Vísir


Vísir - 14.04.1965, Qupperneq 15

Vísir - 14.04.1965, Qupperneq 15
V í S IR . Miðvikudagur 14. apríl 1965. LAND EILÍFÐAR BIRTU - John Harris — Margit Jensen — eruð það þér?, spurði hún. Ég er nýja að- stoðarhjúkrunarkonan á deildinni og heiti ungfrú Block. Hjúkrunar- konan bað mig að sækja yður. — Vertu sæll, Jack, sagði Margit, ég verð hérna á morgun, ef þig lang ar til að við röbbum meira saman. — Já, ég kem sagði hann og reis á fætur. Hann stóð lengi kyrr og horfði á eftir hinni grönnu, ungu stúlku, sem frjálslega og án þess að hika fylgdist með hjúkrunarkonunni. Þær gengu frjálslega hlið við hlið án þess að leiðast. Þessi sjón var honum andleg upplyfting. Hann gekk lengi um sjúkrahús- garðinn, þar sem voru grasvellir og fjöldi reita með litrikum blóm- um, en honum fannst þau fölleit, daufleg, eftir að hafa *heyrt lýningu Margit á litadýrðinni f landi hinnar eilífu birtu. Þau hittust dag hvern í sjúkra- lúsgarðinum. Hann leitaði félags- skapar hennar, vegna þess að hún írakti á burt óttann, sem hann á stundum óttaðist að myndi gera íann vitskertan. Stundum sátu þau i grasflöt eða á bekk eða röbbuðu ;aman. Og stundum gengu þau um götumar og þá leiddi hann hana við íönd s'ér eins og hún væri lítil :elpa. Og það var ekki vegna þess, ið Margit hefði neina þörf fyrir að áta leiða sig. Hún gekk jafnan 'rjálslega og óstudd, ef einhver sjá indi var við hlið hennar. Stundum 'annst Jack, að hún sæi, skynjaði neira með óskertum skilningar- /itum sínum, en hann með sínum rnn öllum óskertum, að undan- -.ekinni dvínandi sjón. Án þess oau gerðu sér grein fyrir þvl hafði íst fest rætur í brjóstum þeirra, var 3ðum að þróast, og varð sterkari neð hverjum deginum sem leið, m þau hittust daglega. Og þegar þau sátu saman og hún iagði honum frá þeim sýnum, sem tún sá bera fyrir hugskotsaugu sin, 5skaði hann sér stundum, að tím- inn hætti að líða, alit stæði i stað, og væri það fyrir þeim að minnsta tosti, eins og þessa stundina. Stund um lagði hann aftur augu sfn og reyndi að sjá það sama og hún, og það kom fyrir, að hún lagði hendur sinar yfir augu hans, og knúði hann þannig til þess að sjá það sem hún sá, talaði um. Og Ioks óttaðist hann ekki lengur séð það, sem í kringum Og hver vikan leið af annari og hann, að hann langaði til þess að lifa í þessum töfrandi hugarheimi, sem Margit lýsti fyrr honum. Og hver vikan eið af annari og alltaf styttist leiðin til landsins, ekki lengur þann dag, er hann gæti sem bjarmann bar af, en fyrir aug- um hans var sem þokumóða og hún varð smám saman þéttari, og það kom fyrir að þau urðu að halda kyrru fyrir á sama stað, þar til hjúkrunarkonan kom og sótti þau, en biðin varpaði ekki skugga á neitt hið innra fyrir, öðru nær. Og þá fór þeim að verða ljóst hvers eðlis voru hinar furðulegu tilfinn- ingar sem vaktar voru f brjóstum þeirra — og þær áttu ekkert skilt við sýnir. Og svo rann upp dagur, sem átti eftir að verða þeim báðum hinn eftirminnilegasti allra til aldurtila- stunda. Jack hafði gengið með Margit um sjúkrahússgarðinn, þar til þau höfðu fundið bekk, sem runnar skýldu, og þar settust þau, og hann bað hana um að segja sér frá þvf landi birt- unnar, sem henni hafði orðið svo tíðrætt um. Og hann lokaði aug- unurri bæði vegna þess, að hann sveið í þau vegna sólarbírtunnar, og svo líka vegna þess, að hann naut þess betur, að heyra hana segja