Vísir - 15.08.1964, Side 15
V í S I R . Laugardagur 15. ágúst 1964.
75
ROBERT STANDISH: /
HEFNDIN
Framhaldssaga
að sjúka móður sfna betur, því
að Neil tók að sér að vera fjár-
hirðir, til þess að geta verið
sem mest undir beru lofti uppi
í fjöllunum. Þessu lífi undi hann
hið bezta um tíma. Honum féll
vel starfið og hreina loftið —
og að geta verið einn með hugs-
anir sínar. En vitanlega gerðist
það, sem hlaut að gerast. Hann
og Josette urðu ástfangin hvort
í öðru, og þau gengu í heilagt
hjónaband, og þegar móðir henn
ar var dáin fékk hann hana til
þess að selja býlið og fara með
sér til Antibes, og vann sér þar
dálítið inn með því að teikna
myndir af ferðamönnum. Þau
bjuggu í litlu húsi uppi í fjöll-
unum, sem Marc Rolland útveg-
aðl þeim.
Neil var eins hamingjusamur
og búast mátti við og Josette
var hamingjusöm. Árin liðu og
þau eignuðust tvö börn. Og svo
leið fram til ársins 1954 og Neil
fór nú að hugsa um það æ tíð-
ar, að hann væri orðinn fertug-
ur, og hann yrði að fara að
spjara sig vegna framtíðarinnar.
Hann vissi, að enn var ekki orð-
ið of seint að byrja að mála á
ný, og það jafnvel flögraði að
honum, að fara aftur til Am-
eríku. En lítið varð úr öllum á-
formum. Hann hafði misst sinn
gamla metnað. og ef sonurinn
litli hefði ekki fengið alvarlegan
augnsjúkdóm, hefði hann vafa-
laust lifað áfram fábreyttu lífi
í fjallakofanum í Antibes.
Josette var ómenntuð sveita-
kona, einlæg og sönn, en sann-
arlega gædd heitum tilfinning-
um, og þegar hún sá myndimar,
vaknaði afbrýðisemi í hug henn-
ar. Það fór ekki fram hjá henni,
aðdáunin 1 svip Toni, þegar hann
virti fyrir sér myndimar.
- Ég hata hana, sagði hún
og hatursglömpum brá fyrir í
augum hennar.
- Það geri ég líka, Chérie,
sagði Toni, og þú verður að trúa
mér, þegar ég segi, að ég met
hana einskis nú, — en þessar
myndir eru það, sem ég ætla
mér að nota til þess að afla fjár
til þess að bjarga sjón drengsins
okkar. Ég hefi aldrei verið þér
ótrúr — og verð aldrei, og nú
áttu bara að trúa því, að allt
fari vel.
•
Og Josette gerði það, sem
hún gat til þess að bæla niður
efa og afbrýðisemi, en næstu
mánuðir urðu eina tímabil ævi
hennar, sem hún var vansæl. —
Toni sat daglangt við málverka-
grindina eins og i leiðslu og mál
aði af kappi, til þess að ná aftur
sinni fyrri leikni, þar til hon-
um fannst að hann væri orðinn
eins vel fær og forðum daga,
og svo tók hann sig til að mála
myndir eftir myndunum þrem-
ur. Josette fann undir niðri, að
miklir hæfileikar vom að koma
í ljós hjá manni hennar, en jafn-
vel í draumi kvaldist hún af til-
hugsuninni um myndimar af
hinni fögm, ögrandi konu, sem
Toni hafði eitt sinn þekkt, og
kannske hafði ekki gleymt. En
hún elskaði hann og sagði ekk-
ert.
Og loks var verkinu lokið og
Josette var þvf fegin, að þurfa
ekki að hafa myndimar lengur
fyrir augum sér — hún fagnaði-
yfir að þær voru ekki lengur
undir þaki hennar. Toni hafði
sett frummyndimar í einn og
sama böggul — og eftirlíking-
amar í annan. Svo fór hann
með þá báða til Marc Rollands,
sem lét böggulinn með frum-
myndunum í peningaskáp sinn
og tók að sér annað, sem gera
þurfti, en Marc Rolland þekkti
marga og hafði „góð sambönd“.
