Vísir - 07.01.1965, Blaðsíða 15
VlSIR . Fimmtudagur 7. janúar 1965.
75
ERICA TUGKER:-
Að hitta
eina rétta
— Þarna inni sitja tveir gamlir
þorpsbúar, sagði hann. Þér vilduð
kannski fara til þeirra og spjalia
við þá um gamla daga — ég skal
kynna yður, það er velkomið, —
en þér eruð kannsk'i á Ieið eitt-
hvað annað?
— Ég á að hitta unnsta minn
hér kl. 18.30 og aka með honum
til Long Garston. þar sem hann
býr.
— Það er indæll staður, sagði
gestgjafinn, engu ver'ið spillt þar,
eins og hér í þorpinu. Það er ekki
heldur farið að reisa þar íbúða-
hverfi eins og hér Eitt á að vera
í nánd við bílabrautina og annað
þar sem flugvöllurinn var.
— Og kornakrarnir verða að
vlkja.
— Það er engu líkara en að
meiri þörf sé að byggja hús en
rækta korn, sagð'i gestgjafinn.
—★—
Chris tók glas sitt og fór inn- í
afþiljaða skotið, sem var stærra en
hún hélt, því að þar voru þægileg-
ir stólar og póleruð smáborð.
Þar sátu tveir gamlir menn fyrir
framan arininn. Þeir voru í peysum
og með gúmmískó á fótum. Andlit
þessara öldunga voru hrukkuð. —
Auðséð var ,að þeir voru nýkomnir
inn úr kuldanum, og að þeim þótti
gott að orna sér þarna yfir glasi.
Þeir töluðu saman á mállýzku
þorpsbúa. Og þeir brostu til Chris
og það var engum erfiðleikum bund
ið að komast í kynni við þá, því
að þeir urðu sannast að segja fyrri
til og spurðu hana hvort hún kæmi
frá London og svaraði hún því ját-
andi.
— Já, sagði annar, þeir koma
margir þaðan hingað, síðan bíla-
brautin kom.
— Þið munið sjálfsagt vel hvern-
ig allt var hér á striðstímanum
sagði Chris.
— Á stríðstímanum, ó, já, sagði
hinn, þá var allt fullt hér af flug-
mönnum.
— Já, ég veit það. Faðir minn var
flugmaður og hann var í flugstöð-
inni hér. Hún var bækistöð flug-
sveitar hans. Og ég átti heima
hérna, þegar ég var barn. Og svo
greip mig löngun til þess að koma
hingað og sjá hvernig allt lítur út
hér — og hve mikið væri eftir sem
ég myndi eftir frá því ég var barn.
Þetta skildu þeir mæta vél og
fóru að masa um sitt af hverju
ftó fyrri tima og voru svo ákafir,
að þeir töluðu stundum báðir í
einu. Og þeir nefndu ýmis nöfn smá
kaupmanna og annarra, sem hún
mundi ekki eftir. Gilby og Cart-
wright, já, og svo var það hann
Marshall, slátrarinn hjá honum
bjuggu fimm flugmenn.
— Og Weston-hjónin, þið munið
kannski eftir þeim? skaut hún inn i.
Þeir kinkuðu kolli, sei, sei, jú,
þeir mundu eftir Charlie Weston.
Þeim hafði sannast að segja fallið
ágætlega við hann, þangað til
hann gerbreyttist, varð beizkur í
lund og geðvondur, og kom fram
eins og hann rétt af náð sinnt við
skiptavinunum. Og konan hans,
mesti skapvargur.
Nú, þau áttu við sína erfiðleika
að stríða Þetta var kannski allt
skiljanlegt. Það voru erfiðleikar
með dótturina, einkabarn þeirra.
Þau höfðu ekki séð sólina fyrir
henni og það var mikið áfall fyrir
þau hvernig fór.
— Erfiðleikar . . .áfall, sagði
Chris. Hún var búin úr glasinu
sínu og henni var heitt, þar sem
hún sat við eldinn, og syfjaði enda
dálítið. Voru einhverjir erfiðleikar
með dótturina?
— Hún var indæl stúlka, sögðu
þeir báðir í kór. Og hafði ljómandi
fallega söngrödd og var ailtaf syngj
andi. Hún fór í hjálparsveit kvenna
og hjálpaði til í skenkistofunni,
þegar hún var heima í leyfi. Charlie
dekraði við hana, — honum þótti
svo vænt um hana. Það var ekki
hægt að segja annað, já, víst elsk-
aði hann hana og kailaði hana auga
steininn sinn.
