Vísir - 13.08.1964, Síða 6

Vísir - 13.08.1964, Síða 6
6 V í S IR . FimmtiHlagur 13. ágúst 1964. Mið-Afríkn — Framh. af 8. síðu að ná svo miklum árangri, jafn litlum og rómversk-kaþólskir höfðu náð á miklu lengri tíma? Hún stofnaði sérstakt trúfélag, aðskilið frá öðrum með einföld- um reglum og sérstakri skírskot un til þjóðerniskenndar blökku- manna sem Afríkana. Og þeir voru hin útvalda þjóð. Án jarð- neskra auðæfa mundu þeir skilja við þennan heim og fara beint til himna. En Evrópumenn irnir, sem höfðu öll hin efna- hagslegu skilyrði í höndum sér, voru á hraðri leið til helvítis. Því fer fjarri, að Alice Lens- hina hafi lofað mönnum krafca verki — þúsund ára sæluríki, en hún lét mann fá éitthvað, sem var alveg sérstætt og afrískt, hún boðaði einfaldan kristindóm, sem öllum fannst þeir geta skilið, en allt sem hin ir hvítu menn höfðu prédikað, var í rauninn'i svo flókið fyrir þá, að þeir botnuðu ekkert í því. Og hvítir menn eru þarna alltaf grunaðir um græsku. Tvíeggjað sverð. Kenning Alice innifól það, sem er mest aðlaðandi í irú hinna hvítu, frelsið og ódauð- le'ikann. Og eftir kenningum Alice voru þeir, sem höfðu að- hyllst boðskap hennar, „eitthvað sérstakt", — líka útvaldir, og það þótti mönnum notalegt að heyra og þeir urðu haldnir ör- yggiskennd af að tilheyra söfr>- uði hennar, en á hinn bóginn var í þessu hætta falin, vegna þess að hér var um frávik að ræða frá venjum í hefðbundnu samfélagi. Höfundur greinar þeirrar, sem hér er stuðzt við, hefir kom ist að þeirri niðurstöðu, að í „söfnuði" Alice ríki ótti við tvennt í hugum manna, ótti við hvað fyrir þá kynni að koma, ef þeir væru ekki í honum, og ótti við afleiðingarnar, ef þeir væru taldir „öðru vísi.“ Þeir, sem ekki eru áhangendur hennar eru taldir vera andstæðingar henn- ar, eru grunaðir um að iðka galdra. og f þorpunum vita all ir allt um alla, og tryggast að fylgjast með fjöldanum. í byrjun og framan af hafði sú trú, sem Alice boðaði mikið aðdráttarafl fyrir hina óupp- lýstu og hjátrúarfullu blökku- menn — virtist eins og sköpuð fyrir þá — laus við evrópskt vald og yfirburði, en með ótt- anum varð ,,trúin“, sem í byrj un var trú tiltölulega fárra ofstækismanna, „fjöldatrúar- hreyfing“. Og brátt var farið að beita hótunum í vaxandi mæ!i til þess að fá menn til þess að ganga í hreyfinguna. Á þess- um tíma var stjórnin og lögregl an önnum kafin við vandamál frelsisbaráttunnar, og hinum meir en vafasömu aðferðum Lumpamanna var ekki nægur gaumur gefinn. Og svo héldu þeir erfiðleikar sem framtíðin hlaut að bera f skauti sínu á- fram að hlaða undir sig. — a Innbrot — Framh. af bls. 16 raun í „sjoppu" á Grensásvegi 48. Hafði þjófurinn brotið rúðu í af- greiðslulúgu, en ekki komizt sjálf- ur inn. Hins vegar tókst honum að se’ilast eftir borðstimilkassa á búðarborði rétt innan við lúgu- opið. Hefur þjófurinn ætlað sér að mjaka kassanum að lúgunni, til að komast betur að honum og opna hann. En við þessar tilfæringar hafði kass'inn dottið niður af borðinu, mölbrotnað og gereyði- lagzt. Hann er talinn vera 20-30 þús. kr. virði. Þjófurinn varð hins vegar að fara slyppur á brott. Brotizt var f nótt inn í „sjopp- una“ Gosa á Skólavörðustíg. Þang- að hafði þjófurinn farið vel útbú- inn innbrotstækjum og olli hann allmiklum skemmdum á húsinu. Að því er vitað var í morgun hafði hann stolið 6 — 7 pakkalengjum af vindlingum og rúmlega 100 kr. i pen'ingum. ÍÞRÓTTIR — Framhald af bls. 2. KR-jöfnunin kom á 36. mín- útu frá h. kanti með góðum bolta frá Nunna á skalla Ell- erts, sem „nikkaði" laglega n'iður til Jóns Sigurðssonar, sem var í ágætu