Vísir - 20.08.1964, Side 7

Vísir - 20.08.1964, Side 7
V'f STR. Fimmtudagur 20. ágúst 1064 / !; fpSÆ: •pN'' ' Rætt við fulltrúa Osló-borgar um vandamáf borgarfélags ’psirra Í2ö’'S'va ' ------------ Við komu Oslóarmanna til Reykjavíkur. Getr arttjóri býður Brynjulf Bull veikominn. um bæinn. Norðmennirnir stað- hæfðu, að það væri ómetanlegt að hafa ráðhúsið bæði fyrir skrifstofur og svo einfaldlega vegna þess, að ráðhúsið gæfi borgarstjórninni og borginni f heild vissa festu og svip. Þeir skýrðu frá því, að hug- myndir um ráðhús hefðu fyrst komið fram um 1917, þegar hægri menn réðu meirihUtta f stjórn borgarinnar. En hafizt var handa um byggingu þess kringum 1930 og húsinu lokið að utan um það bil, þegar styrj- öld skall á. Þrátt fyrir það tð húsinu var þannig komið upp á árum, þegar byggingakostn- aður var mjög lágur kostaði hús ið í heild sem nemur útsvör- um eins árs. Virtist sem kostn- aðaráætlun Reykjavíkur-ráð- hússins vær'i þannig hagstæð við þennan samanburð, þar'sem áætlað hefur verið að Reykja- víkur-ráðhús kosti 120 milljónir króna, en ársútsvör hér nema um 400 milljónum króna. A i y á metaskálum ■það kom og í ljós, að ekki höfðu allir verið á einu máli um staðsetningu eða útlit ráðhússins f- Osló. Hugmyndir höfðu verið uppi um það, að reisa það upp'i á hæð einni og virtist sem það yrði útslagið, en þá kom arkjtekt einn með þá hugmynd að reisa það á flötu svæði niðri við fjarðarbotninn. Urðu nokkrar deilur um þetta, en þetta varð þó úr, m.a. vegna þess að það gaf tækifæri tH að rífa þarna stórt hverfi af görai- um og óheilnæmum íbúðarhús- um. Nú virðist sem alfir sén J>að er mikill stærð- ’ armunur á höfuðborg- um tveggja Norðurlanda Osló höfuðborg Noregs og Reykjavík höfuðborg íslands. Osló hefur íbúa- tölu, sem nálgast hálfa milljón, Reykjavík um 80 þúsund. Og þrátt fyrir þennan stærð- armun eru vandamál og við- fangsefni þessara tveggja syst- urborga þau sömu. Þetta var sú ályktun, sem blaðamenn Reykjavíkurblaðanna drógu af viðræðum við þá forustumenn Oslóarborgar, sem hér eru nú staddir í heimsókn, en fyrir þessum hópi er Brynjulf Bull fulltrúi Verkamannaflokksins, sem nú er forseti borgarstjórnar eftir að Verkamannaflokkurirm náði völdum í borgarstjórn í síðustu kosningum. En í hópn- um er einnig Rolf Stranger, foringi hægrimanna í borgar- stjórn, sem lengi hefur verið á- hrifamesti niaður í bæjarmál- efnum Oslóar, þegar hægn menn höfðu þar meirihluta. Jjað kom fljótt í ljós á blaða- mannafundinum, sem þeir héldu eftir miðdegisverð á Hótel Sögu, að tekjustofnar Oslóarborgar eru nær því a'- veg þeir sömu og Reykjavíkur. Aðaltekjustofriinn er útsvörir, og þó ekki sé auðvelt að gera samanburð, þá virtist sem út- svörin í Osló væru ÍVið hærri en í Reykiavík. Mikill munur er hins vegar •á álagningaraðferð og innheimtn í Osló og í Reykjavík. í höfuð- borg Norðmanna eru útsvörin innheimt jafnóðum af launum og þau eru prósentvís þau sömu hvort sem launin eru há eða lág. það er um 17%. Útsvarsgreið- endum er skipt niður í flokka eftir því, hvort þeir eru fjöi skyldumenn og hvað mörg böre þéir eiga. Síðan þurfa launa greiðendur ekki annað að ger i en að líta á handhæga töflu, sem allir geta haft við hendina og sýnir hvað mikið maður í hinum eða þessum flokki á að greiða til ríkisins af vissri upp hæð. Með þessari aðferð verður innheimta og álagning sjálfgerö og ákaflega fyrirhafnarlítil. Bull forseti bæjarstjórnar gaf fréttamönnum nokkur dæmi um það hvað ófaglærðir verka menn greiddu alls í opinber gjöld, það er að segja merin sem eru með um 20 þúsund norskar krónur í brúttótekjur: það er um 120 þús. IsL kr. Sé hann einhleypur greiðir hann 4700 kr. (28,800 ísl. kr.), hjón greiða 4,000 kr. (24 þús. ísl. kr.), hjón og 1 barn 3,300 kr. (19,800 ísl. kr.), hjón og 2 börn 2,600 kr. (15,600 ísl. kr.). rJ'aIinu var vikið að raforku verum Oslóar, en eins og kunnugt er, er Noregur eitt mesta vatnsorkuland í Evrópu Skýrðu Norðmennirnir frá þvi, að Oslóborg hefði sjálf reist raforkuver sín og enn héldi borgin áfram að kaupa upp vatnsréttindi og auka virkjan- irnar. Raforkan er einhver sú ódýrasta sem þekkist í Evrópu, aðeins 5 aurar á kwstund na (30 ísl. aurar), en vatnsvirkj- anirnar eru nú farnar að verða dýrari og dýrari með hverri nýrri virkjun, þar sem smám saman er búið að fullnýta þau vatnsföll, sem hagkvæmust voru. Nú er aðallega verið að virkja fossa í Hallingdal, en þó verður Osló að leita enn lengra eftir rafmagni, og mun borgin virkja á næsta ári 550 þúsund kílóvött á vesturströnd Noregs í Sognsæ. Tjað var bent á það á fund- inum að eitt væri ólíkt með Osló og Reykjavík. Það er Frá blaðamannafundinum með borgarfulltrúum Oslóborgar. Vinstra megin við súluna sést Brynjulf Bull forseti borgarstjórnar Oslóar, hægra megin við súluna Egil Storstein borgarstjóri fjármála. Geir Hallgrímsson borgarstjóri snýr baki að Ijósmyndara f nærsýn vinstra megin á myndinni. að.Osló á ráðhús, en Reykjavík ekki. Einn fréttamaðurinn spurði, hvort það væri nokkuð betra að hafa ráðhús en a3 koma skrifstofunum aðeins fyrii í húsnæði hingað og þangað mjög ánægðir með staðarvalið. Ráðhúsið rís þarna upp rét.t fyrir ofan vatnsflötinn og air hin mesta prýði að því og Osló- arbúum þykir vænt um húsið Framh. á 10. síðu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.