Vísir - 15.01.1965, Blaðsíða 15
V1SIR . Föstudagur 15. 'janúar 1965
75
Astarsaga frá Hollandi
Undir eins og hún hafði tekið
ákvörðunina, leið henni betur.
Henni fannst, að hún væri „nýr og
betri maður“, — nú gæti hún rétt
úr sér, verið hnakkakert og horft
djarft á hvern sem væri. Hún hélt
áfram að draga allt á langinn, þar
til gisctihússtjórinn kom sjálfur
fram í eldhúsið og sagði henni, að
tími væri til kominn fyrir hana að
halda heimleiðis.
Það var heitt í veðri og kyrrt —
og dimmt. Fiskibátarnir höfðu allir
verið dregnir upp í fjöru. Jæja, —
hún gat átt von á því að rekast á
Jan, það var orðið svo framorðið,
að hann mundi hafa farið að leita
hennar.
Dirk og Marjet mundu fyrir löngu
vera komin heim, eða þau voru á
leið heim Vafalaust mundu þau
leiðast.
Hún gekk hægt, það var eins
og blý væri í fótum hennar, hún
gat varla lyft þeim upp úr sandin-
um, og þó var þreytan kannske
ekki í fótunum, bara í hjartanu.
Það var svo þungt, eins og bundið
væri við það blý. Hún horfði upp
í stjörnubjartan himininn og var
þakklát fyrir hressandi kvöldsval-
|ann, sem lék um hana. Nú yrði
hún að stappa í sig stálinu og búa
sig undir að hitta þau.
Ljósið frá húsi hennar lagðivút
á steinlagðan veginn Dyrnar voru
opnar og til hennar barst kiiður af
mannamáli. Svo var einhver, sem
hló, hörðum hlátri og henni varð
strax ljóst, að þannig mundi enginn
hafa hlegið nema Marjet.
Bænarávarp leið hægt frá brjósti
hennar. Hún bað guð um styrk til
þess að opinbera ekki leyndarmál
hjarta 'sins.
Hann greip sterkum höndum um
báða úlnliði hennar og sagt var
bliðlega:
— Nú kemurðu enn of seint
heim, Greta litla.
— Dirk, ert það þú? Hvar er
Marjet?
— Hún er þar sem hún á að vera,
á sínu heimili. Það var alveg rétt,
sem þú sagðir um hana, Greta, hún
þarfnast einhvers, sem elskar hana
— og nú hefir hún fundið hann.
Heyrirðu til þeirra — hennar —
og Willems litla.
— Dirk, nu verðurðu að segja
mér alla söguna.
— Um það, sem gerðist, þegar
ég sótti Marjet? Ég efndi loforð
mitt, hún er komin heim og allt
mun falla í ljúfa löð smám saman
— bræður þínir munu fyrirgefa
henni og — þar mun gæta áhrifa
frá Willem Iitla, því að það kom
í ljós á svipstundu, að ástin og
kærleiksþráin var fyrir hendi í
beggja brjóstum. Og er í rauninni
nokkuð furðulegt við það?
— En ég hélt . stamaði Greta.
— En þú ályktar nú ekki rétt
um allt, Greta litla, og það er ekki
allt eins og þú gerir þér í hugar-
lund. Það var vitanlega rétt ályktað
hjá þér, að hún var hamingjusöm
yfir, að ég kom og só-tti hana og
fór með hana heim. Hún fær nú
verkefni, sem mun færa henni ham
ingju, að ala upp Willem, og það
stendur henni næst, en að vinna,
gefa sig af alhuga að einhverju
er öruggasta ráðið til þess að vinna
bu á sorgum og gleyma mótlæti.
Og vonandi tekst vesalings Marjet
það.
Greta skildi ekki neitt í því, að
hann s-kyldi kalla hana „vesalings
Marjet“ Hún var að hugsa um
five vel klædd hún var og hve vel
hún leit út og hve falleg hún var
enn, og hún endurtók orðin „vesal
ings Marjet".
— Já, því að hún var aumkun-
arverðari en þú gerir þér grein
fyrir — og aumkunarverðari en ég
hafði búizt við — orðin ein af
þessum harðsoðnu og kaldlyndu
ungu stúlkum, sem hefir orðið hált
á svellinu, en meyrar og ólánssam-
ar undir niðri.
Greta sagði ekkert. Hún skildi
þetta heldur ekki til fuils — og
Iangaði ekki tií þess. Henni nægði,
að Dirk var kominn til hennar, og
snart af varfærni og hlýju við and- ;
liti hennar, leitaði vara hennar i
myrkrinu.
