Vísir - 04.01.1965, Blaðsíða 11

Vísir - 04.01.1965, Blaðsíða 11
1 V í S IR . Mánudagur 4. janúar 19G5 ÍJtvarpið Fastir 14.40 15.00 16.00 17.00 17.05 18.00 20.00 20.20 ( Mánudagur 4. janúar liðir eins og venjulega Við sem heima sitjum, Hildur Kalman les sog- una Katrín eftir Anya Seton. Miðdegisútvarp. Síðdegisútvarp. Fréttir Sígild tónlist fyrir ungt fólk. Saga ungra hlustenda. Um daginn og veginn. Andrés Kristjánsson rit stjóri talar. Höldum gleði hátt á loft. Tryggvi Tryggva- son og félagar hans syngja gömlu lögin. 20.45 Á blaðamannafundi. Einar Sigurðsson vara- formaður Sölumiðstöov ar hraðfrystihúsanna svarar spurningum. Spyrjendur ritstjórarnir Eyjólfur Konráð Jóns- son, Magnús Kjartans- son og Dr. Gunnar G. Schram, sem stjómar uijiræðum. 21.30 Útvarpssagan Elskend- ur eftir Tove Ditlevsen X. lestur. Sigríður Ingi- marsdóttir þýddi. Ingi- björg Stephensen les. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Hljómplötusafnið. Gunn ar Guðmundsson kynn- ir klassiska tónlist. 23.10 Dagskrárlok. ■ Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 5. janúar. Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Láttu í engu skeika að sköpuðu í dag, en reyndu eftir megni að hafa vald yfir hlut- unum. Og sé það eitthvað, sem við, skaltu fresta öllum ákvörð- unum f því sambandi í bili. Nautið, 21. apríl til 21. maí: þú sérð framá að þú ráðir ekki Hætt er við að þér finnist ýmis legt ganga gegn vilja þínum í dag, einkum þegar lfður að kvöldi. Reyndu eftir því sem unnt er að forðast de'ilur og á- rekstra innan fjölskyldunnar eða við maka þinn Tviburamir, 22. maí til 21. júní: Farðu þér hægt og gæti lega í peningamálum, og reyndu að komast að samningum, með því að ræða m'illiliðalaust við þá sem eiga hlut að máli. Njóttu hvfldar með kvöldinu og forð- astu mannmörg samkvæmi. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Endurskoðaðu alvarlega afstöðu þína til þeirra, sem þér eru ná- komnast'ir, einkum af hinu gagn stæða kyni. Það kynni að vera að þú ættir þar óbætta sök, sem kæmi þér í koll seinna, nema þú leitaðir sátta. Ljónið, 24. júl ít'il 23. ágúst: Nú er kominn tími til að þú far- ir að átta þig eftir hátíðarnar og skoðir hlut'ina frá raunhæf- ara sjónarmiði. Sennilega kostar það þig nokkurt átak að vinna upp aftur það, sem sóazt hefur í glaumnum. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Þú kannt að harma eitthvað/ sem Við hefur borið um hátíðarn ar og þú getur kennt þér um — að minnsta kosti óbeinlínis. Kannski er ekki kominn tími t'il að kippa þvi f lag. en hafðu það samt stöðugt í huga. Vogin, 24. sept. t'il 23. okt.: Vandamál, sem verið hefur lengi á döfinni, þolir ekki frekari bið. Hafðu samstarf við vin þinn um lausn þess. Kvöldið er viðsjár vert. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Það eitt af helztu sérkennum drekafólksins, að vilja tæma hvem bikar samstundis í botn, og því er hætt v'ið, að hátíðar- fagnaðurinn hafi miður þægileg ar afleiðingar. Njótið hvíldar eins og unnt reyn'ist. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Einhvern næstu daga kem ur gamall vinur fram á siónar- sviðið, og veldur miklum breyt-; 'ingum til batnáðarl bf'þú treýst ir honum betur en síðast. Kannski er gæfa þín undir því komin, að þú takir honum vel. Steingeitin, 22. des. t'il 20. jan: Þér finnst eflaust dauft yfir og viðburðasnautt eftir hátíðafagn aðinn, og kannsk’i hefurðu fyllstu þörf fyrir að taka lífinu með ró. Þá skaltu grípa tæki- færið strar, því að annatímar eru framundan. Vatnsberinn, 21. jan, til 19. febr.: Farðu þér gætilega í pen ingasökum — og mun tími til kominn. En allt vinnst upp með elju og hyggindum og sennilegt er að þú eigir góðra kosta völ á næstunni, ef þú gætir vel í kr’ingum þig. