Vísir - 15.08.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 15.08.1964, Blaðsíða 3
VlSIR . Laugardagur 15. ágúst 1964. VID LAXVCIDARIELUDAÁHUM „Munurinn á atvinnuveiði- manni og laxveiðimanni er sá, að atvinnuveiðimaðurinn veiðir til þess að geta lifað, en lax- veiðimaðurinn lifir til þess að geta veitt“, segir Hrafn Einars- son stórkaupmaður, um leið og hann kastar í neðra „koffíninu“ í EUiðaánum. „Nei, hann er hálf tregur í dag“, bætir Hrafn við, um leið og hann dregur lín una inn og býr sig undir að kasta flugunni aftur. „Er Iaxinn hér í Eiliðaánum sérstaklega striðinn, hann er að stökkva hér allt í kringum þig?“ spyrjum við. „Nei, ég hugsa, að laxinn hér í Elliðaánunr sé ekkert stríðnari en viðast hvar annars '•'• •••■ ' ■ ..............................................................................................................■••••• •■.•;• ••• ••• ■ Hrafn Einarsson var búinn að fá einn 6 punda Iax. •V ^ ^SX Y>s SS -- staðar, nema hvað hann tekur hér illa“. „Hvað ertu búinn að fá marga í dag?“ „Ég veiddi áðan ,einn sex punda hér ofar f ánni“. „Og hvað borgarðu svo fyrir veiðileyfið?“ „Mig minnir að það sé eitt- hvað um sjö hundruð krónur“. „Hann er þá nokkuð dýr þessi sex punda lax, ef þú veíð ir ekki meira í dag“. „O, þeir hafa nú kostað meira“. „Ertu búinn að veiða lengi hér í Elliðaánum?“ „Nei, ekki get ég sagt það, ég er búinn að veiða hér f 4 ár, en það eru nokkur ár, siðan ég byrjaði. Ég kann ákaflega vel við mig hér í EHiðaánum, og strax og maður er kominn svolítið upp í ána, vaknar sú tilfinning, að maður sé kominn upp f sveit“. „Hefurðu veitt vel hér í F.ll- iðaánum?" „Ég veit ekki, hvað er hægt að segja um það, en ég hef oftast farið heim með lax. Jæja, þetta kjaftæði dugir ekki, það er bezt að færa sig ofar“, segir Hrafn, um Ieið og hann dregur inn línuna. Á árbakkanum skammt fyrir neðan Borgarstjóraholuna stéð Þórarinn Kristjánsson, sfmritari, og fékk sér hraustlega í nefið, á meðan félagi hans, Jón Magn ússon loftskeytamaður, beið vongóður eftir að 20 punda lax, sem hann sá, biti á. Þórarinn er meðal þeirra, sem lengst hafa stundað laxveiðar í Elliðaánum, og hefur þvf dregið allmarga laxa úr ánum. Þórarinn var með mjög margar flugur f húfinni, og þegar við höfðum orð á því, hvers vegna harin geymdi flug- urnar þar, svaraði hann: „Já, þetta er bara vinnuhag- ræðing. Ef ég er með flugurnar í dósum, þá á ég það alltaf á hættu að týna þeim, en ef þær eru festar í húfuna, fara þær hafa fyrir þessu, er að taka ofan f hvert skipti, sem skipt er um flugu“. Þórarinn Kristjánsson leitar í maðkaboxinu. Flugurnar geymir hann í húfunni. Jón Magnússon bíður eftir þvf að 20 punda Iax bíti á hjá honum. (Ljósm. Vísis, B. G.) „Hvernig stóð á því að þú fékkst laxveiði-bakteríuna?" „Sennilega hef ég fengið bakteríuna frá þeim Emil Thor- oddsen og Indriða Waage, en ég fór með þeim fyrst á lax- veiðar hingað í Elliðaár skömmu eftir 1930“. „Hvað kostaði veiðileyfið þá?“ „Þegar ég keypti veiðileyfi fyrst hér í Elliðaánum, kostaði það 33 krónur, og ef maður krækti kannski aðeins f cinn lax, þótti mörgum það dýr fisk- ur“. „Hvað veiðirðu marga daga á sumrinu?“ „Mörg undanfarin ár hef ég veitt svona 12—14 daga á hverju sumri, en nú er ég að hugsa um að fækka þeim og stunda silunginn meira. Ég hef oftast haft hér 6 daga í Elliða- ánum á sumri, annars hef ég veitt í flestum ám á landinu, nema Laxá f Þingeyjarsýslu". „Ekki borðarðu sjálfur allan þann Iax, sem þú veiðir?“ „Nei, ekki geri ég það, en ég hef það fyrir fasta venju að borða sjálfur fyrsta laxinn, og svo fer ég að gefa“. „Finnst ykkur veiðimönnum það ekki hálf Ieiðinlegt að þurfa að kaupa lax, ef þið hafið ekk ert veitt, til þess að koma msð heim?“ „Ha, hvað segirðu? Kaupa lax, nei, svo Iangt Ieiddur hef ég aldrei verið“. „Ertu ekki alltaf voðalega spenntur, þegar þú ert að veiða?“ „Nei, ekki þegar ég er byrjað ur að veiða, en áður fyrr þurfti maður að taka svefnpillur kvöld ið áður, og svo dreymdi mig, að hann væri á, já, ég var stund um búinn að fá marga, áður en ég vaknaði“. „Og þú missir auðvitað þá stærstu?“ „Já, hvaða laxveiðimaður missir ekki þá stærstu?" THUNDERVOLT" kerti REGULATOR TRANSISTOR ÚTBÚNAÐUR FYRIR RAFKVEIKJUR / BIFREIÐIR KVEIKJUÞRÁÐASETT ALTERNATOR NEOPRENE KVEIKJUÞRÆÐIR Á 50 FETA SPÓLUM GiSLI JÓNSSON & CO. HF. SKÚLAGÖTU 26 S'lMÍ 11740 A prestoiite}

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.