Vísir - 17.09.1964, Blaðsíða 6

Vísir - 17.09.1964, Blaðsíða 6
6 V í S IR . Fimmtudagur 17. september 1964. íþróttir — t'ramhald at bls. i. Drífa Kristjánsdóttir, Ægi, 41.4. 50 m. skriSsund sveina. Tryggvi Tryggvason, Vestra, 29.6. (Aðeins Davíð Valgarðsson á betri tima i þessum flokki). Pétur Einarsson, SH, 32.6. Eyjólfur Harðarson, Akran., 33.9. 50 m. flugsund stúlkna. Kolbrún Leifsdóttir, Vestra, 36.2. (Telpnamet). Matthildur Guömundsd., Á, 36.4. Ásta Ágústsdóttir, SH, 40.2. 50 m. fiugsund drengja. Trausti Júlfusson, Á, 31.4. Gunnar Kristjánsson, SH, 32.8. Logi Jónsson, KR, 34.3. 50 m. skriðsund telpna. Hrafnhildur Kristjánsd., Á, 33.1. Ingunn Guðmundsdóttir, Self., 33.1. Guðfinna Svavarsdóttir, Á, 34.1. 4x50 m. fjórsund drengja. Ármann 2.15.2 (Drengjamet). SH 2.21.8. Ums. Skagafjarðar 2.28.1. 4x50 m. fjórsund stúlkna. Ármann 2.30.8 (ÍSLANDSMET). Vestri 2.36.3 (Undir gamla metinu). Selfoss 2.44.1. Mótið er stigakeppni og gefin 7 stig fyrir 1. mann, 5 fyrir 2. o. s. frv. Sundsambandlð gaf bikar í fyrra til þessa móts og vann Ár- mann hann í fyrra með 101 stigi, en Selfoss var þá með 95. Nú hlaut Ármann hann öðru sinni með 117 stigum, en Vestri frá ísafirði varð nú annar með 72 % stig, Sund félag HaT.arfjarðar þriðja með 54 stig, Selfoss með 33 stig. Dæmdur - Framh af bls 1 sannað að ákærði hefði nauðgað telpunni og var hann sýknaður af þeirri ákæru. Hins vegar var hann — þrátt fyrir neitun sína — sek- ur fundinn um að hafa gert tilraun til að taka telpuna nauðuga, en haldið þá að hún væri 14 ára gömul. Elnnig var hann talinn hafa sært blygðunarsemi hennar með töku mynda af henni. Þetta atferli ákærða var talið bæði skírlífisbrot samkvæmt XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 og brot gegn lögum nr. 29, 1947 um vernd bama og ungmenna. miður þannig, með marga öku menn, að ef þeir sjá lögreglu- þjón eða lögreglubfl, þá sýna þeir oft á tlðum fyllstu að- gæzlu en ef þessir sömu menn sjá hvorki bfl merktan okkur eða lögreglumenn, þá sýna þeir litla sem enga aðgæzlu og marg brjóta jafnvel umferðarreglurn ar. Á fjórum dögum hafa lög- regluþjónarnir, sem þetta eftir- lit annast gefið skýrslur á um sjötíu ökumenn, marga hverja fyrir mjög alvarleg umferðar- brot,“ sagði Óskar. Þeir Hilmar og Arnþór segja, að það sé eftirtektarvert, að við mörg þau gatnamót, sem eru ofarlega á svarta listanum, séu umferðarljós, eins og t.d. á Nóatúni-Laugavegi. Á eftir- litsferðum sfnum hafa þeir veitt þvf hvað eftir annað athygli, að ökumenn eru að reyna að keppast við að komast yfir á grænu ljósi og jafnvel gulu. í stað þess að draga úr ferðinni þegar þeir koma að gatnamót- um, auka þeir hana, svo skipt- ir ljósum, ef til vill áður en þeir koma á gatnamótin eða f sömu mund, og þá er bara „slegið f“ yfir. Þá leikur ekki nokkur vafi á því, að margir árekstrar orsakast einfaldlega af þvf, að ökumenn virða ekki biðskylduna og alltof fáir ökumenn gera sér ljóst að þeim er skylt að stöðva, ef útsýnið er takmarkað. Það