Vísir - 26.08.1964, Page 15

Vísir - 26.08.1964, Page 15
V1SIR . Miðvikudagur 26. ágúst 1964 75 THOMASINA WIBER: Konan á eynni - Allt gerðist svo fljótt. Ég gat ekki hugsað. Ég hafði á- hyggjur af frænda og hræðslan hvarf mér. Og það var ekki fyrr en ég var komin út úr her- berginu, að allt stóð ljóst fyrir hugskotssjónum mínum. Og ég fékk móðursýkiskast, eða hvað ég á að kalla það, missti kjark- inn og hljóp hingað til þín, eins og krakki, sem er dauðskelkað- ur. Hann hallaði höfði hennar að barmi sínum og strauk hár henn ar. . — Þú hefðir átt að kalla á mig. Hann hefði kannski ... Ró virtist smám saman fær- ast yfir hana og nú taldi hann óhætt að búa hanc undir það, að hann aðhefðist eitthvað, sem þau bæði óskuðu eftir undir niðri, — fara leiðina, sem hann hafði óbeint vikið að — Það verður eitthvað að gerast í þessu, vina mín, sagði hann. Hann fann, að hún hristi höf- uðið. - Sjáðu til. Þú segir, að hann sé meðvitundarlaus. Ef ég nú bæri hann út í bátinn og sigldi með hann kippkorn frá landi, það gerist á hverjum degi, að menn detta útbyrðis og drukkna Svona óhöpp vilja alltaf til endr um og eins. Hún hélt áfram að hrista höf uðið. - Heyrðu nú, Stella mín, vertu nú skynsöm. Þú getur ekki sóað lífi þínu þannig til einskis. Vegna gamals manns, sem mætti verða hvíldinni feg- inn. Þú verður að hugsa um sjálfa þ:g. Hún reyndi að losa sig úr fangi hans, en hí.nn sleppti henni ekki. Hann renndi hend- inni eftir baki hennar hvað eftir annað. Loks leit hún upp, og það vottaði ekki fyrir tárum í augum hennar. - Hann gæti komið til með- vitundar í bátnum, sagði hún rólega. Hann er lítill en sterkur og rammefldur, þegar hann reið ist. Ég vil ekki að neitt komi fyrir þig, Ed. Hann reyndi að leyna fögnuði sínum. - Ég verð á verði, sagði hann. - Mér dettur betra ráð í hug, sagði hún. Hann liggur meðvit- undarlaus þarna í rúminu og þú ert handsterkur. Það væri betra ... svo geturðu borið líkið um borð og ekkert kemur fyrir þig- - Ágætt, Stella, fyrirtak. Ég geri eins og þú segir. Viltu bíða hérna? - Nei, ég fer með þér, ég verð að fara í einhver föt. - Ég vildi helzt, að þú værir hér kyrr. — Nei, ég vil fara með þér. Ég þori ekki að vera hér ein. Ég er ekki ein þeirra, sem geta set ið og beðið ... ★ Meðan Stella fó.' upp til að klæða sig, nálgaðist Ed Piper dyr frænda. Harn opnaði hijóð- lega og var við öllu búinn. Það logaði á náttlampa og allt var kyrrt. Ed Piper horfði á rúmið. Það var ekki mikil fyrirferð á litla, sterka frænda, þar sem hann lá undir teppinu, sem Stella hafði breitt yfir hann. Ed Piper læddist að rúminu á tánum. Hann ætiaði ekki að hætta á neitt. Frændi var ekki sá fyrsti, sem sofnað hafði draumasvefni án þess að hafa hugmync’. um, rð hann mundi ekki -'akna aftur til lífsins. And ardrátturinn var reglulegur. Ed Piper horfði á litla fræiijda. Hann var hvítur á hörund, kslín- beinin há, þunnhærður, svo að skein á milli í bleikan skallann. Ótrúlegt að þessi litli maður hefði krafta í kögglum. En það var ekki eftir neinu að bíða. Ed Piper g-eip um mjóan hálsinn sterklegum höndum og þrýsti að ... Hann kippti upp líki frænda og lagði á öxl sér. Stella kom fram í ganginn í sömu svifum, klædd svörtum brókum og svartri peysu. Hún var að hag- ræða hárinu. „Hvað konur eru alltaf lengi að búa sig“, hugsaði Ed. Þau gengu samhliða niður að skemmtíbátnum. Ed lagði líkið á þilfarið, en Stella reyndi að ræsa hreyfilinn, en kom honum ekki í gapg. - Hvað er að? spurði hann. Eitthvað að kveikjunni? — Ég veit það ekki. — Reyndu aftur. Ed Piper var allt í einu allur í svitakófi. Fyrir örstuttri stund hafði hann verið kaldur, ákveð- inn, án þess að finna til votts samvizkubits yfir að hafa myrt gamlan mann í svefni, en nú gat hann ekki, fannst honum, horft lengur á lík hans. — Það var allt í lagi með hann, þegar við fórum út sein- ast, sagði Stella. — Ég veit það, því skyldi þá ekki vera allt í lagi með hann núna? — Ég geri það, sem ég get, kannski þú ... - Færðu þig. Hann ýtti henni frá, en honum gekk ekki betur. Stella færði sig fram í. — Það er víst bezt, að ég sé ekki að þvælast fyrir þér. Ed Piper beit á jaxlinn, bölv- aði og reyndi aftur og aftur, bullsveittur en ekkert gekk. Hann var með allan hugann við hreyfilinn, svo að hann varð ekki var við vélbát, sem