Vísir


Vísir - 03.07.1965, Qupperneq 5

Vísir - 03.07.1965, Qupperneq 5
VI S IR . Laugardagur 3. júlí 1965. 5 utlönd í morgun- útlönd í «nprsun útlönd í morgun útlönd í morgun heims horna milli Per Hækkerup, utanríkis- ráðherra Dana, sagði í gær, að si t myndi verða á núver- e, 'V p. fiðleikum innan EBE og e ; jri víst að þeir þyrftu að ' a nein áhrif á tilraunirn ar til þess að brúa bilið milli EBE og Efta (Fríverzlunarbanda Iagsins). Hækkerup gegnir nú formannsstöðu í ráði EFTA. (NTB-frétt frá Genf). ★ Rússar hafa skotið á loft nýjum Kosmos gervihnetti, Kos mos 70 ★ 37 manns meiddust í spor- vagnaárekstri í gær í Vestur- Berlín. Fyrir 3 dögum varð á- rekstur milli neðanjarðarlesta í Vestur-Berlín. ic Tveir SAS-flugmenn, sem fljúga á leiðum til Norður-Nor- egs hafa verið sviptir störfum vegna þess að þeir neyttu á- fengis áður að lagt var af stað í flugferð. ★ Horfur á myndun bráða- birgðastjórnar í Dominiku hafa batnað. ir Ludwig Erhard ' kanslari Vestur-Þýzkalands hefir fund Olíubær / björtu búb eft- ir bundurisku sprengjuárás með ambassadorum Bretlands, Frakklands og Bandarikjanna eftir helgina til þess að ræða Berlínar-vandamálin. Fundur um sömu mál var 24. júní s.l. ► Nýjum gervihnetti til veð- urathugana var skotið á loft frá Kennedyhöfða í morgun. Vonazt er til, að frá honum berist tákn sem veiti upplýsing ar um aðvífandi hvirfilvinda. ► Seinustu skoðanakannanir á Bretlandi leiða í Ijós, að ef gengið væri til kosninga nú á Bretlandi myndu aðeins 44,4% kjósenda kjósa Verkamanna- flokkinn. ic Skrifborð frá um 1700, smíðað af húsgagnasmiðnum Chippendale, var selt á uppboði í gær í London fyrir nærri 6 milljónir króna. ic Gullforði Bandaríkjanna er nú minni en nokkru sinni síðan 1938 og er þó enn að verðmæti 5000 milljónir sterlingspunda Gull- og gjaldeyrisforði Frakka er stöðugt vaxandi og nú við misseraskiptin 26,4 milljónir nýfranka. Bandarískar sprengjuflugvélar fóru í gær til árása á olíubæ í 65 km. fjarlægð frá Hanoi í Norð ur-Vietnam. Þar með var mönnum í Norður-Vietnam gert Ijóst, að að varanir á flugmiðum að undan- förnu um slíkar aðgerðir, voru ekki orðin tóm, og að fleiri munu eftir fara. Eldsúlur stigu 60 metra í loft upp og reykjamekkir 3,500 metra og sáust úr 300 km. fjarlægð. Olíubær þessi nefnist Nam Dinh. Átta stórir olíugeymar stóðu í björtu báli þegar sprengjunum hafði verið varpað. Flugvélamar komu frá flugvélaskipi. Sprengju- árásir hafa aldrei fyrr ver'ið gerðar svo ná'lægt Hanoi. Og þessi loftárás var ein af þremur á stöðvar nálægt Hanoi en í fyrradag var varpað niður 320.000 flugmiðum til þess að vara menn við að vera nálægt stöðvum, sem árásir kynnu að verða gerðar á, svo sem olíubirgðastöðvar, her- mannaskála o. s. frv. jgpnn Sá er hæst gnæfir á myndinni er Westmoreland yfirhershöfðingi banda- ríska liðsins í Suður-Vietnam. Með honum á myndinni eru liðsforingj- ar verkfræðingasveitar frá Suður-Kóreu, sem nú er í Suður-Vietnam. Og nú er von á heilu herfylki, sem á að berjast með stjórnarhernum (sbr. frétt í blaðinu í gær). Kona skolar þvott sinn Iíkt og íslenzkar húsmæður gerðu áður til sveita. Á flækingi um Suður-Tíról Framh. af bls. 9. manna her eftir þessari gjá til að berja á Tírólarbúum, sem voru Napóleon erfiður Þrándur í Götu. í fararbroddi þessarar hersveitar fóru Saxar, sem gert höfðu hernaðarbandalag við franska einvaldinn. En einnig í þetta skipti reyndust Tírólar- búar Napóleon erfiður ljár í þúfu. Þeir söfnuðu liði undir forystu einna ótrauðustu frels- ishetju sinnar, Speckbacher’s og veittu hernum fyrirsát, þar sem nú er Saxaklípa. Frakkar biðu þar hinn herfilegasta ó- | sigur og urðu að leggja á flótta. Árið 1933 byggðu Austurríkis menn virki þvert yfir veginn í gljúfrinu. Það heitir Franzens- virki og stendur enn. Vegurinn liggur í gegnum það. Rétt hjá Franzensvirki varð slys í gljúfrinu sama daginn og ég var þar á ferð. Þýzk fólksbif reið