Vísir - 12.01.1965, Side 6
6
V1S IR . Þriðjudagur 12. janúar 1965
11 i iii
Thor Thors látinn
Framhald at bis. I
diktsson ritaði hér í blaðið
sagði hann:
„Það er skemmst að segja
að hið nýja ævistarf sem
Thor kaus sér rösklega hálf
fertugur hefir hann rækt með
þeirri prýði sem bezt mátti
verða. Hann hefir verið þátt
takandi í ýmissi hinni örlaga
ríkustu pólitísku samninga-
gerð fyrir landið, hann hefir
leyst flókna hnúta í efnahags-
og fjármálum fyrir riki og
fyrirtæki, hann hefir ferðazt
fram og aftur um Vesturálfu
og víðar fyrir ísland og talað
máli þess — og máli réttar og
sátta — hjá Sameinuðu
þjóðunum. Samt á þessi
maður aldrei of annríkt til að
leysa vandræði þeirra ein-
staklinga sem til hans leita“.
Thor Thors, sendiherra, var
æddur 26. nóv. 1903 í Reykja-
vík, sonur hinna merku hjóna
Thors Jensens stórkaupmanns
og útgerðarmanns og Margrétar
Þorbjargar Kristjánsd. Hann
varð stúdent 1922 og lauk lög-
fræðiprófi við Háskóla íslands
1926, en stundaði síðan fram-
haldsnám í hagfræði í Cam-
bridge og París og um skeið á
Spáni og í Portúgal. Hann var
framkvæmdastjóri hjá Kveldúlfi
h.f. 1927 —1934, forstjóri í Sölu-
sambandi íslenzkra fiskframleið-
enda 1934 — 1940, en skipaður
aðalræðismaður í New York
1940. Hinn 23. okt. 1941 var
hann skipaður sendiherra í
Bandaríkjunum og ambassador
þar 1955. Hafði hann gegn,t
sendiherrastörfum næstlengst
sendiherra þar í borg. Hann
hafði einnig á hendi sendiherra
störf í ýmsum öðrum löndum
vestan hafs.
Thor Thors var alþingismaður
Snæfellinga 1933 — 1941 og
gegndi ýmsum öðrum trúnaðar
störfum, sem hér verða ekki
rakin. Hann naut mikils trausts
hjá SÞ, þar sem honum var sýnd
ur ýmiskonar trúnaður, hann var
t. d. framsögumaður stjómmála
nefndarinnar 1950 — 1953, form.
hinar sérstöku pólitfsku nefndar
1954, formaður kjörbréfanefndar
1958 og 1961 og einn af vara-
forsetum Allsherjarþingsins var
hann haustið 1952.
Thor Thors var kvæntur
Ágústu Ingólfsdóttur og lifir
hún mann sinn Þau eignuðust
þrjú þörn, Margréti Þorþjörgu,
sem lézt 1954, Ingólf og Thor
Harald.
Thor Thors verður síðar
minnzt hér í blaðinu,, \'
Bþróttir —
i-ramhald at bls. 2
kennara í hátíðasal. Þar var leik
in þjóðlagaplata Savannah-triós
ins, sem við færðum skólanum,
og sýnd kvikmynd „This is Ice-
Iand“ við góðar undirtektir.
Mjög áberandi var bæði hér og j
annars staðar, hve margir komu I
til mín og hrósuðu prúðmann-!
legri framkomu piltanna bæði j
innan leikvallar og utan.
Stigin í leiknum skoruðu: Ein-
ar 19, Þorsteinn 18, Guttormur
17, Kolbeinn 7, Kristinn 6, Gunn
ar 4.
Meðan landsliðið dvaldi í j
Washington, var liðsmönnum
boðið að skoða Hvíta húsið,
þinghúsið Capitol, Arlington
kirkjugarðinn, höfuðstöðvar FBI,
alríkislögreglunnar og fleiri
merka staði Ambassador ís-
lands, Thor Thors hafði móttöku
fyrir liðið á gamlársdag. Viðtöl
voru við Boga Þorsteinsson í út- i
varpi og sjónvarpi, og blaða-
menn voru honum erfiðir.
