Vísir - 24.03.1965, Side 16
' • '• ' ' - • >'■ - '•■ '-•'• ' .* T., «♦<■? PC *■ 4-, 4 *■.»*"»■■;, '>• -4 O. í->> ./ .*u -f - ;■
f<riv á* * '%*.<»tují' 'w l-;;:?/ ít<- — Vi \<l ji'ór
<■; o-rýn:'"! /wyrd:*^,^ IvjfíW'rm tf.tí (;? Tt;* S*;K í..-; , :
Miðvikudagur 24. marz 1965.
Vilhjálmi" var tekiS meS kostum
2i> ..................................,..]f ...................... Tfff ■TP........................... ........................ ttti*,>/m tz. *■*<■ nri
• •
Sýningarflug Loftleiðavélar-
innar, Vilhjálms Stefánssonar,
um Norðurlönd hefur vakið tals
verða athygli. I Kaupmanna-
höfn var tekið á möti vélinni
af stórum hópi manna frá flug-
málayfirvöldum, ferðaskrifstof-
um og flugfélögum og var flog-
ið yfir Kattegat og síðan boðið
í veizlu.
í blöðunum var sagt ýtarlega
frá flugvélinni og í nokkrum
dagblaðanna var að finna risa-
stórar auglýsingar á mánudag,
sem breiddu sig yfir tvær síður.
í BT er málstaður Loftleiða
enn tekinn upp. Einnig er SAS
gagnrýnt fyrir stefnu sina gegn
Finnair. Segir blaðið að enn tak
ist „svönum Norðurlanda“ ekki
að fljúga oddaflug, þ.e. að nor
ræn samvinna sé ekki nema i
munni stjórnmálamanna en ekki
í framkvæmd. Gagnrýnir blaðfð
að Loftleiðum skuli ekki heim-
ilað að fljúga til Kaupmanna-
hafnar með hinar nýju og góðu
vélar sínar, í stað jæss að
þurfa að fljúga frá Evrópu til
Reykjavíkur á DC-6 flugvélum.
Frá Kaupmannahöfn flaug
sýningarvélin til Stokkhólms,
en þaðan liggur leiðin til Hels-
ingfors og loks til Osló.
Þannig var sagt frá Loftleiðafluginu og nýju vélunum i BT á mánu-
daginn. Mynd af flugfreyjunum með vélinni og 5 dálka fyrirsögn.
Samningar standa yfir um lagningu
4000rúmmetru ufolíumöl
í nógrenni R-víkur, Kópuvogi, Gnrðnhreppi og Hnfnnrfirði
Samningar standa nú yfir
um lagningu oliumalar i stórum
stfl á vegum ríkisins, Kópavogs
bæjar, Garðahrepps og Hafnar-
fjarðarbæjar. Þessir aðflar hafa
leitað eftir tilboði frá fyrir-
tækinu Véltækni h.f. um að
leggja 4000 m1 af oliumöl i sum-
ar og er liklegt að af samn-
ingnm verðx.
Tilraunir með lagningu olíu
malar hafa verið gerðar undan-
farin sumur á nokkrum stöð-
um bæði sunnan og norðan
lands. Hafa þær borið misjafnan
árangur en munu þó hafa tek-
izt vel, þar sem nægilega hefur
verið til þeirra vandað, t.d. á
Akureyri og i Garðahreppi. Hef
ur fyrst og frerost skort naegi-
lega fuflkomin tæki, svo hægt
hafi verið að fá fyliilega úr því
skorið, hvort olíiunöl er heppi-
leg lausn á vissum hluta af vega
gerð okkar.
Ef af samningum ofan-
Enn versnar ú-
standiS i strand-
ferSasiglingum
Strandferðaflutningar norðan og
austanlands gerast nú enn erfið-
ari en áður. Stapafell virðist vera
fast inni á Norðurlandshöfnum, og
Bakkafoss og Herðubreið urðu að
snúa við i tilraunum sínum til að
komast i gegn fyrir Langanes. Mun
aði litlu að skipin sætu föst í þétt
um ísnum.
Herðubreið fór frá Kópaskeri í
birtingu i morgun og um 10 leytið
Tveir slasast
í gær varð umferðarslys móts
við Grensáskjör á Grensásvegi.
Slysið varð um sexleytið og varð
með þeim hætti að drengur varð
fyrir bifreið. Hann var fluttur á
slysavarðstofuna en lögreglan taldi
hann ekki mikið slasaðan. Dreng-
urinn heitir Ægir Magnússon og á
heima að Grundargerði 11.
