Vísir - 29.06.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 29.06.1964, Blaðsíða 3
V1SIR . Mánudagur 29. júní 1964. Þjófnaðarfarald- ur um helgina Nokkur brögð voru að ýmiss konar þjófnaði hér i Reykjavík um sfðustu helgi. Einn tilfinnanlegasti þjófnaður- inn var á persónuskilríkjum flug- freyju nokkurrar, auk peninga og annarra verðmæta sem stolið var í gær Ur húsinu Flókagata 15. Hefur þjófurinn stolið tveim töskum úr skáp í innri forstofu hússins sennilega á tímabilinu kl. 5 — 7 e.h. í gær. Önnur taskan var venjuleg flugfreyjutaska og f henni öll nauðsynieg persónuskilrfki við- komandi flugreyju, svo og pening- ar o. fl. Rannsóknarlögreglan biður þá, sem hafa orðið grunsamlegra mannaferða varir að láta hana vita hið skjótasta. I gærmorgun kærði maður yfir stuidi og taldi gest sinn valdan að honum. Hafði maður þessi boðið öðrum heim til sín f fyrrinótt, settust þeir að drykkju og að nokkrum tíma liðnum sofnaði hús- ráðandi út frá gesti sínum. Hann vaknaði aftur kl. 10 árdegis f gær. Var gesturinn þá horfinn og auk þess peningaveski húsráðanda með um 1500 kr. í peningum. Húsráðandi hóf leit að gesti sin um og fann hann á ferli á götum borgarinnar nokkru síðar, en hann vildi ekki viðurkenna að hafa tekið veskið. Kærði húsráðandinn hann þá til lögreglunnar og tók hún hann í vörzlu sína. Aðfaranótt laugardagsins sást til manna, sem stálu þrem hjól- börðum af bíl, tveim þeirra undan bíium, en einn úr farangurs- geymslu og óku að því búnu á brott. Stuldurinn var kærður til lögreglunnar. Síðdegis á laugardag handtók lögreglan mann, sem stolið hafði 1000 kr. f peningum og áfengis- flösku af félaga sínum. Eftir hádegið f gær hringdi kona til lögreglunnar og sagði að rétt áður hefði sonur sinn komið ak- andi f bíl þangað heim, ásamt öðrum manni og stolið frá sér 500 kr. f peningum. Lögreglan hóf leit að bflnum og fann hann eftir stutta stund, en þá voru báðir mennirnir á bak og burt. 1 morgun urðu lögreglumenn varir við drukkinn mann, sem klifrað hafði yfir girðingu hjá Kol og salt við höfnina. Nokkru seinna kom í ljós að hann hafði gert til- raun til að brjótast inn f vigtarskúr þar í portinu. J @ © larðvinnslan sf Slmar 32480 & 20382 14 piltar luku bóklegum próf- um í atvinnuflugmannsgrófi S.l. Iaugardag luku 14 flug- nemar bóklegum prófum fyrir atvinnufiugmannspróf, hjá fiug- skóla Flugsýnar. Um eitt hundr- að manns hafa lokið þessu prófi í flugskóla Flugsýnar, en þetta er stærsti hópurinn, sem Flug- sýn útskrifar í einu. Hæstu eink unn hlaut Sverrir Þóróifsson, 07 c T/Sl i iiLiiLi i/n oot STOL .LINN KR - 331 LÉTT OG ÞÆGILEGUR MH|| + FJAÐRANDI BAK OG SÆTI. * HENTUGUR I HOL OG EINSTAKLINGS- HERBERGI. vp STOFUBORÐ Símabekkir Vegghúsgögn Skrifborðsstólar Skrifborð. iin iiipinipw11^ \ ‘ Sófasettin KR-332 KLEÓPÖTRU SVEFNHERBERGIS- SETT <- -fiW:.;-': ÍV..:5 * l/D afm m Kjör fyrir alla * ivK nusgogn VESTURGÖTU 27 - SlMI 16680. stig af 100 mögulegum, í meðal- einkunn, en það mun vera ein hæsta einkunn, sem tekin hefur verið hér heima í atvinnuflug- ; mannsprófi. Skólinn byrjar fyrri part ve',- ar, og hefur kennsla farið fram ^ kv. og um helgar Kennarar voru: í veðurfræði Jónas Jakobs son, veðurfræðingur, siglingar- ; fræði Jón Óskarssop, flugum- I .OlblOVÍ8§BÍ)| Flugreglur kenndi Valdipiar, .j Ólafsson flugumferðarstjóri og | flugeðlisfræði og vélfræði Sig- urður Ingólfsson og Lárus Gunn arsson flugvirkjar. Þar sem sífellt eru gerðar meiri kröfur til atvinnuflug- manna, svo og með tilliti t;l hinna miklu breytinga, sem orð- ið hafa í fluginu almennt, hefur Flugsýn ákveðið að auka til muna bæði bóklega og verklega kennslu. Félagið er nú að taka upp nýja kennsluaðferð fyrir byrjendur, hið svokallaða SANDERSON-kerfi, filmur og tal nýkeypt frá Bandarikj- um. Þessi kennsluaðferð hefur mjög rutt sér til rúms síðustu árin erlendis, og er nú notuð í 22 löndum utan Bandaríkjanna. Flugsýn á nú von á nýrri kennsluvél af Piper Cherokee 140 gerð. „Ég hef sennilega ekki verið nema 12 ára, þegar áhugi á llug inu greip mig, en þrátt fyrir það byrjaði ég ekki .að læra fyrr ; n í júní í fyrrasumar", sagði Sverr ir Þórólfsson, 22 ára piltur, sem hlaut hæstu meðaleinkunn á námskeiðinu, eða 97 stig af 100 mögulegum. Sverrir er verzl unarskólagenginn og hefur unn- ið á skrifstofu í ísbirninum með flugnáminu, en nú síðustu mán uðina hefur hann eingöngu snú- Sverrir Þórólfsson varð hæstur á námskeiðinu. ið sér að flugnáminu. Sverrir sagðist hafa haft mjög góða leið beinendur, og það væri einkum þeim að þakka, að hann hefði hlotið svona góða einkunn. Atvinnuflugmannsprófið eða hið svokallaða B próf er tvlþætt, bæði verklegt og bóklegt. Pilt- arnir hafa nú lokið bóklegum prófum, en til þess að öðlast full réttindi verða þeir að hafa flogið 200 tíma, en aðeins tveir eða þrír úr hópnum hafa náð svo mörgum flugtímum. Gizk- uðu þeir á, að þegar flugtímani ir væru orðnir 200 væri kostnað urinn við flugnámið kominn upp I 150 þús. og þá væri margt ótal ið eins og t. d. vinnutapið. Glersalan Gler og ísetningar Álfabrekku við Suðurlandsbraut. Sími 41630 Opnanlegir gluggar glerjaðir og gler sett saman með secostrip.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.