vekur athygli okkar í þessari stuttu eftirlitsferð, sem við fórum með þeim Amþóri og Hilmari, að margir þeirra ökumanna sem þeir töluðu við, virtust vita að þeir mættu t.d. ekki aka fram hjá biðskyldu- merki, án þess að sýna fyllstu aðgæzlu, en þrátt fyrir það gerðu þeir það. Sem sagt; nú geta þeir fjöl- mörgu bflstjórar, sem aka um götur og stræti Reykjavíkur- borgar átt von á því að óein- kennisklæddir lögreglumenn komi til þeirra, tilkynni þeim hvað þeir hafa brotið af sér og gefi slðan á þá skýrslu. — Það virðist þvf vera betra að sýna ávallt fyllstu aðgæzlu — já og sleppa við lögguna. Fannir - Surtur - Framh at bls. I, Gfgurinn f Surti er enn f full um gangi og streymir hraun úr honum án afláts. Nokkur breyting hefur þó á orðið á gígnum sjálfum, þannig að 25. ágúst, þegar eyjan var sfðast mæld, var gfgurinn barmafullur og hnunið flæddi út yfir barma hans. Sfðar hefur hraunið feng ið útrás neðar úr gfgnum. þann ig að nú er hann ekki lengur barmafullur. Þrátt fyrir það hef ur rennslið ekkert minnkað, og suma sfðustu dagana virðist það þvert á móti hafa aukizt. öll merki eru þess sem sé að Surtur sé f fullum gangi og eng in dauðamerki á honum að sjá. Ljósmynd þessa tók Þor- steinn Jósepsson blaðamaður Vfsis I slðustu viku. Umferðin Framh af bls 16 | blaðamann Vfsis f gaer. Og sfð- an bættl hann við: það er því i Framh. at bls 1 á fáeinum stöðum reyndar hvass- ara, en annars staðar líka lygnara. Páll Bergþórsson veðurfræðingur telur að norðanáttina sé heldur að lægja, en þó muni hún haldast enn um stund og að ekki séu Ifkur fyrir sunnanátt eða hlýnandi veðri á næstunni. Vegamálastjóri tjáði Vfsi f morg un að I gærkveldi hefði verið kom in þæfingsófærð á fjallvegum á Austurlandi og á Möðrudalsöræf- um og ekkert vit fyrir litla bíla að Ieggja á þá. Siglufjarðarskarð var I gærmorgun fært jeppum og öðrum kraftmiklum bllum, en allar líkur eru taldar á að það sé nú ófært orðið öllum bflum. Engir trafalar voru I gær á leið- inni milli Akureyrar og Reykja- vfkur, en aftur á móti var snjó tekið að festa á Vaðlaheiði. Frá Reyðarfirði var VIsi símað I morgun, að Fjarðarheiði og Möðrudalsöræfin myndu vera ófær flestum eða öllum bllum eins og stæði, en ætti að ryðja vegina I dag, a. m. k. gera tilraun til þess. Oddsskarð var rutt I gær og fært bllum fyrst á eftir, en óttazt að það myndi hafa lokazt aftu í nótt. 1 gær og nótt snjóaði til fjalla um alla norðanverða Austfirði. en I f morgun var vlðastl.var að stytta j upp, en þó enn úrkoma á Fjarðar-1 heiði og uppi á Héraði. I Kaupfélag - Framh af bls 16 til framkvæmda á ýmsum öðrum stöðum. Félagsmenn í hinu nýja kaupfé- lagi á Selfossi benda á, að kaup- maðurinn ,sem áður átti slátúrhús þess, hafi haf sláturleyfi og notað það, en þegar nær 300 einstakling- ar I samvinnufélagi eignist þetta sláturhús og ætli að reka það þá sé synjað um þann rekstur. Telja félagsmenn þetta I hæsta máta 6- réttlátt, enda girða bráðabirgðalög- in fyrir sllkt óréttlæti. Segir