Vísir - 20.11.1964, Blaðsíða 3
/
V í SIR . Föstudagur 20. nóvember 1964
n .* *
■
’
- ■
" K;
»ifeiÉilt
| Til hægri situr Erlingur gítarleikari og kynnir sér blað með nýjustu tízkunni í Beatle-hárgreiðslu, en frúin,
sem er f næstu þurrku, er Slgríður Gunnarsdóttir, skólastjóri Tfzkuskólans.
Gréta, hárgreiðslunemi, tekur rúllur úr höfði Erlings
m
Hár bítlanna þvegið
og kembt
Það er heldur óveniulegt að
sjá karlmann sitja undi:- hinum
voldugu hárþurrkum hárgreiðslu
stofanna í borginni. Yrirleitt eru
þurrkurnar uppteknar af hús-
mæðrum eða ungum stulkum,
sem nota þessar stofnanlr vel,
svo mjög að oft reynist erfitt að
fá inni nema með nokkrum fyr-
irvara.
Fréttamenn Visis sáu þó hið
gagnstæða morgun einn f vik-
unni. Þegar þeir litu inn ! Kjör-
garð. var bítlahljómsveitin Hljóm
ar á leið upp á aðra hæðina, þar
sem þeir höfðu pantað tíma til
að snyrta sitt síöa hár. 1
„Það getur verið mjög erfitt
að fylgja bítlatízkunni“, sagði
einn hljómsveitarmanna okkar,
„hárið er flókið og erfitt á
morgnana“ ... „og flækist fyrir
andlitinu á manni f knatt-
spyrnu“, bætir Rúnar Júlfusson,
bassagítarleikari við, en hann er
einn af íslandsmeisturunum í
knattspyrnu og mjög góður leik-
maður talinn.
Á hárgreiðslustofunni Blæösp
í Kjörgarði varð uppi fótur og
fit, þegar þessa frægu gesti bar
að garði. Ungu hárgreiðsludöm-
urnar sögðust aldrei hafa fengið
jafn „interessant“ verkefni. —
Þarna var hálssfða hárið meist-
aranna tekið og greitt, þvegið,
þurrkað, klippt, sett f það svo-
kallað „clips“ og rúllur og hár-
lakk eftir að hárið hafði verið
„túberað“.
Þegar blaðamaður og Ijósmynd
ari yfirgáfu Blæösp, datt miði af
hurðinni, sem þar hafði verið
festur milli stafs og hurðar: —
STARFSFÓLK KJÖRGARÐS
ÓSKAR EFTIR EINU GÓÐU
LAGI, hljóðaði orðsendingin. En
því miður ... hljóðfærin voru
ekki til staðar og því gat ekki
oröið af því I þetta skiptið, en
eflaust eiga þeir eftir að heim-
sækja hárgreiðslustofuna aftur,
árangurinn,1 og ™á^ væri'^ekkrúr Bít,unum greitt. Myndin tli vinstri sýnir nýjasta meðlim Hljóma, Engilbert Jensen, og Esther Ólafsdóttir
vegi að taka hljóðfærin með. greiðir honum, en hin myndin er af knattspymubftlinum Rúnari, og er Anna Magga, útlærð f hárgrelðslu-
listinni, að snurfusa hann eftir „túperingu“.
Eftir lagninguna, bftlar og hárgreiðslustúlkur Biæaspar, Ólafía, Gréta, Guðrún, Gunnar Erlingur, Rúnar og Engilbert.
I