Vísir - 11.05.1965, Síða 11

Vísir - 11.05.1965, Síða 11
VÍSIR . Þriðjudagur II. mai 1965. n KR-ingar máttu sannar- lega hrósa happi í gær- kvöldi, þegar þeim tókst að halda jafntefli, 1:1 í leik liðanna í Reykjavíkurmót- inu í knattspyrnu. Vals- menn voru áberandi snjall- ari KR-ingum síðari hluta leiksins og ögruðu vindi og nöprum kulda með leik, sem oft á tíðum var bráð- snjall. Með þessum úrslit- um eru KR og Valur enn í baráttunni um sigur í mót- Heimir markvörður KR varði þarna hörkuskot frá Ingvari. VALSMENN SÝNDU ÞAD BEZTA SEM StlT HEFUR TIL ÞESSA inu og ekki ólíklegt, að þau þurfi að heyja auka- leik um sigurinn í mótinu. Einhver heyrðist segja: „Það er ágættéf' víð fáum aukaleik, . , þýðir áð ‘4fð fáum meíra £ kass- ann“. Og það er hárrétt. Leikir KR og Vals laða alltaf að sér múg og margmenni og í gær voru áhorfend ur mjög margir þrátt fyrir óheppi- legt veður. Valsmenn áttu þegar í upphafi leiksins í gær mjög gott tækifæri á að skora, en þá var bjargað á línu. Liðin sóttu nú sitt á hvað.' en ekki var mark skorað fyrr en á 30. mínútu og var all sögulegt. Boltinn kom svífandi £ lítilli hæð að marki KR, Heimir hljóp út, þvf Bergsveinn Alfonsson virtist eiga tækifæri á að breyta stefnunni á knettinum og var þvf skaðiegur í þvf færi, sem hann var í. Þá kom vindurinn til hjálpar Valsmönnum, þvf boltinn breytti skyndilega um stefnu frá Heimi og f netið en Berg sveinn^ kgp þó lítiileg. ■nh," aourlen Hahn líór"f ne bolt- KR-ingai-'skóruðil sitt]marjf á Í77 mínútu og fannst mörgum þar á ferðinni vafasamur dómur hjá Þor- láki Þórðarsyni dómara, en hann taldi að Gunnari Felixsyni hefði ver ið brugðið INNAN vítateigs en ekki UTAN, og auðvitað er það dómar- inn einn sem sker úr um hvort svo hafi verið eða ekki. Ellert Schram framkvæmdi spyrnuna og skoraði með fallegu og öruggu skoti neðarlega í markhornið. Valsmönnum hljóp mjög kapp í kinn við þetta mark og sóttu nær óaflátanlega það sem eftir var af leiknum og hvað eftir annað' var KR-markið í stórkostlegri hættu. Hefði ekkj verið ósanngjamt að gott spil Vals og marktækifæri hefðu fært þeim 2 mörk til við- bótar. Einkum var það Ingvar Elís- son, sem var marksækinn, en bæði var að skotin vorur'W»örg> rétt hjá ViglOéi'fís :'iaði Heimir> .f marki KR varði stórkostlega vel. Leikurinn var mjög skemmtileg ur, einkum undir, lokin og gefur leikur Vals einkum góð fyrirheit fyrir sumarið. Ef Reykjavíkurbikar inn væri í mínum fórum mundi ég sannarlega senda hann suður á Hlíð arenda í dag, en þar halda Vals- Kópovogur vonn Kópavogur vann Hafnarfjörð í „litlu bikarkeppninni“ f fyrradag á vellinum í Kópavogi með 4 mörkum gegn 2. Akranes og Keflavík era taplaus f keppninni, hafa leikið einn leik hvort, en Kópavogur og Hafnarfjörður hafa leikið tvo leikl Kópavogur tapað einum, en Hafn- arfjörður báðum. menn hátíðlegt afmæli sitt í dag, en félagið er 54 ára, var stofnað á þessum degi 1911. Og þeir mundu sannarlega eiga þann bikar skilið, því þeir hafa einir Reykjavíkurfél. ,sýnt ggðanJeik í vor og þann lapg 4?gzt&.í gærkvöldi. ,,Bt, j in,u, - BeztU’ menn Hðannar Ingvar, Reyn ir, Steingrímur, Bergsteinn, Björn Júlíusson, Matthías og Ámi. Allir u /# Opið hús ú Hlíðurendu í dag er knattspyrnufé- lagið Valur 54 ára, var stofnað 11. maí 1911. Valsmenn hafa „opið hús“ í féiagsheimili sínu að Hlíðarenda í dag frá kl. 16-18 í því tilefni og vænta þess að félagar og velunnarar félagsins mæti þar og eigi góða stund saman. prýðis góðir. Hjá KR 'Heimir, en aðrir vart umtalsverðir. I i Dómari var Þorlákur Þórðarson og dæmdi allvel. — jbp — Bremsuborðar í rúllum fyrirliggjandi 1%” - 1 Vi.” - 1%” - 2” 2i/4” 2i/2”x3/6” 2” - 3”xi/4” 3” - 3>/2” - 4”x5/16” 4” - 5” - 5i/2”x3/8” 4” - 5i/2”x7/16” - 4”xi/2” Einnig bremsuhnoð, gott úrval SMYRILL,Laugavegi 170, sími 12260 Verða breytingar á áformum um HM kvenna? Leika Island, USA og Jap■ an / riðli i Danmörku? Það eru stöðugar umræður i handknattleiksheiminum um riðlaskiptingu í heimsmeist- aramóti kvenna, sem fram á að fara í Þýzkalandi í haust, en eins og skýrt hefur verið frá hér á síðunni var jafnvel búizt við að ísland og Danmörk mundu mæt- ast í tveim leikjum í Danmörku i forkeppninni. Danir virðast hafa mikinn á- huga á að losna við leika við hiní íslenzku Norðurlanda meistára f bili. Þeir hafa boðizt til að halda riðlakeppni milli þjóðanna, sem lengst koma að, en það eru Japan, Bandaríkin og ísland. Mundi sigurvegarinn í riðlinum fara áfram í aðalúrslit in f Þýzkalandi. Það var formaður danska handknattleikssambandsins sem lét þetta í ljósi nýlega. Hann sagði að hægt mundi að finna íþróttahöll fyrir þessa leiki og mundu löndin verða að greiða farareyri til Danmerkur, en uppi hald gæti orðið frítt. Hefur þessi uppástunga verið send alþjóða sambandinu til umhugsunar og er beðið með eftirvæntingu eftir áliti, sem vissulega er þungt á metunum fyrir Islendinga, því sennilega mundi riðlakeppnin fara fram skömmu fyrir aðal- keppnina og ef íslenzku stúlk- urnar ynnu, mundu þær lenda með 7 öðrum þjóðum í úrslitum HM. Bergsteinn Magnússon og Ellert Schram eigast þarna við. 1 .—■

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.