Vísir - 15.08.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 15.08.1964, Blaðsíða 5
V 1 S I R . Laugardagur 15. ágúst 1964. Ókostir sameiningar Kýpurs og valda áhyggjum / báðum löndum Viðbúnaður til skotgrafahemaðar á ,Grænu línunni1 í Nicosia á Kýpur. Lundúnabiöðin telja viðhorf ríkisstjórna Grikkiands og Tyrklands verða að breytast varðandi sameiningu Kýpur og Grikklands, sem fram að þessu hefir verið endanlegt mark í baráttu grískumælandi Kýpur- búa, með grískan stuðning að baki sér. Það er að sögn einkum tvennt, sem veldur breyttu við horfi: Pappandreu og ráðherrar sjá fram á, að sameining gæti verið hættuleg með mann eins og Makarios við stýrið, því að hann kynni jafnvel eftir að samkomu lagi væri náð um sameiningu, flækt Grikkland inn í styrjöld við Tyrki. En viðhorf Makariosar er einn ig sagt breytt, vegna þess, að eftir sameiningu yrðu völd hans skert, svo að í rauninni yrði hann aðeins grískur héraðs- stjóri. Utanríkis- og varnarmál- um Kýpur yrði stjórnað frá Aþenu, en ekki frá Nicosia. Lundúnablöðin segja, að mál in hafi verið rædd frá þessari hiið núna í vikunni á fundi í Chequers bústað forsætisráð- herra, en auk Sir Alecs tóku þátt í viðræðum settir utanríkis- og samveldismálaráðherrar. En viðræður fóru annars fram í öllum höfuðborgum, einnig í Aþenu og Ankara, þar sem Inonu forsætisráðherra sagði, að samkomulag ætti að geta náðst innan mánaðar með samstarfi af Grikkja hálfu. En Makarios leikur tveim skjöldum eða fleiri. Hann hefir beðið um aðstoð Rússa og Egypta. Aðeins návist Sjöunda Bandaríkjaflotans á Miðjarðar- hafi kann að hafa þau áhrif, að aðstoð verði ekki veitt. Og hann er nú sagður hafa áform í huga um að semja við Tyrki — en þó svipta þá þeim neitunarvalds rétti sem þeir nú hafa í lögum. Og hann vill áreiðanlega koma því svo fyrir að þau 3 lönd sem ábyrgðust sjálfstæði Kýpur haldi ekki íhlutunarrétti sfn- um. En ef hann kæmi sfnu fram, hver yrði þá eftirleikur- inn, spyrja menn. MÖRGU MÁ UM KENNA. í blöðum kemur iðulega og æ oftar fram sú skoðun, að það sé margt sem valdi vandræð- unum, en lang alvarlegast af öllu, að það var ekki hindrað, að Kýpur-Grikkir störfuðu leynt og ljóst að því að búa sig undir hernað og ráðast á tyrkneska bæi og hertaka þá. Palmiro Togliatti alvarlega veikur Fréttir frá Moskvu í gær (föstu dag) ' herma, að kommúnistafor- sprakkinn Palmiro Togliatti sé al- varlega veikur. Hann er nú í Sovét- ríkjunum og hefur veikzt af heila- blæðingu Togliatti, framkvæmdastjóri (að alritari) ítalska kommúnistaflokks ins er 71 árs. Hann kom sl. mánu dag til Yalta í boði Kommúnista- fiokks Sovétríkjanna og var gert ráð fyrir mikilvægum viðræðum milli hans og sovézkra ráðherra og þá fyrst og fremst allt, sem varðar ágreiningin milli sovézkra og kínverskra forsprakka og fyrir hugaðan undirbúningsfund f des- ember að alþjóðakommúnistafundi á næsta ári. KR-ingar búast við metaðsókn í Laugardol þegar UVERPOOL og KR leika Á morgun koma til Reykjavfkur góðir gestir, ensku deildarmeistar- arnir LIVERPOOL, en verkefni þeirra hér er að sigra ísiandsmeist- ara KR í knattspyrnukappleik á mánudagskvöldið fyrsta leik 9. Evrópubikarkeppninnar. Þess má geta að hvorugt liðið hefur áður tekið þátt f Evrópubikarnum. Held ur eru iitlar líkur til að Vestu'- bæjarfélaginu takist að standast snúning þessum frægu atvinnu- mönnum, sem fá hver um sig 100 pund fyrir ieikinn, en samt verður gaman að sjá svo gott lið leika og er hér um einstakt tækifæri að ræða, enda búast KR-ingar við metaðsókn í Laugardai á mánudae- inn. Lið KR er óþarft að kynna nán- ar, enda flestum kunnugt hér, en það verður skipað þannig: Heimir Guðjónsson, Hreiðar Ársælsson, Bjarni Felixson, Þórður Jónssoi Hörður Felixson, Þorgeir Guð mundsson, Gunnar Guðmannsson Sveinn Jónsson, Gunnar Felixson. Ellert Schram (fyrirliði), Sigurbór lakobsson. Liverpool-liðið er ekki óþekkt hér á landi og margir þeirra Ie:k- manna sem hingað koma eru gamlir „kunningjar" þeirra fiö' mörgu sem undanfarin ár hafa fylgzt með enskri knattspyrnu. Liðsmenn Liverpooi verða nú kynntir með örfáum orðum og byrjum við þá kynningu: Tommy Lawrence, markvörður, | skozkur landsliðsmarkvörður s.l. 2 I ár. Hann var varaliðsmarkvörður i Liverpool, er aðalmarkvörður liðs- j ins varð að fara á sjúkrahús. Eftir I 7 le'iki í aðalliðinu var hann vai- j inn í skozka landsliðið undir 23 ára og 4 mánuðum síðar lék hann I í skozka landsliðinu. Hann cr fæddur í Ayrshire f Skotlandi, en kom ti! Liverpool frá Warrington. Gerry Byrno, hægri bakvörður, 1 fæddur í Liverpool, varð atvinnu- : maður 1955, og fastur leikmaður i aðalliðinu 1960. Hefur leikið bæði í „undir 23 ára“-Iiði Englands og • landsliðinu. Konnie Moran, vinstri bakvörð- ; ur, hefur verið atvinnumaður f 12 i ár og leikið 350 leiki með aðal'.ið- I inu. Hefur leikið með úrvali deilda- : keppninnar og skorar mikið af j mörkum úr vítaspyrnum og auka- , spyrnum. Gordon Milne, hægri framvörður var keyptur frá Preston North End fyrir 4 árum, og voru það hagstæð kaup. Faðir hans, frægur landsliðsmaður fyrr á árum, var þá framkvæmdastjóri Preston, og vildi ekki að sér yrði kennt un að hygla syninum með því að halda honum : liðinu. Eftir að hann tók að leika með Liverpool hefur hann leikið um 200 leiki með aðalliðinu og verið fastur í enska landsliðinu síðan vorið 1963. Framh. á bls. 6. Á myndinni eru þeir ieik- J menn LIVERPOOL, sem hér / munu leika gegn KR á J mánudaginn. Myndin var i tekin eftir sigur LIVERPOOL J í deiidakeppninni í Énglandi, i en þar hlutu þeir 56 stig, J næsta lið, Manch. United, » hlaut 52 stig, þannig að sig- J ur Liverpool var mjög ör- i uggur. J

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.