1 fyrradag varð slys við Reykja
víkurhöfn. Maður, Sigurður Pálma-
son, Ásvallagötu 17, féll aftur af
vörubilspalli og kom niður á hnakk
ann. Hann var fluttur til aðgerðar
í slysavarðstofnua.
var hún komin að Rauðhellnanúp-
um, vesturtotu Melrakkasléttu.
Sagði Guðjón Teitsson, forstjóri
Skipaútgerðar ríkisins í morgun, að
skipstjórinn hefði ekki talið viðlit
annað en að snúa við. Var skyggn
ið að auki lélegt, isinn þéttur.
Austfirðingar munu nú mjög ugg
andi vegna ástandsins sem nú er
að skapast, þvf Isinn rekur suður
firðina og sagði Guðjón að Norð-
firðingar væru hræddir um að
næsta ferð Esju á Austfirði kæmi
þeim ekki að fullu gagni þvi is-
inn mundi þá vera búinn að gera
ófært þangað.
Bakkafoss var i gær f isnum og
er með 6-700 tonn af vörum á Norð
uriandshafnir og á að lesta mjöl
til Englands. Var talið ráðlegast að
snúa við þegar skipið var á Vopna
firði og var farið til Reyðarfjarðar
1 morgun var allt fullt af ís úti
fyrir firðinum. Var mikið ísrek í
gær í suðurátt og <=•' skipstjórinn
ástæðu til að setja á fullan hraða
til að hafa við fsnum.
Stapafellið fór frá Akureyri í
morgun eftir lestun, en ósennilegt
er að skipið komizt i gegn um fs-
inn eða reyni það, heldur leiti til
hafnar.
greindra aðila verður, mun
væntanlega fást úr þessu skorið
Er enginn vafi á því, að til
raunin mun hafa mikla þýðingu
fyrir marga aðila, sem ekki hafa
tök á því að undirbyggja í stór-
um stfl undir malbik að steypu
þar sem olíumölina má taka upp
og leggja á ný, ef upphafleg
lagning hennar misheppnast.
Féll í höfnina
1 nótt, um þrjú leytið, datt maður
f Reykjavikurhöfn gegnt Kolakran-
anura.
Skipverjar á m.s. Reykjafossi
urðu mannsins varir og fengu bjarg
að honum. Lögreglan var einnig lát
in vita, en búið var að ná mann
inum upp þegar hún kom á vett-
vang.
Þótt sjórinn væri kaldur og kalt
í veðri ,varð manninum ekki meint
af, enda strax hjúkrað.
Vill skipta á ísl. handritum
og sænskum miðaldabókum
Kaupmannahöfn í morgun.
Talsverðar umræður urðu í gær
á sænska rikisdeginum um þau Is
lenzku handrit sem varðveitt eru
í Sviþjóð. Þingmaður nokkur, Gust
av Lorentzen að nafni gerir það að
tillögu sinni, að Islendingum verði
skólabókasafninu I Uppsölum og
Konungsbókhlöðunni í Stokkhólmi.
Leggur hann til að þau verði lát
in i skiptum fyrir mjög merkileg-
ar prentaðar bækur sænskar frá
því á miðöldum, sem til eru í
Landsbókasafni Islands, en hvergi
Sviþjóð. Með slikum skiptum
fengju íslendingar það sem þeim
væri dýrmætt og Svíar það sem
þeim væri dýrmætt. Benti hann á
það, að þegar handritasafnið í
Kaupmannahöfn væri komið heim
til íslands myndu handritin, sem
nú eru í Svíþjóð verða til meira
Framh. á bls. 6
Fjalla-Eyvindur í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs frumsýnir „Fjalla-Eyvind“ Jóhanns Sigurjónssonar í félagsheimilinu, föstudaginn 26.
þ. m. Ljósmyndari Vísis brá sér á æfingu hjá félaginu. Leikstjórn annast Ævar Kvaran en Sigfús Hall-
dórsson hefur gert leiktjöldin. Fyrr í vetur var efnt til kynningar á verkum Jóhanns Sigurjónssonar i
Kópavogi við góða aðsókn og þótti vel takast. Myndin sýnir þá Ævar Kvaran, Sigfús og Guðmund Gísla-
son, formann Leikfélags Kópavogs, en það hefur starfað af miklum krafti að undanfömu. Guðmundur leik-
ur þarna hlutveik sýslumannsins.