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Samstarfsfólk þitt, eða einhverjir, sem þú umgengst mikið að staðaldri, reynir að spilla á milli þín og aðila af gagnstæða kyninu, sem sótzt hef ur eftir Vináttu þinni. Þú ættir að athuga hvort þeim gengi ekki eitthvað annað en umhyggja til. Úti í geimnum meðal ótal him inhnatta eru aðrir hnettir á ferð þangað komnir af mannavöld- um. Árið sem nú gengur í garð mun sennilega færa með sér stórstígar breytingar á sviði vís- indanna eins og á undanförnum árum og nú þegar er búið að gera áætlanir Iöngu fram í tfm- ann. Myndin seni við birtum er „módel“ ■ af gervitungli, sem skjóta á upp á himinhvolfið ár- ið 1966. Þessu gervitungli er ætl að það hlutverk að gefa upplýs- ingar um gerð geimsins og á það að snúast kringum jörðu á sporbaug nálægt heimsskautun- um. Gervitunglið Vérður um 76 kg, að þyngd og 75 sm. að þver- máli. FRÆGT vcj ÍáH .ÍJJSU' eðssr ð FOLK loksins haldið áfram éftirlætis iðju sinni að skrifá sjálfsævi- sögu sína í þrem bindum. Hann dregur ekki dul á það að hanil ætlar að taka sem fyrirmynd hina ódauðlegu bók Winstons Churchills „The World Crisis“, um heimsstyrjöldina síðari — þá bók sem Balfour Iávarður mælti svo um að væri „stór- kostleg sjálfsævisaga, dulbúin sem saga alls heimsins". >IC#lAiU b liilj 'Shirley Temple, sem éitt sinn var heittelskuð barnastjama um heim allan er nú ráðsett, góð móðir. í hvert skipti, sem hún, nú 36 ára gömt»l þarf að taka mikilvæga ákvörðun um samn- ing eða eitthvað annað, kallar hún fyrst saman börn sín til ráð stefnu og biður þau um að segja skoðun sína — hina 13 ára gömlu Susan, hinn 12 ára Char- les og Lori, sem er tíu ára. Börnin eru sjaldan sammála um þau ráð, sem þau eigi að gefa móður sinni. Um aðeins eitt atriði eru þau sammála: aldrei að fljúga í þoku. ☆ ARNM) HEILLA ☆ >f Harold McMilIan fannst það dálítið leiðinlegt að sonur sinn Maurice skyldi ekki ná kosningu í Halifax i síðustu þingkosning um, en nú er hann ánægður með það. Maurice getur nú farið aft- ur að hinu geysistóra forlagi, sem fjölskyldan rekur og tekið við hinni daglegu stjórn þess svo að faðir hans Mac getur Laugardaginn 26. desember voru gefin saman í hjónabánd af séra Frank M. Halldórssyni ungfrú Hrafnhildur Baldvins- dóttir og Örn Björnsson. Heim- ili þeirra verður að Háaleitis- braut 153. (Ljósm.st. Þóris, Laugavegi 20b). Annan í jólum voru gefin sam- an í hjónaband I Neskirkju af sr. Frank M. Halldórssyni ungfrú Erla Einarsdóttir og.Ragnar Snæ- fells Safamýxi 71. (Ljósm: Studio Guðniundar, Garðastræti 8). Þama er Lee, ég er Viss um það, þekki hann frá myndum af honum hugsar Rip með sér en hver er maðurinn með hnífinn. Kaðallinn sem ekki er of sterkur fyrir brestur skyndilega og To- ledo feilur þar sem hún hangir i reipinu meðvitundarlaus, niður í hyldýpið. Þann 19. des. voru gefin saman í hjónaband í Neskirkju af séra Frank M. Halldórssyni ungfrú Erla Aradóttir og Pétuf Jónsson, Drápuhllð 15 (Ljósm.: Studíó Guðmundar, Garðastræti). *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.