frá, er hann hafði lokað þeim. Þá stóð allt nú orðið svo dásamlega skýrt fyrir hugskotsaugum hans. Sá heimur sem hún lýsti færðist þá nær veruleikanum, og þau gengu saman um hann. Og þau héldust í hendur. Hönd hennar hvíldi líka í hans, svo að það var auðveldara að hugsa sér það þannig. Þegar hún hafði lokið máli sinu opnaði hann augun og gerði það treglega — en ekkert ljós streymdi inn í augu hans. Og myrkrið var ekki svart — það var grátt. Litur þessi var grár, ekki kuldalegur og hráslagalega grár, heldur hlýlega grár og með blæ mildi og mýktar. Og hann sá ekki neitt. — Margit, sagði hann kyrrlát- lega. Nú er ég í þínu landi. Ég get ekki séð. Hann fann að hún hallaði sér að honum og hann þreifaði eftir anditi hennar og fann það. — Og þér finnst það ekki mjög slæmt, Jack? spurði hún. Andardráttur hennar barst að vitum hans og anganin var sem á engi, sem er blómum vaxið. — Nei, Margit, það er ekki slæmt — þú hefir komið því til leiðar, að allt er auðveldara fyrr mig. Hann fór höndum af vnrfærni — og hlýlega um höfuð hennar og allt í einu mættust varir þeirra, mjúklega, blíðlega. — Magit, sagði hann. þú hefir látið mig sjá landið, þar sem Ijósið aldrei dvín. Viltu ganga um þetta land með mér? Getirðu það mun þar aldrei dimma framar. — Já, ég vil það, Jack, ó, ég var svo hrædd um, að þú mundir ekki biðja mig um þetta. Andvarpandi af einskærri ham- ingju hneig hún að barmi hans og kysst hann. Anganin úr hári henn- ar og af andardrætti hennar bland aðist saman við blómaanganina í garðinum og hann sá sýnir fegurri en þær fegurstu, sem hann áður hafði litið í draumi. Hann dreymdi um. hamingju í landi eilífrar birtu. Meðan gagnger rannsókn fór fram á augum Jacks hugsaði hann um það eitt hvernig hann gæti unn ið sér nóg inn til þess að þau gætu gift sig, hann og Margit, og honum brá sannast að segja, þegar yfirlæknirinn úrskurðaði, að það væri veikur möguleiki, að uppskurð ur heppnaðist og hann fengi sjón- ina aftur. Og Iæknum og hjúkrunar konum til undrunar bað hann um umhugsunarfrest. Hann vildi ræða málið við Margit. Þegar hún hafði hlýtt á málið sagði hún: — Jack, ég var lögð inn tveimur dögum á undan þér — til uppskurð ar. Það átti að vera búið að því, en ég vildi bíða — og það var þín vegna. Nú skulum við láta til skar ar skríða — ef allt misheppnast eigum við samleið áfram f landi hinnar eilffu birtu. — Við skulum vera þar, áfram, Margit sagði hann. En hún sannfærði hann um, að þau skyldu reyna. — Ef nú annað okkar fengi sjón ina, en hitt ekki? — Okkur var farið að þykja vænt um hvort annað, þegar þú gazt séð Það gerði engan mun. — Já, við munum alltaf elska hvort annað. En svo fór, að uppskurðurinn á Margit heppnaðist, en ekki á Jack. Og það liðu nokkrir dagar þar til þau hittust aftur — þegar aftur var komin sól og hlýindi, en það hafði verið rigningasamt um tíma . . . Hjúkrunarkonan leiddi hann ■út í garðinn, en hann gekk sjálfur til hennar seinasta spölinn. — Margit, ég komst sjálfur þenn an spöl. Hann grunaði ekki enn að hún gæti séð, og bað hana lýsa landinu fagra, draumalandinu fagra, en er hún hafði lýst því, er hún sá varð honum allt f einu ljóst hvað gerzt hafði. — Margit, þú sérð? Ég heyri það, finn það. Af hverju komstu ekki á móti mér? Af hverju sagðirðu mér það ekki fyrr? — Mig langaði til þess, þráði það, en þú varst svo glaðúr í ásetningi þínum, að komast til