Vísir - 12.01.1965, Síða 15

Vísir - 12.01.1965, Síða 15
VÍSIR . Þriðjudagur 12. janúar 1985 75 RONA RANDALL: — Ástarsaga frá Hollandi Hann tók eftir vafanum og beygn um sem allt í einu kom fram í andlitssvip Jans, og hann sá Gretu kreppa hnefana litlu og horfa hvass lega á bróður sinn. Var ótti í aug- um beggja systkinanna — eða var þar hryggð? — Hvar er Marjet? spurði hann aftur og reyndi að leyna hugaræs- ingu sinni... Ég skrifaði henni, að ég væri að koma heim. Hún svaraði vitanlega ekki frekar en vant er, en ég bjóst ekki við svari .. hún var alltaf svo pennalöt, en hún vissi þó, að ég var að koma ... Allt í einu heyrðist grátur. Það var Willem litli. — Greta, kallaði hann, Greta! Og andartaki síðar kom hann hoppandi niður stigann. Greta flýtti sér að fylla bolla með vatni og rétti drengnum. Hún fann að Dirk horfði á hana athug andi, undrandi augum. — Hver á þetta barn? spurði hann og rödd hans hljómaði ein- kennilega hátt í litlu stofunni, og þótt hann hefði fullt vald á sér, var Gretu, sem elskaði hann, strax ljóst hvers kyns ótti það var, sem lá á bak við spurningu hans. Hún tók Willem litla upp á hand legg sér, sneri 'sér undan og sagði: — Hann er drengurinn minn. Hann horfði á hana sem steini lostinn. — Greta iitla ertu gift? — Nei, Dirk, ég er ekki gift. Hún fór upp með drenginn og lagði hann í rúmið. Svo háttaði hún í myrkrinu, en hún svaf í sama herbergi og drengurinn, og hún grét hægt, stillilega. Fólk reis árla úr rekkju i Lei- endam, en næsta morgun var Greta komin á fætur á undan öllum öðr- um. Hún hafði legið andvaka alla nóttina. Hún átti að vera komin f gisti- húsið klukkan sex til þess að und- irbúa morgunverð, en hún bjóst til að fara þangað fyrr en venjulega, bví að hún vildi fyrir alla muni komast hjá að hitta Dirk. Jan hafði skotizt upp til hennar kvöld- ið áður, setzt á rúmstokkinn hjá henni og sagt herrni, að Dirk yrði þar um nóttina. Hann lá á legu- bekk niðri. Þegar Jan hafði sagt þetta fór hann, því að hún svaraði engu, en hann vissi vel, að hún var ekki sofnuð Hún vissi, að Jan vildi ræða eitthvað við hana, en hún lézt sofa ... Hún kom auga á Dirk þegar hún kom niður. Hún var í filtskónum og hún vissi, að hún hafði komið svo hljóðlega niður, að hann hafði ekki vaknað. Hann lá á legubekkn- um fyrir framan gamla ofninn og virtist sofa værum svefni. Hún læddist inn og horfði á hann og rétti fram hönd sína eins og til að snerta vanga hans, en dró hana til baka, án þess að gera það, og nú í birtu morgunsins, sá hún þær rúnir, sem lífið hafði þegar rist í andlit hans. Hann var fríður sýn- um, en hið unglingslega við hann var horfið. Þegar hún gekk fram til þess að stíga í tréskóna hljóm- aði rödd hans allt í einu. — Greta, hvíslaði hann, og hún vissi, að hvar í heiminum sem hún hefði verið stödd, mundi hún hafa þekkt rödd hans. Hún stóð kyrr meðan hann reis á fætur og kom til hennar. Hann var aðeins klæddur bol og far- mannsbrókum. — Hvers vegna skrökvaðirðu að mér í gærkvöldi, Greta? spurði hann. Hún