir eru lífseigari og
eru enn stöðugt umræddar sem
hugsanlegur möguleiki í hópi
bókmenntafræðinga.
Þeir sem vefengja höfunda-
rétt Shakespeares hafa einkum
bent á eftirtalda menn sem
hugsanlega höfunda:
1) Francis Bacon, heimspek-
ing og lögfræðing sem
lifði 1561-1626.
2) Edward de Vere, jarl af
Oxford sem lifði 1550 —
1604.
3) William Stanley, jarl af
Derby, sem lifði 1561 —
1642.
4) Roger Manners, jarl af
Rutland sem lifði 1576
1612.
5) Christopher Marlowe,
skáld, sem lifði 1564 —
1593.
Svo margvislegar sem hug-
myndirnar um aðra höfunda en
Shakespeare eru, þá er þeim
öllum sameiginlegt, að sönnun-
arbyrðin um þrjú atriði hvílir
á þeim sem berjast fyrir þeim.
Þeir verða að sanna eftirfar-
andi:
-A- í fyrsta lagi, að leikarinn
William Shakespeare hafi
ekki skrifað leikritin sem
bera höfundarnafn hans,
en að hann hafi samt lát-
ið það óátalið, að þau
væru flutt og birt undir
hans nafni.
★ í öðru Iagi, að höfundur
sá sem þeir berjast fyrir
hver um sig hafi samið
leikritin.
+ í þriðja lagi verða þeir
að sýna fram á, að
hinn tilgreindi höfundur
hafi haft gildar ástæður
til að dylja bæði meðan
hann var á iífi og eftir
dauða sinn að hafa samið
leikritin.
í fyrsta þætti þessara sönn-
unargagna geta allir andstæð-
ingar Shakespeares starfað sam
an að því að bera brigður á,
að Shakespeare hafi verið fær
um að semja leikritin. Um það
eru þeir allir sammála og bera
fram lík rök. Leikrit Shake-
speares sýna góða þekkingu á
rómverskum bókmenntum, þau
Ein af sex undirskriftum Shakespeares, sem varðveitzt hafa.
eru full af dæmum um land-
fræðilega, sagnfræðilega og
goðfræðilega þekkingu, þau
sýna víðtækan skiining á lög-
fræðilegum, siglingafræðilegum
atriðum og hirðsiðum. Leikar-
inn frá Stratford, sem hvorki
gekk á skóla í Cambridge né
Oxford getur ómögulega hafa
haft svo víðtæka þekkingu —
um það eru þeir sammála.
Francis Bacon.
Áhangendur Bacon-kenning-
arinnar geta vissulega með
réttu haldið því fram, að þessi
frægi lögfræðingur og heim-
spekingur hafi einmitt haft til
að bera þá þekkingu, sem
Shakespeare skorti.
Vafalaust var Bacon einn
lærðasti maður sinnar samtíð-
ar, þótt honum hafi ekki verið
ljós þýðing kenninga Kopernik-
usar og Galileis um skipun al-
heimsins. En lærdómur einn er
ekki nógur fyrir leikritahöfund
og það nægir ekki sem sönnun
fyrir því, að Bacon hafi verið
höfundur Shakespeare-leikrit-
Bacon-áhangendurnir styðja
kenningu sína fleiri rökum. í
bréfi einu sem maður að nafni
Tobie Mathew skrifaði til
Bacons frá meginlandinu stend-
ur þessi setning: „Sá mesti
andans maður þjóðar vorrar
ber nafn yðar, þótt hann sé
þekktur undir öðru nafni."
Úr þessari setningu gerðu á-
hangendur Bacons mikið og
iiC'.t
þóttust hafa fundið þar lykil-
inn að gátunni, þar til á það
var bent, að bréfritarinn ætti
við rithöfundinn Thomas South-
well, sem kallaði sig öðru nafni
Bacon.
Aðrar röksemdir Bacon-ista
bar bandaríska konan frú Pott
fram. Hún birti lista yfir 4400
parorð, sem fyndust bæði í rit-
um Bacons og leikritum Shake-
speares. En Shakespeare-fræð-
ingurinn Jean Paris sýndi fram
á að þessi iisti væri lítils virði,
þar sem hér var mestmegnis
um almenn orð að ræða eins
og „Góðan daginn", „Amen“,
„Ég fullvissa yður“, „Trúið
mér“.
Sá rökstuðningur Baconista
sem vakið hefur einna mesta
athygli og valdið mestum heila-
brotum kom fram í ritgerðum
bandaríska lögfræðingsins
Ignatius Donnelly á síðustu
öld. Hann hélt því fram, að
Bacon hefði skrifað leikritin og
falið leyniorð inni 1 texta
frumútgáfunnar. Síðan tók hann
sér fyrir hendur, að leita uppi
þessar dulmálssetningar eftir
flóknum reglum og fann hann
þá meðal annars eftirfarandi
dulmálssetningu á einni blað-
síðunni: „Shak spur never
writ a word of them“ eða
„Shak spur skrifaði aldrei orð
af þessu“ Donnelly var mjög
ofstækisfullur í kenningum sín-
um og vöktu þær talsverða at-
hygli unz prestur nokkur að
nafni Nicholson fann aðra dul-
málssetningu með því að beita
regium Donneliys Iítið eitt öðru
visi og fékk hann þá fram þessa
setningu: „Master Will-I-am
Shake spurre writ tli Play
and was engaged at the
Curtain" eða „Meistari Will-I-
Framh. á bls. 20