— Þið hafið vakið forvitni mína.
Hvað gerðist?
— Æ, maður ætti kannski ekki
að tala um gamla nágranna.
— En þið eruð ekki nágrannar
iengur, sagði Chris. Þið sögðuð, að
hún hefði sungið.
— Já, og aliir hermennirnir höfðu
dálæti á henni. Hún söng fyrir þá
gömlu söngvana, sem yljaði þeim
um hjartaræturnar. Já, hún söng
eins vel og Judy Garland, megið þér
trúa.
— Kom . . . kom eitthvað fyrir
hana?
— O, þetta sama og fyrir svo
margar aðrar ungar stúikur á þeim
árum. Hún varð ástfangin og pilt-
urinn hennar beið bana í striðinu
— áður en þau gátu gift sig. Og
þá brast hjarta Charlie gamla . • •
— Já, hún söng eins vel og
Judy Garland, sagði hinn. Það var
leitt hvernig fór.
Það var farið að fjölga frammi
og það var kliður af mannamáli
sem barzt til þeirra og glasaglaum-
ur. Chris ýtti frá sér glasinu sínu.
Hún sá allt eins og I þoku. Henni
leið eins og einhver hefði sparkað
í hana. Og hún kenndi mikils sárs-
auka og reiði. Og hún hugsaði sem
svo: Móðir mín skrökvaði að mér
Hún hefir skrökvað að mér allt mitt
líf. Allt var byggt á ósannindum.
— Hún var hérna eft'ir að hún
fékk lausn úr hjálparsveitinni sagði
annar gömlu mannanna, og hinn
greip fram í:
— En fólk þurfti að tala um þetta
ein ósköp og móðir hennar lét hana
engan frið hafa.
— Hún eignaðist litla telpu. Hún
var dökkhærð eins og faðirinn.
— Og svo dó Charlie Weston og
konan, það var ekki ár á milli
þeirra, og dóttirin fór til London að
leita sér að atvinnu. Hún fór með
barnið og v!ð v'itum ekki hvað af
þeim varð.
— Nei, við vitum ekki hvernig
þeim vegnaði.
Chris reis á fætur. Henni fannst
allt á hreyfingu — jafnvel veggim-
ir, hana svimaði Hún kvaddi gömlu
mennina og það var ekki fyrr en
hún var komin út og fann svalann
leika um sig og horfði upp í stjörnu
bjartan himininn, sem hún aftur gat
hugsað skýrt. Og svalur vindurinn
blés yfir kornakrana, þar sem flug-
völiurinn hafði verið, og brátt
mundi rísa nýtt húsahverfi.
j — Chris, ert það þú, elskan mín?
j Hún heyrði rödd Jeremy utan úr
j dimmunni. Hún þekktifótatakhans.
j Og svo var hann allt í einu kominn
i og tók sterklega utan um hana og
iþrýsti henni að sér. Og hún fann
! svala kinn hans við sína.
j — Jæja, hjartað mitt, þú virðist
i ekkert yfir þig hrifin að sjá mig.
jEr nokkuð að?
j — Við verðum að tala um dálítið,
jJeremy, sagði hún alvarlega.
j — Við höfum heila viku til þess
! að rabba saman, — en gott og vel,
— viltu eitt glas — eða eigum við
;að fara beint heim? Elskan mín
jþú ert ísköld.
- Nei, mér er ekkert kalt ,en ég
!,vii tala við þig — í einrúmi, áður
en ég fer heim með þér til að vera
kynnt fyrir fjölskyldu þinn’i.
— Gott og vel, en við skulum
fá okkur glas. Komdu.
Gömlu mennirir tveir voru komn-
ir út. Þeir voru að leggja af stað.
i Hún horfði á eftir þeim og sá síðast
i aðeins rauðu kattarljósin á aur-
brettum reiðhjólanna. Og þeir hurfu
: út í dimmu vetrarnæturinnar.
Hún leiddi Jeremy að borðinu þar
sem gömlu mennirnir höfðu setið
— í afþiljaða skotinu.
— Af hverju ferðu með mig hing
að Chris? Hví ekki að njóta þæg-
indanna og finheitanna handan við
skilrúmið?
— Nei vegna þess að það var
hérna, sem móðir mín hjálpaði til
þegar hún bar mig undir brjósti.
— Já, sagði hann rólega.
n sðLU
2ja herbergja íbúð við Hjallaveg.
