Vísir - 26.03.1965, Page 15
V í S IR . Föstudagur 26. marz 1965.
»5
; CECíL ST. LAURENT:
SONUR
m v' < KARÓ-
HL :1 " - LÍNU
Vagninn stöðvaðist fyrir fram
an húsið og Chabalgoiti spratt
á fætur furðu léttilega af jafn-
gildum manni, til þess að opna
vagndyrnar, en Englendingur-
inn hafði orðið fyrri til og var
búinn að opna þær og rétti nú
hinni Ijóshærðu, fögru konu
hönd sína. Steig hún nú úr vagn
i inum og skrjáfaði mikið í silki-
: kjólnum hennar.
Karólína heilsaði Chabalgoiti
brosandi og spurði:
— Eruð þér ekki steinhissa,
: að við skulum vera komin aftur.
Við fórum til Urdax og inn í
gistihúsið þar. Ég veit, að þér
getið ekki gert yður í hugarlund
hvílík hola það er, dimm og ó-
hrein. Og svefnherbergin og
rúmin, drottinn minn dýri,
„búkkar með brettum á undir
sængurfötin... og gestgjafinn
... sat í hægindastól með barða
stóran hatt á höfði og reykti
vindil. Við spurðum hvort við
gætum fengið mat og hann svar
aði: Hvað, höfðuð þið ekki nesti
með ykkur? Og vitanlega gramd
ist ykkur þetta. Ykkur fannst,
að ekki væri hægt að bjóða ykk
ur þetta.
Karólína þagnaði, en Chabal-
goiti hélt áfram þar sem hún
hafði hætt:
— Hárrétt! Og þá sagði hann
ólundarlega: Jæja, ég verð víst
að gera ykkur einhverja úrlausn
... og bauð okkur brauð og Tol-
edovín. Ég spurði hann þá hvort
við gætum ekki fengið egg, —
líklega verptu hænurnar á Spáni
ekki síður en franskar hæn-
ur...
... og hann svaraði, að við
gætum svo sem farið út í
hænsnakofa. Kannski væri ein-
hver hænan búin að verpa. Og
þá datt það í ykkur, að snúa
við, koma hingað og aka fram
hjá Urdax á morgun.
— Eruð þér töframaður?
spurði Englendingurinn allt í
einu. Það er engu líkara en að
þið hafið verið áheyrandi að öllu
sem þarna gerðist.
— Nei, yðar náð, ég er bara
gestgjafi í gistikrá, en svo lán-
samur, að fles^ir koma aftur
hingað, þegar þeir eru búnir að
skoða sig um hjá hinum spánska
stéttarbróður mínum og kynnzt
honum_ Og nú bið ég ykkur að
gera svo vel og ganga í bæinn.
Þegar inn kom áleit Chabal-
goiti hið rétta augnablik komið
til þess að bera upp spuning-
una:
— Óskið þið eftir að fá eitt
herbergi eða tvö?
— ' TVö 'hartdá ' 'okktó,^ sag$|
Collins eftir andartaks þögn, lít
ið herbergi handa þernunni, en
þér og ekillinn komizt að ein-
hverju samkomulagi.
Meðan Englendingurinn talaði
hafði Chabalgoiti virt Karólínu
fyrir sér. Það fór ekki fram hjá
honum. hún skipti litum, varð
eins og dálítið óstyrk. „Grun-
aði ekki Gvend, hugsaði hann,
það mætti segja mér, að hulan
sviptist af öllu hvað líður.
Svo fór gestgjafinn fram í
eldhús til þess að athuga hvern-
ig gengi með matartilbúninginn.
Það var lagt á borð, úti við
glugga, vegna birtunnar. Og með
an þau neyttu máltíðarinnar
virti gestgjafinn þau betur fyr-
ir sér.
Hann virti fyrir sér hvíta kjól-
inn, sem hún var í. Hann var
víst úr indverskum baðmullar-
dúk. „Það hefur þá skrjáfað
svona i niillipilsunum hennar“,
hugsaði hann. „vafalaust úr
silki“. Konan var líka frá París.
Og hann virti fyrir sér hið fagra
andlit hennar. Hún var rjóð í
kinnum og brosti og hló. Og það
blikaði á hárið hennar gullna.
