Vísir - 12.01.1965, Page 16

Vísir - 12.01.1965, Page 16
stjóra og spurðist fyrir um málið. „Það eru Jarðboranir ríkisins, sem um framhald borana, og veitur allt á því hvort þessi fyrsta til- raunaborun ber einhvem árangur, sagði Sigurgeir. A UTSOLU Ljósmyndari blaðsins átti leið um Hafnarstræti i gærdag og sá þar mannsöfnuð mikinn. Fyrst af öllu datt honum í hug að þarna hefði orðið s ys, en þegar hann kom nær, sá hann spjald þar sem á stóð Útsala og skildi hann þá hvernig í pottinn var búið. Til þess að verða ekki af góðum kaupum raða konumar sér upp í röð og bíða þess þolinmóðar að þeim sé hleypt inn. Ekki er þeim sérlega vel við að Iáta taka ?f sér mynd, þegar þær eru í þessum erindagjörðum en taka því samt með góðlátlegu gamni, því hver er ekki sæmdur af því að hreppa einhverja flík fyrir sama sem ekki neitt. Þriðjudagur 12. janúar 1965 Varðar- félagar SPILAKVÖLDIÐ, sem átti að vera f kvöld fellur niður. Nýhafin er borun eftir heitu vatni á Seltjarnarnesi. Hér er ein- göngu um að ræða tilraunaborun, enda sú fyrsta sem gerð er í þessu skyni á Seltjarnarnesi. Bor- unin er framkvæmd f landi Bakka lands, sem hreppurinn hefur keypt. Vísir átti í morgun stutt samtal við Sigurgeir Sigurðsson, sveitar- sjá um framkvæmd verksins og ráðgert er að bvora um eitt hundr- SÍS byggir nýja fískiSnaðar- verksmiSju í USA Samband íslenzkra samvinnu- félaga hefur nú ákveðið að byggja nýja fiskiðnaðarverk- smiðju í Bandaríkjunum, að því er skýrt er frá í bandarísku blaði fyrir skömmu. Verður hin nýja verksmiðja f Harrisburg i Pensylvania en þar er núverandi verksmiðja SÍS f gömlu húsi. SÍS hefur mörg undanfarin ár rekið verksmiðju í Bandaríkj unum, Iceland Product Inc. Hef- ur hún unnið fiskrétti, svo sem fiskstengur úr freðfiskblokkum frá frystihúsum SÍS. Framleiðsla þessarar verksmiðju hefur ekki verið nærri því eins mikil og framleiðsla verksmiðju SH f Nanticoke, Coldwater Seafood Corp. en hún hefur aukizt undan farin ár. Mun SÍS því telja tímabært nú að reisa nýja verk- smiðju. Árið 1963 framleiddi verk- smiðjan í Harrisburg 2.429.537 Framh. á bls. 6. Flug upp á líf og dauSa meS fárveikt bam Súrefnid þraut og barnió virtist i andarslitrunum Síðastliðinn laugardag átti flugvél og flugmaður frá Birni Pálssyni í miklum erfiðleikum við að koma lifandi fársjúku barni til Reykjavíkur og má segja að þar hafi verið um bar áttu um sekúndur að ræða. Flugvélin í þessari ferð var Vorið, en flugmaðurinn ,Guð- jón Guðjónsson, harðduglegur flugmaður, djarfur og úrræða- góður. Guðjón hafði farið í leiguflug til Hornafjarðar á Vorinu áð- ur um daginn, en orðið að snúa við vegna veðurskilyrða. En áður en hann lenti höfðu Birni Pálssyni borizt tvær hjálparbeiðnir nær samtímis frá Vestfjörðum, um að sækja fárveik börn, annað til Önund- arfjarðar, hitt til Þingeyrar. Hann lenti í Reykjavík rétt til að skila af sér farþegunum úr Hornafjarðarferðinni, en hélt að þvl búnu samstundis áleiðis til Önundarfjarðar. Yfir Önundarfirði var mikið misvindi og flugskilyrði þar svo erfið að ólendandi mátti teljast. Þó tókst Guðjóni það með harðfylgi og hann kvaðst meta flugvélina meir á eftir að hún skyldi þola það sem þá var á hana lagt. Barnið, sem sótt var til Ön- undarfjarðar, var aðeins mán- aðargamalt og fárveikt. Þvi fylgdi kona suður. Strax og barnið var komið í flugvélina Framh. á bls. 6. Verið að bora á Seltjamarnesi. Rætt um framkvæmdabanka og menningarsjóS á fundi NorSurl.ráSs I næsta mánuði verður hald- inn í Reykjavik fundur Norð- urlandaráðs. Verður það ein stærsta ráðstefna sem haldin hefur verið hér á landi, Mun hún standa i nærri viku og sækja hana um 200 fulltrúar, en auk þess kemur margs konar starfslið og blaðamenn frá hin- um Norðurlandarikjunum hing- að, svo ekkj mun ofmælt, að um 300 manns komi hingað til lands í sambandi við fundinn. Það verður því nóg að gera hjá íslenzku flugfélögunum að flytja allan Jænnan sæg fulltrúa. Engar sérstakar aukaferðir verða farnar, heldur koma full- trúarnir með áætlunarferðum flugfélaganna bæði Flugfélags- ins og Loftíeiða. Þá verða öll hótel i Reykja- vfk yfirfull vegna ráðstefnunn- ar og er búið að panta pláss i þeim fyrir löngu til að hýsa hinn mikla fjölda erlendra gesta. Er það ekki meira en svo að gistihúsin hér geti hýst þann mikla fjölda. Helztu mál sem vitað er að verða tekin fyrir á fundi Norð- urlandaráðs eru þessi: I upphafi fundarins verður hinum árlegu bókmenntaverð- launum ráðsins sem eru um 350 þús. kr. að upphæð úthlutað. Þá verður nú úthlutað í fyrsta skipti norrænum tónlistarverð- launum einnig að upphæð um 350 þús. kr. Tillaga er fyrir ráðinu um að skora á Noreg og Svíþjóð að gerast aðiljar að Mannréttinda- dómstóli Evrópu en þá væru öll Norðurlandaríkin aðiljar að honum. Tillaga iiggur frammi um að taka upp norræn háskólanám- skeið í sögu með líkum hætti og námskeið hafa verið haldin í tungumálum. En vonazt til að það gæti orðið til að draga úr einhliða sögukennslu og andúð milli þjóðanna, sem á rætur sínar að rekja til liðinna at- burða sögunnar. Rædd verður tillaga um að bæta skipulag norrænna skóla- ferðalaga, sem tilraunir hafa verið gerðar með á undanförn- um árum Tillöguflytjandi held- ur því fram að úr þeim hafi orðið hreinar skemmtiferðir, þar sem öll fræðsla hefur farið fyrir ofan garð og neðan. Merkileg tillaga, sem líkur eru á að nái samþykkifjallarum arkitektanám. Fjöldi norrænna stúdenta fer til annarra landa, svo sem Þýzkalands og Banda- ríkjanna til framhaldsnáms í húsagerðarlist. Ef námið væri byggt á breiðum norrænum Framh -á h|s 6

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.