Bogi kveður allan hópinn við
jóða heilsu, nema hvað Jón hafi
fengið snert af hálsbólgu, og
biðja allir fyrir kveðju heim.
Barnið —
Framhald af bls. 16.
Þegar flugvélin var komin
suður yfir Stylckishólm var
súrefnið þrotjð og um Iéið
blánaði bariiið i framan og.ekki
var annað sjáanlegt en það gæfi
upp andann á hvaða augna-
bliki sem var. Þá var annars
yegar gripið til þess ráðs að
flugmaðurinn „spýtti í“ jók
hraða flugvélarinnar eins og
hún framast þoldi, og hins veg
ar notaði konan munnblásturs-
aðferð Við barnið til að reyna
að halda í því lífinu. Jafnframt
voru ráðstafanir gerðar til
þess að fá sjúkrabifreið með
súrefni til að vera til taks á
Reykjavíkurflugvelli þegar vél-
in kæmi.
Þegar flugvélin kom til
Reykjavíkur var barnið enn lif
andi og sjúkrabifreið til stað-
ar með súrefniskút. En þegar
til átti að taka var hann tóm-
ur. Var þá önnur sjúkrabifreið
fengin með súrefni og kom hún
í loftköstum út á flugvöll.
Með þessum hætti komst
barnið lifandi inn í Landspitala
og' þar samstundis framiþ að-
gerð á barninu. í gær spurðist
Björn Pálsson fyrir um líðan
þess og fékk það svar að því
liði orðið betur.
Flugsýn —
var lagt af stað suður og jafn-
framt tekið til við að gefa því
súrefni.
Yfir Dýrafirði var veður
betra, ekki eins misvinda og
ekki neinum erfiðleikum bund-
ið að lenda þar. Er þar kom
annað strik í reikninginn. Það
hafði ekki verið komið með
sjúklinginn út á flugvöll, held-
ur beðið eftir flugvélinni til að
fá úr henni sjúkrakörfu og síð-
an farið með hana inn í þorpið
til að sækja bamið. Þetta olli
talsverðri töf og á meðan eydd
ist súrefnisforði flugvélarinnar
sem óðast, sem ætlaður var
litla baminu til flugsins.
Framh. af bls. 1
Heron-flugvélin er mjög lík De |
Havilland Dove, en Björn Pálsson
á eina slíka vél. Heron-flugvélin er j
þó talsvert stærri og búin fjórum
hreyflum, en „Dúfa" Björns Páls-
sonar er með tveim hreyflum. Her- j
on-flugvélarnar hafa reynzt mjög ,
vel undanfarin ár. Braathen, útgerð ;
armaður og flugvélaeigandi, átt'
flota af Heronflugvélum og líkað t
mjög vel við vélarnar, og enn þann |
dag í dag rekur BÉA, eitt öflugasta j
flugfélag Evrópu, 5 flugvélar af
þessari tegund, en vélarnar fljúga
aðallega innan Skotlands og eins
út á éyjarnar við Skotland.
Heron-flugvélin þarf svipaða flug
braut og Beechraftinn sem Flugsýn
notar nú I Norðfjarðarflugið, flug-
tíminn er svipaður, þ. e. 1 tími og
20 mínútur. Er ekki vafi á að
flugvél þessi á eftir að verða vin-
sæl, bæði af farþegum og ekki hvað
sízt af þeim fjölda sjómanna sem
hafa notið flugferða þessara, en
varahlutasendingar handa bátaflot
anum voru mjög margar síðasta
sumar og em raunar enn
Norðurlandœráð —
rramhaid af bls. 16.
grundvelli yrði það óþarfi.
Tillaga er fyrir fundinum um
stofnun norrænnar rannsóknar-
stofnunar í fiskirækt í vötnum.
Yrði hún staðsett í Uppsölum.
