Vísir - 13.08.1964, Page 3
/
mjög ánægðir með árangurinn.
M
, •
P ' | 1
u, <í C A <
3||pí;;v
j
VlSJR . Fimmtudagur 13. ágúst 1964.
Kvikmyndað í fjörunni. Kvikmyndastjórinn, Haas, sést fremst á myndinni með gieraugu.
Við kvikmyndatöku
Um miðnætti s.I. fimmtudag
lögðu fimm kvikmyndatökumenn,
fjórir ítalskir og einn austurrísk-
ur upp frá Vestmannaeyjum á-
Ieiðis út í Surtsey. Með í förinni
var Jóhannes Briem og var hann
leiðsögumaður leiðangursins.
Kvikmyndatökumennimir hafa
dvalið hér á Iandi að undanförnu,
til þess að festa á filmu ýmis
náttúrufyrirbæri, sem koma eiga
í stórmyndinni „The Bibie“ (Bibl-
fan). Kafli myndarinnar sem kvik
myndatökumennirnir tóku úti i
Surtsey fjallar um sköpun jarðar-
innar.
Fyrst var áætlað að lenda á
flugvél Björns Pálssonar og í því
skyni var sendur maður út í Surts
ey, til þess að kanna lendingar-
staðinn, en hann taldi óráðlegt
að lenda þar. Lenti Björn því í
Eyjum og tók leiðangurinn síðan
mótorbátinn Þrist á Ieigu út í
Surtsey. Komið var út að eyjunni
snemma á föstudagsmorgun. Var
þá allur farangurinn fluttur yfir
í trillubát Óla Þórðarsonar, sem
þekkir lendingarstaði í Surtsey,
betur en nokkur annar. Flutti
hann leiðangursmennina og far-
Unnið að kvikmyndaupptöku við hraunrennslið. Allar myndirngr tók
Jóhannes Briem.
Mimi Gnoli skrifar niður senurnar. A höfðinu er hún méð riýtahring, Kvikmypdastjörinn, Haas, athugar „mótívið“ áður en KviKmyndatakan hefst.
sem hún fann 4 fjörunni.
i SURTSEY
angur þeirra upp að eyjunni, síð
an var allt flutt aftur yfir í gúm-
bát og farið á honum siðasta spöl-
inn í Iand. Veður var hið bezta,
og Surtur í fullu fjöri, gaus til
komumiklu og jöfnu gosi allan
tímann, sem leiðangurinn dvaldi
þar. Stigið var á land að norðan
verðu á eyjunni, en tjöldum sleg
ið upp, vestan við lónið. Fljótlegp
yar tekið til við kvikmyndgtök-
una. Kvikmyndatækin voru flutt
upp að gignuni og myndpð £.9'
faranótt Iaugardags.
Fyrst var myndað að norðan
verðu við gíginn, en síðan voru
öll tækin flutt austur fyrir hann,
en þá skeði það óhapp að mótor
inn fyrir kvikmyndavélina bilaði.
Var þá gripið til þess ráðs, að
senda skeyti f gegnum talstöð,
sem Jóhannes hafði meðferðis.
Var það fyrst samið á ítölsku, síð-
an þýtt á ensku og Ioks sent
Vestmannaeyjaradíó á íslenzku,
sem símaði það svo til Reykja-
víkur. Gekk þetta allt svo
fyrir sig, að um það bil 10 klukku
stundum seinna kom ÓIi Þórðar-
son á trillubátnum út í Surtsey
með varahluti í kvikmyndavél-
ina, sem höfðu verið sendir með
flugvél frá Reykjavík til Eyja.
Var nú kvikmyndatökunni haldið
áfram, m.a. farið út á sjó og gos-
ið myndað þaðan, en síðast var
myndað aiveg við hraunrennslið.
Lauk kvikmyndatökunni á mánu
dag og sótti þá mótorbáturinn
Sapfari leiðangursmenn.
Loks má geta þess til gamans,
að það auðveldaði leiðangurs-
mönnum mjög alia matargerð að
þeir þurftu aðeins að stinga nið-
ursuðudósunum niður i hraungluf
urnar og var þá maturinn orð-
in heitur eftir skamma stund. —
Allan tímann var mjög gott veður
og voru kvikmyndatökumennirnir