Vísir - 29.06.1964, Qupperneq 12

Vísir - 29.06.1964, Qupperneq 12
 111111 VISIK Mánudagur 29. júní 1964. Hin fiölmenna Varðnrferð í gær: ENN EITT TAKN UM SAMSTOBU SJÁLFSTÆÐISMANNA mmm sagði Bjarni Benedikfsson Sex hundruð manns voru í óvenjulega glæsilegri Varðar- ferð í gær. Farið var um hinar breiðu byggðir Árnessýslu. Bjart var mestalla Ieiðina og þrátt fyrir kul í Iofti komu allir til baka með hlýjar endurminn- ingar úr fjörugri ferð. Ferðin var frá fyrstu til síð- ustu mínútu frábærlega vel skipulögð og var haft sérstakt orð á því hve öll ferðin, sem tók nærri sextán tíma, gekk auðveldlega fyrir sig. Komið var að Gullfossi og Geysi og áð á nokkrum öðrum stöðum. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, talaði á Flúðurn. Hann minntist þess að þennan dag fyrir réttum 50 árum hefðu ríkiserfingi Austur- ríkis, Franz Ferdinand erki- hertogi og eiginkona hans ver- ið rnyrt af ofstækismanni í Sarajevo. Atburðurinn hefði verið upphafið að fyrri heims- styrjöldinni, sem aftur á móti hefði gefið Evrópu tilefni til síðari heimsstyrjaldarinnar. Kvað hann öldina mestu um- brotaöld mannkynsins. Skiptzt hefðu á ægilegustu mann fórnir sem sögur fara af og örustu framfarir í þágu mannkynsins. í þessum átökum hefðu Evrópuþjóðir misst for- ystuhlutverk sitt í heiminum. Framhald á bls. 5. Strokkur gaus fallega, háu gosi, meðan Varðarfélagar stöldruðu við á hverasvæðinu í Haukadal. (Ljósm. Vfsis). Núverandi og fyrrverandi formenn Varðar ásamt formanni Sjálfstæðisflokksins f Varðarferðinni í gær frá v. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri, Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, Sveinn Guð- mundsson, vélfræðingur, núverandi formaður Varðar og Þorvaldur Garðar Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins (Ljósm. Vlgf, Si gurgeirsson). „w —!■■■!■ -n ... ■ni,„n.l ,■ n.,n,» Vígðar sumarbúðir við Vest- manns vatn í gær 30 drengja hópur kom þangað í morgun Gizkað er á að um 500 manns hafi verið við vfgslu Sumar- búða Æskulýðssambands kirkj- unnar í Hólstifti við Vest- Biskup talar við vígsluna. mannsvatn í Þingeyjarsýslu í gær og var þó ekki sem bezt veður. Um 200 manns komust inn í húsið en hinir hlýddu utan dyra, þar sem komið hafði verið fyrir gjallarhornum. At- höfnin var hin hátíðlegasta. Biskup nefndin v staðinn „Ný- virki í Fagurhlíð“. Athöfnin hófst með bæn, sem ungur piltur, Halldór Sigurðs- son, flutti. Biskupinn flutti ræðu og vigði sumarbúðirnar, en prestarnir Ólafur Skúlason, Birgir Snæbjörnsson, Sigurður Haukur Guðjónsson, Þórir Stephensen og Pétur Sigur- geirsson lásu ritningargreinar og fluttu bæn. Kirkjukór Grenjaðarstaðasóknar söng undir stjóm Kristjönu Árna- dóttur, og séra Sigurður Guð- mundsson, prófastur, flutti ræðu og rakti sögu þessarar merku framkvæmdar við Vest- mannsvatn. Eysteinn Sigurjóns- son á Húsavík söng einsöng og að lokum sungu allir saman þjóðsönginn. Bygging sumarbúðanna við Vestmannsvatn hófst 28. maí Framh. á bls. 5. SAL TSILDAR- VERÐÁKVEÐIÐ VerSIagsráð sjávarútvegsins ákvað á fundi sínum á laugar- daginn lágmarksverð á síld til söltunar og frystingar, það er sfld, sem veidd er við Norður- og Austurlandi. Verð á síld li) söltunar er 230 krónur t’yrír hverja uppmælda tunnu, 120 lítra. Verð fyrir hverja uppsalt- aða tunnu, með þremur lögum í hring, er 313 krónur. Verð á síld til heilfrysting- ar er 230 krónur fyrir hverja uppmælda tunnu, 120 litra. 0UI SKARíTTA STOR- BRUNA IHAMPIBJUNNI? Leiða má líkur að því að ein sígaretta hafi orsakað stór- bruna í Hampiðjunni sl. laugar- dagsnótt. Allar llkur benda til að þarna hafi orðið milljóna tjón, en mat á skemmdunum hefst í dag. Hamplðjan fékk um 70 tonn af hampi fyrir skömmu, en alls voru í vörugeymslunni um 230 tn. þegar eldurinn kom upp. Hampurinn er fenginn frá Filippseyjum og tekur um 3 mán. fyrir Hampiðjuna að fá hamp þaðan. Fyrir utan vörugeymslu Hamp iðjunnar við Stakkholt er nú stór hrúga af brunnum hampi, sem ekið hefur verið út úr vöru- geymslunni. Vísir hafði f morgun sam- band við framkvæmdastjóra Hampiðjunnar, Hannes Pálsson. Sagðist hann ekki geta sagt um hversu mikið tjón hefði orðið í brunanum, enda yrði ekki byrjað að meta skemmdirnar fyrr en eftir hádegi í dag. Uann- es sagðist búast við, að mest all ur hampurinn, sem nú lægi fyrir utan vörugeymsluna væri ónýt- ur. Þegar eldurinn gaus upp í vörugeymslunni voru þar inni um 230 tonn af hampi. Fyrir nokkru fékk 'Hampiðjan um 70 tonn til landsins og hafði þvf mest öllu verið komið fyrir i vörugeymsiunni, og er aðeins lftiðræði eitt á hafnarbakkanum. Ekki átti fyrirtækið von á hampi á næstunni, en hann er keyptur frá Filippseyjum og tekur það um 3 mánuði að fá hann hingað frá því hann er pantaður. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu er ekki hægt að segja neitt ákveðið um íkveikj- una, en Ieiða má getur að þvi að sígaretta hafi orsakað þenn- an stórbruna. Gunnar Sigurðsson vara- slökkviliðsstjóri sagði, að þetta væri dýrasta útkall í sögu slökkviliðsins. Enn er bruna- vakt við Hampiðjuna, og bú- ast má við, að slökkviliðsmenn verði látnir vera þar á verði i dag og ef til vill á allanótt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.