Vísir - 13.10.1964, Side 5
V t SIR . Þriðjudagur 13. október 1964.
Fjárlagafrumvarpið 1965 -
t'ramii ai oib i
um breytingum, að undanskildu
framlagi til framleiðniaukningar í
freðfiskiðnaði og uppbótum á
ferskfiskverð.
Þær hækkanir á rekstrarút-
gjöldum, sem mestu máli skipta
eru þessar:
Dómgæzla og lögreglustjórn
hækkar um 30 millj. kr. Munar
þar mestu um aukið framlag til
landhelgisgæzlu, svo og annarrar
löggæzlu. Toll- og skatteft’irlit
hækkar um 14 millj. kr., m. a.
verulega aukins starfsliðs við toll
eftirlit og nýrrar rannsóknardeild
ar við embætti ríkisskattstjóra.
Framlög t'il heilbrigðismála auk-
ast um 37 millj kr. Veldur þar
mestu hækkun rekstrarhalla Land
spítala, m. a. vegna nýrra sjúkra
deilda, svo og hækkun á rekstrar-
styrk og byggingarstyrk til ann-
arra sjúkrahúsa en þeirra, sem
eru ríkiseign.
Kennslumál hækka verulega að
vanda eða um 53 millj. kr. Kem-
ur þar einkum til árleg kennara-
fjölgun, hækkaður rekstrarkostn-
aður vegna nemendafjölgunar,
auk'in framlög til skólabygginga
stofnun tækniskóla o. fl.
Landbúnaðarmál hækka einnig
verulega eða um 55 millj. kr.
Valda þar Iangmestu um stór-
hækkuð jarðræktarframlög, auk
sérstakra framlaga til landbúnað-
r.r, en um þau var samið er
verðlagsgrundvöllur landbúnaðar-
vara var ákveðinn á þessu hausti.
Þá hækka og framlög til sauðfjár
veikivarna verulega. Fjárframlög
til sjávarútvegsmála hækka stór-
lega, ef miðað er við fjárlög yf-
irstandandi árs eða um 93 millj.
kr. En þá verður að hafa í huga,
að þeirri hækkun valda að lang-
ýmestu leyti þrir liðir, sem ákveðn
ir voru í lögum nr. 1/1964 og
áður hafa verið nefndir, sem sé
framlag til Fiskveiðasjóðs á móti
útflutningsgjaldi af útfluttum sjáv
arafurðum, í frv. áætlað 36 m’illj.
kr., framlag til Aflatrygginga-
sjóðs vegna togara 40 millj. kr.
og til fiskileitar fyrir togara 4
millj. kr. Auk þessa hækkar svo
framlag til Aflatryggingasjóðs um
7,5 millj. kr.
Raforkumál hækka um 39,6
millj. króna, svo til eingöngu j
vegna þess að lagt er til, að halli
Rafmagnsveitna ríkisins verð’i nú
greiddur úr ríkissjóði.
Útgjöld til félagsmála hækka
um 76 millj. kr. Ber þá að athuga,
að 27 millj. kr. hækkun á greiðsl
um rík'issjóðs til almannatrygg-
inga var ákveðin á þessu ári svo
sem fyiT segir. Annars stafar
hækkunin einkum af hækkun
sjúkratrygginga og á ríkisfram-
færslu sjúkra manna, svo og
hækkun framlaga til útrýmingar
he'ilsuspillandi húsnæðis. Enn
fremur er framlag til Atvinnu-
bótasjóðs, 10 millj. kr., í frv.
flutt af 20. gr. á 17. gr. (félags-
mál), en þar þykir það eiga betur
heima.
Gjöld samkvæmt 19. gr. hækka
um 145 millj. kr. Munar þar mest
um niðurgreiðslu vöruverðs og út-
flutningsuppbætur. Eins og áður
segir var ætlunin, er gengið var
frá fjárlögum yfirstandandi árs,
að draga úr niðurgreiðslum sem
svaraði 55 millj. kr., en úr því
varð ekki. Þetta verður að hafa í
huga, þegar samanburður er gerð-
ur við fjárlög. Að öðru leyti vís-
ast um niðurgreiðslurnar til grein-
argerðar um þann lið. Til útgjalda
á 19. gr. kemur einnig nýr liður,
launaskattur, samkvæmt bráða-
birgðalögum frá -.1. sumri um
það efni.
Útborganir á 20. gr. hækka eins
og fyrr segir um 43 millj. kr.
Veldur þar mestu, að framlög til
viðbótar húsnæðis ríkisspítalanna
eru aukin um hér um bil 25 millj.
króna og auk þess ætlaðar 7 millj.
kr. til stækkunar Hjúkrunarskól-
ans.
I' frv. er gert ráð fyrir, að
rekstrartekjur og tekjur á 20. gr.
verði um 10 millj. kr. hærri en
útgjöldin, án þess að hækka þurfi
skatta eða tolla frá gildandi lög-
um.
