Vísir - 07.01.1965, Blaðsíða 7
Viðburðaríku ári Peter Sellers lokið
VlSIR . Fimmtudagur 7. janúar 1965.
Hann dó átta sinnum
á árinu og síðast fékk
hann mikil gleðitíðindi
JDrezki kvikmyndaleikarinn
frægi Peter Sellers er nú
farinn að starfa aftur af fullum
krafti. Þykir það furðulegt,
hvað hann hefur verið fljótur
að ná sér eftir hin alvarlegu
veikindi í fyrra, en þá fékk
hann alvarlega kransæðastiflu
og; var almennt sagt, að hann
hefði dáið átta sinnum en lifnað
þó jafnoft við einkum fyrir
umhyggju og aðhlynn'ingu hinn-
ar ungu sænsku eiginkonu Britt
Bklund
Þetta ár hefur verið at-
burðaríkt í lifi Peter Sellers. Á
fyrra ári skildi hann við fyrri
eiginkonu sína áströlsku leik-
konuna Anne Haynes. Svo stóð
hann uppi konulaus og var held-
ur svartsýnn á lífið. Allt virtist
hrunið og tilgangslaust og
þannig var hann vonlaus og
Allt í einu sló þeirri hugsun
niður í Peter Sellers að hann
langaði til að kynnast þessari
ungu stúlku. Hann bauð henni
að koma í héimsókn í herbergi
sitt og þiggja glas af léttu víni.
Stúlkan varð sem furðu lostin
yfir þessu boði, en fannst það
samt svo skrítið að forvitni
hennar vaknaði og hún ákvað
að taka boðinu. Segir nú ekki
frekar af kynnum þeirra annað
en að ellefu dögum síðar gengu
þau í hjónaband.
T^n árið átti eftir að verða
Viðburðaríkara fyrir Peter
Sellers. Hann hafði ekki lifað
nema tvo mánuði í hjónabandi
með hinni ungu konu s'inni,
þegar hann veiktist snögglega
af kransæðastíflu og var hann
vissulega að dauða kominn.
Bntt Eklund eiginkona Peter Sellers á nú von á barni. Þetta gerir aívarlegt strik í reikninginn fyrir
hana, því að hún ætlaði sér að gerast kvikmyndaleikkona. Nú dvelst hún hjá manni sínum í París
og fer stundum í búðirnar til að kaupa barnaföt.
Hér sjást hin hamingjusömu hjón Britt Eklund og Peter Sellers í
skóginum við Cahntilly þar sem verið er að taka hina nýju kvik-
mynd Sellers.
járnbraut. Þegar komið er inn
til hans, þá sér maður að her-
berg’i hans er fullt af alls kyns
dýrum, hundum, köttum, páfa-
gaukum, kólíbrífuglum, skjaid-
bökum og gullfiskum. Öll dýrin
konar haglega gerðum mótor-
um. Þau eru fullt eins skemmti-
leg og hin lifandi dýr, sem gera
ekkert annað en að sóða allt út
og maður hefur fyrirhöfn af að
gefa þe'im að éta.
Balletfskólinn
Lnugnvegi 31
Kennsla hefst á ný mánu
daginn 11. jan. — Nem-
endur mæti á sömu dög-
um og sömu tímum og
fyrir jól. Upplýsingar og
innritun fyrir nýja nem-
endur . síma 16103 kl. 5
— 7 dagl.
Munið okkar vinsælu kvennatima
hann saméinar þessa tvo hluti.
Komi maður í heimsókn til
hans. þá ferðast maður góðan
virðast við fyrstu ásýnd vera
lifandi, en þegar betur er að
gætt eru þetta allt dýr véltækn-
ITr þessu efni mun Peter
Sellers vafalaust kunna að
gera skemmt'ilega kvikmynd
sem verður bæði gamanmynd
og ádeilumynd En þeir sem
bezt þekkja Seller vita að hann
er einkennilegur maður, sem
getur svo að segja brugðið sér
1 allra kVikinda líki. Réttara
væri kannski að segja að hann
væri margar persónur. Hann er
grínistinn Peter, hinn illgjami
Peter, hinn friðsami Peter, hlnn
hamingjusami Peter og hinn
svartsýni Peter. Hvert gervi um
sig er eins og sjálfstæður per-
sónuleiki. Hann tekur algerum
breytingum eftir þvi í hvaða
ham hann fer hverju s'inni, allt
látbragð hans, rödd, hreyfingar
og jafnvel augnsvipur.
Þegar hann náði sér eft'ir
sjúkdóminn, skipuðu læknar
honum fyrst að hvíla sig, hann
mætti alls ekkert reyna á sig
fram í apríl 1965. En þá leitaði
hann ráða annarra lækna sem
voru á allt annarri skoðun og
sögðu að hann yrði að reyna á
sig. Hann yrði fyrst og fremst
að forðast kyrrstöðu og fitu
Peter Sellers segist ekki hafa
hugmynd um, hvorir læknarnir
höfðu rétt fyrir sér, en hann
notfærir sér þau ráðin, sem
honum finnast geðþekkari.
Hann er straz farinn að vinna
að upptöku nýrrar kvikmyndar
sem hann kallar „Sæl, kisa
Iitla“.
— Kannski eru læknarnir
þrátt fyrir allt sjálfum sér sam-
kvæmir segir Sellers. — Þegar
þeir skoðuðu mig fyrst var ég
fárveikur, en svo hafa þeir bara
ekki varað sig á þvi hvað frum-
urnar í mér eru kraftmiklar og
frjótar að gróa.
Gíðasti atþurðurinn er þó
skemmtilegastur af þeim
öllum, því að rétt þegar Sellers
var að byrja að vinna að kvik-
mynd sinni var upplýst að kona
hans ætti von á bami.
Upptaka hinnar nýju kvik-
myndar Sellers fer fram i
Chant’illy í nágrenni Parísar og
þar dveljast þau hjónin um
þessar mundir. Ekki er vitað
nákvæmlega fyrirfram, hvemig
efni kVikmyndarinnar verður en
sagt að hún eigi að verða eins
konar sálgreining á heiminum.
Peter leikur sjálfur aðalhlut-
verkið, sálfræðing sem er þó
sjálfur sálsjúkur vegna alls sem
gengur á í heim'inum. Meðal
annars hefur sálfræðingurinn
hrifizt mjög af bítilæðinu og
gengur með sítt hár.
Britt horfir á mann sinn í gervi sálsjúka sálfræðingsins í kvik-
myndinni „Komdu sæl, kisa min“.
það er ekki gott að segja hver
þessara persónuleika verð-
ur ríkjandi i hinni nýju mynd.
En nú sem stendur er það vitað
að hann er mjög spenntur fyrir
allri véltækni en samtímis er
dýravinátta hans rfk. Er einkar
skemmtilegt að sjá, hvemig
niðurbeygður. Hann gat ekki
hugsað sér að búa í hús’i sinu
þar sem hann hafði áður lifað
sæll í hjónabandi sem nú var
splundrað. 1 stað þess færði
hann sig á milli g'istihúsa og
reyndi að drekkja sorgum sín-
um.
TFjá gerðist það éinu sinni er
hann bjó á Dorchester
hóteli I London og stóð niðri
í anddyri gistihússins, að inn á
hótelið var að koma ung,
fögur og ljóshærð sænsk stúlka.
Hún hét Britt Eklund og var
dóttir sænsk kaupmanns. Var
hún nú að koma í skemmtiferð
til Englands.