jeit niður fyrir fætur sér og I svaraði engu. — Willem er ekki þitt barn. Jan sagði mér allan sannleikann í gærkvöldi Hvers vegna skrökvað- irðu? — Ég vildi halda þvi leyndu fyr- ir þér. — Dettur þér í hug, að ég hefði ekki komizt að þessu undir eins, í smábæ eins og þessum, þar sem hver þekkir annan? Og þar að auki þykir Jan bróður þínum vænt um þig og vill ekki, að þú takir á þig það, sem öðrum hefur orðið á. — Nú verð ég að fara, sagði hún, annars kem ég of seint í vinnuna. Hann rétti fram sterklega hönd sína, svo að hún komst hvergi. — Þú verður að segja mér sann- leikann, — hvers vegna þú vildir hlífa mér? Hann mælti ákveðinni röddu. En hún beygði sig allt i einu nið- ur og skauzt undir handlegg hans og var á brott, og hann horfði á hana trítlandi á tréskónum hnull- ung af hnullungi í áttina til gisti- hússins. Þegar Jan kom niður af loftinu sneri Dirk sér að honum og brosti. — Ég verð að koma mér af stað til hússins, sem frænka mín erfði mie að. Það hefur alltaf einhver af Kerstholt-ættinni búið í þessu húsi og nú er röðin komin að mér. Jan vissi, að Dirk hafði dreymt S^.vallagötu 12 Simi 18615 ,W.V.V.,AW«,AV.V.W. um að leiða Marjet inn í þetta hús sem brúði sína, og hann var glað- ur af tilhugsuninni um, að vinur hans hafði þrek til að flytja inn í það, — án hennar. Edith Bagley var ekki vön að gefast upp, ef hún tók eitthvað í sig, og hún var alveg ákveðin f, að Gretu skyldi hún fá með sér til Englands, en Greta var aug- sýnilega harðánægð með lífskjör sín, og það mundi ekki verða auð- velt að fá hana til þess að fara frá Leiendam. Og nú, hugsaði Edith Bagiey, var greinilega kominn mað- ur fram á sjónarsviðið, sem gat orðið henni hættulegur keppinaut- ur. Edith Bagley hafði ekki augun af Gretu meðan hún bar morgun- matinn á borð. Og henni fannst Greta minna sig á blóm, sem er í þann veginn að breiða út krónu- blöð sfn. — Hafið þér hugleitt tilboð mitt, Greta, sagði hún — að koma með mér til Englands? Greta horfði á hana eins og hún væri búin að steingleyma viðræðu þeirra daginn áður. — Hafið þér nokkurn tíma kom- ið í kvikmyndahús, Greta, eða leik- hús? — Nei, auðvitað ekki, ungfrú, við höfum hvorki kvikmyndahús eða leikhús í Leidam. — En það eru slík hús í Rotter- dam, Amsterdam og Haarlem. — Ég hef aðeins einu sinni kom- ið til Haarlem, aldrei til Amster- dam eða Rotterdam. Ég á frænku í Delft og hana hef ég heimsótt, en ég var fegin, þegar ég var kom- in aftur til Leiendam. — Þér gætuð annars gert mér greiða, Greta. Þér munið ... litlu brauðsnúðana, sem þér þykja svo góðir. — Já, ungfrú. — Mig langar til að biðja yður að búa til talsvert af þessum brauð snúðum. Ég ætla að hafa teboð í „Dansskónum“ í Rotterdam í næstu viku og vil hafa allt sem full- komnast. . . — Ég hef heyrt Dansskóinn nefndan, ungfrú. — Þá mun yður ljóst, að það er heiður fyrir yður, að leggja fram j vðar skerf við þetta tækifæri... — Ef gistihússtjórinn hefur ekk- ert á móti því. . . — Látið mig um það. Þegar Greta fór frá borði hennar horfði Edith