Vísir - 24.03.1965, Side 6
6
V í S I R . Miðvikudagur 24. marz 1965.
Lisf Serkins
ingar hefðu enga kröfu gert til
þeirra. Hann sagði líka, að það
væri mjög óheppilegt að hefja
máls á þessu nú, þegar handritamál
'ið stæði milli Dana og íslendinga
en þar hefði það valdið hörðum
deilum. Danir og íslendingar
myndu leysa þá deilu sín á milli
og sænsk afskipti eða fhlutun væri
ástæðulaus. — Fréttaritari.
Z1 læsilegur og kornungur pí-
'Janisti, Peter Serkin, hélt
tónleika á vegum Tónlistarfé
lagsins sl. miðvikudags- og
íostudagskvöld. Efnisskráin var
fyrir sanna „konnossöra" —
fjórar fúgur op. 72 eftir Schu-
mann, Fantasía (kölluð Sónata
í efnisskránni) í G-dúr op. 78
eftir Schubert og „Goldberg"
tilbrigði Bachs. Leikur Serkins
einkenndist af mikilli alvöru —
kannski heldur of mikill í t. d.
menúett-þætti Schubert Fantasí
unnar. — og magnaðri túlkun-
argáfu. Það þarf ekki mikla
spádómsgáfu til að sjá fyrir
framtíð þessa lístamanns. Sá,
sem hefur slíkt fullkomið vald
a píanói — skilar m.a. tveggja
nótnaborða hlutverki óaðfinn-
anlega i einu (Bach), heldur
„himneskri lengd“ Schuberts í
greip sinnj innan við tvítugt,
hlýtur að verða megnugur
kraftaverka um fertugt.
Dálítill misskilningur var í
lok tónleikanna, annað þjóð-
laganna, sem Bach notar í síð-
asta tilbrigði er alls ekki hið
„íslenzka“ Bí, bí og blaka, held-
ur Fram, fram fylking, svo að
það var engin ástæða til að
rjúka svona burt. Það er ekki
alltaf eins góð ástæða til að
biðja um aukalag eins og eftir
þessa tónléika.
Þorkell Sigurbjömsson
Tjón —
Framhaid af bls. 1.
til forstöðumanns Árnasafns, próf.
Jóns Helgasonar, en ekki til stjóm
amefndarinnar. Kveðst nefndin að
vísu ekki neita þv[ að próf. Jón
hafi fullan rétt á að láta sínar per-
sónulegu skoðanir f ljósi, en hins
vegar kveðst nefndin ekki vera
sammála skoðunum hans.
Ámasafnsnefnd segist vera þeirr
ar skoðunar, að skipting safnsins
muni verða áfall fyrir vísindin og
heldur því fram að almennum vís-
indarannsóknum með handritin
verði aldrei haldið uppi á eins háu
stigi á íslandi sem í Kaupmanna-
höfn.
Golf —
Framh. af bls. 11.
spymumenn á Akranesi ætli að
taka upp sama hátt og mörg fé-
lög knattspyrnumanna i Frakklandi
og Englandi hafa á, en þau skylda
leikmenn sína til þess að leika golf,
að minnsta kosti einu sinni i viku.
Ég er þess fullviss, að það færi vel.
Það er enginn vafi á þvf, að ef vel
tekst til um framkvæmdir og félags
uppbyggingu hjá Golfklúbbi Akra-
ness, mun það hafa aukinn ferða
mannastraum til Akraness í för
með sér, auk þess sem stofnun
golfklúbbsins er vemlegt tillag til
íþrótta-og menningarmála á Akra-
nesi. Eins og eflaust hefur komið
fram hjá þeim Sveini og Þorvarði,
eru Akumesingar velkomnir á æf-
ingar hjá Golfklúbbi Reykjavikur
og mun G.R. vera þeim innan hand
ar með útvegun á kylfingum, sem
kæmu til Akraness og kenndu þar
golf, þegar vora tekur.
Togarur —
Framh. at bls. 1.
an mannskap líka. Nýlega bár-
ust okkur nokkrar beiðnir um
skipsrúm frá sjómönnum í
Reykjavik. Ekki veit ég hvað
við gerum, þegar venjulegum
sölutíma erlendis lýkur, ef ís-
inn ekki hverfur frá landi, en
sennilega verðum við að reyna
að sigla eitthvað áfram, annars
er það mál ekki komið verulega
á dagskrá ennþá“.
VIII skípta —
Framhald af bls. 16
gagns fyrir vísindin ef þau væru
sameinúð því.
Ragnar Edenmann kennslumála-
ráðherra Svia svaraði og sagði að
það væri alls ekki á dagskrá að
afhenda íslendingum þessi handrit
einfaldlega vegna þess, að íslend-
Leiðrétting
1 myndsjánni i blaðinu i gær,
frá árshátíð Islenzk-Ameríska
félagsins, var misritun undir einni
myndanna. Rangt var skýrt frá
nafni frú Lilly Ásgeirsson. Biðst
blaðið velvirðingar á þeirri mis-
ritun.
Adalfundur
Thorvaldsens-
félagsins
Aðalfundur Thorvaldsensfélags-
ins var haldinn 17. marz að Hótel
Borg.
Frú Svanfríður Hjartardóttir lét
af formennsku að eigin ósk eftir
mjög farsæla stjóm. Hún var i
stjóm Bamauppeldissjóðsins frá
1923 — 1943 og formaður félagsins
frá 1943 að undanskildum þrem ár-
um er hún dvaldi erlendis.
Formaður var kjörinn frú Unnur
Schram. Aðrar konur i stjóminni
era: Frú Svanlaug Bjarnadóttir, frú
Sigiu-laug Eggertsdóttir, frú Júlíana
Oddsdóttir og frú Bjamþóra Bene-
diktsdóttir.