Nýstandsett og máluð með nýjum
teppum. Laus nú þegar.
2ja herb. risíbúð, við Kaplaskjól,
hagstætt verð.
4ra herb. íbúð, við Hátún. Sér-
staklega vel innréttuð með harð-
við.
4ra herb. íbúð við Ljósheima, sér
þvottahús á hæðinni. Teppi fylgja.
4ra herb. íbúð í Hliðunum, jarð
hæð (siétt inn). Ný íbúð, um 120
ferm. Teppi geta fylgt.
4ra herb. íbúð við Barmahlíð.
Um 120 ferm. vönduð íbúð, með
harðviðarhurðum, sér inngangur.
Teppi fylgja. Bílskúr.
5 herb. endaíbúð, við Álfheima
Sér þvottahús á hæðinni íbúðar-
herbergi fylgir á jarðhæð.
5 herb. ný íbúð við Háaleitis-
braut um 120 ferm. Tvær saml.
stofur, 3 svefnherb, hol, eldhús
með borðkrók, bað, sér geymsla í
kjallara, sameign I þvottahúsi.
6 herb. endaíbúð, í sambyggingu
við Hvassaleiti (suðurendi). —
Tvennar svalir. íbúðarherbergi
fylgir í kjallara.
. mgimarsson lögm.
Hafnarstræti 4. — Sími 20555. ‘
Sölum.: Sigurgeir Magnússon,
Kvöldsími 34940.
Hargreiðslu- og snyrtistofa
I STEINU og DÓDO
Laugavep 18 3 hæð (lyfta)
Slmi 246lfi
HSrgreiðslustofan PERMA
Garðsenda 21. slmi 33968
Hárgreiðslustofa Ótafar Björns
dóttur
HATUNi 6, slm) 15493._________
Hárgreiðslustofan
P I R O L
Grettisgötu 31 stmi 14787.
Hárgreiðslustofa
VESTURBÆJAR
Grenimel 9. =lmi 19218.
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
íMarla Guðmuridsdóttir)
Laugavep 13. simi 14656.
Nuddstofa á sama stað
FASTEIGNASALA
Ef þið viljið selja íbúð yðar þá höfum við
kaupenda.
Fjöldi manna óskar að kaupa 2., 3., og 4ra
herb. íbúðir. Ennfremur stærri íbúðir, rað-
hús og einbýlishús.
FASTEIGN AS ALAN
Vonarstræti 4 — Sími 19672
Sölumaður: heimasími 16132.
I
A
R
THE FAULT'S WNE JSHULu!
1 SHOULPM'T HAVE LET
HEK STAY HEEE TO HUESE
t\E... X SH0ULP HAVE
SEHT HEK BACK.TO THE
AIK 6ASE-WITH THE.
Dömuhárgreiðsla við allra hæf
T.IARNARSTOFAN
Tiarnargötu 11 Vonarstrsetla.
megin. slmi 14662
I Hárgreiðslustofan Ásgarði 22.
Slmi 35610
HÁRGREIÐSLU
STOFAN
Sk
[ MO
§im
ÁSTHILDUR KÆRNESTEDM
GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR
SIMI 12614
HAALEITISBRAUT 20
VENUS
Grundarstig 2a
Sími 21777.
Hárgreiðslustofan
Sv..va!lagötu
Simi 18615
Naomi hjúkrunarkona rýkur i
burtu frá Tarzan og Tshulu, sem
eru f leynum í hjúkrunarstöðinni
áður en þeir geta stanzað hana,
og hættir lífi sínu sem beita til ur en ég gat gripið hana. Þetta
þess að fá glæpamennina til þess er allt mér að kenna Tshulu, ég
að koma á land. Hún hljóp fram hefði ekki átt að láta hana verá
hjá mér, Tarzan, seg'ir Tchulu að- hérna til þess að hjúkra mér.
Ég hefði átt að senda hana aftur
til flugstöðvarinnar með fallhlíf-
arliðinu.
22997 • Grettisgötu 62 ST
.V.V.V.V.'.V.VV.V.V.VAV.
SÆNGUR
REST-BEZT-koddar
Endumýjum gömlu
sængurnar. eigum
dún- og fiðurheld ver
^elium æðardúns- og
ræsadúnssængur —
->g kodda af ýmsum
;tærðum
OON. OG
FIÐURHREINSUN
Vatnsstlg 3 Sími 18740.
.V.VASW.V
-TÁMH