Vísir - 14.07.1964, Page 2

Vísir - 14.07.1964, Page 2
2 V 1 S I R . Þriðjudagur 14. júlí 1964. Danir unnu Island 39:38 í spennandi sundlandskeppni Islendingar og Danir háðu hnífjafna baráttu í sundi í gærkvöldi í Hilleröd í Danmörku og unnu Danir með aðeins einu stigi 39:38, enda þótt dagblöðin hafi fyrirfram sagt: „við getum ekki varizt sigri í keppn- inni“ o. s. frv. Staðreynd er hins vegar að sigurinn var undir 100 metra skriðsundi stúlknanna kominn. Þar börðust þær Hrafnhildur og Kirsten Strange hníf- jafnri baráttu en síðustu metrarnir riðu baggamun- inn og danska stúlkan sigr- aði naumlega. Danir höfðu eftir fyrstu 2 greinar keppninnar 10 stig gegn 6. Eftir stutt setningarávarp borg- arstjórans í Hilleröd voru keppend ur i 100 metra flugsundi kvenna ræstir. Eins og við mátti búast var Kirsten Strange fyrst í mark, — en hún snerti bakkann ekki með báðum höndum í einu og því dæmd úr keppninni. Þetta óhapp færði íslendingum 5 stig, en Dönum ekk ert og hafði vitaskuld mikið að segja og nú stóð keppnin: Island 11 — Danir 10. Hrafnhildur synti þetta sund glæsilega og fékk 1:13.9 sem er nýtt íslandsmet, eitt af fjór um íslandsmetum sem sett voru í gærkvöldi. 100 m. baksundið hjá stúlkun- um vann Kirsten Michaelsen, Norð urlandamethafinn í greininni, mjög örugglega eins og vænta mátti á Framh. á bls. 6. þ& im m Áil tá SÍR* Þróttur og Valur skildu ÍT< ý * Þróttarar virðast ekki gefast upp í baráttunni við Fram á botninum. í gær léku Þróttarar við Val í 1. deild. Góður leikur, sem bauð upp á margt ágætt á knattspyrnusviðinu, spennu, góðan samleik og í'alleg mörk. Leiknum lauk með jafntefli 2:2, sem skil- ur Þróttara að vísu enn eft- ir á botninum með 4 stig, / /. deild en gefur þeim þó talsvert góða von um að halda lífi í 1. deild. Þróttarar voru mun ágengari 1 byrjun leiks og stundum virtust sókriir þeirra ætla að enda með marki. Valsmenn áttu góða tilraun á 14. mín og áttu þá skot í þverslá. 17. mín færir Þrótti 1:0 Það var Þorvarður Björnsson, framvörður Þróttar, sem skoraði af vítateig með mjög góðu skoti, sem Björgvin gat ekki ráðið við. Bergur Guðnason átti öðru.sinni boita í stöng á minútúnni eftir mark Þorvarðar og iná segja að .Vals- Skemmtilegra að vera spíritisti — Framhald at bls 9. að ég væri efninu alls ókunn- ugur og treysti mér ekki til að andmæla staðhæfingum ræðu- mannsins án þess að kynna mér málið fyrst. Eftir á kom hann til mín og spurði, hvort mér væri alvara og ég kærði mig um að fá einhverja reynslu í þessum sökum. Ég sagðist gjarnan vilja það, og þá bauð hann mér á miðilsfund, sem haldinn var á heimili hans“. Féll sjálfur í trans. * „Og fékkstu þá sannanir?" „Nei, nei, ég komst að þeirri níðurstöðu, að þetta væri tóm vitleysa allt saman. En ég hafði lofað aö kveða ekki upp neinn dóm, fyrr en ég hefði varið hálfu ári til rannsókna á spírit- ismanum, svo að ég lét sem ekkert væri og fór á næsta fund viku síðar. Þá brá svo við, að mig tók að syfja alveg óvið- ráðanlega, og þegar ég rankaði við mér aftur, var fundurinn á enda. Auðvitað stórskammað- ist ég mín fyrir þetta mjög svo óviðkunnanlega háttalag og byrjaði að afsaka mig, en þá var mér tilkynnt, að ég hefði fallið I trans og háþroskuð vera, er nefndi sig Silver Birch, talað af vörum mínum. Flestu hefði ég átt von á fremur en því, að ég væri sjálfur miðill, en þarna voru forlögin komin í spilið, og ég átti mér engrar undankomu auðið“. „Voru það þínir eigin miðils- hæfileikar, sem sannfærðu þig?