Thorvaldsensfélagið hefur unnið
sleitulaust að mannúðar- og menn-
ingarmálum frá stofnun þess. Fyrir
tveim árum afhenti það Reykjavik
urborg Vöggustofuna að Hlíðar-
enda, sem mun vera ein hin full-
komnasta á Norðurlöndum.
Félagið verður 90 ára þ. 19.
nóvember n. k.
SennaRrafgeyma
fullnægja ströngustu kröfum, sem gerðar eru
um fyrsta flokks rafgeyma. Fjölbreytt úrval
6 og 12 volta jafnan fyrirliggjandi.
SMYRILL
Laugavegi 170 Sími 12260
Dansleikur Hringsins
TIL ÁGÓÐA FYRIR BARNASPÍTALASJÓÐINN
Verður haldinn fimmtudaginn 25. - 3. í Súlna-
sal Hótel Sögu og hefst með borðhaldi kl. 7 e.h.
TIL SKEMMTUNAR:
TÍZKUSÝNING Á LOÐFELDUM FRÁ KONUNGLEGUM HIRÐSALA
BIRGER CHRISTENSEN. KAUPMANNAH()FN.
SAMLEIKUR Á PÍANÓ — JAZZBALLET.
Ósóttar pantanir seldar i anddyri Súlnasalarins í dag miðvikudag 24. marz
kl. 3 — 6 e.h. — Samkvæmisklæðnaður.
Endurbygging
Noregur —
Framh at Dls 1
undir 88 milljónum króna.
Tillaga verkfræðingana mun
vera um tvær þriggja akreina
hraðbrautir (80 km hraða) með
samliggjandi einföldum brautum
beggja vegna, undirakstur fyrir
innanbæjarumferð á einum stað
og yfirumferð á tveimur stöð-
um. Er þetta mesta og nýtízku-
legasta vegagerð, sem komið er
að lokastigi að taka ákvörðun
um hér á landi, enn sem komið
er. Óvíst er um framvindu máls-
ins vegna hins gífurlega kostn
aðar, og útilokað að Kópavogs-
bær geti risið undir honum á
eigin spýtur.
Þá er enn eitt vandamálið ó-
leyst í sambandi við þessa vegar
gerð. Það er tillaga sú, sem nú
liggur fyrir Alþingi um að taka
upp hægri handar akstur. Verk-
fræðingar þeir, sem teiknað hafa
Hafnarfjarðarveginn f gegn um
Kópavog gerðu áætlanir sínar
í samræmi við hægri handar
akstur. Þ6 munu þær ekki þurfa
mikilla breytinga við, ef ekki
verður horfið frá vinstri handar
akstri. En óvissan stöðvar málið
innan tíðar.
Sama óvissan mun og fljót-
lega tefja framkvæmdir í fram-
tíðarvegagerð þeirri ,sem nú
stendur yfir við Kringlumýrar-
brau( í Reykjavfk, en sú gata
verður einmitt bein tengigata
við Hafnarfjarðarveginn.
Það eru því margvísleg vanda-
mál, sem era óleyst í sambandi
við þessar miklu vegagerðir.
Lfnurnar munu þó yæntanlega
skýrast, þegar vegaáætlunin
kemur fyrir Alþingi, en búizt er
við að hún verði jafnvel lögð
fram í dag.
Framhald at bls. 11.
eru víst kunnir fyrir skreytni,
en það er ekki tilgangurinn með
þessu tilskrifi. Við vonumst bara
til að fleiri Islendingar hugsi
sig um og ræði við ferðaskrif-
stofur sínar til að fá meiri vitn-
eskju um alla þá möguleika sem
hægt er að finna til að eignast
fjölbreytilegt og skemmtilegt
vetrarfrí meðal Norðmanna, sem
þykir sérstaklega vænt um gesta
komur einmitt frá íslandi.
Það er annars til lítils f svo
stuttu máli að segja frá öllum
þeim aragrúa af stöðum sem
eru virkilega þess virði að heim
sækja. En fyrir utan þá, sem
þegar eru nefndir er ekki úr vegi
að stinga upp á síðvetrarfríi t.
d. á Hövringen í Guðbrandsdal,
á Eidsbugarden eða í Tyinholm-
en. Ef maður hefur ekki útbún-
aðinn er hægt að fá hann leigð-
an í Noregi.
ENN EITT LÍTIÐ RÁÐ
Ef maður vill fara með 6-10
öðrum til Noregs, þá er líka
hægt að fá leigðan lítinn skíða
skála, annað hvort uppi á fjalls
tindum eða niðri í dölunum f
1000 metra hæð yfir sjávarmáli,
þar sem skógarbeltið byrjar.
Skálarnir eru útbúnir að öllu
leyti, og það eina sem maður
þarf að hafa með sér er svefn-
poki. Mat er hægt að panta fyr-
irfram og fá sendan með snjó-
bil upp í skálann. Slíkir skálar
kosta frá 150 til 300 n. kr. á
viku (matur og drykkir ekki
innifalið), þar sem uppihalds-
kostnaðurinn á háfjallahótelum
er frá 35-70 n. kr. á sólarhring
fyrir manninn: Skálaleigu er
hægt að koma á í gegnum ferða
skrifstofumar.
Að svo búnu býð ég ykkur vel
komin til vetrarfrísins f Noregi.
Með beztu kveðju til allra les-
enda Vísis
Mats Wibe Lund jr.
Erindrekastarf
ÁFENGISVARNARÁÐ vill ráða erindreka í
þjónustu sína á næsta vori.
Upplýsingar um starfið eru gefnar á skrif-
stofu ráðsins, Veltusundi 3, og óskast um-
sóknir um það sendar þangað fyrir 1. maí n.k.
Áfengisvarnaráð.