sem var á suðurleið, ók fram úr stórri vöruflutninga- bifreið, en rétt í þann mund sem fólksbifreiðin var að kom- ast fram úr vörubílnum kom bíll á móti. Bílstjórinn á þýzku bifreiðinni snarbeygði þá i veg fyrir vörubílinn, en svo nálægt að árekstur varð ekki umflúinn Og hann varð gífurlega harður. Fólksbíllinn varð að ruslahrúgu á eftir, en allt lauslegt í honum þ. á m. bæði ökumaðurinn og kona hans lentu I loftköstum út úr honum og stönzuðu ekki fyrr en úti £ gljúfri og straum- harðr'i á, er fellur meðfram veg inum. Þarna voru þau andartaki síðar veidd upp, bæði með lífs- marki, en svo alvarlega slösuð að þeim varð vart hugað Hf. — Peningaveski Þjóðverjans fannst líka á floti í ánni og í því peningar að andvirði 1 millj. íslenzkra króna. Trúardeilur í Tíról. Brixen er næsti áfangastaður. Það er stærsta þorpið, sem enn hefur orðið á vegi okkar sunn- an Brennerskarðsins. Og nú tek ur skarðið fyrst á sig dalmynd- un. Það sér undirlendi í dalnum með suðrænum trjám og öðrum gróðri sem sjaldgæfur er norð- an Alpafjalla. Brixen hefur frá öndverðu komið mikið við sögu Tíról og frelsisbaráttu íbúanna. Það geymir margar sögulegar minj- ar, en fyrst og fremst þó kirkju lega og trúarlega list, því þar sátu biskupar og ríktu strangt yfir mönnum og málefnum til foma. Það var veldi út af fyrir sig. En e.t.v. vegna þess hve þetta vald var mikið og strangt og lagði mönnum þungar byrð- ar á herðar, en Tírólbúar í hina röndina frelsisunnandi, kom oft ar en einu sinni til mikilla á- taka á trúarlegú sviði í Brixen og nágrenni þess. Enda þótt í- búarnir hafi frá öndverðu verið kaþólskir, og meira að segja rammkaþólskir. þá hafði Lúther samt mikil áhrif á þessu sviði á sínum tfma og kenn'ingar hans festu djúpar rætur um skeið, jafnv. svo að til eins konar trú arstyrjaldar kom í Brixen og umhverfi þess. Ástæðan mun tvímælalaust hafa verið sú, að íbúunum hefur fundizt ka- þólska kirkjuvaldið vera of strangt og að hin nýja trú boð aði meira frjálsræði en þeir höfðu vanizt. Það voru bændur sem uppreisn gerðu gegn kirkju valdinu. Foringi þeirra var frá Sterzing og hét Michael Geis- mager. Þeir léku kaþólska kirkjuvaldið grátt, rændu kirkj ur og klaustur og hæddu rnunka og biskupa. Uppreisnin var að vísu brotin á bak aftur og for- ingjarnir styttir sem höfðinu nam, en þrátt fyrir það unnu bændur all mikið á við þessa uppreisn. Þeir hlutu aukin fríð indi og réttindi, sem þeir höfðu ekki áður haft og þeir voru ekki skattpíndir í sama mæli og áður hafði verið. Á 16. öld greip ný trúar- hreyfing um sig í Suður-Tíról, sem fór um landið eins og eld ur í sinu og olli kaþólskum ekki síður áhyggjum en lút- herska trúarhreyfingin á öld- inni næstu á undan. Þetta var hreyfing svokallaðra endur- skírara. Áhangendur hennar kölluðu sig innbyrðis bræður og systur og bræðrafélag trúar samtök sín. Reglur og boðorð voru mjög í lausum skorðum. Mestu máli skipti að menn trúðu á guð, en afneituðu heil agri þrenningu. Þeir kenndu að Kristur hafi verið maður en ekki guð. María móðir hans var hvorki mey né guðsmóðir, heldur venjuleg kona, sem hafði eignazt og alið Jesú son sinn með eðlilegum og venjulegum hætti. Þeir vildu ekkert hafa með he'ilagt sakramenti að- gera og tölau barnsskírn fá- sinnu eina, því barnið væri þess ekki umkomið að gera sér grein ■ fyrir gildi trúar eða skírnar. Menn æ'ttu ekki að skírast fyrr en þeir væru fullorðnir. þá fyrst hefði skírnin gildi Allar illdeilur og málaferli voru þeim þvert um geð og gegn vilja guðs. Sama máli gegndi um styrjaldir. Enginn kristinn mað ur ætti að taka þátt f þeim. Þessi trúarhreyfing átti meiri eða minni ítök f íbúunum f meira en heila öld, þá fyrst tókst að útrýma henni að fullu og öllu, en það hafði kostað meira en eitt þúsund mannslíf á báli, auk þeirra sem háls- höggnir höfðu verið eða drekkt fyrir trúarsannfæringu sína.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.