færi og skoraði með þrumuskoti. Allskemmtilegur leikur, sperm andi og stundum nokkuð vel le'ikinn. Af KR-ingum bar mest á Sveini Jónssyni og Þórði, sem eru ágætir framverðir. Ár- sæll Kjartansson, sem kom í bakvarðarstöðuna fyrir frænda sinn Hreiðar Ársælssonar er mjög góður leikmaður, í fram- línu var Ellert Schram góður og átti mjög’ stóran þátt í öðru markinu og skoraði hitt. Sig- urþór kom nú aftur með liðinu. Hann átti í höggi við afar sterk- an bakvörð en gerði honum oft góð skil og er greinilegur styrx ur af afturkomu Sigurþórs. Beztu menn Bermuda voru markvörðurinn We'inwright, Woolard bakvörður, Daniels miðvörður, Clarke framvörður, og framherjamir Wright, Wade og Landy, en allir Ieikmennirnir hafa áferðarfallega boltameð- ferð og mikinn hraða, — senni- lega það sem knattspyrnumenn almennt eiga erfiðast með að ná. Dómari var Haukur Óskars- son og dæmdi vel. — jbp — Harpers — Framh. af bls. K hverju nýju, og eru komnir af stað með fyrirsæturnar. Við hittum ritstjórann, fyrirsætuna og Ijósmyndarann á Hótel Garði í morgun. Við biðum um stund með óttablandinni virðingu efr- ir að „modelið" birtist, og störðum svo stíft á dyrnar, að við tókum ekkert eftir ungu grannvöxnu stúlkunni sem stað- næmdist við hliðina á okkur. Mún var klædd í sportbuxur og blússu, með skýluklút um hálsinn, og hefði vel getað ver- ið úr FÍóanum. Vi hrukkum þvf allilla við, þegar Bjarni Bjarnason, leið- sögumaður fólksins t'ilkynnti hátíðlega: Joan Fields, og bandaði hendinni að „Flóa- stúlkunni" okkar. Við tókum þá til óspilltra málanna við að rekja úr henni gamirnar. — Hvepær byrjaðirðu að starfa sem fyrirsæta? — Það var I New York fyrir einum 10 árum. Hún brosir að tortryggnislegu augnaráði okkar, því að okkur fannst helzt að hefði hún byri- að fyrir 10 árum, hefði nún „modelerað" í barnavagni. — Byrjaðir þú þá hjá ein- hverju blaði? — Nei, ég byrjaði hjá fyrir- tæki (agency) og hefi starfað þannig síðan. — Hefurðu ferðazt víða, er þetta ekki létt starf? — Ég hef ferðazt nokkuð viða já. Við heimsækjum stunú- um lönd sem hafa upp á sér- kennilegt landslag að bjóða. Þar veljum við fallega og ó- Sr. Martin og sr. Robert Jack á skrifstofu biskups með biskupsrit- ara sr. Ingólfi Ásmarssyni. Robert Jock hefur presta- kallaskipti við Skota venjulega bakgrunna fyrir myndirnar. Eins ög til dæmis hér á íslandi. Við fórum að GuIIfossi, og tókum nokkrar myndir þar, einnig að Geysi, og að Þingvöllum. Og við éigum eftir að heimsækja fleiri staði. 1 dag erum við að fara að Laugarvatni. Hvað seinni spurningunni við vlkur þá er svarið afdráttar- laust nei. Þetta er alls ekki auð velt. Ég veit það kann að virð- ast svo fyrir þann sem ekki þekkir til, en í raun og veru er þetta mjög erfitt og þreytandi. — En vel borgað? — En vel borgað, samþykkii hún hlæjandi. Sjúkrarými — Framh. at bls. 1. næstu áramót. 110 rúm fást þá til viðbótar en það samsvarar allt að 50% aukningu. sjúkra- húsrúms hjá Landspítal anum. Hér er um að ræða vestur- álmuna, sem er fjórar hæðir, í kjallara verður æfingadeild fyrir lamaða og fatlaða, á 1. hæð sjúkradeild taugasjúklinga, á 2. og 3. hæð verður barnaspítali, sem kallaður er barnaspítali Hringsins, því sá hluti er að mestu byggður fyrir framlag þeirra samtaka. Á 4. hæð er síð- an ráðgert að hafa lyflæknis- deildina, sem verður viðbótar- sjúkradeild. Vesturálman verður væntan- lega tilbúin til notkunar um ára mótin, en í haust verður hins vegar svokölluð tengiálma full- gerð en þar verða m. a. skurð- stofur spftalans til húsa. Bæt- ist þar við mikið rúm .fyrir skurðaðgerðirnar, sem einnig verða áfram