Vísir - 04.11.1964, Page 8
V 1 S I R . MiBvikudagur 4. nóvember 1964
8
VJSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 kr. á mánuði
í lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Sigur Johnsons
Það var mikið að gera í Útvegsbankanum á þriðju dag, er opnað var á ný.
Veröldin getur á þessum morgni dregið andann léttara.
Barry Goldwater hefir beðið hinn mesta ósigur í banda-
rísku forsetakosningunum. Þar með hefir stefna ein-
angrunar og afturhalds goldið afhroð í Bandaríkjunum.
Þau munu eftir sem áður vera forysturíki hins frjálsa
heims, sem þjóðir Evrópu munu vel treysta til þess
hlutverks.
f morgun, þegar þessi orð eru rituð, var búið að telja
70% atkvæðanna. Johnson hafði þá hlotið 62% atkvæða
en Goldwater aðeins 38%. Þessi mikli atkvæðamunur
nun gefa Johnson byr undir báða vængi í forsetastörf-
um næstu fjögur árin. Við þetta bætist að demokratar
hafa aukið fylgi sitt verulega í fulltrúadeild þingsins
og einnig í senatinu. Hinn aukni þingmeirihluti styrkir
íðstöðu hins nýkjörna forseta. Úrslitin þýða það að
tefna Bandaríkjanna í utanríkismálum verður í höfuð-
ráttum óbreytt. Haldið verður áfram stefnu friðsam-
ígrar sambúðar við Sovétríkin og þess enn freistað að
ná samningum um bann við kjarnorkusprengjum og
viðtæka afvopnun. Á viðskiptasviðinu munu Banda-
ríkin halda áfram þeirri nánu samvinnu við Evrópu-
bjóðirnar, sem hafin er innan GATT og OECD. í innan-
andsmálum mun Johnson nú hafa ólíkt betri aðstöðu
il þess að koma fram umbótamálum eins og sjúkra-
;amlögum, sem þingið felldi fyrst fyrir Kennedy og síð-
in lyrir Johnson. Hins vegar er ósigur Goldwaters
Binnig sigur fyrir frjálslyndari og vitrari republikana.
Nú mun flokkurinn snúa baki við öfgastefnu Gold-
watersinna.
^igur Roberts Kennedy í New York opnar honum
orautina upp í Hvíta húsið er Johnson rennur skeið sitt
á enda Enginn veit enn hvort Kennedy tekst að ná því
narki, en um hug hans þarf enginn að efast. Ferill hans
nefir verið slíkur að hann yrði verðugur arftaki bróður
síns, John F. Kennedy, í æðsta embætti landsins.
Verkfall prentara
[ fyrra gerðu prentarar tvö verkföll. Það síðara stöðv-
að’ um langt keið alla jólabókaútgáfu og olli veruleg-
um töfum og skakkaföllum í allri bókagerð lands-
manna. í gær lauk verkfalli prentara, sem í þetta sinn
stóð í tæpan hálfan mánuð. í upphafi verkfalls felldu
prentarar tvisvar að ganga að tilboði á þeim grundvelli
að laugardagsfrí stéttarinnar væru ekki aukin. í gær
samþykktu þeir tilboð sem ekki inniheldur þó nein
lukin laugardagsfrí. Ekkert sýnir betur en þessi tíðu
verkföll stéttar, sem lengst er komin á vinnufríðinda-
orautinni, hver nauðsyn er að gera kjarasamninga við
verklýðsfélög til langs tíma. í lög vantar ákvæði sem
gera slíka stutta vinnusamninga útlæga úr landinu.
ÁTÖK í ÚTVEGSBANKANUM
Deilt um útibússtjóra á Akureyri
w«flgaafi«aMS
i
Það ér búlð að slá vinnupöllunum utan af útvegsbankanum og sem sjá má tekur byggingin sig vel út
í síðustu viku réði bankaráð
Útvegsbankans nýjan útibús-
stjóra við útibú bankans á Ak-
ureyri. Var Bragi Sigurjónsson
ritstjóri Alþýðumannsins ráð-
inn. Starfsmannafélag Útvegs-
bankans mótmælti ráðningunni
á þeim forsendum, að Bragi
væri ekki bankamaður. Til þess
að árétta mótmælin gerðu starfs
menn Útvegsbankans verkfal!
sl. mánudag f Reykjavík og í
útibúunum úti á landi. Var starf
semi Útvegsbankans því lömuð
þann dag, utan það, að banka-
stjórar sinntu viðtölum.
