Vísir - 02.06.1965, Page 11
KR náíi jafntefli gegn íslands-
meisturunum á heimavellinm
Jöfnuðu 8 mínútur fyrir
Vur eitt skot KR innun
Það er aumt hlutskipti að vera leikmaður í 1. deild
og leika í veðri, eins og því, sem Keflavík og KR fengu
í gærkvöldi I Njarðvíkunum. Enn aumara er þó að
vera áhorfandi þarna á berangri og hafa ekkert skjól
og líklega alaumast að vera íþróttablaðamaður, því
útilokað er með öllu að fylgjast þannig með leik á
„stadion“ þeirra Njarðvíkinga að hægt sé að mynda
sér fullnægjandi skoðun á leik.
Fjöldi áhorfenda kom í slagviðr
inu og horfði á þennan blautasta
allra blautra 1. deildarleikja í sum
ar og raunar verður ekki annað
sagt en að leikurinn hafi verið
góð skemmtun, því hann var spenn
leikslok
murkiínu ?
andi frá upphafi til enda og þó að
veðrir og hálkan á vellinum hafi
spillt mjög fyrir brá þó oft
fyrir snotrum samleik eða samleiks
tilraunum liðanna.
Keflavlk sótti á móti veðrinu í
fyrri hálfleik og skoraði eina mark
hálfleiksins, en KR sótti þó mun
meira í þeim hálfleik. Sama sagan
endurtók sig í seinni hálfleik. Þá
sóttu Keflvíkingar með veðri, en
KR skoraði markið og lauk leikn
um með réttlátu jafntefli.
Karl Hermannsson skoraði mark
Keflavíkur eftir 14 mín. leik í
fyrri hálfleik og var greinilegt á
hinum miklu fagnaðarópum að
Keflavík var á sfnum heimaveili.
Markið kom eftir að sótt var upp
hægra megin en Karl fékk sæmi-
legt færi á að skjóta, stóð fyrir
miðju marki úti í vítateignum og
skaut mjög vel.
Ellert Schram átti heiðurinn af
marki KR, hann skallaði upp úr
homi niður í mark Kefiavíkur en
Theódór innherji KR setti boltann
í mark og jafnaði 1:1. Þetta gerðist
8 mínútum fyrir leikslok.
Það sem eftir var leiksins var
mjög spennandi. KR-ingar sóttu
fyrst í stað og ógnuðu verulega
a.m.k. f eitt skipti. Keflvfkingar
sóttu síðan og komust alllangt og
ógnuðu ekki sfður.
Eitt atvik gerðist f þessum leik
og verður raunar ekki annað en
spurningarmerki. Það var skot Guð-
mundar Haraldssonar, hörkuskot í
þverslá, sem hrökk skáhallt inn að
marklínunni, — og að sögn þeirra
Ijósmyndara sem stóðu bak við
markið, var boltinn greinilega all-
ur fyrir innan, en dómarinn var á
öðru máli og línuvörðurinn fylgdi
ekki með og var ekki í aðstöðu
til að dæma hvort boltinn var inni
eða ekki.
;?Ánn &þpira&veJji,r[Liðið hgfpr yfir
miklum hraða að ráða, leikmenn
skilja greinilega mikilvægi þess að
vera stöðugt á hreyfingu, jafnvel
þótt þeir hafi ekki boltann og
kannski ekki sfzt þeir leikmenn og
Kjartan Sigtryggsson slær eitt skot
KR-inga yfir markslána.
þess vegna eru sjaldnast vandræði
á að finna „frían“ leikmann. Þetta
mættu önnur lið taka til fyrirmynd
ar.
KR-liðið var með veikara móti
í þessum leik og raunar má það
sama gilda um Keflavíkurliðið og
var veðrið aðaJorsök;,þ^gsa.; Engir
einstaklingar voru þvl-nálægt sinni
getu, nema markvarðirnir sem
stóðu sig mjög vel þeir Heimir Guð
jónsson hjá KR og Kjartan Sig:
tryggsson hjá Keflavfk.
