Vísir - 18.05.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 18.05.1965, Blaðsíða 1
 55. árg. — Þriðjudagur 18. maí 1965. - 111. tbl. Norsku börnin héldu 17. maí hátíðlegan Norðmenn hér á landi héldu þjóðhátíðardag sinn, 17 maí, há tiðlegan samkvæmt venju. Um morguninn var farið í Fossvogs Idrkjugarð og blómsveigur lagð ur á minnisvarða norskra her- manna, sem féllu í heimsstyrj- öldinni sfðari. Börn Norðmanna söfnuðust saman til hátíðahalds í sam- komuhúsi Rafveitunnar v'ið Elliðaár og er myndin þaðan. Bömin eru vön að fara í skrúð göngu til sendiráðsins, en í þetta skipti féll sá liður hátíða haldanna niður, þar sem am- bassadorinn fór til Noregs í fylgd með Bjarna Benedikts- syp'i, forsætisráðherra, í heim- sókn hans þangað. Síðdegis var svo móttaka fyr ir Norðmenn í Þjóðleikhúskjall aranum og sá Nordmandslaget félag Norðmanna um móttök- una, sem lauk með kvöldverði. Handrítamálið afgreitt sem lög á morgun Stjórn Árnasafns ræður sér lögfræðing og mun hefja málsókn til oð ógilda lögin Það er nú talið alveg öruggt, að danska þjóðþingið muni af- greiða handritafrumvarpið sem lög á morgun, miðvikudag. Er reikna.5 með því að það verði afgreitt með miklum atkvæða- mun og almennt talið að at- kvæðatölurnar muni falla eitt- hvað í kringum 100 atkv. gegn 50. Ekki er þó fullsýnt um það og má búast við að sumir and- stæðingar frumvarpsins sitji hjá ,þegar þeir sjá fram á, að málið fær öruggt brautargengi í gegnum þingið. Hinir ofsafengnu andstæð'ing ar handritaafhendingar, Brönd- um Nielsen og hans hópur, er samt enn ekki af baki dottinn. Þe’ir eygja enn tvo möguleika til að koma í veg fyrir afhend- ingu. Fyrri möguleikinn er að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu, en t'il þess að fá það fram þarf ósk 60 þingmanna. Hafa þeir róið í þingmönnum, að semja og undirrita áskorunarskjal þess efnis. En þar hafa undir- tekt'ir þingmanna verið slæm- ar. Hefur meira að segja Poul Möller, foringi íhaldsflokksins lýst sig mótfallinn þessu. Skilj anlegt er, að þingmenn séu treg'ir til þessa, með því væru þeir að hleypa af stokkunum þjóðaratkvæðagreiðslu, sem væri mjög blandin úlfúð í garð íslenzku þjóðarinnar. Auk þess skilja menn að það er misnotk- un á þessum rétti t'il þjóðarat- kvæðagreiðslu að bera undir slíkt atkvæð mál sem handrita- málið. En andstæðingar handritaaf- hend'ingar hafa nú þegar ákveð- ið aðra harkalega leið. Stjórn Árnasafns hefur tekið þá á- kvörðun, að hefja málsókn gegn kennslumálaráðuneytinu til þess að fá lögin um hand- ritaafhendingu dæmd óg'ild. Stjórn Ámasafns hefur fram kvæmt allan undirbúning í þessu skyni. Hún hefur ráðið sér lögfræðing, hæstaréttarlög- mann að nafni G.L. Christrup, sem mun taka málið að sér og framfylgja því til æðsta dóm- stóls. Er ákveðið að strax og lögin hafa verið samþykkt og gengin í gildi, þá mun Árna- safnsstjórn stefna K.B. Ander- sen, kennslumálaráðherra fyrir Eystra-Landrétt í Kaup- mannahöfn. Málsóknin mun byggjast á því einu, að lög þessi brjóti í bága við stjórnarskrána, þar sem þing sé með þe'im að ráð- staaf eignum sjálfstæðrar stofn- unar. Það skal tekið fram, að þeg- ar stjórn Árnasafns tók þessa ákvörðun, var próf. Jón Helga- son safnvörður fjarverandi af fundi. Hann vildi enga aðild e’iga að slíkri ákvörðun. ! NETAVEIÐI LOGÐ NIÐ- UR I GRAFARVOGI Reykjavikurborg hefur nú fest kaup á veiðiréttindum i Grafarvogi við Elliðaárvoga. Seljandi var Sigur jón Gíslason ,eigandi „Hjólbarð- ans“, en faðir hans, Gisli Gíslason, s;lfursmiður keypti þann rétt af Einari Benedikssyni. t Verður netaveiði í Grafarvogi nú 4 Surtseyjarbréf um alúmíníum- verksmiðju. 8 Um sauði og Heiðmörk. 9 Guðmundur Jör- undsson ræðir vandamál útgerð- ar. 10 Talað við Hauk Benediktson frkv. stjóra. að öllum líkindum lögð niður, en þar hafa veiðst laxar, sem ræktaðir hafa verið á vegum borgarinnar. Áður fyrr var lax veidöur í net í Grafarvogi,, svokallað „kláfanót", sem er norskt veiðarfæri, og var veiðitíminn aðallega hálfan mánuð á ári, síðustu viku £ júm’ og fyrstu £ júlf. Það olli nokkrum erfiðleik- um fyrir laxaklakstöð borgarinnar, að veiði færi fram með þessu móti, og þvi ákveðið að kaupa veiðirétt- indin af Sigurjóni, en leggja síðan netaveiði niður f voginum. // NorSfirSingi1 fagnaS ígær Norðfirðingur, hin nýja 4ra hreyfla flugvél Flugsýnar er halda á uppi reglubundnu áætl- unarflugi til Neskaupstaðar fór £ sfna fyrstu ferð þangað f gær. Meðal farþega var Ingólfur Jóns son, samgöngumálaráðherra, Lúðvík Jósefsson, alþ.maður auk fréttamanna og forráða- manna Flugsýnar. Mikill mann fjöldi var saman kominn á fiug vellinum ... þess að fagna Norð firð ngi og hélt Bjarni Þórðar- *> hls ** VERÐUR TIU ARA B0RNUM KENND ENSKA 06 DANSKA? Undanfarin ár hafa verið gerðar nokkrar tilraunir með kcnnslu tungumála eftir nýjum aðferðum ailt niður í 10 og 11 ára bekki í barnaskólum. Er á- hugi meðal kennara og foreldra á að taka þetta fyrirkomulag upp í rfkari mæli og samþykkti foreldrafundur i Melaskólanum nýlega tillögu þar að lútandi, sem síðar var send til borgar- ráðs og hefur fræðsluráð það nú til athugunar. Tilraun í þessa átt var gerð með enskukennslu í 11 og síðan 12 ára bekk í Melaskólanum og álíka tilraun hefur verið gerð núna f vetur í Langholtsskóla. Með því að samþykkt um þetta var gerð á foreldrafundi f Melaskólanum sneri blaðið sér til skólastjóra Inga Kristinsson- ar og innti hann eftir því hvaða árangur hefði náðst og hvert álit hann hefði á þessu. Ingi sagði, að erfitt væri að segja til íim árangurinn, en það hefði komið í ljós að foreldr- ar hefðu komizt á þá skoðun, að börnin sem lærðu enskuna ung hefðu náð fljótari og betri t-ramh a bls 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.