Vísir - 24.03.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 24.03.1965, Blaðsíða 5
V ÍSIR . Miðvikudagur 24. marz 1965. 5 útlönd í morgun ntlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í mörgun Sovétborgarar vilja gerast sjálfboðaliðar og berjast meS N-Vietnam og Vietcong Brezka útvarpið birti frétt um það í morgun frá fréttaritara sinum í Moskvu, að Brejsnev, sovézki flokksleiðtoginn, hafi farið harðari írðum en nokkum tíma fyrr um Ba/idaríkjamenn fyrir árásir þeirra á >I-' "ður-Vietnam. Segir hann sov- S'*ki: 'iorgara nú bjóða sig fram sp ■ ilfboðaliða til þess að berj- así með Norður-Vietnam. Á það minntist Brejsnejv hins vegar ekki, hvort sovézkum sjálf- boðaliðum yrði leyft að fara til Vietnam til að berjast. Rússar hafa ekki leyft sovézkum sjálfboðaliðum að berjast á erlendri grund síðan í borgarastyrjöldinni á Spáni. Sprengjuárásum er haldið áfram á birgðastöðvar kommúnista í N.-V., og vekur það langsamlega mesta athygli, að Bandaríkjamenn em famir að nota F105 Thunder- chief ormstuþotur, stærstu og hrað fleygustu herþotur sínar, til eftir litsferða yfir Vietnam. Þær fara með allt að 2000 km. hraða á klst. og allt að 3000 km. vegalengd. Þær eru frá stöðvum utan Vietnam og geta verið á lofti allan daginn. Flugmennirnir hafa fengið fyrir- skipanir um, að leita um gervallt Norður-Vietnam að stöðvum til á- rása, og ákveði þeir árás, geta þeir sjálfir ráðið hvort þeir gera hana með sprengjum eða láta sér nægja að skjóta. Wilson og Stewart í vanda. Notkun táragassins veldur Wil- son og Stewart miklum erfiðleik- um. í morgun höfðu um 80 þing- menn úr Brezka verkalýðsflokkn- um undirritað þingsályktunartillög- una, sem fordæmir notkun gassins í styrjöldinni. Það var haft eftir talsmanni í Hvíta húsinu í gær, að Johnson forseta hafi ekki verið tilkynnt fyrirfram ,að nota ætti gasið. Fyrirspumir voru gerðar til Wil- sons í gær f brezka þinginu, en hann kvaðst bfða skýrslu Johnsons. Hann hafði það eftir Johnson for- seta, að Bandaríkin óskuðu ekki eftir að styrjöldin í Vietnam breidd j ist út. — Stewart spurði vegna! mótmæla þeirra, sem fram hafa, komið í flokki hans gegn ummæl- um, sem höfð voru eftir Maxwell Taylor þess efnis, að engin takmörk væru fyrir því, sem gert yrði til að sigra í Vietnam. Kvaðst Stewart telja svar forset-! ans fullnægjandi. Stewart sagði við fréttamenn ,að hann hefði tjáð John i son forseta hve mikla gremju það hefði vakið á Bretlandi og áhyggjur ! að farið var að nota gas í Vietnam. Stewart kvaðst bíða frekari upplýs- inga varðandi málið. Það er upplýst, að ýmis lönd hafa fengið þetta táragas frá Bandarfkj- unum, Ástralfa, Suður-Afríka, Vest ur-Þýzkaland og fleiri. I að koma til leiðar, að samkomu- Þá sagði Stewart að vegna þess lagsumleitanir færu fram, yrðu Bret að Sovétríkin hefðu neitað sam- ar að íhuga á eigin spýtur hvað starfi við Bretland. til þess að reyna | þeir gætu gert. Ceimferð Grissoms og Youngs gekk að óskum Allt gekk að óskum fyrir banda- rfsku geimförunum Virgil Grissom og John Young f geimferð þeirra í Gemini-geimfarinu MOLLY BROWN. Það fór 3 ferðir um jörðu og lenti eftir tæplega 5 klst. ferð. Breyttu þeir stefnu geimfarsins brívegis, en það vakti mikla at- hygli, er það fréttist, að þetta stæði til (sbr. frétt í Vísi f gær). Geimfararnir gerðu allar athugan- ir eins og fyrir þá var lagt. Spor- brautin kringum jörðu var fyrst sporöskjulaga, en gerð hringlaga, og einnig var geimfarinu snúið um 360 gráður um eigin möndul þess Jarðfirð var, fyrst eftir að á þraut var komið 240 km. og næst iörðu 160 km. sfðast 171 km og I6Ó km. Geimfarið Ienti við Bahamaeyjar í nokkurri fjarlægð frá þeim stað, sem því var ætlað að lenda. Eftir nokkra bið sótti þyrla það og flutti í