Vísir - 11.05.1965, Qupperneq 5
VlSIR . Þriðjudagur 11. maí 1965.
5
utlönd í morgun/
v morgun
útlönd í morgun
utlönd í morgLin
REYNT AD SEMJA VID DANI
UM FÆREYSKA FÁNANN
Reynt er að fá dönsku stjórn
ina til að birta yfirlýsingu um
færeyska fánann og heimila
notkun hans þar sem Færeying-
ar koma saman.
Stjórnarkreppa kom fyrir
m
Færeyski fáninn og Færeyjar íbaksýn
skemmstu til sögunnar í Fær-
eyjum og má búast við nýjum
þingkosningum þar á hausti
komanda, og bætist þá fána-
málið ef til vill við sem kosn-
ingamál.
Orsök kreppunnar virðist
vera, eft'ir dönskum blöðum að
dæma, að Þjóðveldisflokkurinn
vill róttækari sjálfstjórnar-
stefnu en hinir flokkamir í
landsstjórninni v'ilja fallast á.
Þau segja m.a., að Patursson
hafi á eigin spýtur borið fram
tillögur um, að Færeyingar
skuli krefjast 16 mílna fiskveiði
marka, sem komi í stað hinna
ársgömlu 12 mílna marka. Hin-
um stjórnarflokkunum hafði ei
verið tilkynnt um þetta fyrir-
fram og hafa ekk'i heldur getað
fallist á, að slfk ákvörðun
væri tekin. Þess vegna hafi
Djurhuus slitið samstarfinu við
Þjóðveldisflokk Paturssons
Djurhus lögmaður er leiðtogi
Fólkaflokksins og stjómarleið-
togi.
Ennfremur er sagt frá því í
blöðum, að færeyski jafnaðar
maðurinn, Peter Mohr, sem á
sæti í Fólksþinginu danska,
''hafi byrjað samkomulagsumléit
anir við rfkisstjórnina um hý-
skip'an, sem Mohr telur að
draga mundi úr þenslunni f fær
eysku þjóðlffi ,en eins og sakir
standa sé stjórnarkreppa í Fær
eyjum. Þessi kreppa virðist
ætla að leiða til aukakosninga
til lögþingsins. Þess er að geta,
að auk ágreiningsins um stuðn
ing við f' kveiðar Færey'inga,
er annað mikið mál á döfinni:
Sérstök lögþingsnefnd hefur
haft til meðferðar víðtækar
breytingar á heimastjórnarlög-
unum og mundu breytingarnar
einnig verða kosningamál — og
svo er fánamálið.
Mohr vill nú koma því til
leiðar, að danska stjórnin birti
yfirlýsingu, þess efnis, að hún
vilji gera erlendum þjóðum það
ljóst, einkanlega í Noreg'i og
á íslandi, vegna þess að þar
hafi komið til ágreinings út af
notkun færeyska fánans, — að
færeyska fánann
megi draga á stöng hvar
sem Færeyingar koma sam-
an, einnig fyrir „utan mörk
hins danska rikis“ og án
þess að danski fáninn
blakti við hlið hins færeyska
1 öðru lagi verði gefin út
sérstök færeysk frimerki, með
sama fyrirkomulagi og póst-
stjómin hafi gefið út Græn-
landsfrfmerki.
Og loks vill Mohr, að Fær-
eyjar fái sinn eigin fulltrúa f
Norðurlandaráði,. valinn af Lög
þinginu.
WILSÖN BODAR AUKNAR ORYGG-
ISRÁDSTAFANIR VEGNA NJÓSNA
Dómar féllu í gær í tveimur
njósnamálum f London, en Öryggis
ráði var falið rannsókn í þeim
fyrir skemmstu. Voru tveir njósn-
arar dæmdir, hlaut annar 21 árs
fangelsi, en hinn 10.