Dómari var Hannes Þ. Sigurðs-
son og dæmdi ágætlega — jbp.
R . Mlðvikudagur 2. júní 1965.
Unglinganámskeið
og hér bjargar Heimir með því að hlaupa út fyrir vftateig og spyrna af hættusvæðinu.
Lóða-standsetningar
Njótið frísins í fögru umhverfi. — Við skipu-
leggjum og standsetjum lóðir, tyrfum og hellu-
leggjum. — Útvegum allt efni sem til þarf.
Uppl. og verkpantanir í síma 22962 milli kl.
10—13 og eftir kl. 19.
Aðalfundur T.B.K.
verður haldinn í Silfurtunglinu kl. 8 í kvöld.
Stjórnarkjör og lagabreytingar.
S t j ó r n i n .
Stúlka óskast
Stúlka (helzt vön) óskast nú þegar til af-
greiðslustarfa í kjörbúð. Uppl. í síma 12112
kl. 6—7 e. h.
17. júní
mótið
Frjálsíþróttakeppnin 17. júnf fer
fram dagana 15. og 17. júni n.k.
Keppt verður í þessum greinum:
110 m grindahlaup, 100 m hlaup,
100 m hlaup kvenna, 100 m hlaup
sveina 200 m, 400 m, 800 m, 1500
m, 3000 m hlaup, 4x100 m boð-
hlaup, 1000 m boðhlaup, kringlu-
kast, sleggjukast, spjótkast, kúlu
varp, stangarstökk, langstökk, lang
stökk kvenna, hástökk og þrfstökk.
Þátttaka er opin öllum félögum
innan ÍSI’ og skal þátttaka tilkynnt
til ÍBR fyrir 13. júní n.k.
á íþróttavöllunum
Á morgun, fimmtudag, hefjast
á fjórum fþróttasvæðum í
Reykjavfk námskeið f fþróttum
og leikjum á vegum Æskulýðs
ráðs, Leikvallanefndar, íþrótta-
bandalagsins og Iþróttavallanna.
Verða námskeið þessi fyrir börn
og unglinga á aldripum 5—13
I/,: ibnsd
Á þriðjudögum, fimmtudög-
um og laugardögum i verður
kennt á þessum stöðum: i
ÁrmánnssVæði, Þróttarsvæði
(Skipasundi), Golfvelli, og Álf-
heimabletti.
Á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum verður
kennt á þessum svæðum:
KR-svæði, Valssvæði, Fram-
velli og Víkingsvelli.
Á hverjum stað verður nám-
skeiðunum tvískipt, fyrir hádegi
kl. 9,30—11,30 verður tekið við
börnum 5—9 ára en eftir há-
degi yið eldri börnum. 9—13
ára, Jog þá kl. 14—16. Á hverj
um stað verða 2 íþróttakennar-
aí, sem leiðbeina börnunum.
Innheimt verður vægt þátttöku
gjald fyrir tímabilið, sem verður
4 vikur, gjaldið er kr. 25.00.
Allar upplýsingar eru veittar í
síma 15937 (Æskulýðsráð) kl
2—4 og 35850 (IBR) kl. 4—6
daglega.
Þróttur vann 12:0 i 2. deiíé
Þróttur vann Skarphéðin í 2.
deild f fyrrakvöld með 12 mörk
um gegn engu. I hálfleik var_
staðan 4:0
Var um hreina yfirburði Þrótt
ar að ræða og hefur annað eins
„burst“ ekki sést í meistara-
flokki lengi. Auk þessa glumdu
skot í stöngunum og fram hjá
markinu.
Haukur Þorvaldsson skoraði 6
af mörkum Þróttar, eða tvöfalt
„hat-trick“ og er það sömuleið-
is óverijulegt i kanttspymu.