Bagley á eftir henni ánægjuleg á svip. Hún var viss um, að þegar Greta hefði séð Rott- erdam myndi henni finnast Leien- dam leiðinlegur afkimi. Og svo næsta skrefið: Til London . . . Hefði Edith Bagley getað litið framan í Gretu þegar hún kom fram í eldhúsið hefði hún kannski ekki verið alveg eins viss, því að úti stóð Dirk og hafði teygt sig inn um gluggann. — Hvenær ertu búin hérna, Greta litla? spurði hann. — Að miðdegisverði loknum. — Ég bíð eftir þér niðri á hafn- argarðinum. Og þar fóru þau að hittast á hverju kvöldi. Þau töluðu ekki mik- ið saman, en gengu veginn með- fram bátaskurðinum, og eitt kvöld- ið tók Dirk í hönd hennar og sleppti henni ekki aftur. Hann horfði iðulega á hana, og hann var ekki enn búinn að átta sig fyllilega á þeirri breytingu, sem orðið hafði á henni fjarvistarár hans. Hún minnti hann stöðugt á Marjet, en smám saman fór hann að hugsa um hana án þess að mynd in af Marjet gægðist fram, og hann kallaði hana alltaf Gretu litlu, en svo hafði hann kallað hana frá bernsku hennar og eir.hvern veg- Afgreiðsla VÍSIS er í Ingólfsstræti 3 ÁSKRIFTARSÍMI blaðsins er ▼ Hargreiðsiu- ug snyrtistofa STEÍND og DODÖ Laugavep 18 3 hæð (lyfta) •iími 24616 Hárgreiðslustofan PERMA Garðsenda 21. stmi 33968 Hárgreiðslustofa Ölafar Björns dóttui HATÚNl 6, slmi 15493._________ Hargreiðslustofan P I R O L Grettisgötu 31 stmi 14787. Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9. sim( 19218. Hargreiðslustofa AUSTURBÆJAB fMarta Guðmuridsdóttir) Laugaveg 13. simi 14656. Nuddstofa á sama stað Dömuhargreiðsla við allra hæf | T.JARNARSTOFAN Tjamargötu 11 Vonarstraetis- megm. slmi 14662 Hárgreiðslustofan Asgarði 22. Simi 35610 HÁ.RGREIÐSLU STOFAN ■ m 9 / ASTHILDUR KÆRNES'fEDl GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR SIMI 12614 HÁALEITISBRAUT 20 VENUS Grundarstlg 2a Stmi 21777. Hárgreiðslustofan 31 P5* ■ T A R Z A mnuBPjjH Copf. IMI. B4|.r Slf. Rjn»o«h». Iflc,—Tm. R*« O. • P»i O*. Distr. by United Feature Syndicate, Inc. THE JET JAAV FIM7 THEJA FOR.US,TSHULU^ BUT THE SUHJAEN WILL USE NAOAM FOft THEIK. ftstí SHIELF- 1F ATTACKEP... WITHOUT HAKJATO NAO/AL THOSE MEN ’ CAN BE CAFTUREf! OR IÚLLEF\ ONLV FEOM A 'COPTER... 1F GOV HELPS US 70 !T I HEAR THE JET PILOTJARZAN! HEiSS TELLINS WOWiSUZZI HE'S REACHEP THE UPPER. RIVER- SEGINNINS HIS SEARCH iamfflL FOE THE SPEEFBOAT! Etnoir Jotöl C:tAR 90 Ég heyri í þotuflugmanninum Tarzan. Hann er að segja Mom buzzi að hann sé kominn að efri ánni og að leitin að hrað bátnum sé hafin. Það getur ver- ið að þotan finni þá Tshulu seg ir Tarzan, en glæpamennirnir munu hafa Naomi fyrir skjöld ef ráðist er á þá. Það er aðeins hægt að ná þessum mönnum föngunum eða drepa þá frá þyrl-’ unni, ef guð hjálpar okkur, segí ir Tarzan. * S ENGUR RESf-BEZT-koddai Endumýjum gömlu sængumat. eigum dún- og fiðurheld ver Selfum æðardúns- og zæsadúnssængu? — og kodda af ýmsum stærðum DÚN- OG FTÐURHREINSUN Vatnsstlg 3 Sími 18740. ;.V.V.V.V.".W.V.NW.NV

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.