Brezk blöð gerðu það að um-
talsefni um seinustu helgi, að
stjórn Wilsons væri f þann veginn
að gera ráðstafanir til þess að
girða fyrir njósnir í landinu, með
því að veita Öryggisráðinu heim-
ild til þess að hefja rannsóknir
þegar er forsætisráðherra telur á-
stæðu til, en reglur hafa verið
þær, að ráðið tæki ekki til starfa
fyrr en búið væri að ákæra menn
fyrir meint brot. Ennfremur mun
forsætisráðherrann hafa gefið fyrir
mæli um að hann verði látinn
fylgjast betur með öllu sem gerist
og kann að varða öryggi landsins.
Öryggisráðið hefur aldréi fyrr ver
ið kvatt til rannsóknarstarfa. Það
var stofnað í janúar sl. af Sir AI-
ec Douglas Home forsætisráðherra
Sá njósnarinn, sem hlaut 21 árs
Vís is
fangelsi, hafði stundað njósnir fyr
ir Rússa árum saman og hlotið í
þóknun 5000 sterlingspund. Það
játaði hann sjálfur fyrir réttinum
en hefur sennilega fengið miklu
meira. Bossard er 55 ára, vélfræð-
ingur í stjórnardeild flug-hermála
ráðu eytisins, sem fer með eld-
flaugamál. Hinn, Allen, er undir-
í STUTTU
MÁLI
Vorfundur utanríkisráðherra
Norður-Atlantshafsbandalagsins
var settur i dag i London af
Wilson forsætisráðherra og er
þetta í fyrsta sinn i 15 ár, sem
fundurinn er haldinn þar. Fund-
urinn er haldinn í hinum fræga
samkomusal Banqueting Hall i
Whitehall, sem byggöur var
fyrir þremur öldum. — ítalinn
Brosio, frkvstj. bandalagsins,
ræddi við fréttamenn í gær og
kvað aðalmálin mundu verða
Vietnam og Dominikanska lýð-
veldið og bað menn líta af sam-
úð og skilningi á afstöðu og
gerðir Bandaríkjanna i þessum
löndum og er þetta skilið sem
gagnrýni á de Gaulle Frakk-
landsforseta.
► Örygg sráðið kemur saman
til framhaldsfundar í dag um
Dominikanska lýðveldið. Þar
baðst Wessin hersh. lausnar en
afturkailaði lausnarbeiðni sina
í morgun. — Caamano vill ekki
semja vilá Vesturálfurikjanefnd
ina nema fulltrúi stjómar hans
i Washington fái að sitja fund
utanríkisráðherra OAS, en það
jafngilti í rauninni viðurkenn-
ingu, en í D.R. eru tvær ríkis-
stjómir að nafninu og hefur
hvorug hlotið viðurkenningu.
► Mikil ormsta geisaði í gær-
kvöldi og nótt um bæinn Sobg
Be, 110 km. norðaustur af Saig-
on. Vietcong hóf sókn til að ná
bænum og virðist lið þess hafa
brotizt gegnum vamarlinur i
fyrstu atrennu, en siðan orðið
að hörfa. Manntjón beggja var
mikið. — Bandaríkjamenn urðu
fyrir manntjóni í orrustunni. —
Féllu fimm menn af liði þeirra,
en 11 særðust.
^ Hemaðarlega stjómin i
Boliviu hefur frestað forseta-
og þingkosnlngum, sem fram
áttu að fara 31. október n.k. —
þar sem ekki sé komin á nægi-
leg kyrrð i landinu tll þess að
láta „kosningamar fram fara.“
foringi og starfaði í Hermálaskrif-
stofunni (War Office). Hann er
33 ára. Hann stundaði það að selja
sendiráðum Iraks og Egyptalands
hernaðarleg leyndarmál.
Fyrir skemmstu var tveim Rúss
um vísað úr landi i Kanada vegna
tilrauna til njósna.
