Vísir - 20.08.1964, Side 3
VlSIR. Fimmtudagur 20. ágúst 1964
Kvikmyndað
Gorch Fock
í hrauninu fyrir sunnan Hafnarfjörð. Ef myndin prentast vel má sjá þýzka seglskipið
í baksýn. (Myndirnar tók ljósm. Vísis B.G.)
ÍSLENZKIR „KÁBOJAR"
IFRÖNSKU SJÓNVARPI
Þýzka seglskipið Gorch Fock
Iá við akkeri skammt undan
ströndinni.
Hópur ríðandi manna hefur
numið staðar á hæð við Kefla-
víkurveginn. Þetta eru bæði
karlar og konur, og á öllum aldri.
Eins og eftir merki, er svo lagt
af stað, og hestarnir fara á hröðu
brokki. Smám saman er sporið
greikkað, þar til allir eru komnir
á harðastökk. Fremst fer un;>
stúlka á glæsilegri hryssu, sem
rykkir í tauminn og hristir sig
óþolinmóðlega. En líkami stúlk-
unnar sveigist mjúklega og fylgir
hverri einustu hreyfingu hryss-
unnar, og taumhaldið er þétt og
ákveðið. Sítt, Ijóst hárið kemui
niður undan knapahúfunni og
flaksast um herðarnar. Karl-
maður á rauðum hesti kemui
upp að hlið hennar og þokasl
fram úr. Þegar hann er svo sem
eina hestlengd á undan, hlær
stúlkan glaðlega og gefur hryss-
unni lausan tauminn. Hún tekur
óðara viðbragð og geysist fram
úr aftur. Jörðin skelfur af hófa-
tökunum, og rykmökkurinn þyrl-
ast hátt í loft. Á Keflavíkurveg-
inum er hvítur Consul Cortina
bíll á mikilli ferð. Það er station,
og hann er opinn að aftan. Það
situr þrekinn maður og dökkur
yfirlitum með kvikmyndavél, sem
hann beinir að reiðmönnunum.
Við stýrið er annar, dökkur yfir-
litnum, en grannvaxinn, og hartn
gætir þess, að bíllinn sé alltaf
heldur á undan hestunum. Á eftir
Cortina bílnum kemur svo Opel
á mikilli ferð. Clt um hliðarglugga
hans teygir sig maður, sem
einnig beinir kvikmyndavél að
reiðmönnunum. Við stýrið á þein
bíl situr ung stúlka, sem bítur
hugsandi á neðri vörina í hvert
skipti sem kvikmyndatökumað'ir-
inn bunar einhverju út úr sér á
frönsku, og gerir svo það, sem
henni finnst líklegast að hann
meini.
Hér er á ferðinni enn einn hóp-
ur sjónvarpstökumanna, og eru
þeir frá franska ríkissjónvarpinu.
Hópar þessara sjónvarpstöku-
manna eru annars orðnir svo
margir, að það liggur við, a-5
annar hver íslendingur sé orðinn
„sjónvarpsstjarna". En það er
ekkert vafamál, að koma slíkra
er til góðs fyrir okkur, ekki sízt
hvað ferðamannastrauminn á-
hrærir, því að þessir piltar hafa
gott auga fyrir því, sem óvenju-
legt er og sem ganga mundi i
augu manna annars staðar í
heiminum. Þeir eru því hvarvetna
aufúsugestir og njóta hinnar
beztu aðstoðar. Forsprakki hinna
frönsku, Du N.oie, hefur ferðazt
víða um landið með aðstoðar-
mönnum sínum og „filmað“ mörg
skemmtileg og þjóðleg fyrirbæri.
Það er Ferðaskrifstofa ríkisins,
sem hefur séð um allan undirbún
ing í sambandi við Ieiðangurinn,
stungið upp á efni og m.a. sett á
svið fyrir þá glímu og reiðtúrinn,
sem sagt er frá hér.
Einn kvikmyndatökumannanna sat aftur f Cortina
I
„Væ maður sérðu kábojana“ sagði lítill drengur i bíl sem ók fram hjá reiðmönr
verið að taka fslenzka kábojmynd.“