Vísir - 04.11.1964, Síða 16

Vísir - 04.11.1964, Síða 16
IVflHvikudagur 4. nóve'mber 1964 Bflarnir voru mjög illa famir Og sjá má. TVEIR BÍLAR 6ÖKUHJEFIR EFTIR ARBKSTUR IMORGUN ina á Grensásnum í morgun. Áreksturinn varð með þeim hættj að bfll var að taka fram úr öðrum en í sama mund kom bíll á móti og skullu þeir sam an af heljarafli. Var höggið svo mikið að annar bflanna, sá sem var að koma úr bænum snerist í hálfhring og stefndi f þveröf- uga átt að árekstrinum loknum. Hrein mildi var að slys urðu ekkj á mönnum, en báðir bflam ir stórskemmdust og var hvor ugur ökuhæfur á eftir. Varð að flytja þá báða brott af árekstrar stað. é Sá bfllinn, sem verið var að aka framúr lenti lítillega utan í bflunum við áreksturinn, en skemmdir á honum ekki teljandí LOFTLEIÐIR vilja leysa gistíhúsaskortim Loftleiðir hafa sótt um leyfi til að mega byggja afgreiðslu og gistihús á Reykjavfkurflugvelli og hefur borgarráð samþykkt það. Vfsir spurði framkvæmdastjóra Loftleiða Alfreð Elíasson hvað þeir hefðu f hyggju með þessu, hvort þetta táknaði það að nú væri stefnt að því að færa flug félagsins aftur til Reykjavfkurflugvallar frá Kefla- vík Hann kvað það ekki vera, það myndi vera óframkvæmanlegt, að láta hinar nýju og stóru flugvélar félageins lenda fullhlaðnar á Reykja KÓPAVOGUR Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs er f kvöld kl. 20,30 f Sjálfstæðishúsinu í Kópavogi. Sverrir Júlfusson og Axel Jóns son ræða stjórnmálaviðhorfin. víkurflugvelli, jafnvel þó flugvöllur inn yrði stækkaður. Ástæðan fyrir því að Loftleiðir eru að kanna þetta mál er einfald- lega sú, að félagið á húsgrunn við flugvöllinn, sem fyrirhugað var áð- ur að hin sameiginlega afgreiðslu bygging yrði reist á, en þær áætlan ir breyttust sem kunnugt er við tilkomu stóru flugvélanna. Nú virt- ist heppilegt að leysa gisthúsvanda- málið með því að koma þar upp gistihúsi. Þetta mál væri þó ekki endanlega afráðið. Framkvæmdastjórinn gat þess, að nú eftir um hálfan mánuð myndi opnuð farþegaafgreiðsla í Lofleiða húsinu á Rvíkurflugvell’i fyrir þá farþega, er halda héðan úr bænum suður til Keflavíkurflugvallar. Yrði þá hætt að nota afgreiðsluna á gamla skálanum, sem notuð hefur verið til þessa. Banaslys ú Greus- ásvegi í gær í gær varð banaslys f umferð inni I Reykjavfk. Maður á tíræðis- aldri, Lyder Hoydal Grensásvegi 10 hér f borg varð fyrir bifreið Prentarar fengu aukiS vaktaálag — en ekki meiri laugardngsfrí Síðdegis f gær var gengið frá samningum 1 kjaradeilu prentara og prentsmiðjueigenda, og er því verkfalli prentara lokið. Verkfall prentara hófst 22. okt. og hefur það þvf staðið f ellefu daga. Prentarar fengu 3,6% kauphækkun, sem er innan ramma þeirra samninga sem gerðir voru á milli ríkisstjórnar- innar og Alþýðusambandsins sl. vor, og einnig hækkun á aldurs- og vaktavinnuflokkum. Þá hækk ar orlof úr 6 f 7%. Sl. mánudagskvöld boðaði sátt- arsemjari deiluaðila á sinn fund og náðist samkomulag þá um nóttina, með þeim fyrirvara að félagsfundir beggja aðila sam- þykktu það. 1 gær voru haldnir félagsfundir í báðum félögunum. Fundur í Hinu ísl. prentarafélagi hófst kl. 2 e. h. í Iðnó og stóð hann fram til kl. fimm. Var sam- komulagið samþykkt með 105 atkvæðum gegn 71. Kl. fjögur f gær var svo haldinn fundur í félagi prentsmiðjueigenda og var þar samkomulagið einnig sam- þykkt. Skömmu áður en verkfallið skall á, höfðu samninganefndir beggja aðila komið sér saman um samkomulag, sem síðan var fellt á félagsfundi hjá prentur- um, og jafnframt samþykkti fundurinn að reyna að fá styttan vinnutíma, með auknum laugar- dagsfríum en þessi krafa náði ekki fram að ganga. og lézt af