Lokkarnir gægðust undan hatt-
barðinu, en hatturinn var prýdd-
ur gervirósum. Svo leit hann
sem snöggvast á Englending-
inn, sem sat beint á móti henni,
hátíðlegur á svip. Hann horfði
á skínandi hvítt skyrtubrjóst
hans og hvítu þverslaufuna. Cha
balgoiti komst að þeirri niður-
stöðu, að hann hlyti að skipta
um . skyrtu að minnsta kosti
þrisvar á dag. Þau drukku létt
vín með matnum, en það hafði
sín áhrif og Englendingurinn var
allt í einu farinn að verða, já,
hver skyldi trúa, hýr á svip,
farinn að brosa .. .
Chabalgoiti brá við snögglega,
fór og sótti blómsturvasa og
setti á borðið hjá þeim.
Það leið ekki á löngu þar til
Chabalgoiti fór að „berast frétt-
ir“. Allir í gistihúsinu vissu hve
forvitinn hann var og allir töldu
það skyldu sína að svala for-
vitni.hans. Kona hans og dóttir
vissu ekki enn að hvaða niður-
stöðum hann hafði komizt, en
vel vissu þær um hvað hann
var að hugsa. Þær litu upp til
hans sem væri hann vitmaður
mikill, og ekki aðeins þær, hrepp
stjórinn og sýslumaðurinn sögðu
ávallt, að Chabalgoiti væri mað-
ur, sem vissi sínu viti.
Chabalgoiti komst nú að því,
að á leiðinni til landamæranna
hafði Englendingurinn jafnan
beðið um tvö herbergi, þar sem
þau gistu, og þar sem allir sögðu
honum allt, sem þeir höfðu frétt,
var það sitt af hverju, sem hann
heyrði meðan neytt var kvöld-
verðar í eldhúsinu. Og smám
53
saman fannst honum, að í raun-
inni vantaði ekki nema herzlu-
muninn til þess að hann gæti
gert sér fulla grein fyrir öllu.
Og það, sem hann vissi, er kvöld
verðinum lauk, var þetta:
Þau höfðu lagt af stað frá
París fyrir tíu dögum og að sjálf
sögðu höfðu þau jafnan gist í
beztu gistihúsum Það var at-
hyglisvert - að vissu leyti -
að Englendingurinn hafði jafn-
an beðið um tvö herbergi, en
það gat nú samt sem áður ekki
upprætt allan efa. Englending-
urinn var sagður bæði liðsfor-
ingi og listmálari og mátti það
svo sem vel vera. Og Chabal-
goiti gat svo sem vel trúað því
- það var alls ekki ósennilegt,
að það væri rétt, að ljóshærða
konan væri eiginkona fransks
hershöfðingja — hún var nógu
skartbúin til þess, sannast að
segja eins skartbúin og hertoga-
frúin af Abrantés, sem hafði
gist hjá honum eina nótt fyrir
mörgum árum. Því var þá þann-
ig varið, hugsaði Chabalgoiti, að
eiginkona fransks hershöfðingja
var á ferðalagi með enskum
manni, sem var liðsforingi og
listamaður. Og þau sváfu ekki
saman. Þau voru á leið til San
Sebastian til þess að hitta hers-
höfðingjann og tvær ungar
manneskjur, pilt að nafni Juan
og stúlku, sem hét Pilar. Eng-
lengingurinn átti að sameinast
herfylki sínu, sem var þarna í
bænum. Þetta gat svo sem allt
verið eðlilegt, en samt gat hann
ekki fengið rétta útkomu á dæm
inu, því að nú kom þernan með
nýja frétt:
Það var nýbúið að sleppa kon
unni úr fangelsi í Frakklandi.
— Það getur ekki verið satt,
sagði Chabalgoiti.
Konan hans flýtti sér að setja
pylsu á diskinn hans.
