Vísir - 03.02.1965, Blaðsíða 1
Miklar varúðarráðstafanir
LoSna komin óvænt á síUarmiðin
eins fáir bátar, sem taka línu,
svo að það verða áreiðanlega
margir, sem bíða átekta eftir
þvi að timi sé kominn til að
taka upp netaveiðar.
Finnsk heilbrigðisyfirvöld óttast
að inflúenzan I Sovétríkjunum
breiðist brátt út um Finnland og
SviþjóS. Tugir hermanna hafa þeg-
ar veikzt á Finniandi. 1 SvfþjóS
hefir veriS gripiS til varúSarráS-
stafana vegna faraldursins. ByrjaS
er aS bólusetja alla þá, sem vinna
á sviSi heiibrigSismála, lækna og
hjúkrunarkonur og annaS starfsliS
sjúkrahúsa. Ennfremur flugmenn,
flugfreyjur, hafnsögumenn, toll-
verSi o.s.frv.
Frá Finnlandi hafa borizt fréttir
um inflúenzu. Hafa yfir 70 her-
menn veikzt í æfingastöSvum f
grennd viS Abo og heilbrigöis-
Fiskibátarnir undirbúa brottförina
1 gær var enn atkvæSa-
greiSsIa hjá sjómönnúm og út-
geröarmönnum um lausn vinnu
deilunnar á bátaflotanum. 1
þetta sinn eru menn bjartsýnni
um lausn en f fyrra sinniS, og er
almennt reiknað meS, að báðir
aðilar samþykki samninginn,
sem undirritaður var af fulltrú-
um beggja aðila snemma í gær
morgun. Talning atkvæða hefst
kl. 2 sfðdegis f dag og henni lýk
ur á einni klukkustund, svo að
bátamir geta farið að tinast úr
höfnunum f Reykjavfk, Hafnar
firði, Keflavik, Grindavfk, Akra
nesi, Hellissandi, Ólafsvfk,
Grundarfirði, Stykkishólmi og
Akureyri um þrjúleytið í dag.
Ekki voru samt allir útgerðar
menn að flýta sér að koma bát-
unum sínum út. Fréttin um, að
loðnan sé gengin á síld-
armiðin, hefur dregið áhugann
úr mörgum, sem ætluðu að flýta
sér á síldveiðar. Það verða að-
yfirvöldin óttast útbreiðslu veik-
innar.
Menn voru önnum kafnir við að útbúa báta sína og gera þá klára til þess að geta komist
sem allra fyrst út í dag. Myndin er af skipverjum á Gróttu og eru þeir að hagræða háf-
inum. — Ljósm. Vísis I.M.
VÍSIR
55. árg. — Miðvikudagur 3. febrúar 1965. - 28. tbL
Infíúenzubætta
á NorSurlöndum
\
— Síldarbátar skipta yfir á loðnuna. Línubátar beita loðnu í dag
Loðnan er komin á miðin,
— og ölíum á óvart. Venjulega
kemur hún ekki upp að Suðaust
uriandinu fyrr en um miðjan
febrúar, en nú er hún nærri 2
vikum fyrr á ferðinni. Koma
loðntmnar markar þáttaskil á
vertfðum. Það verður erfiðara
að eiga við síldina, er loðnan
hefur blandazt f hana og marg-
ir sfldarbátar snúa sér að loðnu
veiðum þennan hálfa mánuð, er
hún gengur. Þá gengur Ifnuveið
in yfirleitt vel f nokkra daga eft
ir komu Ioðnunnar, ef henni er
beitt, og útgerðarmenn taka
fram þorskanetin, þegar loðnan
er komin. Og f þetta sinn kom
loðnan um leið og samið var í
vinnudeilunni á bátaflotanum.
Það var Víðir SU, sem fékk
60-70 tunnur af loðnu rétt vest-
an við Ingólfshöfða í gærmorg-
un. Hann kom til Vestmanna-
eyja í nótt með aflann og í dag
eru línubátamir að leggja út
með línuna beitta loðnu. Reikna
þeir með góðum afla suðvestan
Vestmannaeyja, því þar er loðn
an ekki komin enn og líklegt, að
þorskurinn verði gráðugur í
hana. Homafjarðarbátar hafa
einnig orðið varir við loðnu á
sfnum miðum.