viddum meiðsla sinna nokkrum klukkustundum sfðar. Slysið varð á Grensásvegi móts við Axminsterverksmiðjuna kl. langt gengin fjögur f gærdag. Öku maður bifreiðar var að bakka bfl j sínum og vissi ekki fyrr en gamli j maðurinn lá stórslasaður við bíl-; inn. Ekkj er fullljóst hvor bfl- j hjólið hafði farið yfir manninn eða i ekki, en hann var meiddur á mjöðm | og var óttazt að um mjaðmar- grindarbrot væri að ræða. Auk þess var hann með allmikla áverka á höfði. Gamli maðurinn, sem var 92 ára að aldri var fluttur í Landa kotsspítala, en þar lézt hann af völdum meiðsla sinna um ellefu leytið í gærkveldi. Annað umferðarslys varð í Reykjavfk um eða eftir kl. 8 í gærkveldi. — Kona, Rósa Guð- brandsdóttir Háteigsveg 48, varð fyrir bfl, en þáði ekki boð öku- mannsins sem valdur var að slys inu að flytja hana í Slysavarð- stofuna. Rósa taldi sig ekki meidda og fór heim til sín. En þegar hún hafði verið stutta stund heima hjá sér tók hún að kenna þrauta f höfð inu og fá uppsölur. Var hún þá flutt f sjúkrabíl f Slysavarðstof- una til athugunar. Þriðja slysið varð í Hampiðj- unni. Einn starfsmanna fyrirtæk isins slasaðist á fæti og var jafn vel óttazt að fóturinn væri brot- inn. Maður þessi heitir Þórður Þorsteinsson til heimilis að Grett isgötu 34. TÍUINNBROT UPPL ÝST Rannsóknarlögreglan hefur upp- lýst allmargt innbrota, sem framin hafa verið að undanfömu. Stærsti fengurinn á einu bretti var þegar hún upplýsti 10 innbrot, sem fjórir menn höfðu framið, ým ist sltt í hvoru lagi eða meira eða minna saman. Mest þýfi á einum stað fengu þjófamir við innbrot f Hljóðfæra- hús Reykjavlkur og verzlunina Goðaborg 1 Hafnarstræti 1. Þar tókst þeim að komast yfir allmikla fjárhæð, samtals um 24 þús. kr. Á öðrum stöðum var yfirleitt meira um skemmdarverk að ræða heldur en stuld, en samanlagt þýfi og tjón af innbrotunum er metið á 56 þús. kr. Þau innbrot önnur sem viðkom- andi menn játuðu á sig voru í Hár greiðslu- og snyrtistofuna Valhöll á Laugavegi 25, þar sem nokkru af vamingi var stolið f Tollskýlið, þar sem ýmiss konar spjöll vora framin, m.a. skornar upp töskur og brotnar hurðir, en litlu öða engu stolið. I skrifstofum Sjúkra- samlags Reykjavíkur var skemmd hurð, en engu stolið. í Grænmetis verzlun landbúnaðarins var brotin hurð, f verzluninni Kostakjör í Skipholti vom hurðir brotnar og í Trésmiðjunni Vfði við Laugaveg var brotinn gluggi. í Dósaverk- smiðjunni í Borgartúni var stolið nokkrum hundruðum króna, í Hafn arbíói voru mikil spellvirki fram in og tjón af völdum þeirra metið á allt að 10 þús. kr. Loks var svo brotizt inn í henzínstöðina Klöpp á Skúlagötu og stolið þaðan nokkru magni af vindlingum. Afgreiðslustúlkur og bakarar hafa samið i fyrrinótt náðist samkomulag á fundí með sáttasemjara í kjara- deilu bakarasveina og ASB, Félags afgreiðslustúlkna f brauða- og mjólkurbúðum. Ekki höfðu þessir aðilar boðað verkfall. Er aðeins eftir að leggja samkomulagið fyrir fundi til staðfestingar. Bakarasveinar sömdu við Lands samband bakarameistara en ASB samdi við Bakarameistarafélag Reykjavfkur og Alþýðubrauðgerð- ina. Þessir tveir aðilar sömdu um nokkrar kjarabætur innan ramma júnísamkomulagsins. •— Viðræður standa nú yfir um kjör trésmiða og málarasveina. Útbreiðslustjóri Reglusamur maður með stúdents, verzlunar- skóla eða aðra hliðstæða menntun óskast til starfa sem útbreiðslustjóri við dagblaðið Vísi nú þegar. Umsóknir, ásamt upplýsing- um um fyrri störf, skulu sendar framkv.- stjóra blaðsins. Fyrirspumum ekki svarað í síma. BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Laugavegi 178

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.