LANDSVIRKJUN
Á fundi neðri deildar í gær lá
m. a. fyrir frumvarp ríkisstjórn-
arinnar um Landsvirkjun.
Ingólfur Jónsson raforkumála-
ráðherra mælti fyrir frumvarp-
inu og rakti hinar ýmsu greinar
þess og athugasemdir við þær.
Skýrði hann svo frá, að sam-
kvæmt þessu frumvarpi skyldi
Landsvirkjun vera sameign ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar, en jafn
framt myndi eigendum Laxár-
virkjunar heimiluð þátttaka, er
þeir teldu þörf á.
Sogið er nú fullvirkjað og orku
þörf innanlands tvöfaldast, að því
er áætlað er, á næstu 10 árum,
og því mjög brýn þörf á að hefj-
ast handa um byggjngu nýrra og
stórra orkuvera. Erlendir og inn-
lendir sérfræðingar, er unnið
hafa að rannsóknum >é þessu
sviði hér á landi undanfarin ár
telja að þrátt fyrir mögulega erf-
iðleika af völdum ísmyndana að
vetri til, þá komi virkjun Þjórsár
við Búrfell helzt til greina sem
næsta stórvirkjun. Er í frumvarp
inu gert ráð fyrir að heimila
Landsvirkjun að reisa þar allt
að 210 þúsund kílówatta raforku
ver, en það hefur konvð í ljós.
að hagkvæmast muni að reisa
virkjun með það fyrir augum að
hleypa inn í tandið orkufrekum
iðnaði, svo sem alúmíniðju
svipað og Norðmenn hafa gert
þ i n g s.já V í s i s
Ingólfur Jónsson.
með góðum árangri. Slík stóriðja
mun gera það kleift að reisa svo
stóra virkjun, sem aftur á móti
framleiðir mun ódýrara rafmagn.
Byrjunarkostnaður við svo
stóra virkjun er eðlilega mjög hár
og gerir frumvarpið ráð fyrir því
að heimila ríkisstjórn að ábyrgj-
ast lán fyrir Landsvirkjun, að
upphæð allt að 1204 milljónum
króna.
Frumvarpið mælir svo fyrir, að
stjórn Landsvirkjunarinnar á-
kveði, að fengnum tillögum
Efnahagsstofnunarinnar, hverju
verði stóriðjufyrirtækin greiði
orkuna. Mun verðið miðað við að
eðlilegur afrakstur fáist af því
fjármagni, er í rekstrinum sé
bundið, og að því stefnt, að Lands
virkjunin geti lagt hæfilega mik-
ið fjármagn fyrir, svo unnt sé að
tryggja notendum næga og aukna
raforku.
Að lokinni ræðu ráðherra tók
til máls Einar Ágústsson (F), og
taidi hann nauðsyn skjótra að-
gerða í þessu máli, því nú þegar
lægju fyrir tölur sérfróðra manna
um áætlaða raforkuþörf lands-
manna í næstu framtíð.
Þar á eftir töluðu kommúnist-
arnir Lúðvík Jósefsson og Einar
Olgeirsson, og voru báðir stór-
yrtir. Fullyrti Einar, að Lands-
virkjunin væri reist samkvæmt
„Parkinsons-lögmálinu", en ekki
í þágu fólksins. Kvað hann það
hreinasta hneyksli að reyna að
koma frumvarpi sem þessu i gegn
á síðustu dögum þingsins.
Frumvarpinu var síðan vísað til
2. umræðu og fjárhagsnefndar.
Þvi næst fylgdi raforkumálaráð
herra úr hlaði frumvarpi um Lax-
árvirkjun. Var því vfsað til 2
umræðu og fjárhagsnefndar.
í gærkvöldi fóru svo fram eldhús-
dagsumræður fyrri hluti, en síðari
hlutinn fer fram í kvöld. Áætlað
er, að þinglausnir verði á morg-
un, miðvikudag.
-K
■ ..ja: '--.lawftttfl