Á meðan hélt Toni áfram að
teikna myndir af ferðamönnum,
og Josette endurheimti ró sfna,
þar sem hún hafði sannfærzt
um, að hið dökkhærða fagra
flagð myndi aldrei komast upp
á milli hennar og Toni Það eitt
skipti máli fyrir hana, að eiga
áfram ást Toni ein og að sonur
þeirra fengi að halda sjóninni.
•
Málverkin þrjú af Gabrielle
Delauney, sem máluð voru fyrir
um það bil tuttugu árum, nokkr
um árum fyrir heimsstyrjöldina,
voru allt í einu til sýnis í lista-
verkasölum Raynaud í París —
og vakti þetta eigi litla athygli
meðal listamanna og listvina,
og menn minntust nú aftur hins
unga og efnilega bandaríska list
málara, Neil Savory, sem hafði
málað þau. Og Raynaud, sem
hafði verið félagi Marcs Rol-
lands í frelsisbaráttunni, varð
ekkert undrandi, þegar Paul
Lavalliere og frú hringdu til
hans og báðu leyfis að fá að
sjá myndimar
Árin höfðu sett sitt mark á
Gabrielle. Enn var hún fögur, en
grófir andlitsdrættir leiddu nú
í Ijós skýrar en áður hennar
sanna eðli, að hún var kona gróf
í sér og lítt treystandi, grimm
og hefnigjöm, en þessum eigin-
leikum hafði fegurðarhjúpurinn
leynt fyrir flestum. Eftir styrj-
öldina höfðu þau hjón neyðzt til
þess að fara til Brazilíu til þess
að komast hjá hefndum and-
spyrnuhreyfingarmanna, þar til
„sérfræðingar", sem fengu ótak-
markað fé til umráða, gátu kom
ið því til leiðar, að þau vom
sýknuð af öllu samstarfi við
fjandmennina í stríðinu.
— Þrjú gullfalleg málverk,
sagði Marc Rolland silkimjúkri
röddu.
— Já, mér fannst ávallt, að
honum hefði tekizt bezt upp, er
hann málaði þessar myndir,
sagði Gabrielle, — en ég kom
hér við sögu, skiljið þér. Við
vomm vinir hans og hjálpuðum
honum til að flýja, þegar Gesta-
po-menn voru á hælum hans,
eftir að hann hafði teiknað
snilldar vel gerða en meinlega
skopmynd af Hitler.
— Hvað er verðið á þessum
þremur málverkum, herra Ray-
naud? spurði Paul, sem þakkaði
sínum sæla að Neil Savory var
löngu dauður - að hann hugði
— og ekki til frásagnar um sein
asta fund þeirra
- Verðið er eitt hundrað þús-
und dollarar, svaraði Marc Rol-
land án þess nokkur svipbreyt-
ing sæist á andliti hans.
— Eruð þér genginn af vitinu?
sagði Paul Lavalliére. Víst var
Neil Savory hæfileikum gæddur,
en hann var ekki neinn Renoir.
— Ja - jæja, ég mun ekki
reyna að knýja yður til þess að
kaupa myndirnar, en ég yrði
ekkert hissa, þótt þær yrðu
famar á morgun, sagði lista-
verkasalinn.
— Kauptu þær, Paul, sagði
Gabrielle, sem fyrir hvem mun
vildi fá þessar sannanir fyrir
fyrri fegurð - og vegna þess,
að hún hugði sig standa betur
að vlgi, ef hún. hefði þær, að
halda í Paul, en framhjátökur
hans voru famar að verða að
hlátursefni, sem fór mjög í taug-
arnar á henni.
— Gott og vel, sagði Paul,
þú verður að ráða.
Við listaverkasalann sagði
hann:
— Sendið okkur myndimar
og yður verður afhentur tékki,
sem þér getið framvísað í banka
mfnum.
Nokkrum dögum síðar var
boðið til mikillar móttöku f
skrauthýsi Paul Lavalliére. Mál-
verkunum hafði verið komið fyr
ir í „stóra salnum“. og vöktu
þau feikna athygli — og Gabri-
elle naut sfn vel, enda höfðu
fegurðarsérfræðingar haft hana
til meðferðar í fullar sex stund-
ir, áður en móttakan hófst.
