Vísir - 13.10.1964, Side 1

Vísir - 13.10.1964, Side 1
 Þannig lítur hið nýja dagheimiii við Grænuhiið út. Húsin eru deildunum, VISIR BLA-ÐIÐ I DAG Bls. 3 Myndsjá: Heimsókn í Voga- skóla. 4 Warren-skýrslan — 7 Með og móti af- hendingu handrita. 8 9 Iðnskólinn 60 ára. Um þessar mundir er verið að taka f notkun nýtt dagheim- Ui við Grænuhlíð f Reykjavfk. Þetta dagheimili er eitthvert það fullkomnasta og vandað- asta barnaheimili, sem byggt hefur verið hér á landi. Dag- heimilið i Grænuhlíð saman stendur af fjórum sambyggð- um húsum og skiptist það niður f jafnmargar deildir. Dagheim- ilið rúmar vel milli 60-70 börn og eru þau yngstu um árs göm ul, en þau elztu 6-7 ára. — For stöðukona er Lára Gunnarsdótt ir, sem áður veitti Barónsborg forstöðu. Einhvern tíma á næstunni verður heimilið formlega af- hent Sumargjöf og er þetta þá 13. heimilið. sem Sumargjöf 54. árg. — Þriðjudagur 13. október 1964. - 234. tbl. Fjórlogafrumvarpið fyrir órið 1965 lagt from: Nýttr glæsilegt dagheimili vii Grænuhlíi tekii ínotkun rekur. Áætlað er að um 20 starfsstúlkur og fóstrur muni starfa við heimilið. Byggingu og frágangi heimilisins er að mestu leyti alveg lokið og nú á næstunni verður leiktækjum komið fyrir úti f sjálfum garð- inum, sem er mjög stór og rúm góður. Heimilið er staðsett milli Grænuhlíðar og Hamra- hlíðar og er inngangur frá Grænuhlíð. Vísir átti í gærdag stutt samtal við Jónas B. Jóns son, fræðslustjóra Reykjavíkur- borgar, sem jafnframt er form. Barnaheimila- og leikvallanefnd ar Reykjavíkurborgar, en hann vildi sem minnst segja um hið nýja dagheimili, eða ekki fyrr en Borgarráðj hefði verið sýnt það. B. G. smellti þessari mynd af í kaffitímanum á dagheimilinu i gær. Stóraukin framlög tii atvinnumdla, félagsmála og menntamála Rekstrarútgjöld hækka um 489 milljónir króna Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1965 var lagt fram á Alþingi í gær. Ger- ir frumvarpið ráð fyrir stórauknum framlögum til atvinnumála, félags- mála og menntamála. — Fjárframlag til sjávarút- vegsmála hækkar um 93 millj. kr., framlag til fé- Iagsmála hækkar um 76 millj. og framlag til kennslumála um 53 millj. Alls munu rekstrarút- gjöld hækka um 489 millj. kr. Niðurstöðutölur fjár- laganna eru rúmlega 3,2 milljarðar króna. Helztu tekju- og gjalda- liðir eru þessir samkv. rekstrar- yfirliti. Tekjur: Skattar og tollar 2754 millj. kr. (þar af tekju- og eignarskattur 375 millj. og að- stöðugjöld 1533 millj.), tekjur af rekstri ríkisstofnana rúml. 431 millj., tekjur af fasteignum rík- issjóðs 75 þús., tekjur af bönkum og vaxtatekjur 2 millj. og óviss- ar tekjur 25 millj. Gjöld: Vextir 7,6 m'illj., kostnaður við æðstu stjórn landsins 2,3 millj., til al- þingiskostnaðar og yfirskoðunar ríkisreikninga 19,3 millj., til rík- isstjórnarinnar 74,4 millj., dóm- gæzla, innheimtukostnaður og embættisrekstur 236,5 millj., til heilbrigðismála 139,8 millj., til samgöngumála yfirleitt 175,1 millj., til kennslumála o. fl. 489,8 míllj., til kirkjumála 31,9 millj., til atvinnúmála aimennt, s. s. land búnaðarmála, sjávarútvegsmála 439,6 millj., til félagsmála 754,9 millj., til eftirlauna og styrktar- fjár 68,6 millj. og til óvissra út- gjalda o. fl. 565,3 m'illj. Rekstrar- afgangur samkvæmt þessu yfir- liti verður 207,1 millj. króna. 1 almennum athugasemdum við frumvarpið segir m. a.: Ef borið er saman við fjárlög 1964 hækka rekstrarútgjöld sam kvæmt frv. þessu um 489 millj. kr. (þ. e. brúttóhækkun gjalda að frádregnum lækkunum á fjárlaga iiðum svo og aukningu tekna, sem dregnar eru frá gjöldum hjá ýms- um stofnunum). Gert er ráð fyr- ir, að útborganir á 20. gr. hækki um tæplega 43 millj. kr. Við samanburð á frv. og fjár- lögum yfirstandandi árs verður að hafa í huga, að með lögum frá 31. jan. 1964, um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o. fl., var ríkissjóði gert að greiða til fram- leiðniaukningar og annarra end- urbóta í framleiðslu freðfisks 43 miilj. kr., til Aflatryggingasjóðs vegna togara 51 millj., til fiski- leitar i þágu togara 4 millj. kr., til uppbóta á ferskfiskverð 52,5 millj. kr. (áætlað) og til Fiskveiða sjóðs á móti útflutningsgjaldi af sjávarafurðum 30 millj. kr. (á- ætlað). Til þess að standa straum af þessum útgjöldum var söluskatt- ur hækkaður úr 3% I 5y2%. Þær tekjur, sem ríkissjóður fékk við söluskattshækkunina, áttu enn- fremur að mæta hækkuðum greiðslum ríkissjóðs til almanna- trygginga samkvæmt lögum nr. 2/1964, að upphæð ca. 27 m’illj. kr., svo og niðurgreiðslum að upphæð kr. 55 millj. kr., sem ekki voru teknar í fjárlög, en þótti hins vegar ekki fært að felia niður. í frv. er gert ráð fyrir, að þess ar greiðslur hald'ist, með nokkr Framh. á bls. 6. GEIMFARIÐ \ ' LENT J Þriggja manna geimfar J 5 Rússa sneri í morgun tilj jjarðar og settist heilu ogj Jhöldnu í Kasakhstan J ^Jskammt frá geimferða-j | jstöð Rússa. Það var til-J Jkynnt, að geimförunum J Jþremur liði vel. J J Snemma í morgun skýrðu * 'radíóstöðvar í Þýzkalandi ogj J Japan frá því, að þá um morg-t > uninn hefðu radíóútsendingar J J frá geimfarinu hætt, og veltu t < menn því fyrir sér um sinn, hvað J Jhefði komið fyrir. t * En nokkru síðar tilkynnti rúss J J neska fréttastofan Tass, að geim t > förinni væri lokið og allt hefði J Jgengið vel. t • t Leitin að Sæfellinu frá Flat- eyri hefur enn engan árangur borið og ekkert hefur fundizt, er verið gæti úr bátnum. Leit- inni var haldið áfram f morgun og leituðu þá bæðl skip og flug- vélar. Gengið verður á fjörur í dag og verða allar Strandirnar Ieitaðar. Leitarveður var mjög slæmt í gær, en búizt var við sæmilegu veðri tll leitar ein- hvern hluta dagsins f dag. Leitin í gær var mjög víðtæk og tóku þátt í henni tvær flug- vélar og 3 bátar frá Isafirði auk varðskips, sem stjórnaði leitinni. Leitað var á stóru svæði, eða Framhald á bls. 5.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.