“ „Nei, alls ekki, ég hélt áfram að rannsaka málið með hlut- lausu hugarfari, en sannanirnar hlóðust sífellt upp, þangað til ég gat ekki annað en viður- kennt, að spíritistar færu ekki með neitt fleipur, þegar þeir fullyrtu, að hægt væri að sanna á óyggjandi hátt, að líf væri eftir dauðann. Og eftir 44 ára reynslu af spíritismanum tel ég mig ekki þurfa að segja, að ég trúi á annað ltf, heldur veit ég, að lífið heldur áfram á næsta til verustigi eftir dauða jarðneska líkamans". Hélt því leyndu, hver miðiilinn var. „Og samstarf ykkar Silver Birch hefur orðið efni f margar bækur“. „Já, satt er það, en ég hélt þvf leyndu þangað til nú fyrir skömmu, að ég væri miðillinn. Ég vildi, að fólk gæti kynnzt kenningum rians, án þess að það liti út eins og ég væri að trana sjálfum mér fram. Aðeins nánustu vinir minir fengu að vita, að ég væri miðill og verk- færi Silver Birch, en nú hafa bækurnar með kenningum hans náð svo mikilli útbreiðslu og vinsældum, að ég sé ekki á- stæðu til að þegja yfir þessu lengur“. „Hvað gerðirðu, þegar þú varst orðinn sannfærður spfrit- isti?“ „Það sama og allir, sem telja sig hafa fundið ný og stórkost- leg sannindi — ég leitaðist við að gefa öðrum hlutdeild í reynslu minni. Fyrst stofnaði ég spíritískt félag, og það skref varð mér til mikillar gæfu, þvi að þannig kynntist ég Sylviu“. Aðalerindið gleymdist. „Gekk hún þá í það?“ „Ja, hún sá auglýsingu um fyrirlestur, sem við höfðum fengið Sir Arthur Conan Doyle til að halda, og skrifaði og bað um frekari upplýsingar um fé- lagið. Ég hlýt að hafa fengið innblástur þá, því að ég skrif- aði henni aftur og bauðst til að gefa henni allar þær .upplýs- ingar sem hún óskaði eftir, en vildi helzt gera það munnlega. Og við hittumst og töluðum saman marga klukkutíma um allt milli himins og jarðar, en steingleymdum að minnast á spíritisma! Við áttum ótrúlega mörg sameiginleg áhugamál, og ég hafði þó rænu á að fá loforð fyrir öðru stefnumóti, áður en við kvöddumst... og síðan höf- um við stöðugt verið að hitt- ast“. „Eins oft og hægt er fyrir önnum og óskapagangi", skýtur Sylvia inn í og brosir íbyggin tií manns síns. „Já, alltaf er nóg að gera, ekki vantar það", segir Barbie, ',,og aldrei eins og síðan ég komst á sjötugsaldurinn. En mig grunaði ekki í upphafi að spíritisminn myndi verða svona menn hafi þarna ekki haft heppn- ina með sér. Hins vegar voru Þrótt arar ekki mjög heppnir með skot sín og á 31. mín átti Haukur Þorvaldsson ágætt skot skammt fram hjá marki og á 35 mín átti Þróttur ágætt færi. Á sfðustu mín. hálfleiksins áttu Valsmenn tvö sæmileg færi. Hermann Gunnarsson skaut góðu skoti en Þórður Ás- geirsson varði sérlega vel.r Ingvar Elísson átti skót fyrir opnu marki að heita mátti