á sama stað og nú. Austurálman, sem er svipuð að stærð og vesturálman, verð- ur ekki fullgerð fyrr en eftir 2 — 3 ár, en þó verður kjallari þeirrar álmu notaður strax í byrjun næsta árs, en þar verður sótthreinsunardeildin staðsett. Þá er ráðgert að það húsnæði, sem barnadeildin flytur úr, verði notað um óákveðinn tíma fyrir lungnadeildina. Þessar upplýsingar fékk Vísir hjá Georg Lúðvlkssyni framkv. stjóra ríkisspítalanna. Georg kvað viss vandamál koma upp, þegar svo miklu sjúkrahúsrými væri bætt við eins og raun er á, en hann kvaðst hins vegar bjart sýnn á, að úr þeim leystist. — Vænti hann þess, að hjúkrunar konur og annað starfslið fengist þegar til þyrfti að taka. Fleiri framkvæmdir eru ráð- gerðar á Landspítalalóðinni eða tvær nýjar byggingar til viðbót ar. Eru það þvottahús fyrir spít alann og eldhúsbygging með mötuneyti, og vinnustofum. Síð arnefnda byggingin er mjög stór um 11 þús. rúmmetrar. Byrjað er að grafa fyrir þessum húsum og er þess vænzt, að þvottahúsið verði að mestu leyti byggt á þessu ári. Þá er I undirbúningi bygging aðalinngangs Landspítalans, sem verður hringlaga bygging milli nýju og gömlu vesturálm- anna.. Verður þeirri byggingu lokið á mjög skömmum tíma, og verður henni ætlað I og með að tengja gamla og nýja spítaÞ ann. Séra Robert Jack sóknarprest ur á Tjörn á VatnsnesT hefur nú féngið leyfi hjá biskupi Islands til að hafa brauðaskipti I eitt ár við skozkan prest. Voru þeir staddir I morgun á skrifstofu biskups, þessir tveir starfsbræð ur, þegar Vísir hitti þá. Sr. Robert Jack er sjálfur skozkrar ættar en hefur dvalizt svo lengi hér, að íslenzkan er orðin eins og hans móðurmál og kvaðst hann aðallega vera kvíð inn fyrir þvl hvort honum tæk- ist nú aftur að breyta yfir I enskuna, það gæti farið svo fyr ir honum, er hann væri að prédika að íslenzkan fengi allt I einu yfirhöndina. Hinn skozki prestur sem tek- ur við kalli hans heitir sr. Hugh Martin og er prestakall hans I Strathbango I Glasgow. Hann er Presbyterian, þar er öldunga- kirkja Skota. Sr. Martin er bú inn að læra íslenzku og hefur áður komið hingað I heimsókn. Hann mun þjóna auk Tjarnar, sóknum Vesturhópshóla, Breiða bólstaðar og Víðidalstungu. Sr. Robert Jack flýgur út til Skotlands á morgun og hinn nýi prestur þeirra Vatnsnesinga mun fara heim I kallið I næstu viku. m 18 DIN ferran/ðeo/or Siglufjörður Framh. af bls. 16. , son, framkv.stj., 56.200, Agnar Þór Haraldsson, vélstjóri, 45.400 Vigfús Friðjónsson, framkv. stj. 42.800, Guðbrandur Magnússon, kennari, 41.00, — Ólafur Þorsteinsson, sjúkrahúslæknir, 40.100, Björn Karlsson, vélstjóri, 40.100, Ragnar Lárusson, prest- ur, 39.500, Anton Jóhannesson, kennari 30.200, Vilhj. Guð- mundsson, framkv.stj. 37.900. Hæstu fyrirtæki: Njörður h.f. 71.500, Þormóður Eyjólfsson h.f. 54.300, Fiskverk un Ólafs Óskarssonar 26.500, Sunna h.f. 21.800, Söltunarstöð lafs Hinriksen 21.400. Aðstöðugjöld: Kaupfélag Siglfirðinga 279.800 Kjötbúð Siglufjarðar 144.600, Söltunarstöðin Nöf 74.100, Hrað frystihús S. R. 73.600, Pólstjarn an, söltunarstöð, 68.800. FILMA SKIPAFRÉTTlll SKIPAÚTGCRÐ RIKISINS Ms. Baldur fer til Rifshafnar, Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Stykkishólms, Skarðstöðvar, Króksfjarðarness, Flateyjar. Hjallaness og Búðar- dals á föstudag. Vörumóttaka I dag Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa SVEINS GUÐMUNDSSONAR rafvirkjameistara, Akranesi. Málfríður Stefánsdóttir ,var Sveinsson Kristín Sveinsdóttir .Jldur Guðbrandsdóttir Gunnar Gíslason og bamabðm atMtfC «aa .rœ.zvsn*

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.