Vísir - 29.06.1964, Blaðsíða 1
Tryggvi Helgason fær Jbær fil Akureytar
í fyrrasumar fékk Tryggvi
Helgason, flugmaður á Akur-
eyri, leyfi til að kaupa fjórar
flugvélar af ameríska fiughern-
um í Bandaríkjunum. Hann
seldi tvær aftur en lét breyta
tveimur og undirbúa til innan-
landsflugs hér heima. Þær eru
nú á leið til fslands, hófu ferð-
ina í Alabama, voru í New York
í gær, — flugmennirnir að
skoða heimssýningufia þar, —
fljúga síðan um Kanada og
Grænland og að líkindum það-
an beint til Akureyrar.
Ameriskir flugmenn fljúga
flugvélunum til landsins. Þetta
eru 8-9 sæta Beechcraftvélar,
tveggja hreyfla, og mun Tryggvi
ætla að nota þær til sjúkraflugs
og annars leiguflugs, jafnvel
eitthvað í áætlunarflugi til
Grímseyjar, sem er á hans veg-
um og eru .þær ferðir mikið not-
aðar. Ekki er enn vitað upp á
dag hvenær flugvélarnar koma
til Akureyrar, en þær fara hægt
yfir, enda eru flugmennirnir i
sumarleyfi og líta á ferðina
hingað sem skemmtiferð fyrir
sig.
FRAMMISTAÐA ÍSL STÚLKN-
ANNA VEKUR FEIKNA A THYGLI
Frammistaða íslenzka kvenna-
landsliðsins f handknattleik hef-
ur vakið feikna athygli meðal
alls almennings. Það er ekki á
hverjum degi, sem íslenzkt í-
þróttafólk stendur með pálmann
í höndunum eftir viðureignir
við frændur okkar frá Norður-
Iöndum. Fólk fagnar því þess-
um sigrum og því meir þar sem
í hiut eiga ungar og niyndar-
legar stúlkur. Sigrar yfir Svi-
þjóð og Finnlandi og jafntefii
gegn dönsku stúlkunum hafa
rækilega undirstrikað getu okk
ar stúlkna og það jafnvel þótt
þær bfði lægri hlut fyrir Norð-
mönnum.
Eitt enn er athyglisvert og
lærdómsríkt fyrir okkur Islend-
inga f þessari keppni. Flnnska
landsliðið, sem kemur Iengstu
og dýrustu ferðina hefur tapað
stórt fengið á sig 27 mörk gegn
7 í aðeins tveim leikjum. Eng-
inn hefur þó hneykslazt á getu-
leysi þeirra hér og ekki þykja
þær finnsku minni mannesajur
á eftir. Hlutskipti þeirra er nú
hið sama og íslenzkra íþrdtta-
manna er svo oft. Er þá dregið
dár að okkar íþróttafólki hér
heima og spurt hvert erindi það
•eigi á alþjóðleg íþróttamót.
Sigrarnir eru sætir — en alls
ekki aðalatriðið. '
Myndin, sem hér fylgir undir-
strikar þetta vel. Það er barátt-
an og Ieikgleðin, viljinn til að
gera vel, sem skiptir máli. Það
dylst varla neinum hversu vel
þessi íslenzka Iandsliðskona
leggur sig fram í þessu kasti.
VISIR
54. árg. — Mánudagur 29. júní 1964. 145. tbl.
Tvær flugvélar é
leið tíl landsins
BÓNDISAFNAÐINÆR
MILLJ: TIL SJÚKRAHÚSS
'á/Á
Júlíus Bjarnason bóndi á áttræðisaldri safnaði milljón.
H
I gær bauð stjórnarnefnd sjúkra-
hússins á Akranesi ýmsum forustu-
mönnum og fulltrúum bæjar- og
sveitarfélaganna í Borgarfirði til
fundar á Akranesi. Á þeim fundi
bárust sjúkrahúsinu, tvær miklar
peningagjafir, sem eiga að ganga
til stækkunar sjúkrahússins. Á
fundi þessum voru m.a. Páll Gísla-
son yfirlæknir, Jón Ámason, alþm.
og forseti bæjarstjórnar Akraness
og Björgvin Sæmundsson, bæjar-
stjóri á Akranesi.
Þarna afhenti bóndi einn, Júlíus
Bjarnason á Leirá, sjúkrahúsinu
950 þús. kr. að gjöf, sem er sam-
skot er hann hefur sjálfur persónu-
lega safnað. Hefur hann með því
unnið mjög merkilegt starf, sem
mun vera nær því einstakt. Júlíus
hefur ferðazt um allar sveitir Borg-
arfjarðar og Mýrasýslu, komið á
nærri hvern bæ og skorað á fó'k
að gefa fjárhæðir til sjúkrahúss-
ins. Undirtektirnar hafa verið svo
góðar, að hann getur nú lagt fram
þennan digra sjóð, sem nálgast
milljón krónur.
En til viðbótar því gerðist það á
fundinum í gær, að kaupfélags-
stjórinn í Borgarnesi, Þórður Pálma
son .tilkynnti, að Kaupfélag Borg-
firðinga hefði ákveðið að gefa hálfa
milíjón króna til sjúkrahússbygg-
ingarinnar. Þessar gjafir allar sýna,
hve vakandi áhuga héraðsbúar hafa
á sjúkrahúsi' sínu.
Slys við Dettifoss
Á laugardaginn varð bílslys \
> skammt frá Dettifossi. Þar slas-
| aðist Jón Helgason rafveitu-
i stjóri Grímsárvirkjunar og son- <
1 ur hans, svo að flytja varð þá á |
J sjúkrahús á Húsavík. Hvorugur <
(er þó alvarlega slasaður.
Jón var þar á ferð með konu J
! sinni og syni á Renault-leigubíl,
> frá bílaleigunni Brandi á Seyð- <
| isfirði. Þau voru að aka frá ]
' Grímsstöðum út í Axarfjörð. Á ,
1 beinum vegi rétt fyrir ofan <
Dettifoss, fór bifreiðin út af og J
i hvolfdi.
Bls. 6 Horfur i Þýzka-
landsmálum.
7 Samt. við Thor Vil-
hjálmss um Kjarvals
bókina.
13 Philipus prins á ísl.
im
14 Kveöja t<l drottning-
ar Breta.
16 Samt. við brezka
sendiherrann og
fjölbreytt efni annao
í tilefni heiinsóknar
Ver*jr síldarsöltun leyfð í dag?
Formaður Síldarút-
vegsnefndar, Erlendur
Þorsteinsson, skýrði
Vísi frá því í morgun, að
nefndin kæmi saman á
fund kl. 1,30 í dag til að
fjalla um það mál, hve-
nær leyfa skuli söltun
Austur- og Norðurlands
sfldar.
Eins og getið er á öðrum slað
f blaðinu í dag ákvað Verðlags-
ráð sjávarútvegsins verð á síld
til söltunar og frystingar i fyrra
kvöld. Af þeirri og fleiri ástæð
um draga margir þá ályktun að
síldarsöltun muni ve 'ða Icyfð á
fundi nefndarinnar f d ig
Eins og Vísir ský rði frá • á
laugardaginn er víða gífurlegur
áhugi á því að fá að salta þá
síld, sem nú veiðist, á það ekki
sízt við á Siglufirði. Þar var m.
a.s. söltuð síld í óleyfi fyrir
helgina og reyndist hún vera
22% feit. Sú síld var flutt ís-
kæld af Austurlandsmiðum og
gafst flútningurinn mjög vel.