Vísir - 07.01.1965, Blaðsíða 3
3
VISIR
Fimmtud'iíiur 7. ianú^r 1965,
Kolla litla „undrabarnið“ hans
pabba síns horfir alveg stein
hissa á skrítna karlinn, sem er
að taka mynd af henni.
Dvergarnir í morgunleikfimi.
I Leikhúskjallaranum
Eftir á voru fleiri skemmti-
atriði. Þjóðleikhúskórinn kom
fram í göngubúningum og söng
göngulög og síðast en ekki sízt
var gengið í kringum jólatréð
og sungið „Göngum við í kring
um einiberjarunn“, og fleiri Leikkonurnar Brynja Benediktsdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir og
jólalög. litlu telpurnar horfa á dvergana skemmta.
„Soffía frænka“ gengur með krökkunum í kring um jólatréð og þau
syngja jólalög.
Þegar stórhríðina gerði um
daginn og samgöngur fóru allar
úr skorðum, lögðu margir leið
sfna í Leikhúskjallarann. Þrátt
fyrir veðurofsann var fjöldinn
allur af börnum og foreldrum
þeirra mættur á jólaskemmtun-
ina, sem var haldin fyrir börn
leikara. Þegar Myndsjáin kom,
ríkti mikil eftirvænting í loft-
inu, allir biðu eftir Mjallhvít
og dvergunum, því að þau ætl-
uðu að koma i heimsókn. Von
bráðar gægðist rautt og kringlu
leitt smetti eins dvergsins fram
í eina dyragættina og svo komu
þeir einn af öðrum, Klókur, Kát
ur, Þreyttur, Ljúfur, Hnerri og
Tregur, en Stubbur, sem hafði
helzt úr lestinni, var dreginn
fram á sviðið síðar við mikinn
fögnuð áhorfendanna ungu, —.
„Hæ, hó við höfum sofið nóg“,
sungu dvergarnir og gengu i
halarófu um salinn áður en
þeir fóru upp á sviðið. Vöktu
þeir mikla kátinu. en sumum
barnanna stóð ekki alveg á
sama, ef einhver þeirra kom of
nálægt þvi og var þá leitað
hælis til pabba eða mömmu.
Önnur voru alls ekki sannfærð
um að hérna væru alvörudverg-
ar á ferð og sögðu að það væri
bara litur framan í þeim og
þegar einn dverganna tók ofan
skeggið, þurfti ekki lengur vitn
anna við. Svo var farið í skrúð-
göngu og gengu Mjallhvít og
dvergamir í fararbroddi fram
á gang þar sem allri hersing-
unni var boðið upp á kók og
epli.