Hún var óspör á að lofa frétta
ljósmyndurunum að taka af sér
myndir. og með tárin í augunum
sagði hún:
— Neil var indæll maður. Við
vomm - eins og yður kannske
rennir grun í, mjög góðir vinir
— en við vorum bæði of skap-
heit, til þess að það gæti orðið
nema vinátta okkar í milli Og
svo kom Paul — og ég varð
hans, og ég hefi aldrei iðrazt
neins.
Sumir viðstaddir urðu að <
kæfa niður hlátur, því að það
var á allra vitorði, að sambúðin
þeirra milli var orðin slík, að
hundi og ketti hefði komið betur
saman, - en svo gleymdist allt
slíkt, því að vel var veitt af
kampavíninu, og í lok móttök-
unnar bað Paul menn drekka
skál hins látna málara.
- Minnumst hins mikla mál-
ara og djarfhuga baráttumanns
Neil Savory, sem ég er stoltur
af að hafa átt að vin.
Og menn drukku skálina, há-
tíðlega alvarlegir — í minningu
hins „látna, mikla listmálara“.
Og um tíma var nú mikið
skrifað í blöðin f París um Neil
Savoiy og saga hans rifjuð upp,
og meðal listamanna var mikið
um hann rætt, en svo gerist
það. að allir ritstjórar Parísar-
blaða fá samhljóða bréf frá ó-
þekktum Jögbókara í Antibes,
og bréfið var vitanlega birt í
öllum blöðum borgarinnar: Það
var svohljóðandi:
Herra ritstjóri.
Ég hefi komizt að raun um,
að til eru þrjár eftirlíkingar
af málverkunum þremur af
hinni fyrrverandi Gabrielle
Delauney, nú Madame Paul
Lavalliére, sem bandaríski mál
arinn Neil Savory málaði á
sinni tíð. Við Neil Savory vor-
um félagar í andspymuhreyf-
ingunni og nánir.vinir Hann
T
A
R
Z
A
H
MY BONSO FRIENES. ANZ MY OWN
EYES, TELL ME THA.T TARZAN IS
A BKAVE MAN, WISE AN7 6007!
WE TUPIS TRUST YOU! WE ABI7E
...TUPI AN7 BONSO WAÍLTOftS WILL
HASTEN 0VEK.LAN7 TO WAÍLUNS A
COUNTR.Y, SUT WE WILL NOT <
ATTACK UNTIL YOU HAVE FREE7
MY LEOLA... OR SIVEN US THE
5ISNAL TO KILL WARUNSSl a
V,
I HOPE WE CAN INTERCEPT THE KI7NAPPERS
BEFORE THEY REACH WARUNG COUNTRY
WITH YOUR 7AUGHTER, CHIEF MATABUSI!
Bongoamir, vinir mínir og augu
mín segja mér að þú sért hug-
rakkur og góður maður, segir
Matabusi. Og'einnig vitur. Við
munum því hlýða ráðum þínum.
Tupi- og Bongoahermenn munu
hraða sér til Warungalands, en
ekki gera neina árás fyrr en þið
eruð búnir að bjarga dóttur minni
Þá gefið þið merki um árás og
við munum drepa Warungana.
Ég vona að okkur takist að ná
Warungunum áður en þeir koma
til síns lands, segir Tarzan. Ef
þú bjargar henni, þá eru öll okk
ar auðæfi einnig þfn auðæfi,
svarar höfðinginn.
Nýkomib
iyrir
bifreiðar
Aurhlífar að framan
Aurhlífar að aftan
Loftnetsstangir
Luktarhringir
fyrir ameríska bfla
Hleðslutæki
Rúðusprautur
Speglar
Barnasæti
Loftdælur
Stuðaratjakkar
Vökvatjakkar
IV2—6 tonna %
Startkaplar Æ
Trefjaplast
til ryðbætinga
Redex sóteyðir.
Garðar Gíslason
Þessi kúlupenni
er nýjung
á heims-
markaðinum
Seldur um
allt land
epoca