Vísir - 12.01.1965, Síða 5
V í S I R . Þriðjudagur 12. janúar 1965
utlönd í morgun útlönd í mörgun útlönd í morgun útlönd í morgun
Ræðst Kíim á Indland á ný til
óbeinnar hiálnar við Indonesiu?
Ófriðarhætta út af áformum
Indónesa í garð Malajsíu er talin
hraðvaxandi og samtímis rætt um
að Kína kunni að ráðast á Ind-
land á ný.
Brezka blaðið Daily Express
birtir frétt um, að brezka stjórnin
sé fús til þess að vera þátttakandi
í kjamorkuvopnaviðbúnaði, til
þess að draga úr þeirri hættu, að
Kína ráðist á Indland, og viðbúin
að senda nokkrar sveitir úr brezka
flughernum til Indlandshafs og
Kyrrahafs. Eru þetta sprengju-
flugvélasveitir, sem hefðu kjarna-
yddar sprengjur til afnota, ef til
ófriðar kæmi.
Blaðið segir, að þetta sé höfuð-
ástæðan fyrir þvf, að Wilson vilji
ekki tiltaka hve margar V-
sprengjuþotur hann vilji láta Norð
ur-Atlantshafsbandalagið fá sam-
kvæmt tiilögum hans um kjarn-
orkuvarnarbandalag.
Shastri forsætisráðherra Ind-
lands hefir að undanförnu leitað
til kjarnorkuveldanna, að þau veiti
| aðstoð til þess að girða fyrir, að
i Kína ráðist á Indland að nýju.
I
MALAJSÍA.
Hættan á nýrri árás Kínverja á
Indland er sízt minni vegna á-
forma Súkamós um að ráðast á
Malajsíu þar sem það yrði honum
óbeinn stuðningur, ef vinaþjóðir
Malajsíu fengju verkefni annars-
staðar. Harold Wilson forsætisráð
herra Bretlands tók af skarið um
afstöðu Bretlands vegna hættunn-
ar, sem Malajsía er í frá Indónesíu.
Hann sagði:
í brezka samveldinu mun eng-
inn efast um það, að vér erum
staðráðnir í að standa við hlið
samveldisfélaga vors, Malajsíu,
með þvl að spyrna gegn innrásar-
hættunni og öðrum hættum, sem
hún er í. Að því er þessar hættur
varðar höfum vér brugðið við
skjótt og örugglega. Vér höfum
þar nú 50.000 manna her, o.s.frv.
Það var við sama tækifæri, sem
Wilson boðaði, að hann myndi
kveðja saman ráðstefnu forsætis-
ráðherra Brezka samveldisins hið
fyrsta.
EAGLE, flugvélaskipið, stærsta
herskip Breta, kemur til Singa-
i pore á morgun.
Gullverð hefur aftur lækkað i
á markaðinum í London, svo ,og '
gullnámuhlutabréf sem hækk- <
að höfðu óeðlilega, og staða <
sterlingspunds hefir styrkzt á J
ný-
Hvorttveggja er þakkað að- <
vörunum bandaríska f jármála- J
ráðuneytisins gegn spákaup- <
mennsku með gull og ráðstöf- <
unum sem gerðar voru. EinnigJ
koma hér til greina ráðstafan-
ir, sem Englandsbanki gerði eft<
ir miðbik fyrri viku til stuðn- J
ings pundinu.
Hafnarverk-
fallið í USA
Hafnarverkfallið á austurströnd
Bandaríkjanna nær nú til allra
hafnarbæja þar. Tjón New York-
borgar einar af verkfallinu nemur
I milljón dollara á dag.
Óskað hefir verið eftir að ný
atkvæðagreiðsla fari fram um
kjarasamninga þá, sem í boði eru,
en þeir voru felldir með mjög
naumum. meirihluta atkvæða.
Ólafur Noregskonungur er í heimsókn í Iran (Bersíu) og hefir verið tekið þar af mikilli viðhöfn.
Hann fór þangað flugleiðis í flugvélinni Olaf Viking og kom við í Libanon (veðurs vegna). Hér
ræðir konungur við forseta Libanon Charles Helon.
Aðeins stríð granda fíeiri
mannslífum en sigarettan
í nýbirtri skýrslu heilbrigð-
isstjórnarinnar bandarísku seg ;
ir, að einn af hverjum fjórum !
reykingamönnum í Bandaríkj- '
unum hafi sinnt viðvörunum!
um hættuna sem stafar af síg- ■
arettureykingum, en enn bíði;
að minnsta kosti 125.000 menn
bana af völdum Iungnakrabba í,
Bandaríkjunum, en ef til vill i
Svona líta út hraðlestirnar, sem eru í förum á járnbrautarleiðinni
París-Brussel-Amsterdam. Þær eru viðkunnanlegar og nýtízku
'egar í útliti og í ágætu samræmi við gerð farþegavagnanna. Þær
eru framleiddar í Frakklandi. í hraðlestum þessum er farið milli
Parísar og Amsterdam á 5 klst. og 20 minútum, en Iestirnar fara
með 102 km. hraða á klst.
