Vísir - 20.11.1964, Qupperneq 8
8
V í S I R . Föstudagur 20. nóvember 1964
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaatgáfan VISIK
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstóðarritstjórí: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegj 178
Auglýsingar óg afgreiðsla Irigólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 kr á mánuði
t lausasölu 5 kr. eint. - Simi 11660 (5 linur)
Prentsmiðja Vísis — Edda h.t
Krafa S.Í.S.
Qrein forstjóra Skipadeildar S. í. S., sem birtist í Tím-
anum í fyrradag, hefur vakið mikla furðu vegna ein-
sýns málflutnings. Var í greininni kvartað um það að
í nýgerðum olíusamningum við Sovétríkin skuli þeim
faldir olíuflutningarnir, en skip S. í. S., Hamrafell,
ekki látið sitja fyrir þeim. Segir hann að flutningatil-
boð Rússa séu „dumping“ (óraunhæf undirboð) og
þartnig ekki í samræmi við raunverulegan kostnað
flutninganna Vegna þessara rangfærslna hefur við-
skiptamálaráðuneyt.ið séð sig tilneytt til að gefa út yf-
irlýsingu um málið í gær. Kemur þar fram að S. í. S.
krafðist miklu hærra farmgjalds fyrir olíuflutningana
með Hamrafellinu en Rússar buðu og íslenzku olíufé-
lögin töldu sig geta samþykkt. Er þess vegna erfitt að
sjá hvers vegna skylda hefði átt olíufélögin til þess að
Hytja olíu og benzín til landsins fyrir miklu hærra verð
en fáaniegt var — verð, sem liggur verulega yfir heims-
markaðsverði olíufarmgjalda. S. í. S. stóð til boða að
iáta Hamrafellið annast flutningana nú eins og á ár-
unum 1958—1963 fyrir samkeppnishæft verð, og reynd
ar vóru olíufélögin fús til þess;að gr.eið^.igokkr^ hærra
v erð vegna þess öryggis, sem í því felst að láta íslenzkt
skip annast flutningana. En tilboð S. I. S. var svo langt-
um hærrá en markaðsverð, að fráleitt hefði verið að
taka því. Þess vegna er grein skipaforstjóra S. í. S.
torskilin í ljósi þessara staðreynda. Að öðru jöfnu er
rétt og sjálfsagt að íslenzk skip annist flutninga til
landsins. En þjóðin getur ekki gengið að neinum afar-
kostum í því efni. Það væru sannarlega annarlegir
verzlunarhættir.
Þórbergur Þórðarson
pyrir nokkrum dögum ritaði dr. Benjamín Eiríksson
opið bréf til alþingismanna, sem birtist hér í blaðinu.
í bréfinu lagði hann til að þar sem alþingi hefði nú
heiðrað þrjá listamenn þjóðarinnar með sérstökum
listamannslaunum, væri full ástæða til þess að sá heið-
ur ræði einnig til Þórbergs Þórðarsonar. í grein sinni
sagði dr. Benjamín m. a.: „Dómbærum mönnum ber
saman um að Þórbergur sé ágætur málfræðingur og
mikill ritsnillingur, sem hefur endurnýjað og stórlega
auðgað þá list. Um myndauðgi stílsins og orðkynngi
eru fáir hans jafningjar. Allir sem nú rita íslenzku að
marki eru meiri eða minni lærisveinar hans“.
Þessi grein hefur orðið tilefni til harðvítugra mót
mæla gegn tillögu dr. Benjamíns. Vísir vill hins vegar
gera orð hans að sínum. Þótt stjórnmálaskoðanir Þór-
b'ergs samræmist ekki stefnu þessa blaðs, breytir það
ekki þeirri staðreynd, að hann er einn af mestu rit-
höfundum þjóðarinnar. Það á alþingi að virða og meta
uð verðleikum, er það deilir út heiðri til beztu lista-
'iunna vorra. . ^ a-
VOPNAHLÉ í
YEMEN
Fyrir nokkru var styrjöld til
lykta leidd — tveggja ára og
tveggja mánaða styrjöld — eða
styrjöldin í Yemen, sem var
meira en venjuleg borgarastyrj
öld, því að tvö erlend ríki voru
„með I spilinu", — Saudi-Ara
bía, sem studdi konungssinna
— og Egyptaland, sem studdi
lýðræðissinna — og sendi
hvorki meira né minna en 40
þús. manna lið til landsins.
