Vísir - 26.03.1965, Page 11
FH fór tilleiks sem íslandsmeistari
— og vann Ármnnn 33:19
Lið FH gekk inn á völlinn í Hálogalandi í gærkvöldi
sem íslandsmeistari, enda þótt liðið ætti þá enn tvo
leiki eftir í mótinu. Var liði FH fagnað innilega af á-
horfendum, sem voru mjög margir í gærkvöldi. Er
sigur liðsins í mótinu mjög sanngjam, því það er áber
andi bezt 1. deildarliðanna. Ármann reyndist heldur
ekki mikil hindmn í veginum og FH vann stóran sigur
33:19.
Ármenningar byrjuðu með að
óska FH til hamingju með sigurinn
í mótinu áður en leikur hófst og
hrópuðu húrra fyrir liðinu.
FH náði þegar í byrjun góðum
tökum á leiknum og allan tímann
var sigurinn í þeirra höndum. í
hálfleik var staðan 16:10. í seinni
Fræðslufundur
á Akrunesi
Á morgun laugardag, verður hald
inn fundur Unglinganefndar KSl,
með ungum knattspyrnumönnum á
Akranesi. Mun Karl Guðmundsson
mæta þar og sýna kvikmyndir og
segja frá ýmsu úr knattspyrnu-
heiminum. Fundur þessi átti upphaf
lega að vera um síðustu helgi en
varð að fresta honum.
hálfleik var FH smám saman að
auka forskotið eða allt til leiks-
loka. Lauk leiknum 33:19.
Bæði liðin sýndu allgóðan leik,
hvorugt þó sitt bezta. Það er alltaf
gaman að sjá frískleika FH-liðs-
ins og er ekki að efa að hann mun
njóta sín enn betur í hinum nýja
sal í Laugardal sem tilbúinn á að
verða þegar næsta íslandsmót
hefst í haust. Ármenningarnir voru
vonlausir frá upphafi um sigur og
barátta þeirra eftir þvi, en hand-
knattleikur þeirra allgóður.
Beztu menn FH voru þeir Ragn-
ar, Öm, Geir og Birgir, en Hjalti
varði oft vel í markinu. Bezti mað
ur Ármanns reyndist gamall FH-1
ingur, Einar Sigurðsson, sem að I
réttu lagi hefði átt að fagna unn-
um sigri í íslandsmótinu en hefir |
til skamms tíma barizt á botninum
með liði sinu. Hans og Árni áttu !
og ágætan leik og svo Þorsteinn
markvörður.
Magnús Pétursson dæmdi leikinn
og gerði það prýðisvel —
Auðunn FH, var þarna kominn í gott færi á línu, en Hans og Ámi
hafa hindrað hann.
KR fékk lánaðan lands-
liðsinnherja / markið
— og vanit FRAM 20:16 og gerði
oð engu vonir þeirri um nð
verjn íslandsmeistarafitilinn
Furðulegt félag KR. Þeg-
ar landsliðsmarkvörður
liðsins í handknattleik
hleypur burt og fer á sjó-
inn, þá er gripinn lands-
0 ..... 1,11..........
Landsliðið
tíl USA
Handknattleikssambandi Is-
lands hefur borizt boð frá Hand
knattleikssambandi Bandaríkj-
anna um að senda landslið karla
í keppnisför til Bandaríkjanna
í Iok september í haust. Er fyrir
hugað að leikir fari fram í Was-
hington — New York og New
Jersey. Boð þetta hljóðar upp á
frítt uppihald fyrir 16 menn með
an á ferðinni stendur. Stjóm
H.S.Í. hefur boð þetta nú til
athugunar.
■ ——■/
liðsmaður í knattspymu,
dubbaður í markvarðar-
búning og ver svo vel að
liðið slekkur síðasta vonar
neista Fram um að verja
íslandsmeistaratiltil sinn i
handknattleik, — og færir
þar með íslandsbikarinn
burt úr höfuðborginni til
Hafnarfjarðar, þar sem
bikarinn hefur dvalið 6
sinnum áður.
KR virtist ekki ætla að verða
mikið ágengt í byrjun. Framarar
skora fyrstu 5 mörkin í leiknum
og virðast eiga öll tök í hendi sér.
En hvað gerist? Karl Jóhannsson
byrjar, síðan fetar Reynir Ólafsson
(lék nú afrur með liðinu í fyrsta
sinn í vetur) í fótspor hans og í 6:6
jafnar Heinz Steinmann. Yfirhönd-
inni náðu KR-ingar í 8:7 með marki
Péturs Stefánssonar, en í hálfleik
var staðan 9:9.
í seinni hálfleik byrjaði mark-
vörður KR með þvi að verja víta-
kast. Það var Ellert Schram, lands-
liðsinnherji í knattspyrnu, sem setti
tána í boltann og bjargaði. Ellert
átti frábærlega góðan leik í marki.
Það var greinilegt, að hann var ekki
vanur þessu starfi í handknattleik,
en hann notaði höfuðið, nokkuð
sem margir handknattleiksmenn
mættu gera meira af.