mfn sjálfur. Hann settist, huldi andlitið f hönd um sér. — Nú erum við hvort f sínu landi, sagði hann loks. Nú er allt breytt. Nú er ekki jafnt á komið með okkur. — Hvers vegna segir þú þetta, Jack? Heldurðu ekki lengur, að við getum fundið hamingjuna saman? Við getum það? Tilfinningar okkar, hvors í annars garð, er það sem máli skiptir — miklu mikilvægara en að geta séð. Þú mátt ekki bregð- ast mér nú, Jack, það verðurðu að láta þér skiljast. Hún lagði blóm í lófa hans. — Segðu mér hvað þetta er, sagði hún. — Það er blóm, georgína. — Já, sagði hún áköf, segðu mér frá öllu, sem þú sérð, þegar þú snertir það. — Blöðin eru silkimjúk. Þau eru gullin á lit, kannski dálítið rauð- leit. Þegar sóliri skín á slær purpura bjarma á það, sem rautt er . .-. Hann varð beiskur á svip, þagn- aði. — Af hverju baðstu mig um þetta, Margit? Þú getur sjálf séð það. Það er ekki hægt að lýsa lit- um þess, sem maður ekki sér. — Þú gazt það, sagði hún rólega. —Var það eins og ég lýsti þvi? spurði hann með efa- og vonar- hreim í röddinni. — Alveg eins, sagði hún rólega. Hann sneri sér að h'enni, tók utan um hana og þrýsti henni að sér og kyssti hana og andlit hennar ljómaði af hamingju. — Komdu, elskan mín, sagði hún. Við skulum ganga um garðinn og þú lýsir fyrir mér öllu,' sem þú sérð í landi hinnar eilífu birtu. 1 Er þau gengu af stað datt blómið úr hendi hans, blómið, sem hún hafði lagt í lófa hans. Nú lá það á mölinni á gangstígn- um. Hálfvisin, hvft og ósjáleg georgina. Það var aðeins í landi eilífrar birtu, sem hún skartaði f purpura Ijóma sínum, í landinu, þar sem aldrei er myrkur. SÖGULOK. 12997 Grettisgðtu 62 ST ÍHef opnað nýja hárgreiðslustofu 1 á Frakkastfg 7 undir nafninu IHárgreiðslustofan ARNA. lSfmi 19779.____________________ / Hárgreiðslu- og snyrtistofa íSTEINU og DÓDÓ ÍLaugavegi 18 3. hæð (lyfta) jSfmi 24C16_____________________ Hárgreiðslustofan PERMA Garðsenda ?1, simi 33968. Hárgreiðslustofa Ólafar Björnsdóttur HÁTÚNI 6, sfmi 15493. Hárgreiðslustofan PIROL Grettisgötu 31, slmi 14787 Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9, sími 19218. Hárgreiðslustofa AUSTURBÆJAR (Marfa Guðmundsdóttir) Laugavegi 13, síml 14656 Nuddstofa á sama stað._______ I Dömuhárgreiðsla við allra hæfi | . TJARNARSTOFAN Tjarnargötu 11. Vonarstrætis- megin sfmi 14662._______________ [ Hárgreiðslustofan DÍS * Ásgarði 22, sfmi 35"10 HÁRGREIÐSLU STOFAN Sk $im DUR KÆRNESTED jjjjjj ÁSTHILDUR GUÐLEIF SVEINSDÖTTIR SIMI 12614 HÁALEITISBRAUT 20 VENUS Grundarstig 2A Sími 21777 Hárgreiðslustofan Uli höfðingi kre st þess að fá að elta upp glæpamennina með mér Naomi. Yeats hershöfðingi samþykkir það °f Uli býr sig út set. mann af villtari ættbálkun- um. Hann Vill ekki að glæpa- mennirnir handtaki einn af okk- ar þýðingarmestu höfðingjum og vita að hann sé það. Og ég vil ekki að þeir handtaki þig eða skaði Ta -m. /ið eigum aðeins að njósna um þá til þess að afla vitnisburðar en ekki að berjast við þá. Hvað sem þú vilt gera Tarzan þá er það allt í lagi og eins alltaf hvert sem þú ferð þá fylgir ást mín þér. Sólvallagötu 72 ilmi 18615 Endumýjuni gömlu sængum- ar, eigum dún og fiðurheld ver. æðardúns og gæsadúns- sængur og kodda/af ýmsum stærðum - PÓSTSENDUM. Rest bezt koddar Dún* og tiður- hreinsun, Vatnsstíg i Slmi 18740 (örfá skrei frá Laugavegi) - -,í

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.