Samkomulag náðist um vopna
hlé skömmu eftir að Faizal
prins tók við konungdómi í
Saudi Arablu af Saud konungi,
bróður sínum, en hann þótti
ekki fær um að fara með kon-
ungsvaldið lengur vegna elli og
veikinda, en veigamesta ástæð
an var, að ekki varð Iengur un-
að við afturhaldssemi hans,
enda varð það fyrsta verk Faiz
als sem konungs, að boða „nýja
fratnttð fyrir Saudi-Arabíu"
Það var í september 1962 sem
styrjöld brauzt út í eyðimerkur-
landinu Yemen á Arabluskaga,
þegar Mohammed-el-Bahr kom
til valda sem imam eða konung
ur eftir föður sinn, en þá var
gerð bylting og var aðalfor-
sprakki Abdullah Sallal ofursti
— sem nú er forseti Yemen —
án þess að hafa á valdi sínu
nema helming landsins.
Al-Badr slapp nauðulega frá
Saana, höfuðborginni, en kon-
unghollir f jallabúar hófu styrjöld
gegn lýðræðisstjórninrii, en hún
hefði án efa beðið herfilegan ó-
sigur, ef Nasser forseti Egypta
lands hefði ekki brugðið skjótt
við til hjálpar. Sendi hann lið
þangað og hinir egypzku herrar
gátu húið um sig í höfuðborg
inril og strandbæjum', en náðu
ekki valdi á samgönguleiðum
þeirra milli, hvorki fyrr né síð
ar. En þegar Nasser kom Sallal
til hjálpar kom Saudi-Arabía
konungssinnum til hjálpar, að-
allega þó með því að láta þeim
í té vopn.
Það er ekki fjarri því rétta,
sem sagt var í yfirlitsgrein í
erlendu blaði um þessa styrjöld
að hún hafi verið „styrjöld
milli Saudi-Arabíu og Egypta
lands, sem háð var á yem-
enskri grund“.
Það fer ekki milli mála, að
Faizal, hinn nýi konungur
Saudi-Arabíu v
það hefir kostað Nasser mikið
fé að hafa 40,000 manna lið I
Yemen — það hefir kostað hann
milljónir á milljónir ofan, auk
hins gífurlega manntjóns, sem
orðið hefir I styrjöldinni, en þús-
undir Yemenmanna hafa fallið I
henrii, og þúsuridir egypzkra
hermanna — og hefir helmingur
þess fallið, eftir sumum fréttum
að dæma.
Þjóðhöfðingjaskiptin í Saudi
Arablu munu hafa haft sln áhr'f
að samkomuiag náðist, en ekki
síður hver þróunin hefir orðið
I báðum löndunum og heimin-
um mætti við bæta, á þeim
tíma, sem styrjöldin hefir staðið.
Fundurinn um vopnahlé var
haldinn I Sudan og þar varð
samkomulag um:
l.Að vopnahlé kæmi til frani-
kvæmda s.I. sunnudag — sem
og varð.
2.23. nóvember skal fundur
haldinn í bæ nálægt landa-
mærum Yemen og Saudi-Ara-
bíu. Sitja hann ful’trúar hinna
konunghollu og fulltrúar
þeirra, sem stutt hafa Sallal.
3. Þátttakendur I ráðstefnunni
verða 169 — beirra meðal „ul-
emar“ — trúarlegir leiðtogar.
4. Ráðstefnan á — ásamt Saudi-
Arabíu og Egyptalandi — að
koma sér saman um, að frið-
arsamningar verði gerðir —
og haldnir.
Það eru enn taldir vera 20.000
egypzkir hermenn I Yemen.
Það kann að vera deiluefni hvort
leyft skuli að einhver hluti þess
liðs verði áfram I landinu, en
margir ætla að Sallal missi allt
úr höndum sér, sem hann hefir,
ef egypzka liðið fer.