f þeim að leyfi til slátrunar skuli veita öllum félögum og einstaklingum, sem sláturleyfi höfðu 1963, svo og þeim, sem eignazt hafi sláturhús þessara aðila og tekið við rekstri þeirra, enda fullnægi húsin þeim kröfum um búnað, sem gerðar séu í lögum. S.R. - Framhald af bls 16. Stjómin lítur svo á, að bygg- ing þessarar síldarverksmiðju sé til þess fallin að bæta úr verk- smiðjuskortinum, sem leiðir af stækkun síldarflotans. Stórkost- legar biðir hafa verið I höfnum þegar sfldarhrotur hafa komið og þótt Síldarverksmiðjurnar sjálfar séu að framkvæma mikl- ar stækkanir, veitir ekki af enn frekari aukningu. Næturlækna- Þjónusta 1 sambandi við fregn í blaðinu I gær um slæma næturþjónustu lækna í Reykjavík, skaljþaó tekið fram, að Slysavara.staíarilKfm*iít| ekki þessa þjónustu q^'á þaá ekki hlut að máli. Varðstofan tekur e'in- ungis við skilaboðum í síma frá almenningi og kemur þeim áleiðis til yarðþjónustunnar. Hana annast Læknafélag Reykjavíkur og Sjúkra samlagið, samkvæmt sérstökum samningi sfn á milli. Ekið á kind 1 nótt, skömmu eftir kl. 1, var bifreið ekið á kind á Reykjanes- braut móts við Straum. Kindin tættist sundur við árekst- urinn og voru blóðslettur og tægj- ur úr kindinni á 20 metra löngum kafla á veginum. ökumaðurinn hef- ur-ekki tilkynnt þetta óhapp til lög- reglunnar I Hafnarfirði og þess vegna biður hún þá, sem einhverj- ar upplýsingar geta gefið um þetta, að láta hana vita þegar I stað. Slys um borð í togara Togarinn Hafliði frá Siglufirði kom inn til Reykjavíkur I fyrra- dag með siasaðan mann. Slysið vildi til kvöldið áður en togarinn var þá að veiðum fyrir Suðurlandi. Ekki hefur Vlsir aflað sér vltneskju um hvernig slys ið vildi til, en maðurinn, sem slas- aðist, 22ja ára Siglfirðingur, Kjart an Gústafsson að nafni, hafði hlot- ið opið beinbrot. Togarinn kom inn með Kjartan um hálfáttaleytið I fyrramorgun og var Kjartan strax lagður inn I Landakotsspltala VIsi var tiáð að týri laðurmn á togaranum muni eitthváð -i meiðzt, en minna og fór ha;.i, út með togaranum aftur. Islenzk villibráð OPIÐ ALLAN DAGINN ALLA DAGA NAUST Vélstjóra — Háseta Vélstjóra og háseta vantar á síldveiðar á m/b Skipaskaga. Uppl. um borð í bátnum, sem liggur við Grandagarð, í dag. Bremsuborðar í rúllum fyrirliggjandi 1%” - W - 1%” - 2” - 2V2” x 3/16” 2” - 3” - 3V2” x */4” 3” _ 3»/2” _ 4” - 5 x 5/16” 4” - 5” x 3/8” SMYRILL Laugavegi 170. Sími 1-22-60. TIL LEIGU Til leigu pláss fyrir léttan iðnað, verkstæði eða geymslu í miðborginni. Uppl. í síma 13324. Húsbyggjendur Tökum að okkur að rífa og hreinsa steypu- mót. Sími 34379 eftir kl. 7 í kvöld. Stúlka óskast vantar stúlku strax. Fatapressan ÚÐAFOSS Vitastig 12. íbúð óskast Ung hjón með 1 barn óska eftir íbúð Há leiga í boði Uppl. í síma 33047. Starfsstúlkur óskast strax. Uppl. á staðnum í dag og næstu daga. Veitingahúsið Laugavegi 28 B Stýrimaður eða vanur sjómaður óskast á dragnótabát strax Uppl. í síma 17756.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.