í athugasemdum við 2. gr. frum
varpsins segir, að tekju- og eigna-
skattur sé áætlaður 375 millj kr.
í stað 255 millj. á fjárlögum nú.
Að óbreyttum Iögum mætti áætla
þessa upphæð 480 — 500 millj.
króna, en þegar haft sé í huga,
að unnið sé að endurskoðun lag-
anna með það fyrir augum að
hækka persónufrádrátt og gera
ýmsar aðrar lagfæringar, sem
verka til lækkunar, og svo á hinn
bóginn hert eftirlit með framtöl-
um, þykir rétt að áætla þennan
tekjulið aðeins 375 millj. kr.
Gert er ráð fyrir, að frv. komi
fljótlega til umræðu á Alþingi,
því fjárlög eru venjulega afgreidd
fyrir jól.
Sæfell —
Pramh at bls I
allt frá Húnaflóa, Strandir og
vestur að Barða. Bátarnir og
varðskipið hafa nú fært sig vest-
ur fyrir Horn og leita út frá
fjörðunum.
í dag verða allar Strandirnar
Ieitaðar og er þeim skipt niður
í þrjú Ieitarsvæði. Leita ísfirð-
ingar miðsvæðis eða það, sem er
í óbyggð. Sif, flugvél Landhelg-
isgæzlunnar, fór aftur til leitar
í morgun og einnig Björn Páls-
son, en með honum fór Lárus
Þorsteinsson, fulltrúi hjá Slysa-
varnafélaginu. Rek úr bát fannst
út af Arnarfirði, en við nánari
athugun reyndist það vera úr!
Mumma frá Flateyri, sem fórst
s.l. laugardag.
Eins og áður hefur komið
fram í fréttum, hefur ekkert,
heyrzt frá Sæfellinu frá því um
miðnætti aðfaranótt laugardags,
en þá var báturinn staddur út
af Húnaflóa. Á bátnum eru fjór-
ir menn, þar af þrír búsettir á
Flateyri.
Brunaköll —-
FramhaiO at bls 16
á fatnaði og skáp og að auki ein-
hverjar skemmdir á húsinu af vatni
og reyk.
Undir morgun aðfaranótt sunnu
dagsins varð elds vart í kjallara-
herbergi á Óðinsgötu 6. Þar hafði
eldur kviknað í gólfteppi og síðan
læst sig í rúmföt sófandi manns.
Honum varð þó bjarýað í tíma, en
var meðvitundarlaus orðinn og
fluttur í Slysavarðstofuna, þar sem
hann komst til meðvitundar.
Mikill reykur hafði myndazt í
herberginu og voru íbúar hússins
óttaslegnir orðnir að eldurinn læsti
sig um allt húsið. Svo varð þó
ekki, hann var fljótt kæfður, en
nokkrar skemmd'ir urðu af eldi,
vatni og reyk, einkum í herberg-
inu þar sem kviknaði í. Óvarkárni
með eld var talin rrsðk íkviknun-
arinnar.
í gærmoigun kviknaði í vinnu-
skúr að Kaplaskjólsv. 39. Slökkvi-
liðið kæfði eldinn strax og urðu j ið upp.
ekki teljundi brunaskemmdir. i Brotizt hafði verið inn í veitinga
Slökkviliðið í Reykjavík hafði í
morgun brunaæfingu í skólum
borgarinnar. Myndin var tekin
á æfingu við Öldugötu-skólann.
Nemendum var „bjargað“ út á
segldúk og gekk allt fljótt og
greiðlega fyrir sig. (Ljósm. BG)
ÁTTA INNBROT
Talsverður innbrotafaraldur var
í Reykjavík fyrir síðustu helgi, þó
náðu þjófarnir hvergi í veruleg
verðmæti svo séð yrði.
Alls voru fimm innbrot kærð til
lögreglunnar, sem framin höfðu ver
ið aðfaranótt laugardagsins. Eitt
þeirra var í kvenfataverzlun í Aust
urstræti. Þar hafði verið brotin
rúða í glugga og síðan farið inn.
Stolið var um 450 krónum úr pen-
ingakassa, en ekki var búið að
kanna hvort einhverju hefði verið
stolið af fatnaði.
Sömu nótt var brotizt inn í skrif
stofu verzlunarinnar Kostkjör í
Skipholti. Ekki varð séð að nein-
um verðmætum hefði verið stolið,
en talsverð spjöll unnin, einkum á
hurðum, sem sprengdar höfðu ver-
örg ný stjórnarfrumvörp
Birgir Finnsson.
