Vísir - 26.08.1964, Síða 2

Vísir - 26.08.1964, Síða 2
t i i i i i i i i i i i i i i i i i i á t i * i t t i t t i t t 4 t i t t t t t t t t t t t t t t t t t i i t i t t t i i i i t t t t t t t 4 t P t t i i t Dómarinn sngði línuverði upp sturfí þegur hunu kvurtuði! Bikarkeppnin hafin — Hún býður nú sem fyrr iipp á góða skemmtun og mikfa baráttu sem óviða er að finna annars staðar Bikarkeppni KSÍ er hafin fyrir nokkru og hafa 7 leikir nú farið fram. 1. umferð keppninnar er lokið og 2 leik ir af 4 í annarri umferð búnir. Bikarkeppnin býður á hverju ári upp á líf og fjör og leik- irnir í keppninni eru oft þeir leikir, sem lengst eru í minn- UHi hafðir. Þessi keppni verð- ur áreiðanlega engin undan- tekning, það hafa fjörugir leikir að undanförnu sýnt. 10 mörk til að sigra! „Það er orðið heldur hart, þegar maður verður að skora 10 mörk til að vera sigurvegari í leik“, sagði gamla kempan Þórður Þórðarson að loknum einum bikarleiknum, líklegast þe’im sögulegasta, leiknum milii Vestmannaeyja og Akraness-b, en í þeim leik vann Vestmanna eyjaliðið með 9 mörkum gegn 8, sem áreiðanlega ' er eins- dæmi, a.m.k. hér á landi. í fáum orðum gekk leikurinn svo tii að Vestmannaeyingar komust 2:0 yfir á örfáum mín- útum en ekki iiðu nema fáar mínútur þar til Skagamenn voru með 3:2 eftir tvö vel- heppnuð víti og óbeina auka- spyrnu. Gekk þannig fram eftir hálfleik að liðin skiptust á skotum, fengu mörk á víxl og voru hnífjöfn í hálfleik, 8:6, sem er allskemmtileg marka- tala og mark á minna en 4 hverja mínútu. Drýgstir í að skora voru þeir Aðalsteinn Sig- urjónsson og Þórður Þórðarson. i seinni hálfleik var ekki alveg jafn margt um mörk, en því meiri spenna var í leiknurn og stundum voru ópin í áhorf- endum eins og um væri að ræða úrslitaleik í heimsmeistara- keppni. Sjálfsmark færði Skaga mönnum 7:6 og þeir héldu for- ystunni I 8:7, þegar Þ. Þ. þrun- aði í gegn. Sævar Tryggvason skoraði 8:8 fyrir Vestmanna eyjar úr þröngu færi og Sigur- jón Gíslason (áður Hafnar- fjörður) skoraði 9:8, sigui- markið i þessum leik úr víta- spyrnu. „Hættur“, sagði línuvörðurinn. Skemmtileg eða öllu heldur spaugilegt atvik átti sér stað rétt fyrir leiksiok í þessum leik. Mark hafði verið skorað hjá Akurnesingum. Línuvörð- ur dæmdi a.m.k. boltann inni, en dómar’i var ekki á sömu skoðun og dæmdi hér útspark í stað 10. marksins. Þetta fékk svo á línuvörð að hann veifaði þar til dómarinn kom hlaupand; til hans. Sagðist línuvörður ekki vilja starfa með dómara, sem ekki tæki mark á sér og kvaðst hætta ef mark yrði ekk'i dæmt. Tók dómarinn þá veif- una af honum og fleygði út fyr- ir hinn nýja og glæsilega gras- völl þeirra Eyjaskeggja. Vakti þetta atvik talsverða kátínu. Jafnir leikir. í öðrum leikjum hefur hark- an ver’ið alls ráðandi og sigur- mörkin alltaf verið dýrkeypt. Við getum séð þetta af úrslitum leikjanna sem eru þessi: Keflavík-þ—Valur-b 1—2. Þróttur-b — Fram-b. Þróttui mætti ekki til leiks. Vestm.eyjar—Akranes-b 9:8. ísafjörður —KR-b 2:3. Víkingur—Haukar 2:1. ! 2. umferð hafa farið fram tveir leikir. FH og Breiðablik sem þurftu ekki að keppa í 1. umferð háðu geysiharða bar- áttu sem Kópavogspiltarnir unnu með 3:2. Breiðablik fer þvi í 3. umferð ásamt 3 liðum öðrum, Fram-b oglíklega Akur- eyringum og Vesbnannaeying- um, en dregið er um leikina í 3. umferð. Þau tvö l’ið sem sigra í 3. umferð fara í aðalkeppn- ina, 4. umferð ásamt I. deild- arliðunum. Úr leik Vals og Fram í gærkvöldi í bikarkeppninni, en honum lauk 2:1 fyrir Fram eftir framlengdan leik. t t t t t t t t t t t i i i t t t i t t t i t t i t t i t t i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i t i i t i i i i t i t i i t Af tur landsleikir við Danmörku í knattspymu Danir vilja nú aftur leika lands- leiki i knattspyrnu við íslendinga. Það var haft fyrir satt, að þeir teidu sig ekki eiga erindi við ís- land i landsleik i knattspyrnu og þvi kom afturkippur á það sam- starf sem verið hafði í nokkur ár, — samt hafði ísland nær tekið Olympíusilfur frá Dönum með frammistöðunni i síðasta lands- leiknum gegn þeim, 1:1 i Kaup- mannahöfn, þar sem Danirnir skoruðu jöfnunarmarkið aðeifis nokkrum mínútum fyrir leikslok. Stjórn DBU tó’.c þessa ákvörðun nú eftir helgina og mun nú stinga upp á Ieik í júlí næsta ár í Reykja vik, og annan í Danmörku 1966 eða 1967. Veiðileyfi í Miðfjarðará Vegna forfalla eru 2 stangir til sölu dagana 28.-30. ágúst. Símar 18649 og 38280. Frægt fólk i ibróttum: Clay (Mohammed Ali) giftur og geymir konuna í baðherberginu meðan hann heldur blaðamannafund — „Ilmvatn betra vopn en spjót“, segir Dor en — Golf eftirlætisíþrótt Goldwaters. • Cassius Clay tók á móti nokkrum hávrðasömurr. frétta- mönnum á dögunum, er hann hafði kvænzt ungri negrastúlku, 27 ára gömlu módeli, Sonji Roi. „Þið n-egið ekki kalla mig Cassi- us, — ég heiti Mohammed AIi“, sagði hann. Fkki er vlst að unga eiginkonan heimsmeistarans hafi haft mikið um ráðahaginn að segja, en eitt er víst, að henni gafst enginn kostur á því, — meistarin.i hafði lokað hana inni á baðherberginu meðan hann talaði. „Eiginkonur Musl- ima“, sagði Mohammed Ali, „eiga að falla i skuggann af okkur karlmönnunum“. @ Mamie Van Doren, talin f afar „góðu formi“ með tölurnar 36—24—35 er ekki sögð á móti keppni í neinu íormi. Hún segir þó, að það sé endaleysa af kven- manni að keppa f venjulegum íþróttum. „Ilmvatn er betra vopn en spjót, þess vegna stunda ég t. d. ekki spjótkast“, segir hún. Barry Goldwater kemur víða við og myndin, sem hér fylgir af honum er tekin á golfvelíi 1 Aiizona. Golf virðist hafa verið eftirlætisíþrótt margra forseta Bandaríkjanna og ekki er óvfst nema svo verði fyrst um sinn, — a. m. k. ef Barry Goldwater verður kjörinn forseti Banda- rfkjanna.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.