en bakvörður fékk bjargað naumlega yfir markið. Þórður varði vel skot frá Her- manni og Jón Björgvinsson fulllauk þeirri björgun með .að spyrna í horn. 1:1 kom á ll. mín. Boltipn skopp aði um innan vítateigs Þrðtfar án Framh. á bls. 5 Reynir útherji og Jón miðherji Þróttar eigast við. Hermann Gunnars- son fylgist með. sterkur þáttur í lífi mínu. Ég var forstjóri sex fyrirtækja, fékkst við verðbréfasölu og var ákveðinn að verða velstæður kaupsýslumaður. En þeir höfðu aðrar áætlanir í hinum heimin- um, og einn góðan veðurdag var mér sagt, að ég yrði að hætta þeim störfum, sem ég fékkst við, og helga spíritismanum alla mína krafta. Auk þess vildu þeir, að ég stofnaði spíritískt blað. Ég hafði aldrei komið ná- lægt blaðamennsku, og þótt ég væri löngu orðinn sannfærður spíritisti, fannst mér þetta nokkuð mikil tilætlunarsemi. En þeir héldu fast við sitt, og þegar ég kynntist Hannen Swaffer, frægasta blaðamanni og leikgagnrýnanda Bret- lands á þeim tíma, sem einn- ig var orðinn spíritisti, endaði það með því, að við stofnuðum ,Psychic News‘ árið 1932, fyrsta spíritíska fréttablaðið í heim- inum. Við Swaffer ferðuðumst saman um landið þvert og endi- langt um þriggja ára skeið og héldum fyrirlestra um spírit- isma, og þegar blaðið kom út, var því mjög vel tekið. Ég var gersamlega reynslulaus sem blaðamaður og áleit beztu leið- ina til að kynnast starfinu að gerast ritstjóri til að byrja með! Og einhvern veginn gekk þetta stórslysalaust". „Hvenær gerðistu svo rithöf- undur?“ „Það kom alveg af sjálfu sér. Ég sat fundi með Estelle Roberts, sem ég álít fremsta miðil heimsins á síðustu áratug- um — og ég held, að mér sé óhaett að segja, að ég hafi kynnzt öllum helztu miðlum hér á jörðu síðustu 30—40 árin. Auðvitað skrifaði ég um þessa fundi f .Psychic News‘, en mér fannst þeir svo merkiiegir, að ég tók saman heila bók um þá og kallaði hana ,The Trumpet Shall Sound'. Það var fyrsta bókin mín, og mér var sagt, að hún hefði gengið afskaplega vel og selzt með ágætum, en ég fékk svo lítið fyrir hana, að ég ákvað að gerast sjálfur útgef- andi, því að það myndi borga sig miklu betur. Síðan hef ég verið önnum kafinn sem rit- stjóri og rithöfundur, fyrirles- ari, útgefandi ... og jafnvel miðill, og ég hef ekki iðrazt þess að fylgja heilræðum vina okkar í hinum heiminum". Sjálft innihald lífsins. „Hvað mynduð þið telja það dýrmætasta, sem spíritisminn hefur gefið ykkur?“ „Hann hefur gefið mér sjálft innihald lífsins", svarar Barbie. „Það er á allan hátt miklu skemmtilegra að vera spíritisti og óttast hvorki dauðann né líf- ið — maður nýtur lífsins af hejlum hug og hlakkar þar að auki til að flytjast að þvl loknu yfir í annan og fegurri heim. í fáum orðum myndi ég segja, að spíritisminn hafi gefið mér trúna á tilgang lífsins, óhaggan- Iega trú á bræðralag allra lif- andi vera undir handleiðslu Guðs“. Sylvia kinkar kolli til sam- þykkis. „Og trúna á það, að hið góða í mönnunum muni sigra að lokum þt-átt fyrir allar hindranir og örðugleika“, bætir hún hljóðlátlega við. - SSB

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.