nálg- aðist, fyrr en ljósgeisla var beint að honum og vélbáturinn renndi að skemmtibátnum. — Hreyfið ykkur ekki, var kallað skipandi röddu. ★ Ed Piper sá lögregluforingja og annan lögreglumann til stökkva upp á þilfar skemmti- bátsins, báðir með skammbyssu í höndum. Þegar handjárnunum hafði verið smellt á Ed Piper, sneri lögregluforinginn sér að Stellu og sagði: — Við komum eins fljótt og við gátum, ungfrú Stella. Yður hefur sannarlega tekizt vel með hreyfilinn. Við brugðum við, er þér hringduð. Ef þér hefðuð hringt dálítið seinna, hefðum við verið farnir. - Hringduð, endurtók Ed Piper og leit á Stellu. Hún brosti og svaraði engu, en lögreglpmaðurinn hélt áfram: - Já, ungfrúin hringdi fyrir stundarfjórðungi og sagði, að þér hefðuð drepið frænda henn- ar og ætluðuð að henda líkinu úr bátnum. Ed Piper sneri sér að Stellu og æpti: — Hann lýgur. Brosið hvarf af vörum Stellu. Hún var föl. Og nú komu tár fram í augu hennar: — Vesalings frændi, hann hef ur engri vöm getað við komið. Hann kyrkti hann þar sem hann lá í rúminu, sofandi. Ed Piper byrjaði að skilja. - Já, ég gerði það, sagði hann, en það er ekki öll sagan. Gamli maðurinn réðst á Stellu, og hún æpti á hjálp, og ég kom hlaupandi. Hann var bandóður. Hann hefði drepið mig, ef ég hefði ekki ... Lögreglumaðurinn sneri sér að Stellu: — Ég vissi ekki að frændi yðar væri orðinn svona hress. Þegar þér sögðuð inni í bænum, að lömunin væri dvínandi og hann væri sem óðast að fá krafta, datt engum í hug, að hann væri orðinn svona spræk- ur ... Afsakið, þetta var víst mislukkað spaug. — Já, því að hann var enn lamaður. Hann hefur legið rúm- fastur síðan slysið varð. - En þér sögðuð f bænum, að ... — Það var Ed, sem fékk mig til þess. Hann hafði frétt um húsa- og lóðabraskarann í Mi- ami, sem vildi kaupa eyna til þess að koma hér upp skemmti- stað, baðstað ... og svo réði hann sig hingað, og opinberaði brátt, í hvaða tilgangi það var. og eins og nú er komið í ljós, með áform um að losna við frænda og komast yfir eignina með minni aðstoð - á einn eða annan hátt. Fæturnir báru Ed ekki leng- ur. Hann var til neyddur að setjast. Allt hafði mistekizt. Hún hafði notað hann sem verk færi, og hún hafði sagt, að stundum langaði sig til að eiga heima í borginni. Sannleikurinn var víst sá, að hana langaði svo mikið til þess, að hún var til í allt til þess að komast burt - jafnvel myrða, en var nógu slungin til þess að láta annan gera það og taka út hegninguna fyrir það. Nú gæti hún lifað hátt í borginni - lifað hátt og lengi fyrir alla peningana, sem hún nú mundi fá. ★ Lögregluundirforinginn var að hjálpa Stellu niður í lögreglu- bátinn. Meðan hann var að því, sagði hinn við Ed Piper, ungur lögreglumaður og heldur væsk- ilslegur af lögreglumanni að vera: - Ungfrú Hutchins hefur ekki verið lieppin með ykkur — vinnumennina, sem hún aug- lýsti eftir sem eins konar „þús- und þjala smiðum“. — Hinn? sagði Ed Piper eins og í leiðslu. — Já, hann var í bátnum, þeg ar hann sprakk í loft upp, og fórst ásamt frænku ungfrú Stellu. Það varð frænda hennar til lífs þá, að fiskimann bar að. Það hafði þá verið annar ung- ur maður, hugsaði Ed Piper. Hann hafði verið í bátnum, þeg- ar „slysið“ varð. Piper horfði á eyna, sem nú var eins og dökk þúst, þegar lögreglubáturinn ■ fjarlægðist hana - eyna fögru, sem hafði verið umgirt blikandi hafi, og fögur kona hafði heillað hann þar — en nú voru allir draumar að baki. .V.V.V.V.V.V.V.V.V.WMJ i DÚN- OG FIÐURHREEVSUN vatnsstíg 3. Síml 18740 SÆNGUR I: REST BEZT-koddar. Endurnýjum gömlu sængurnar, eigum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. I .V.V.V.VA\W.V.VAVAV Volkswagen 58, ’62, ’63 Comet 63 Opel Kadet ’63 og ’64 SA4B ’63. Rússajeppi ’62, lúxus hús. Simca ’63. Skipti ð Diesel. Taunus M 17 '63. freiter vörubfli '61 an sig undir að bjarga Leolu. full, að flestir aðrir myndu á- Björgunaraðferðin er svo dirfsku líta hana óframkvæmanlega. Meðan hinir tuttugu Wa unga hermenn háma í sig Ijónskjötið, og höfðingjadóttirin ge'-'ur ux)f; alla von um að sleppa, oýr Tarz (lu. Eilitór JcmJ CI\AM0 ...AM7 CHIE? AMABUSI'S rAUSHTER UO LOMGEK. HAS HOFE OF ESCAPlMG... VINNUFAT ABÚÐIN Laugavegi 76 Blómabúbin Hrisateig 1 simar 38420 & 34174

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.