Vísir - 20.11.1964, Síða 4
■' sz&zm'tvwaamstsBBsmit
Fornbókaverzlunin Bókin á Skólavörðustíg.
Fornbókaverzlun í glæsi-
legum húsakynnum
Fornbókaverzlunin Bókin h.f.
opnaði nýlega í stórum og mikl-
um húsakynnum að Skólavörðu-
stíg 6. Munu það vera einhver
hin rýmstu og beztu húsakynni,
sem nokkur fornbókaverzlun hef-
ur átt vfð að búa fram til þessa.
í tilefni af þessu sneri Vísir
sér til forstöðumanns og aðaleig-
anda verzlunarinnar, Guðmundar
Egilssonar, og spurði hann hve-
nær hann hafi fyrst byrjað að
fást við fornbókasölu.
— Það var fyrir tveimur ár-
um, sagði Guðmundur, að ég stofn
aði fornbókaverzlun á Klappar-
stfg 26 og þar hef ég svo verið
framundir þann tíma, sem ég opn-
aði hér á Skólavörðustígnum.
— Hvað kom þér til að fara
út í fornbókasölu?
— Einfaldlega það, að mig hef-
ur um langt skeið langað til þess.
Ég fékk smjörþefinn af þessu á
bókamörkuðum, sem Helgi
Tryggvason bókbindari hélt
stundum á haustin. Hann fékk\
mig til að aðstoða sig og þar
komst ég í kynni við gamlar bæk-
ur, bóksölu og bókamenn. Þar
vaknaði líka áhugi minn á þvf að
stofna fornbókasölu sjálfur.
— Ert þú sjálfur bókasafnari?
— Ég safnaði lftillega á tfma-
bili einkum tímaritum og þjóð-
sögum. En ég er þeirrar skoðun-
ar að bókasöfnun og bóksala fari
ekki saman og þess vegna tók ég
ákvörðun um að steinhætta allri
söfnun og jafnframt að farga því
litla, sem ég hafði safnað um
dagana.
— Sérhæfir þú þig í sölu ein-
stakra bókaflokka?
— Nei, þvert á móti geri ég
mér far um að hafa sem fjöl-
breytilegast úrval og við sem
flestra hæfi. Það er lfka naum-
ast hægt í jafn lítilli borg og
Keykjavík er að sérhafa sig í á-
kveðnum greinum.
— Selurðu bæði innlendar og
erlendar bækur?
— Já, ég bæði kaupi og sel
jafnt erlendar bækur sem innlend
ar. Aðalverðið hlýtur þó ævin-
lega að vera f innlendu bókunum.
— Kaupirðu líka heil bóka-
söfn, ef þau bjóðast?
— Já, ég hef gert það, þegar
svo ber undir, og mér þykja bæk-
urnar vera útgengilegar. Ýmsir,
sem hafa selt hafa verið fegnir
því að geta losnað við söfnin í
heilu lagi. Það hefur verið þægi-
lœt fyrir þá og sparað þeim bæði
tima og fyrirhöfn.
— Hefurðu verið með mikið af
fágætum og dýrmætum bókum?
— Já, þeim skýtur upp kollin-
um alltaf annað veifið. Nú síðast
um leið og ég opnaði á Skóla-
vörðustígnum hafði ég einkum
mikið af fágætum blöðum og tíma
ritum, auk annarra fágætra bóka.
Megnið af þvi fágætasta seldist
strax. Fágætar bækur staldra
sjaldan við.
— Hvaða bók hefurðu selt fá-
gætasta eða dýrmætasta?
— Það er alltaf erfitt að segja
um það hvað sé fágætast af þvi
sem tmaður i hefur^selfc. Stundiim
veit maður alls ekki hvað fágæt-
ast er af því sem maður selur. -
Maður veit það eitt, að sumar
bækur eru mjög fágætar — ekki
til nema í fáeinum eintökum, en
hve mörgum — veit sennilega
enginn.
Annars ef ég ætti að telja eitt-
hvert einstakt rit eða bók öðrum
fremur, sem er öðrum verðmæt-
ara eða fágætara, af þeim, sem
ég hef haft til sölu, myndi ég
freistast til að nefna Skólaskýrsl-
ur Menntaskólans frá upphafi,
og þar með hina frægu pereat-
skýrslu, sem naumast er nokkurs
staðar til, hvorki í söfnum né hjá
einstaklingum.
— Geturðu nefnt mér fjölda
þeirra bóka, sem þú hefur til
sölu í augnablikinu?
— Nei, ég hef ekki kastað tölu
á þær. Hins vegar er mér óhætt
að fullyrða að titlarnir skipta
nokkrum þúsundum.
— Keppirðu að nokkru sér-
stöku markmiði í fornbókasölu
þinni?
— Ekki öðru en því að hafa
bækur við sem flestra hæfi, jafnt
bókasafnara sem almennings og
geta orðið sem flestum að liði.
En ég hef líka stefnt að því að
hafa fornbókaverzlun mína sem
snyrtilegásta og notalegasta í alla
staði. þannig að fólk kunni vel
við sig og sé eins og heima hjá
sér þá stund sem það dvelur
inni í verzluninni við að skoða
bækur. Og ég vil að fólk hafi á
tilfinningunni að þangað sé það
ævinlega velkomið hvort sem það
kaupir nokkuð eða ekki.
► Nyerere forseti Tanganyika
kom til Daar-es- Salearn nýlega
eftir nokkra fjarveru og var
hylltur af miklum mannfjölda,
sem hanh ávarpaði. Hann vék
stuttlega að ákærum á hendur
Bretum og Bandaríkjamönnum
fyrir samsæri um að kollvarpa
stjórn landsins, en utanríkisráð
herrann birti gögn þessu til
sönnunar viku áður. Ríkisstjórn
ir Bretlands og Bandaríkjanna
segja skjölin fölsuð. Nyerere
kvað'st mundu Ieggja þau fyrir
bandaríska fulltrúa. „Ég vona
til guðs, að rétt reynist, að þau
séu fölsuð“, sagði hann.
HUSQVARNA 2000
SÝNI-
kennsia
Vegna mikillar aðsóknar verður sýnikennsla
fyrir Husqvama-saumavélar alla þessa viku í
húsakynnum vorum sem hér segir: Miðviku-
dag, fimmtudag, föstudag kl.
La\igardag kl. 2—6 e. h.
V í S IR . Föstudagur 20. nóvember 1964
Opið í kvöld
HÖrilM OPIB TIL KL.10 í KVÖLD
HIÍSGAGNAHÖLLIN
LAUGAVEG 26.
Max Factor
Allar tegundir af MAX FACTOR
snyrtivörur. Nýkomið: Senseraður
varalitur, hreinsikrem, næringar-
krem. Andlitsvötn, make og púður.
Steinkvötn og ilmvötn frá
MAX FACTOR
SNYRTIVÖRUBÚÐIN
Laugavegi 76 Sími 12275
NYTT!
Ný sending amerískir barnakjólar. Enskir og
amerískir náttkjólar — Amerískir brjósta-
haldarar í glæsilegu úrvali.
Snyrtivörudeild Skemmugluggans:
Helen Rubinsfeín og YurdBey
Lítið i Skemmugluggann,
LAUGAVEGI 66 — SÍMI 13488
Ödýrt nýkomið
Ódýrt nýkomið, barnakjólar úr nælon,
kr. 220.00. Barnakjólar úr flaueli kr.
135.00. Barnakjólar, langerma, kr.
165.00.
með fafriaðinn á fjölskylduna
Laugaveg 99, Snorrabrautar megin - Sími 24975