Síldarbátarnir hafa verið að
tínast á miðin frá Vestmanna-
eyjum í morgun og voru sumir
með loðnunætur meðferðis auk
síldamótanna til þess að geta
átt við þá veiði, sem lítur betur
út. Annars eru síldarskipstjórai
ekkert hrifnir af komu loðnunr
ar, því að hún blandast síldinni
og það verður erfitt að moða
síld og loðnu í sundur í aflan-
um. Hins vegar selst loðnan
mjög vel í beitu, einkum fyrstu
dagana, og er því líklegt, að
sumir síldarbátanna skipti yfir
f loðnuveiðar.
Samkomulagið sem fulltrúar
deiluaðila gerðu í gærmorgun
og kosið var um síðdegis f gær,
var sáralítið breytt frá sáttatil-
lögu sáttasemjara, sem felld
var á sunnudaginn. Þorskanótar
kjörin voru ekki hækkuð, held
ur 1% lægri en síldarnótarkjör,
eins og ráð var fyrir gert í
sáttatillögunni. Skiptaprósenta
á 50—130 tonna bátum hækkar
um 0,2% frá því sem var í
sáttatillögunni og verður 31%
og miðað er v'ið bátastærðina
50—130 tonn í stað 70—130
tonna áður.
Maggie en ekki Monroe
mmm sem ég ætlo að leika, segir Herdís Þorvaldsdóttir
Herdis Þorvaldsdóttir hefur
fengið hlutverk Maggie í Ieikriti
Arthurs MiIIer, Eftir syndafall-
iS. Mikill styr hefur staöiS um
BLAÐIÐ í DAG
leikrit þetta og þá sérstaklega
um Maggie, en margir segja, aS
hún og Marilyn Monroe eé ein
og sama manneskjan. Vísir
hringdi f Herdlsi f’ morgun og
fékk hana til aS segja nokkur
orö um þetta hlutverk.
— Það kom mér mjög á óvart
að mér skyldi vera boðið þetta
hlutverk. Ég sagði í fyrstu
þvert nei, en það var lagt fast
að mér og þegar ég hafði lesið
leikritið nokkrum sinnum yfir
gaf ég mig. Ég hafði í fyrstu
minnimáttarkennd gagnvart þess
ari fyrirmynd. Eftir að ég fór
að kynna mér leikritið finnst
mér hlutverkið mjög erfitt og
spennandi. Það er Maggie en
ekki Monroe, sem ég ætla mér
að leika.
Margir hafa sagt að Miller
hafi haft Monroe í huga þegar
hann skapaði þessa persónu,
þetta sé eins konar sjálfsævi-
saga og finnst mér það trúlega
rétt
Ég hef einungis einu sinni
séð Monroe á mynd og fannst
mér hún stórfalleg, hrífandi
og mikill persónuleiki. Það geisl
aði frá henni eins og títt er um
þess konar fólk. Annars hafði
ég ekki gert mér neina ákveðna
mynd af henni og get þess
vegna ekki sagt um hvort leik-
ritið gefur sannsögulega mynd
af henni.
Við fyrstu kynni af Maggie
virðist hún mjög viðkunnanleg
manneskja. Hún er barnaleg, ó-
örugg, einmana og þarf mikið
á aðstoð að halda.
Það er annars fullsnemmt að
segja nokkuð um þetta að svo
komnu máli. Við byrjuðum fyrst
að æfa leikritið í gær, en fram
urdan liggja tveggja mánaða
æfingar, mikill lestur á leikrit-
inu og umhugsun um persónur.
Herdís Þorvaldsdóttir ásamt dóttur sinni, Tinnu, sem einnig er að
verða vel kynnt leikkona, hefur leikið 2 sinnum í Þjóðleikhúsinu.