Ekki er að orðlengja að þáttur
Ellerts og Karls Jóhannssonar var
lang stærstur í þessum leik og sig-
ur KR undir þessum tveim mönn-
um mest kominn.
Fram náði aldrei í seinni hálf-
leik að taka forystuna en KR komst
snemma í 3ja marka forystu f 14:11
og 15:12, en Fram var nærri að
jafna í 15:14. Þá skoraði Reynir
tvö mörk og 9 mínútur voru eftir,
staðan 17:14, og KR-ingar greini-
lega mun betra Iiðið á vellinum.
Ellert varði enn vítakast frá Guð-
jóni, en Karl Jóhannsson skoraði
18:14. Næstu tvö mörk skora Fram
og standa leikar 18:16 þegar fimm
mínútur eru eftir af leik og spurn-
ingin var nú sú, hvort KR ætlaði
virkilega að takast að „kaskó-
tryggja" sigur FH í mótinu. Svarið
fékkst á næstu mínútu þegar Karl
j skoraði gegnum hina lélegu
I Fram-vörn 19:16 og aðeins rúmar
tvær mínútur eftir til leiksloka.
Karl skoraði eitt mark til viðbótar,
20:16, fyrir KR. Sanngjörn úrslit
eftir gangi leiksins, sterkara liðið
vann þennan leik.
KR-liðið byggist mikið f kring-
um Karl eins og vanalega. Ellert
Schram var stórkostlegur í markinu
og var án efa vinsælasti maður
kvöldsins, en Gísli Blöndal og Reyn
ir áttu ágætan leik. Framliðið sakn
aði Gunnlaugs Hjálmarssonar, sem
er meiddur í hendi. Hafði þetta
þau áhrif að liðið lék eins og það
væri algjört botnlið í deildinni, —
dæmt til að falla að auki. Guðjón
var langskásti maður liðsins.
Dómari var Valur Benediktsson
og voru dómar hans umdeildir.
Sundmót
Armanns
Sundmót Ármanns verður haldið
í Sundhöll Reykjavíkur, fimmtudag
inn 8. apríl 1965. Keppt verður í
eftirtöldum greinum:
100 m skriðsund karla (bikars.)
200 m bringusund k. (bikars.)
100 m baksund karla.
100 m bringusund sveina
50 m skriðsund dr. (bikarsund)
200 m fjórsund kv. (bikarsund)
100 m bringusund kvenna
50 m baksund kvenna
50 m skriðsund stúlkna.
4x50 m fjórsund karla (bikars.)
3x100 m þrísund kvenna
Ennfremur verður keppt um at-
reksbikar SSÍ, er vinnst fyrir bezta
afrek mótsins samkvæmt gildandi
stigatöflu.
Þátttökutilkynningar berist til
Siggeirs Siggeirssonar, sími 10565
fyrir föstudaginn 2. aprfl 1965.
1. deild
Úrslit eru nú öll ráðin í 1.
deild f handknattleik og er nú
þannig eftir leikina í gærkveldi:
Hvernig er staöan?
KR — Fram 20:16
FH — Ármann 33:19
FH 9 9 0 0 256:173 18
Fram 9 6 0 3 204:176 12
KR 10 4 2 4 198:202 10
Haukar 9 3 1 5 192:203 7
Ármann 10 3 0 7 196:253 6
Víkingur 9 1 1 7 168:213 3
Hverjir hafa skorað?
Hörður Kristinsson Ármann 86
Karl Jóhannsson, KR 63
Ragnar Jónsson, FH 61
Örn Hallsteinsson, FH 57
Gisli Blöndal, KR 49
Gunnlaugur Hjálmarss., Fram 45
Þórður Sigurðsson Haukum 43
Rósmundur Jónsson Víking 41
Guðjón Jónsson Fram 40
Matthías Ásgeirsson Haukum 34
Ámi Samúelsson, Ármann 33
Sigurður Einarsson, Fram 32
Viðar Símonarson, Haukum 29
Ásgeir Þorsteinsson, Haukum 28
Heinz Steinmann, KR 27
Páll Stefánsson, FH 26
Kristján Stefánsson, FH 24
Sigurður Hauksson, Víking 24
Sigurður Óskarsson, KR 23
Birgir Bjömsson, FH 23
Sigurður Einarsson, Fram. Hann
hefur skorað 32 mörk f 1. deild
— flest af línu.
Hverjir hafa sigrað?
Eftirtalin félög hafa orðið ís-
landsmeistarar f handknattleik
innanhúss, frá því að fyrst fram árið 1940. mðtið fór
Valur 8
Ármann 5
FH 5
Fram 4
KR 1
ÍR 1
Haukar 1
Hvenær er leikið næst?
Síðustu lelkir mótsins verða
leiknir sunnudaginn 11. apríl og
leika þá Víkingur gegn Haukum
og FH gegn Fram.
Hvorugur þessa leikja hefur
neina þýðingu í sambandi við
úrslit mótsins, þar sem FH hef-
ur þegar unnið og Víkingur þeg-
ar fallið í 2. deild.