6 umsækjendur
Umsækjendur um starf úti-
bússtjóra á Akureyri voru
sex, Utan Braga sóttu^þesár
um starfið: .Tóhann Jjísla^on
lögfræðingur við Útvegsbank-
ann í Reykjavik, Ingólfur Örp-
ólfsson viðskiptafræðingur f
gjaldeyrisdeild bankans, Bergur
Sigurbjörnsson viðskiptafræðing
ur, starfsmaður bankans í
Reykjavík Ármann Jakobs-
son útibússtjóri Útvegsbankans
á Siglufirði og Loftur Guð-
bjartsson fagurfræðingur.
Við afgreiðslu málsins í
bankaráði Útvegsbankans
hlaut Bragi Sigurjónsson 3 at
kvæði, Ármann Jakobsson eitt
en einn benkaráðsmanna
greiddi ekki atkvæði. Var
Bragi settur útibússtjóri til 6
mánaða.
Starfsmannafélag Útvegsbank
ans í Reykjavfk gerði ályktun
þar sem mótmælt var ráðningu
Braga. Segir í ályktuninni, að
Bragi sé ekki bankamaður og
því séu bankamenn Útvegsbank
ans sniðgengnir.
Skaðabótaskylda?
Þegar að ljóst var, að starfs
menn Útvegsbankans hygðust
Bragi Sigurjónsson hinn ný-
setti útibússtjóri. Hann hefur
verið ritstjóri Alþýðumannsins
og umboðsmaður Trygginga-
stofnunar rikisins á Akureyri.
leggja niður vinnu einn dag til
þess að árétta mótmælin, ræddu
formaður og varaformaður
bankaráðsins svo og banka-
stjórar við þá og skýrðu þeim
svo frá, að þeir kynnu að verða
skaðabótaskyldir ef þeir bökuðu
bankanum það tjón að stöðva
starfsemi hans ólöglega 1 dag.
Þrátt fyrir þessar aðvaranir kom
vinnustöðvunin til fram-
kvæmda.í Reykjavík mættu að-
eins bankastjórarnir til vinnu.
öll afgreiðsla var því stöðvuð,
en bankastjórar höfðu móttöku
fyrir viðskiptavini. Vísir átti
í gær við Adolf Björnsson
formann Starfsmannafélags Út
vegsbankans. Hann sagði, að
Starfsmannafélagið hefði fengið
fyrirheit um það eitt sinn, að
bankamenn skyldu ganga fyrir
við ráðningu til allra starfa
annarra en bankastjóra. Þeir
teldu það fyrirheit rofið við
ráðningu útibússtjórans nú. Ad
olf kvaðst vilja taka það skýrt
fram að Starfsmannafélagið
hefði ekkj staðið fyrir vinnu-
stöðvuninni á mánudag. Það
hefðu starfsmenn bankans sem
einstaklingar gert.
Hvað gerir bankaráðið?
Vísir náði einnig sem snöggv
ast tali af Guðmundi 1. Guð-
mundssyni formanni bankaráðs
Útvegsbankans. Hann kvaðst á-
samt varaformanni bankaráðs
ins hafa rætt við bankastarfs-
mennina um að leggja ekki nið
ur vinnu, þar eð ella gætu þeir
orðið skaðabótaskyldir.
Ekki hefði bankaráðið rætt
málið síðan vinnustöðvunin
kom til framkvæmda en
það yrði gert fljótlega.
Þá átti Vísir einnig tal við
Braga Sigurjónsson hinn ný-
setta útibússtjóa. Hann vildi
ekkert segja um málið annað en
það, að hann hefði mætt til
starfa í bankanum á mánudag
þrátt fyrir vinnustöðvunina og
sinnt þar störfum eftir beztu
getu.