HVAÐ VERÐUR UM
KONUNGINN?
Hann mun vart geta gert sér
vonir um endurreisn konungs-
dæmis. Heyrzt hefir að honum
standi til boða að fá væna fúlgu
fjár — hvorki meira né minna
en sem svarar til 1400 milljónum
islenzkra króna, — en þá á
hann líka að fara úr Iandi með'
allt sitt skyldulið. En um af-
stöðu hans og undirtektir er
raunar ekki vitað.
Næst eining á ráðstefnunni? Á
því leikur mikill vafi. En verði
friður saminn mun það hafa
vlðtæk áhrif og til góðs I hinum
arabiska heimi.
BÓK Á ÞÝZKU
UM ÍSLAND
Ný bók um Island er væntan-
leg á þýzku um n.k. áramót. Höf-
undur hennar er Dr. Haye W.
Hausen, fornleifafræðingur, sem
dvalizt hefur langdvölum á ís-
landi á undanförnum árum og
ferðast mikið um landið.
Bók sína hefur dr. Hausen haft
lengi I undirbúningi og vandað
til hennar eftir föngum. Hún
verður um 200 slður að stærð, auk
mynda, en myndskreyting verð-
ur mikil og með næsta óvenju-
legum hætti. Þar ber fyrst og
fremst að geta 60 teikninga höf-
undarins, en auk þess 16 lit-
myndasíður m.a. myndir af ollu
málverkum höfundar af Isl. þjóð
búr.ingum, torfbæjum o. fl. Auk
þess eitthvað af litljósmyndum
af landslagi o.fl. Loks verða 8
myndaslður með svart-hvítum
ljósmyndum.
Bókinni er ætlað að fjalla al-
hliða um Island, sögulega, jarð-
og laridfræðilegt ýfirlit og um
siðu og menningu þjóðarinnar.
Verður henni skipt niður I 8
kafla og hafa sérfróðir menn,
hver á sínu sviði, lesið handritið
yfir. I bókarlok verður skrá yfir
bækur, sem komið hafa út um
ísland á ýmsum tungumálum. Sú
skrá ein nær yfir 12 blaðsíður.
Það er bókaforlag Cate und
Kaiser Frankfurt a. Main, sem
gefur bók dr. Hausens út og hefur
ákveðið að vanda til hennar I hví-
vetna. Bókin verður gefin út i 5
þús. eintökum til að byrja með,
en seinna hugsað að gefa hana
út á ensku og sænsku. Þegar út-
gefendurnir höfðu lesið handrit-
ið að bókinni komu þeir sjálfir
til íslands til að kynnast þessu
undarlega landi, sem bókarhöf-
unidur lýsti með aðdáun og hrifn
ingu. Þeir voru hér i sumar, ferð
uðust nokkuð um landið og telja
sig ekki hafa orðið fyrir von-
brigðufn. ■ . i.æi
am
I STUTTU
MÁLI
s.
► Yfir 300 landgönguliðar hafa
nú verið settir á land á 2 eyjum
úti fyrir ströndum Malakka-
skaga. Fluttu þyrlur þá frá
flugvélaskipinu Victorious. Hlut
verk landgönguliðanna er að
Ieita að indonesiskum skæru-
Iiðum, sem kunna að hafa kom-
ið sér upp bækistöðvum á eyj-
unum til innrásar á meginland-
Ið.
► Rhodesiuþing hefir verið
kvatt saman til aukafundar 1.
des., en áður hafði þvl verið
frestað til 1. febr. næsta árs.
Nú kemur það saman til nauð-
synlegrar Iagasetningar, en
ekkert látið uppskátt nánara.
► Brezka þingið hefir sam-
þykkt lög um sjálfstæði Vestur-
Afríkusmáríkisins GAMBIA.
Fær það sjálfstæði 1. febr.
1965 og verður áfram f sam-
veidinu.
► Réttarhöld eru hafiti ð
Spáni yfir 30 námumönnum og
einni konu fyrir að dreifa á-
róðursritum I seinasta námu-
mannaverkfalli í Asturias. Þau
neita sakargiftum og segjast
aðeins hafa fært svöngum
verkfalismönnum mat.
'SH