Og að baki þeirra glitraði Zuie-
derzee og á honum flutu í tætlum
bréfin, sem Dirk hafði skril'að Mar
jet, og aldrei voru lesin. Hann
hafði rifið þau i tætlur og hent;
þeim út á sjóinn, áður en hann1
bjó sig undir að fara og sækja
Marjet.
Þar sem Greta var vel upp alin
og kurteis hollenzk s-túlka, var hún
ekkert að draga að svara bréfi
ungfrú Bagley. Hún var ekki fær
í enskunni, en ungfrú Bagley þurfti
ekki að vera í neinum vafa um
hvað Greta vildi segja: Hún þakk-
aði henni fyrir gott tilboð, en hún
hefði nú fengið annað tilboð, sem
væri betur að hennar skapi og
ætlaði að þiggia
fj ö g u 1 o k
ABALFUNDUR
TÝS F.U.S.
l kópavogi
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu við
Borgarholtsbraut n. k. mánudag 18. jan
1965
Afgreiðslo VÉSIS er í
Ingólíssfræfi 3
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er ▼
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn TÝS.
UTSALA — ITSALA
Smekkbuxur barna kr. 75,00
Nankinsbuxur drengja kr. 110,00
Nankinsbuxur herra kr. 150,00
Herrasokkar kr. 30.00
Telpnagolftreyjur kr. 120,00
Dömugolftreyjur kr. 290,00
Dömublússur kr. 90,00
iflsr
með /a/nað/nn á fjölskylduna
Laugaveg 99, Snorrabrautar megin - Sími 24975
T
A
R
Z
;<
C»pr 1M1. Cdfir Rl« Barr..*hj. I»o -T» IU* V. ». >•« OB. \
Distr. by United Feature Syndicate, Inc. _
WITH A PISTOL, KIUPSE MAOW VtlLLS TWO 'f
OF HEE SEAST1A.L CAPTOKS BEFOEE THE “==
tlELttSMN K.UOCKS HER OFF BALNJCE -
ANP UNCOMSCIOUS-Ey SUPPENLY SWEEVIMS THE CKA.FT.
MEMWHILE- FEARFUL THEY LL PINP’ •
THE SPEEFBOAiT TOO LATE,TAR.ZAN JVN7
TSHULU AEE PICKEP UP SY MOtASUZZI'S
SEAKCH 'COPTEE... FOE THE UPRIVER
Naomi hjúkrunarkona drepur
tvo af hinum dýrslegu fangavörð-
um sínum áður en hún liggur með
vitundarlaus eftir að hafa oltið um
koll þegar stýrimaðurinn leggur
bátnum hart um. Kastaðu Zerb og
Hassu fyrir borð Gators, 'ég skal
temja læðuna okkar, þegar við er-
um í víkinni. Á meðan eru Tarzan
og Tshulu teknir um borð £ leitar-
þyrlu Mombuzzis, til þess að leita
upp með ánni, þeir eru hræddir
að þeir finni ekki hraðbátinn fyrr
en of seint.
—III■ llll II 11 !■ 'W—iw
Hargreiðsiu ..g s.nyrtistofa
STEINU og DÖDÓ
Laugave<’ 18 3 hæð Oyfta)
Slmi '4(116
Hargreiðslustofan PERMA
^ Garðsenda 21. slmi 33968
Harareiðslustofa Ölafar Björns1
dóttui
HATUNI 6. Slmt 15493._________
Hargreið lustnfan
P I R O I
örettiscötu 31 slmi 14787.
Hárgreiðslustota
VESTURBÆJAR
Grenimel 9 im' 19218
Hargreiðslustots
AUSTURBÆJAR
i Marle Guðmurid.sdóttir)
Lauaavee 13 sim' 14656
Mndristnta a sama stað
Oomuhargreiðsla við allra hæf |
T '4RM4RSTOFAN
riarnargftti. ! 1 i/nnarstrætis-
megin simi 14662
Hargre'ðslustofan Asgarðl 22.
1 Simi 35610
s ^
\ HÁRCREIÐSLU
STOFAN
ÁSTHILDUR KÆRNEST
GUDLEIF SVEINSDÓTTIR
SIMI 12614
HÁALEITISBRAUT 20
"1 £ N U S
1 Grundarstig 2a
Simi 21777
Hárgreiðslustofan
S_.va!lagfttu .
Sími 1861Í:
SÆNGUR
REST-BEZT -koddai
Endumýjum gömlu
sængumai eigum
dún- og fiðurheld ver
T«lium æðardúns- og
■æsadúnssængur —
ig kodda af ýmsum
tærðum
OÚN- OG
FIÐURHREINSUN
Vatnsstlg 3 Sími 18740.
■.■.“.•.■.Nfl.w