Sérkennilegt skattamál liggur
fyrir Norðurlandaráð’i um skött
un sjómanna. Það er algengt að
færeyskir og norskir sjómenn
vinni á skipum annarra ríkja,
__ þar á meðal á skipum annarra
Norðurlandaþjóða. Samkvæmt
núgildandi reglum eru þeir
skattlagðir af heimaríki skip-
anna, en nú er lagt t’il að út-
svar þeirra falli til heimahéraðs
þeirra
Á fundi Norðurlandaráðs
verður rædd* hugmyndin um
stofnun framkvæmdabanka
Norðrlanda og tillaga um að
reyna að samræma lög og fram-
kvæmd varðandi óbeina skatta
á Norðurlöndum. Samdar hafa
verið ýtarlegar greinargerðir
um framkvæmdabankann. Skipt
ar skoðanir eru um það hvort
stofna beri slíkan banka. Hann
yrði Finnum og íslendingum í
hag, en hinar norrænu þjóðirn-
ar telja vafasamt, að hann kæmi
þeim að teljandi gagni.
Hugmyndir um stofnun nor-
ræns menningarsjóðs hafa verið
á döfinni í Norðurlandaráði síð-
an 1955. Er hugmyndin að
stofna sjóð til kerfisbundinnar
,siyrfctar norramni. .s.irnvinnu f'
menningarmálum.
Norrænu félögin hafa gert þá
tillögu að stofnaður verði Nor-
rænn menningarsjóður að fjár-
hæð um 300 milljónir króna.
F'ramlag hverrar þjóðar miðist
við fólksfjölda og verði framlag
veitt á fjárlögum hvers árs. Er
lagt til að stjórn hans verði
skipuð 15 mönnum, 5 tilnefndir
af Norðurlandaráði, 5 af nor-
rænu menningarmálanefndinni
og 5 af norrænu félögunum.
Það er danska stjórnin sem nú
leggur fram tillögu um stofnun
slíks sjóðs.
Þá mun verða rætt um. brú
yfir Eyrarsund. Það má nú telj-
ast fullvíst, að brú verði byggð
yfir sundið á næstu fimm árum.
Þar er um að ræða svo þýð-
ingarmikinn tengilið, að fátt
mun verða til að styrkja eins
norræna samvinnu. — Verður
málið rætt á fundinum.
sís —
Framh. af bls 16
lbs. og var það talsverð aukning
á framleiðslunni frá árinu áður.
Viðskipti félagsins á fiskflökum
og blokkum námu þá 16.364.942
lbs. Vísir hefur ekki tölu frá
árinu 1964. Blaðið sneri sér í
morgun til Bjarna V. Magnús-
sonar framkvæmdastjóra sjávar
afurðadeildar SÍS og leitaði upp
lýsinga hjá honum um hina nýju
verksmiðju Kvað hann fréttatil
kynningu verða senda til blað-
anna í dag og mun því verða
unnt að skýra nánar frá þessu
á morgun.
i Síldin —
Framhald af bls. 1
1500 tn. Gullfaxi NK 1200, Oddgeir
ÞH 1000 Helgi Flóventsson 900,
Bergur 600 og Gulltoppur 600.
Nokkur hluti þeirrar síldar, sem
borizt hefir til Vestmannaeyja, hef-
ir verið saltaður, en meiri hlutinn
þó farið í bræðslu
Ferð í Jésefsdal
Ferð verður í kvöld kl. 19 frá
BSR í Jósefsdal. Þar bjóða Ár-
menningar upp á ágætt skíðafæri
í hinu fallega skíðalandi þeirra.
Aðalskíðabrekkan verður upplýst
og togbraut verður í gangi.
Járnsmiðír, rafsuðumenn
og aðstoðarmenn óskast
STMSMIÐJAN HF. sími 24400
ÚTSALA - ÚTSALA
MIKIL VERÐLÆKKUN
Drengjaskyrtur
Gallabuxur
Dömuundirföt
Náttkjólar
Blússur
Peysur
og margt fleira.
Laugavegi 42. — Sími 13662.
ÚTSALA - ÚTSALA
Á kvenfólk:
NÆRFÖT
SLOPPAR
BLÚSSUR
NÁTTKJÓLAR
UNDIRFATNAÐUR
MILLIPILS
Mikil verðlækkun.
Austurstræti 7. — Sími 17201.