Vísir - 26.08.1964, Qupperneq 7
VfSIR . Miðvikudagur 26. ágúst 1964
5 blússur í
stað einnar
Ef þið eigin f infaida, ljóslita iangermablússu, seni bið
eruð orðnar dauðleiðar á, er Iítill vandi að breyta henni
i fimm mismunandi blússur án mikillar fyrirhafnar. l'i)
þess þurfið þið uðems nál og tvinna, mislita borða, pífur,
slaufur og bönd — og góðan smekk — og þið eruð bún-
ar að eignast margar blússur í stað einnar. Hér sjáið
i’.ið fimm aðferðii *ii að breyta sömu blússunni, þannig
að hún eigi við timm misniunandt tækifæri.
Nýjasta nýtt
' skótízkunni
Já, hvort sern þið trúið þvl eða ekki — þetta eru
fjögur sýnishorn af nýjustu ítölsku kvenskónum. Vafa-
laust eru þeir mun heilsusamlegri en títuprjónahælar
og örmjóar tær, að ekki sé minnzt á mildari meðferð 1
gólfdúkum, flísum og fínum teppum, en hvaða tízku-
dama vill láta sjá sig I svona fótabúnaði? Hvað sem
því líður, er þetta hausttízkan í Flórenz árið 1964, og
kvenþjóðin er svo sem vönust við að láta tizkukóngana
drottna yfir sér og ákveða hvað skuli teljast fallegt og
hvað ljótt á hverju tilteknu tímabili.
15 heilræði
1. Lestu vandiega pað, sem stendur á umbúðunum, áður
en þú kaupir vöiuna — annars áttu á hættu að gera
eilífar vitleysur.
2. Kauptu aldiei ''aralit vegna þess að hann fer vinkonu
þinni vel. Það er ekki víst, að hið sama eigi við ykkur .
báðar
3. Gg ef varalitirnir eiga til að breyta um lit á vörunum
á þér, skaltu prófa þá, áður en þú lætur verða af kaup-
unum, með því að rjóða svolitlu á innanverða löngu-
töng og bíða nokkrai sekúndur — þá sérðu, hvort litur-
inn mun breytast eða haldast samur og jafn á vörunum
á þér
4. Ef þig langar að fá t.d. varalit eða augnskugga i stíl
við kjólinn binn skaitu ekki treysta á minnið eitt. Annað
hvort skaltu vera í kjólnum, þegar þú ferð að verzli,
eða taka mtð þér prufu af efninu.
5. Notaðu taikúm og kölnarvatn af sömu tegund og eft-
írlætisilmvatnið þitt, það verður miklu notadrýgra.
6. O^þegar þú ert búin með ilmvatnið, skaltu fylla glas
ið af matarolíu. Eftir tvo-þrjá daga ertu búin að fá
fínustu ilmolíu i’yrii baðið — nokkrir dropar nægia
hvert sinn.
7. Kauptu alltaf itærstu gerð af mestu nauðsynjavöruo-
um — t.d. hreinsunarkremi, bómull, andlitsservíettum og
naglalakksuopleysara — það er ódýrara.
8. Ef þú átt eitthvert sérstakt vandamál við að stríða,
eins og t.d. þurrt, fint hár eða alltof feita húð, skaitu
Framh. á bls. 4