Vísir - 18.05.1965, Blaðsíða 7

Vísir - 18.05.1965, Blaðsíða 7
V IS 1 k . PriðjiJíl ;í-. 7 m Vörusýning í Reykholti Merkilegt námskeið var haldið fyrstu viku þessa mánaðar í Reyk holt'i i Borgarfirði. Það var véla- námskeið, sem Æskulýðsnefnd Mýra og Borgarfjarðarsýslu stóð fyrir, en síðasta daginn fór fram sýning á landbúnaðartækjum, dráttarvélum og tengitækjum og komu 500 manns til að sjá þessa sýningu, þar sem 10 fyrirtæki sýndu. Námskéiðið sóttu fjölmargir og víða að en þau fóru fram á kvöld in og byrjaði sunnudaginn 2. maí en lauk 8. maí að kvöldi og dag- inn eftir hófst sýning og keppni í akstri dráttarvagna, Bjarni Guð- ráðsson í Nesi í Reykholtsdal vann. Efnt var tii ritgerðarsam- keppni vegna námskeiðsins og var ritgerð Sumarliða Vilhjálmsson • ar, ungs bónda á Ferjubakka, dæmd bezt. Frumkvæðið að sýningu þessari og námskeiði átti Ásgeir Péturs- Séð yfir sýningarsvæðið » son, sýslumaður, en Vilhjálmur Einarsson, kennari, var starfsmað ur námskeiðsins og sýningarinnar. Nokkrir námskeiðsmanna skoða Deuts-dráttarvél, en Ragnar Halldórsson starfsmaður frá Hamri er að útskýra vélina. ♦ Finnsk söngkonn í heimsókn Fundur var haldinn á Reyð- arfirði eftir hádegi s.I. fimmtu- dag, og voru þar mættir full- trúar frá 22 síidarverksmiðjum og söltunarstöðvum á Austur- landi. Rætt var um fyrirhugaða síldarflutninga, er einkum myndu beinast að flutningi síld- í ar frá Austfjarðamiðum til j vinnslu í öðrum landshlutum. | Voru fundarmenn andvígir j þeim tillögum, er fram hafa | komið um þá flutninga, og sam j þykktu þeir samhljóða eftirfar- > andi ályktun: „í tilefni af fyrirætlunum, sem uppi eru, um stórfellda síldarflutninga frá Austfjarða- miðum til vinnslu I öðrum lands hlutum, vill fundurinn leggja áherzlu á eftirfarandi atriði: 1) Síldarflutningar að vissu marki eru eðlilegir og sjálf- sagðir. Þá síld, sem ekki er hægt að véita viðtöku í Aust- fjarðahöfnum er eðlilegt að flytja til vinnslu annars staðar. Bendir fundurinn á, að svo geti farið, að síldarvinnslustöðvar á Austfjörðum skorti hráefni, þótt góð veiði sé á Austf jarðamiðum, ef um stórfellda síldarflutninga er að ræða. Þess vegna ber að takmarka síldarflutninga, þannig ið hagur austfirzkra síldariðn- aðarfyrirtækja sé tryggður í hvívetna. 2) Síldarflutningar í stórum stíl hljóta að hafa áhrif á hrá- efnisverð til hækkunar vegna mikils stofnkostnaðar við flutn- ingaskip og umhleðslustöðvar, svo og vegna reksturskostnaðar og afskrifta. Þess vegna ber að takmarka þá eins og kostur er, en leggja þess í stað áherzlu á öra uppbyggingu fjölbreytts sfldariðnaðar á Austurlandi. Þá telur fundurinn, að sú síld, sem flutt verður af Austfjarða- miðum til vinnslu í öðrum lands hlutum, eigi að flytjast til norð- lenzkra verksmiðjubæja en ekki til Suðurlands, þar sem hráefn- isflutningar þangað utan af landi hljóta að auka á jafnvægis leysi í byggð landsins. 3) Fundurinn tekur fram og leggur á það ríka áherzlu, að síldarverksmiðjur og söltunar- stöðvar á Austurlandi og í eigu Austfirðinga taka undir engum kringumstæðum þátt i kostnaði við flutning síldar af Austfjarða miðum til annarra landshluta, hvorki með verðjöfnunargjaldi né á annan hátt. Fundurinn beinir þeirri ein- dregnu ósk til þingmanna kjör- dæmisins, að þeir séu. vel á verði um allt, sem að þessum málum lýkur, og standi vörð um hagsmuni Austfirðinga." í gær kom hingað í boði Tónlistarfélagsins og Norræna félagsins söngkonan Margit Tuure ásamt undirleikara sínum Margaret Kilpinen, ekkju hins fræga tón- skálds Yrjö Kilpinen. Var söngkonan fengin til þess að koma hingað í minningu um Margit Tuure finnska tónskáldið Sibelius, en 1 ár er hundrað ára afmæli hans og hans víða minnzt um Iönd með kynningu á verkum hans. Margit Tuure er vel þekkt mezzo sópransöngkona í heimalandi sínu. í vetur hefur hún haldið söng- skemmtanir í Svíþjóð en áður hefur hún komið fram víða á Norðurlöndunum og einnig haldið söngskemmtanir í Bandaríkjunum og Kanada. Hér syngur söngkonan á tveim tónleikum Tónlistarfélagsins og eru það síðustu tónleikamir, sem haldnir verða í vor. Söngkonan fer einnig út á land og mun syngja á Akureyri, Akranesi, Selfossi og Hvolsvelli og verður það á vegum tónlistarfélaganna og norrænu fé- laganna þar. Söngkonan mun e. t. v. syngja víðar. Á efnisskránni verða átta lög eftir Kilpinen, sem nefndur hefur verið Hugo Woolf Norðurlanda og tíu lög eftir Sibelius. Tónleikarnir I Reýkjavík verða I að vanda í Austurbæjarbíói og I hefjast kl. 7.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.