★ Vegna þess að hafnarverka-
menn í Antwerpen hafa tekið
upp þá baráttuaðferð að fara
sér hægt við vinnuna, unz þeir
fá kröfum sínum framgengt,
hafa um 80 skip verið send til
annarra hafna til afgreiðslu.
Belgíska stjórnin batt endi á
hafnarverkfallið í landinu með
því að hervæða hafnarverka-
menn. og skylda þá til vinnu, og
réttlæti það með því, að efna
hag landsins væri teflt í voða.
Stjórn hafnarverkamanna ákvað
þá, að þeir skyldu'fara sér hægt
vifi vinnuna, þar til dcilan um
yfirvinnukaup væri leyst.
sé þó sú tala miklu hærri, eða
nær 300.000.
Þannig séu það aðeins styrj-
aldir sem verði fleiri mönnum
að bana en sígaretturnar.
Kosygin til
London —
Wílson til
Moskvu
Það er nú fastmælum bundi'ð,
að Kosygin forsætisráðherra Sovét
ríkjanna kemur til Bretlands í op-
inbera heimsókn í vor, og að Har-
old Wilson endurgeldur heimsókn
ina nokkru sfðar.
I.íklegt er, að Kosygin komi fljót
lega eftir að Gromiko utanríkis-
ráðh. Sovétríkjanna hefir heimsótt
Bretland í marz í boði Patricks
Gordon Walkers utanríkisráðherra
í STUTTU
MÁLI
► Forseti Suður- Kóreu segir,
að S.-K. hafi tekið ákvörðun
um að senda 2000 manna lið til
Suður-Vietnam til þess að
„hjálpa til í baráttunni gegn
kommúnismanum".
► Stúdentar í Hue i Suður-
Vietnam hófu tveggja sólar-
hringa allsherjarverkfall I
gær (mánudag) til þess að mót-
mæla stefnu stjómarinnar.
Buddhistar í S.-V. hafa nú að-
alsetur sitt f Hue og vonast
eftir að allsherjarverkfallið
breiðist út allt til landamæra
Laos og N.-V.
► í frétt frá Elisabethville
segir, að uppreistarmenn í
Kongo séu nú klofnir í tvær
fylkingar. Er þetta haft eftir
flóttafólki, sem kom til Elisa-
bethville frá Uganda, þar sem
það leitaði hæjis. Sumar sveitir
uppreistarmanna em tregar
orðnar til þess að berjast gegn
sambandshernum og jaðrar við,
að þær hætti ailri mótspymu
gegn honum. Önnur fylkingin
styður Christophe Gbenye og
Gaston Soumaliot, en hin
Thomas Kanza. Gbenye er sak-
aður um að hafa tekið fé upp-
reistarmanna til eigin nota í
stað þess að borga hermönnun-
um. Tveir hinir fyrrnefndu
hafa hafnað öllu samstarfi við
Kanza, sem fór til Nairobi og
hefir verið þar síðan í nóvem-
ber, er byrjað var að reyna að
ná samkomulagi um að sleppa
hvítum gíslum í Stanleyville.
► Efnahagsleg þróun í Vestur-
Þýzkalandi jókst um 6%, en
efnahagsstofnunin OEEC hafði
gert ráð fyrir 4.25% aukningu.
í öldungadeild Bandaríkja-
þings hefir verið lagt fram
frumvarp um að hætta efna-
hagslegri aðstoð við Egyptaland
og Indonesiu. — í Bandaríkjun-
um eru menn að komast æ
meira á þá skoðun, að Inonesia
sé að verða kfnverskt áhrifa-
svæði, og Kfna er eina landið,
sem opinberlega hefir fagnað
úrsögn Indonesiu úr samtökum
Sameinuðu þjóðanna. Indonesia
er fimmta mesta land heims
með óhemju auðlindir. Áður-
greinda þróun harma menn í
Bandaríkjunum, þvf að hún
dregur úr lfkunum fyrir, að
hægt verði að varðveita friðinn
í Suðaustur-Asíu.
► Einn af iðnaðarkóngum
Bandaríkjanna Anthony de Ab-
gelis játaði í fyrri viku á sig
tilraunir til risavaxinnar svika-
starfscmi upp á 100 millj. doll-
ara. Hann er ákærður fyrir
...argt, meðal annars fyrir að
senda falskar ávísanir milli rikja
fyrir samtals 65 milljónir doll-
ara, en alls hafði hann og fimm
aðrir fengið dóm fyrir falsaðar
kvittanir upp á 100 milljónir'
dollara, en sá dómur var upp
kveðinn i fyrra.
► Bandarisk tolíyfirvöld lögðu
hald á eiturlyf að verðmæti sem
svarar til 17—18 millj. fsl.
króna, er hafskipið France kom
til New York fyrir nokkrum
dögum. Eiturlyfið var heroin og
falið í tveimur handtöskum. —
Skipið var að koma úr 12 daga
skemmtisiglingu til Karíbahafs,
er þetta gerðist.