Kona, sem hefur verið fang-
elsuð, hugsaði Chabalgoiti, lítur
ekki þannig út. Hann hafði kom
izt í kynni við marga menn,
karla og konur, sem höfðu setið
inni, og það hafði sett vissan
svip á alla. Ef þessi kona hafði
setið í fangelsi var engu líkara
en að henni hefði þótt bara gam
an að því og verið viss um að
sleppa og hann fór að hugsa
um það, sem þernan hafði hler-
að, er þau voru að tala saman
Englendingurinn og hin fagra:
- Þeir voru til neyddir að
sleppa yður Karólína, þeir hefðu
orðið að athlægi, ef þeir hefðu
ekki gert það — og hrottalegra
en svo að þeir gætu komið þann
ið fram gagnvart konu, og þeg-
ar þér komuzt að því, að Maub-
reuil hafði í fórum sínum einn
af demöntum prinsessunnar,
varð að taka málið fyrir af
nýju. Og innan tveggja mánaða
getið þér farið aftur til Frakk-
lands með manninum yðar.
„Demantar", hugsaði Chabal-
goiti og botnaði nú loks ekki
neitt í neinu.
Kannski var einhver deila um
arf ... Hann fékk allt í einu um
annað að hugsa, þvf dóttirin
kom æðandi og var mikið niðri
fyrir:
- Pabbi, þau eru að fara í
gönguferð út í skóg.
Hann flýtti sér út í dyragætt-
ina og kom í tæka tíð til þess
að horfa á eftir þeim, er þau
gengu frá húsinu Þau leiddust,
og þau gengu hægt í áttina að
rjóðri, þar sem nokkrar spænsk-
ar stúlkur léku á gítar, sungu
og dönsuðu. Þarna voru líka
allmargar rosknar konur, allar
í góðum holdum, og horfðu á
ungu stúlkumar. Nokkrir karl-
menn stóðu í hn..pp og ræddu
saman.
^CAUA TOWN.NAOIW! WHEM YOU’VE BEEW
LONEEKIN PRIMITIVS APRICA, yoU'LL
LEAKN TO OBSEEVE TKISAL FKOBLEWS
AN7 CUSTOMS- WITHOUT R1SHTE0US
T
A
R
Z
A
N
Vertu róleg Naomi. Þegar þú venjum ættbálkanna án þess að
hefur dvalizt lengur í hinni frum fyllast heilagri vandlætingu.
stæðu Afríku, þá muntu læra Tveir höfðingjar rökræða í tal-
að kynnast vandamálum og sið- stöðinni um að sk'ipta á Tupelo-
...TWO CHIEFS ARE ARGUING,OVEROUR.
RAÞIO, ASOUT SWAFFIHð TUFELO WOMEN
FOR <110 LIVESTOC<. THAT'S ALLTHATS
'mPEMNG'mn'.youz. anöekis
fkematuke!
konum fyrir Kiki-búpening. Það
er alit sem er að ske núna. Reiði
þín er of snemma á ferðinn'i. En
Tarzan .... Ég lofaði því að vera
viss um að slík skipti yrði Tupe
lokonum til ánægju nú geturðu
eins og ég segi. Komdu aftur til
þyrlunnar.
Hárgreiðslu. og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ
Laugavegi 18 3. hæð (lyfta)
Sinii 24616
Hárgreiðslustofan PERMA
Garðsenda °1, sími 33968.
Hárgreiðslv.stofa Ólafar
Björnsdóttur
HÁTÚNI 6, simi 15493.
Hárgreiðslustofan
PIROL
Grettisgötu 31, simi 14787
Hárgreiðslustofa
VESTURBÆ.TAR
Grenimel 9, simi 19218,
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
(Maria Guðmundsdóttir)
Laugavegi 13, sími 14656
Nudd«tofa á sama stað.
Dönu’harRreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjarnargötu 11. Vonarstrætis-
menin sími 14662.
\ Hárgreiðslustofan
Ásgarði 22, simi 35~10
ASTHILDUR
GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR
SIMI 12614
HÁALEITISBRAUT 20
"BMiiuMUMmiim-ji m mb—
VENUS
Grundarstíg 2A
Simi 21777
Hárgreiðslustofan
Sólvallagötu 2
áimi 18615
Endurnýjuni gömlu sængurn-
ar, eigum dún- og fiðurheld
ver, æðardúns- og gæsadúns-
sængur og kodda af ýmsum
stærðurr - PÓSTSENDU]ýI.
Rest bezt koddar
Dún- og fiður-
hreinsun,
Vatnsstig i Sími 18740
(Örfá skreí trá Laugavegi)
i. - - i * -
1 u t I M I! •