Nokkur ný stjórnarfrv. voru
lögð fram á Alþingi í gær, auk
fjárlaga, sem getið er um á öðr-
um stað í blaðinu. Er þar fyrst
og fremst um að ræða staðfest-
ingu bráð-birgðalaga svo sem á
frv. um launaskatt, sem fylgdi 1
Birgitr Finnsson kosinn
forseti sameinaðs þíngs
Fundur var í sameinuðu þing:
í. gær. Aldursforseti þingsins Ó1
afur Thors stjórnaði honum eða
þar til þingforseti hafði verið
kjörinn. Tveir nýir þingmenn bætt
ust nú í hópinn, þeir Óskar Jóns
son (F) í stað !rMörns Fr. Biörns-
sonar og Arnór Sigurjónsson (Ab)
1 stað Björns Jónssonar. Þá fór
fram forsetakjör og hlaut kosn-
ingu Birgir Finnsson, þingmaður
Vestfirðinga, með 32 atkv. Karl
Iíristjánsson hlaut 18 atkv. og
Hannibal Valdimarsson 8 atkv.
Tók þá Birgir Finnsson við fund-
arstjórn og þakkaði sér sýnt
aust. Varafors°tar voru kosnir
þeir Sigurður Ágústsson og Sig-
urður Ingimundarson.
kjölfar samkomulagsins við Al-
þýðusamband íslands 5. júní s. 1.
Þá er einnig um að ræða breyt-
ingar á lögum um framleiðsluráð
Iandbúnaðarins og síldarverk-
smiðjur ríkis'ins. Ennfremur er
gert ráð fyrir breyttum þingsköp-
um Alþingis, þ. e. að hámarks-
tala nefndarmanna í hverri nefnd
þingdeilda skuli framveg'is vera
7 í stað 5 áður. í athugasemdum
við frv. segii, að hámarkstala í
fastanefndum deilda hafi verið
ákveðin 1915 og haldizt óbreytt
síðan. Þess vegna sé eðlilegt, að
hér sé rýmkað um, enda hafi
verið höfð samráð við fulltrúa
þingflokks, sem ekki hafði hlotið
menn í nefndir, um nokkur meiri
háttar mál. Þá var e'innig lagt
fram frv. um verðtryggingu
launa, sem e- ein afleiðing sam-
komulagsins við A. S. I. í sumar
Segir þar að verðlagsuppbót skal
nema sem s- arar 0,61% af grunn
launum fyrir hvert s'tig, sem kaup
greiðsluvís’itala hvers þriggja mán
aða tímabils kann að vera hærri
en framfærsluvísitala 163 stig.
Að lokum er alllangur laga-
bálkur um vernd barna og ungl-
inga, sem byggt er á athpgunum
nefndar, er menntamálaráðherra
skipaði árið 1961.
Bilv@lfa
Framh at ols 16.
einum degi jafn góð ökuskil-
yrði og voru í gær.
Um helgina tók lögreglan öivað
an ökumann á Fríkirkjuvegi, sem
ekið hafði þar upp á gangstétt og
ekið á og skemmt tvo kyrrstæða
bíla Lögreglar sá til mannsins og
handtók hann á stíúium.
stofuna í Austurstræti 4 og stolið
smávegis af skiptimynt og vindl-
ingum.
Þá hafði þessa nótt verið farið
inn í mannlausa íbúð á Laugavegi
10. Þar hafði maðurinn tekið sér
náttból og lagzt til hvílu og sofn-
að. En þegar hann vaknaði aftur,
tók hann tösku ásamt éinhverju
fleiru Iauslegu, sem í íbúðinni var
o_, hafði á brott með sér. Með
þennan farangur fór hann til kunn
ingja sinna, en nokkru seinna hand
tók lögreglan hann og flutti í fanga
geymsluna.
Langmesti stuldur í sambandi við
innbrot þessa nótt var í Úra- og
skartgripaverzlun Magnúsar E.
Baldvinssonar á Laugavegi, þar sem
60 úrum var stolið og verðmæti
þeirra lauslega áætlað um 100 þús.
krónur
Aðfaranótt sunnudagsins hand-
tók lögreglan tvo menn sem brot-
izt höfðu inn í Gildaskálann og
höfðu farið inn um glugga á bak-
hlið hússins. Lögreglumaður, sem
! var á varðgöngu, veitti hreyfingu
athygli inni í húsinu um leið og
hann gekk framhjá þvl. Fór hanr
þá inn í húsið og handsamaði anr
an þjófinn, hinn komst undan á
flótta í bili, en náðist seinna uni
nóttina. Þeir voru fluttir í fanga
gej'msluna.
Eins og Vír'i skýrði frá í gær
höfðu inrbrot verið framin til við-
bótar, sem tilkynnt voru í gær
morgun til rannsóknarlögreglunn
ar, þannig að átta innbrot hafa
verið framin um helgina, sem vitað
er um.
I morgun var svo kært yfir einu
innbroti til lögreglunnar. Það hafð>
verið framið í nótt í Herrafatabúo
ina á Laugavegi 87.
Þjófurinn hafði brotr t inn með
því að brjóta rúðu í húsinu, en
hafði skorizt eitthvað á glerjum
því blóðferill hans lá um verzlunina
Peninga hafði hann enga fundið
en ekki var búið að kanna í morg
un hvort eitthvað hafði horfið a{
fatnaði eða öðrum varning'i.