flugvélaskipið INTREPID. Þar voru þeir enn í morgun, en munu I nú kömnir til Bandaríkjanna og j fara f heimsókn til Johnsons for ' seta í Hvíta húsið á föstudag. [><? Tilkynnt befur verið í Jak- arta, að öll erlend olíufélög verði hér eftir háð eftirliti og yfirumsjón stjórnarvalda. Engin félög voru nafngreind í tilkynn ingunni, Eftir unrtin afrek Þessi mynd var tekin af sovézku gcimförunum Beljajev (t.v.) og Leonov, eftir að þeir höfðu unnið hið mikla geimferðar-afrek sitt. Myndin er tekinn á flugvellinum í Perm. þingsjá V sis d i n g s i á vísis pingsjá Vísis n 0 BREYTINGAR Á UMFERDARLÚGUM Stuttir fundir voru á Alþingi í gær. I efri deild voru tvö mál á dagskrá og voru þau bæði af- greidd umræðulítið ti! neðri deild- ar. I neðri deild voru sex mál á dagskrá flest komin frá efri deild, nema frv. um breytingar á umferðarlögum, sem kom frá nefnd. f dag er fundur í sameinuðu þingi. UMFERÐARLÖG • Matthfas Bjarnason hafði fram- sögu af hálfu nefndar á frv. um breytingar 'á umferðarlögunum. Sagði hann, að frv. þetta væri flutt að beiðni umferðarlaga- nefndar og mið- ar m. a. að því að veita heyrnár daufu fólki öku skírteini og hækka skyldutryggingar á bflum og dráttarvélum. Umferðarlögin eru nú í allsherjar endurskoðun, en nefndin hefði talið rétt að gera þessar breytingar strax. Þá sagði frsm. að skyldutrygg- ingar bifreiða hefðu verið óbreytt ar síðan 1958 en vegna breytinga á verðgildi penmga væri nauðsyn legt að hækka þær nú, m. a. af því að dómstólar tækju tillit til verðþenslu við ákvörðun bóta. Þingnefndin hefur fengið umsögn tryggingafélaganna á þessu frv. og segir í svari þeirra, að það yrði nauðsynlegt að hækka ið- gjöld hvort sem þessi breyting hefði komið til eða ekki og því mæli þau með, að þetta sé gert. Iðgjöld munu með frv. hækka um 10—14% og þá mest á drátta- vélum. Að lokum sagði frsm. að nefndin mælti einróma með frv., og það væri nauðsynlegt að hraða afgreiðslu þess vegna uppgjörs, sem miðast við 1. maf. Skúli Guðmundsson sagði, að æskilegt væri að vegna ölvunar við akstur. Ekki væri ástæða til að láta þá menn hafa ökuleyfi, sem þannig brytu af sér. — Vildi hann skjóta þessu til nefndar þeirrar, sem hefði þessi lög til endurskoðunar. Sigurvin Einarsson beindi þeim spurningum til dómsmálaráðherra hvort menn, sem hefðu verið sviptir ökuleyfi . ævilangt fengju það aftur eftir nokkur ár. Enn fremur hvort neyrnarlaust • fólk fengi öku- skírteini þar sero í frv. stæði að það þyrfti að hafa nægjanlega heym. Jóhann Hafstein. dómsmálaráð- herra, svaraði þessu og sagði, að í reynd væri það svo, að hafi maður verið sviptur ökuleyfi ævi- langt, fengi hann það aftur eftir 3 ár einu sinni, hafi sá hinn sami verið reglusamur og sýnt það, a* nann hefði bætt ráð sitt. Um hitt atriðið væri það að segja, að í núgildandi lögum þyrfti maður að hafa góða heyrn en samkv þessu frv. nægjanlega heyrn. Og það væri mat manna, sem þetta mál hafa kynnt sér og sú væri reynsla nágrannaþjóða okkar. að heyrnarlítið fólk væri ekki hættulegt í umferð nema síður væri. Að lokum var frv. vísað til 3. umræðu. í STUTTU MÁLI. Efri deild. Þar var frv. um jarðræktarlög íil 3. umr. og mælti Bjartmar Guðmundsson fyrir breyttill. land búnaðarnefndar varðandi laun ráðunauta og var frv. síðan vísað til neðri deildar að samþykktri 'ieirri tillögu. Neðri deild. Þar vat frv. Framsóknarmanna um vaxtalækkun fellt við 2. umr. Þá lagði dómsmálaráðherra fram frv. um hreppstjóra og skipti á dánarbúum en þau eru bæði kom- in frá efri deild. Var þeim báðum vtsað til 2. umr. og nefndar. Fjár málaráðherra lagði fram frv. um nafnskírteini_ en það er einnig komið frá efri deild og var því sömuleiðis vísað til 2. umr. og nefndar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.